Morgunblaðið - 12.12.1997, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 12.12.1997, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Skelfar breyt- ast í engla Þátíð og nútíð N^jar bækur • HULD ULANDIÐ er eftir Vig- fús Björnsson. í bókinni eru náttúrulýsingar, þjóðleg fræði, leiðsögn, sagnir og sögur af skag- anum milli Eyjafjarðar og Skjálfanda. Auk höfund- ar skrifa í bók- ina Erlingur Amórsson, leið- sögn um Flat- eyjardalsheiði, Flateyjardal og Flatey. Hlöðver P. Hlöðversson ritar leiðsögn um Náttfaravíkur og leiðsögn um Látraströnd er byggð á ritgerð Jóns Eyfjörð um Látraströnd. Útgefandi er Kornið, forlag. Bókin er 336 bls. með 240 litmynd- um og 14 kortum af örnefnum, leiðum og eyðibýlum. Ver: 3.900 kr. • UM skáldskaparlistina Aristóteles í þýðingu Kristjáns Amasonar, sem einnig ritar inn- gang. Bókin er endurútgefin. Aristóteles, lærisveinn Platons, telst einhver áhrifamesti heim- spekingur sögunnar og liggja eftir hann rit á fjölmörgum sviðum. I upphafi þessa rits lýsir hann ætlun sinni með svofelldum orðum: „Um skáldskaparlistina sem slíka skal hér fjallað og hinar einstöku grein- ar skáldskapar, um áhrifamátt hverrar um sig sem og um það, hvemig semja skuli, þannig að góður skáldskapur geti talist, enn- fremur um þá þætti, sem skáld- verk em ofin úr, hve margir og hverjir þeir séu, og um annað það sem kann að falla undir slíka rann- sókn.“ Útgefandi er Hið íslenska bók- menntafélag. Um skáldskaparlist- ina er Lærdómsrit Bókmenntafé- lagsins. Ritstjóri er Þorsteinn Gylfason. Leiðbeinandi verð: 1.927, félagsmannaverð kr. 1.542. EINI DJÚPSTEIKINGARPOTTURINN MEÐ HALLANDI SNÚNINGSKÖRFU: * Olíunotkun aðeins 1,2 Itr. í stað 2,5 Itr. í venjul. pottum. * Styttri steikingartími, jafnari steiking og 50% orkusparnaður. * Einangrað ytrabyrði og sjálfhreinsihúðað innrabyrði. * Gluggi á loki og 20 mín. tímarofi með hringingu. FALLEGUR FYRIRFERÐARLÍTILL FLJÓTUR. Verð aðeins frá kr. 7.390,- til kr. 16.800,- (sjá mynd). /rOniX HÁTÚNI6A REYKJAVIK SÍMI 552 4420 BÆKUR It a r n a b ó k BESTI JÓLALEIKUR ALLRA TÍMA eftir Barböru Robinson. Myndir: Judith Gwyn Brown. Þýðing: Jón Danielsson. Utgefandi: Bókaút- gáfan Skjaldborg 1997. 107 sfður. ÞEIM ykkar sem lásuð í fyrra „Besta skólaár allra tíma“, þarf ömgglega ekki að kynna fyrir Hardman-systkinum, svo eftir- minnileg eru þau, aðeins segja ykkur, að í þessari bók eru þau enn á för. Nú, öðram skal sagt, að systkinin em 6, slíkir ógnvaldar sómakæru fólki, að saga kann ekki frá öðmm meiri að greina. Faðir þeirra, blessaður, flúði af heimilinu, þegar það yngsta var tveggja ára, hefir ekki látið í sér heyra síðan, og þeir, sem þekkja „börnin“, lá honum ekki. Móðir þeirra vinnur tvöfaldan vinnudag, og þá yfírvöld félagsmála buðu henni aðstoð, svo hún gæti varið lengri tíma með börnunum, þá grátbað hún um, að sá „kaleikur" yrði sér ekki réttur, streðvinnu kysi hún heldur! Kennarar forð- ast að rétta ormunum einkunnir eftir frammistöðu, hver myndi lifa það af, að hafa þau öll 6 í sama bekk, þeim neðsta? Ertu farinn að átta þig á, hverju þau líkjast? Brenninetlum? Nei, frekar höltu, rófubrotnu, eineygðu kattaróféti, (eg á við innrætið) sem er slíkur skelfir, að póstur hefir ekki langa lengi verið borinn út til Hardman- fjölskyldunnar. Nefndu löstinn, - og eg fullyrði við þig, að enginn, allsenginn hefði jafnleikinn getað stært sig af honum sem þau systkin. Jú, einu eftir því sem Beth, sögumaður, tjáir mér, fíkni- efni þekktu þau ekki, utan vindla, en þá svældu þau, svo vart hefir betur verið gert. Frú Armstrong, kvenskörang- ur sem hafði lagt allt undir sig í söfnuðinum, nema predikunar- stólinn, lendir, fótbrotin, á spítala. Þetta var rétt fyrir jól, og svo lengi sem hún hafði búið í sókn- inni, þá hafði hún æft og stjómað helgileik, um fæðingu frelsarans. En nú var hún forfölluð, og móðir sögukonu fékk það vandasama hlutverk að æfa börnin og færa upp leikinn. Margt fer á annan veg en ætlað er, það fengu grann- ar Hardman-fjölskyldunnar enn að reyna. Aður en nokkur gat rönd við reist höfðu þessi líka þokka börn lagt undir sig öll aðal- hlutverk leiksins! Skelfileg til- hugsun! Skömm! Guðlast? Oft fer þó á annan veg en óláns- hrakspár benda til, og svo reynd- ist þessu sinni. Hardman-systkin krufu leik til kjarna, breyttu og staðfærðu svo söfnuður varð allur að augum og eyram. Margur taldi sig skynja fæðing frelsarans á nýjan hátt, ekki sem gamla, fal- lega sögu sem raggar fólki í svefn, og til draums um jólasteik, heldur hrópandi ákall jötubarns- ins: Hvað ætlar þú að gera við mig? Höfundur er ekki aðeins fynd- inn, heldur drepfyndinn. Svo stílfimur að unun er að. Já, Bar- bara kann að segja sögu. Slíkan höfund er erfitt að þýða, - en til verksins valdist annar stílistinn til, og hrifningin í sál hans er slík, að hjartslög Barböru birtast í ís- lenzkum skartklæðum. Myndir bráðvel gerðar, falla vel að efni, - lifandi, - fyndnar. Sig. Haukur BÆKUR 1‘ýdil skáldsaga MINNISBÓKIN eftir Nicholas Sparks. Þýðandi Sig- ríður Halldórsdóttir, þýðandi bundins máls Þrándur Thoroddsen. Vaka- Helgafcll 1997 - 190 bls. ÁSTARSÖGUR eru hefðbundið skáldsagnarform. I þeim flestum eru tveir karlar að keppa um hylli sömu konunnar og hún þarf að velja á milli. Oftast er valið auð- velt en eitthvað kemur í veg fyrir að elskendurnir nái saman og þá kemur annar karl til sögunnar. Keppnin er líka oft á milli áhættu og stöðugleika. Minnisbókin er að þessu leyti hefðbundin ástarsaga, framan af að minnsta kosti. Allie er 15 ára þegar hún kemur til heimabæjar Noah, vegna við- skiptaerinda fóður hennar. Noah er 17 ára og þau eyða sumrinu saman í óþökk foreldra hennar. Um haustið fer Allie aftur heim og Noah skrifar henni fullt af bréfum en fær aldrei svar. Hann skrifar síðasta bréfið þremur ár- um síðar en reynir öðru hvoru að hafa upp á henni. Hann flytur sig oft á milli vegna vinnu og á nokkr- ar kærustur. I stríðinu skráir hann sig í herinn. Eftir stríð áskotnast Noah peningar, hann snýr aftur og hlúir að fóður sínum sem lifir þó ekki lengi. Allt í heimabæ hans minnir á Allie og einn góðan veðurdag er hún kom- in í heimsókn. Allie stundar nám í listaskóla og málar en í stríðinu fer hún að hlúa að sjúklingum. Hún um- gengst mest fólk í „hennar stétt“ og leggur pensilinn á hiliuna. Aflie kynnist Lon, vel stæðum, mikilsmetnum, ríkum lögfræðingi sem er átta árum eldri en hún. Það líða fjögur ár þar til þau trú- lofa sig og þá fer Allie að heim- sækja Noah. Noah veit alveg hvað hann vill og hefur alltaf vitað það. Allie hins vegar vegur salt á milli tilfinninga og ráðandi hugsunarháttar í um- hverfi hennar. Hún situr hjá Noah, leggur saman og dregur frá kosti og galla hvors um sig. Val Alliear byggist á útreikningum og kannski þeirri staðreynd að hún hefur aðeins átt einn elskhuga svo hún getur ekki gert samanbm-ð á öllum sviðum. Hver útkoman er úr reikningsdæminu fá lesendur ekki að vita strax. Sögumaðurinn er Noah í ellinni. Hann er kominn á elliheimili og segir fi-á fyrstu kynnum hans og Alliear, endurfundunum 14 árum síðar og ellinni. Allie er mjög veik og hálfvegis út úr heiminum en Noah heimsækir hana eins oft og hann getur og les fyrir hana minnisbókina. Noah á enn á ný í samkeppni um hylli konunnar sem hann elskar en nú er keppi- nauturinn illvígur sjúkdómur. Þeim dugh- ekki að ástin sé minn- ingin ein og sér heldur vilja þau hana hér og nú. Ástin er jafnmikill drifkraftur atburða gamals og las- burða fólks og þefrra sem yngri eru. Og það er hér sem Minnis- bókin beygir út af hefðbundnu brautinni og verður minnisstæð. Þýðendur eru tvefr og skipta á milli sín bundnu og óbundnu máli. Verkið er ekki bara um tilfinning- ar og ljóð heldur er þónokkuð af ljóðum í því sem koma tilfinning- um og andrúmslofti betur til skila. Ekki var gerður samanburður við frumtexta en örlitlir hnöki-ar eru í prófarkalestri. Kristín Ólafs Hvar færðu nýjan bíl fyrir 638.554 kr. án vsk ‘ \ SSfa ■BraSSp^ 'á BTa >jíjtmt ? FELICIA | ',-Í i ... eða aðeins 795.000 kr. með virðisaukaskatti. Hvort sem þú leitar að snattbíl í fyrirtækið, skutbíl fyrir efni og tæki eða plássi lyrir alla fjölskylduna, þá er Skoda Felicia hreint ótrúlega hagstæður valkostur. Skoðaðu Skoda Felicia og sjáðu hvað hægt er að gera fyrir rétt rúmlega sex hundruð þúsundl Verð: 638.544 án vsk. Felicia LX: 1.300 vél, 5 gíra, Bosch-Monomotronic innsprautun, hæðarstillanleg öryggisbelti, 4 hnakkapúðar, barnalæsingar á aftur- hurðum, halogen aðalljós, hæðarstilling á framljósum, tann- Nýbýlavegi 2 • Sími 554 2600 Umboðsmenn um land allt: Akranes, Akureyri, Egilsstaðir, Höfn, Reykjanesbær, Vestmannaeyjar. stangarstýri, öryggisstýrisstöng, þokuljós að aftan, hliðarspeglar stillanlegir innanfrá, farangursrými opnanlegt innanfrá, aftursæti niðurfellanlegt 60:40, upphituð afturrúða, afturrúðuþurrka m/tímarofa. Vigfús Björnsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.