Morgunblaðið - 12.12.1997, Blaðsíða 1
104 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
284. TBL. 85. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 12.. DESEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Drakk of
mikið af
messuvíni
London. The Daily Telegraph.
BRESKUR prestur hefur verið
sviptur ökuleyfinu í eitt ár þar
sem hann var staðinn að ölvun-
arakstri eftir að hafa drukkið of
mikið af messuvíni.
Jacek Trochim, 62 ára kaþ-
ólskur prestur, reyndist hafa
helmingi meira áfengismagn í
blóðinu en leyfilegt er. Ökumað-
ur hringdi í lögregluna þegar
hann sá prestinn stíga út úr bif-
reið sinni við bensínstöð og
hrasa. Trochim viðurkenndi
fyrir rétti að hafa verið drukk-
inn undir stýri og sagðist hafa
þurft að klára vígða vínið eftir
messu. Talsmaður fjölmiðlamið-
stöðvar kaþólsku kirkjunnar í
Bretlandi staðfesti að ekki
mætti hella niður messuvíni eft-
ir guðsþjónustu. Prestar gætu
óskað eftir aðstoð messuþjóna
við að klára vínið teldu þeir að
of mikið væri eftir af því.
Samkomulag um takmarkanir á losun gróðurhúsalofttegunda
Leiðtogar iðnríkja
fagna niðurstöðunni
Efasemdir um að gengið
hafi verið nógu langt
London. Reuters.
LEIÐTOGAR helstu iðnríkja heims fógnuðu í gær samkomulagi
sem náðist á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kyoto í fyrrinótt
um að takmarka útblástur gróðurhúsalofttegunda. Umhverfís-
verndarsamtökin Greenpeace lýstu þó niðurstöðunni sem
„hörmulegu slysi og skrípaleik“ og margir fulltrúar á ráðstefn-
unni höfðu áhyggjur af því að ekki hefði verið gengið nógu langt.
„Þetta er ekki nógu gott fyrir framtíðina,“ sagði Ritt Bjerre-
gaard, sem fer með umhverfismál í framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins. „Við hefðum viljað að þátttakendurnir sýndu meiri
metnað.“
Blair tekurá móti Gerry Adams í Downingstræti 10
Reuters
GERRY Adams, leiðtogi Sinn Fein (3. frá hægri), og Martin McGuiness, aðalsamningamaður flokksins í við-
ræðunum um Norður-Irland, standa milli fjögurra fulltrúa Sinn Fein við Downingstræti 10.
Greenpeace sagði að samkomulag-
ið yrði ekki til þess að losun loftteg-
unda, sem valda gróðui-húsaáhrifun-
um, minnkaði í reynd fi’á því sem hún
var árið 1990. „Greenpeace hefur lýst
niðurstöðu loftslagsfundarins í Kyoto
sem hörmulegu slysi og ski’ípaleik
vegna þess að hún er algjörlega ófull-
nægjandi til að draga úr umhverfis-
áhrifum loftslagsbreytinganna."
„Mjög gott samkomulag“
Bill Clinton, forseti Bandai’íkjanna,
fagnaði samkomulaginu, sem skuld-
bindur Bandaríkjamenn til að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda um
sjö prósent á tímabilinu frá 2008 til
2012 frá því sem hún var 1990.
Clinton sagði að Bandaríkjastjóm
hefði fengið það sem hún vildi í
Kyoto, meðal annars hefði verið fall-
ist á viðskipti með úblásturskvóta.
„Eg vildi að samkomulagið hefði ver-
ið sterkara hvað varðar þátttöku þró-
unarlanda en við ruddum brautina...
þetta er mjög gott samkomulag."
Litlu munaði að ráðstefnan í Kyoto
færi út um þúfur síðasta sólarhring-
inn vegna deilu um þátttöku þriðja
heims ríkja í samkomulaginu og
Bandaiíkjastjóm beitti sér fyrir því
að þróunarlöndin skuldbyndu sig til
að takmarka losun gróðurhúsaloft-
tegundanna. Stuart Eizenstat, að-
stoðarutani-íkisráðhen’a og aðal-
samningamaður Bandaríkjanna, lét í
ljós óánægju með að ekki skyldi hafa
tekist að semja um slíkar skuldbind-
ingar af hálfu þróunarríkjanna.
Bandarískir þingmenn, sem fylgd-
ust með ráðstefnunni, sögðust sfast
um að samkomulagið yrði staðfest í
öldungadeild Bandaríkjaþings, þar
sem repúblikanar eru í meirihluta.
Iðjuhöldar áhyggjufullir
I samkomulaginu felst að iðnríkin
eiga að draga úr útblæstri gróður-
húsalofttegunda um 5% að meðaltali
á tímabilinu frá 2008 til 2012 miðað
við árið 1990.
Þjóðverjar sögðu að þeir myndu að
*
Reuters
AL Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna, lýsti því yfír á blaða-
mannafundi í Hvíta húsinu í gær
að bandaríska stjórnin hygðist
reyna að fá helstu þróunarlönd
hcims til að skuldbinda sig til að
takmarka losun gróðurhúsaloft-
tegunda áður en samkomulagið í
Kyoto yrði lagt fyrir Bandaríkja
þing til staðfestingar.
öllum líkindum geta staðið við það
mai-kmið að draga úr útblæstrinum í
Þýskalandi um 25% ekki síðar en árið
2005 þótt Evrópusambandið hefði að-
eins skuldbundið sig til að minnka
hann um 8%. Hans-Olaf Henkel, for-
maður samtaka þýski-a iðnrekenda,
kvaðst þó óttast að þetta kæmi niður
á samkeppnisstöðu þýskra fyrir-
tækja.
Japanar féllust á að minnka
úblásturinn um 6% og frammámenn í
japönsku viðskiptalífi létu í Ijós
áhyggjur af þvi að erfitt kynni að
verða að standa við skuldbindingar
Japana, sögðu þær geta skaðað
samkeppnisstöðu þeirra.
John Howard, forsætisráðherra
Astralíu, lýsti samkomulaginu sem
„frábæm niðurstöðu". Ástralía er á
meðal þriggja iðnríkja sem mega
auka útþlásturinn.
■ Tímamótasamkomulag/43
„Gott sögu-
legt augnablik“
London. Rcuters.
GERRY Adams, leiðtogi Sinn Fein,
stjórnmálaflokks írska lýðveldis-
hersins, IRA, átti í gær sögulegan
fund með Tony Blah’, forsætisráð-
herra Bretlands, í bústað forsætis-
ráðherrans í Downingstræti 10. Að
fundinum loknum sagði Adams hann
hafa verið „gott sögulegt augnablik".
Talsmaður Blairs kvað forsætisráð-
herrann hafa sagt viðræðurnar
„uppbyggilegar og jákvæðar“. Sam-
bandssinnai- eru afar ósáttir við
fundinn og stóðu m.a. fyrir mótmæl-
um fyrir utan fundarstaðinn.
„Við megum ekki vanmeta ei’fið-
leikana en þetta var engu að síður
gott augnablik í sögu samskipta
Breta og Ira vegna þess að þau
augnablik eru venjulega slæm. I dag
var augnablikið gott,“ sagði Adams.
Blair kvaðst hafa sagt Adams að
Sinn Fein fengi ekki að taka þátt í
viðræðunum um framtíð Norður-ír-
lands ef þeir stæðu ekki við vopna-
hlésyfirlýsingu sína.
Blair ekki myndaður
með Adams
Leiðtogi lýðveldissinna á Norður-
írlandi hefur ekki stigið inn í breska
forsætisráðherrabústaðinn í 76 ár og
var það því söguleg stund er Adams
gekk á fund Blairs. Forsætisráð-
herrann lét ekki mynda sig með Sinn
Fein, fullyrt er að hann hafi ekki vilj-
að gefa Sinn Fein slíkt áróðurstæki-
færi upp í hendurnar.
Með fundinum umbuna bresk yfir-
völd Sinn Fein fyrir vopnahlé IRA,
sem staðið hefur í fimm mánuði.
Ráðningar-
skrifstofur
utan Noregs
NORSKA vinnumálastofnunin
íhugar nú að senda starfsmenn
til Svíþjóðar, Finnlands, Þýska-
lands og Frakklands til að fá
fólk til starfa í Noregi.
Með þessu hyggst vinnu-
málastofnunin taka á fyrirsjá-
anlegum skorti á vinnuafli en
gert er ráð fyrir að árið 1999
þurfi að fá um 20.000 starfs-
menn frá útlöndum til að mæta
þörfinni.
Vonast Norðmenn til að
flestir þeirra komi frá löndum
sem aðild eiga að EES-samn-
ingnum en til þess að svo megi
verða telur vinnumálastofnunin
nauðsynlegt að senda fólk úr
landi til að ráða útlendingana
til starfa, að sögn Ted Hanisch,
forstöðumanns stofnunarinnar.
IRAKAR vörðu í gær aftökur á
fjdrum Jórdönum, sem íraskur
dómstóll dæmdi til dauða fyrir
smygl, og sögðust hissa á þeirri
ákvörðun Jórdaua að vísa flestum
stjórnarerindrekum íraks úr landi
í mótmælaskyni. Jawad Anani, for-
sætisráðherra Jórdaníu (t.v.),
reynir hér að hugga föður eins
fjórmenninganna á flugvellinum í
Amman þegar lík þeirra voru flutt
þangað í gær.