Morgunblaðið - 12.12.1997, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
GUÐJÓN A. Rristjánsson, formaður
Fannanna- og fiskimannasambands
íslands, FFSI, lét þess getið er hann
setti 38. þing sambandsins í nóvem-
ber sl., að alls hefði sex málum, sem
öll vörðuðu rökstuddan grun um, að
sjómenn væru látnir taka þátt í
kvótakaupum, verið vísað til opin-
berrar rannsóknar. Var það gert í
kjölfar þess, að bréf barst frá sjávar-
útvegsráðherra 30. nóv. fyrir ári þar
sem hann bauðst til að aðstoða við að
koma málum af þessu tagi rétta leið í
gegnum dómskerfið. Sagði Guðjón,
að einu þessara mála hefði verið vís-
að frá en hin fímm væru enn óupp-
lýst í kerfínu og væri yfirleitt lítið
um svör þegar um þau væri spurt.
Þremur þessara mála var vísað til
ráðherra og síðan til dómsmeðferðar
fyrir síðustu áramót og þremur í
upphafí þessa árs. Snerist eitt þeirra
um deilu áhafnarinnar á Sólfelli VE
640 og Utgerðarfélags Dalvíkinga
Vestmannaeyjum ehf. um verð á sfid
en því máli lauk í september í haust
með því, að sýslumaður-
inn á Akureyri féll frá
frekari meðferð ; þess.
Sagði í yfírlýsingu frá
embættinu, að kostnaður
við öflun veiðiheirhilda
hefði ekki verið dreginn frá skipta-
verðmæti og þai- sem lög segðu ekk-
ert um tilraunir til að láta sjómenn
taka þátt í kvótakaupum, kæmi ekld
til skoðunar hvort um þær hefði ver-
ið að ræða.
Kærur vegna þátttöku sjómanna í kvótakaupum
Fimm mál í dóms-
kerfínu í tæpt ár
Þorskverð á
bilinu 30-40
krónur
Af hinum málunum fímm, sem
enn eru óuppgerð í dómskerfinu,
má nefna kæru, sem send var
sýslumanninum í Vestmannaeyjum
6. febrúar 1997, og varðaði Ilranga-
vík VE 80 og . Vinnslustöðina. í
fylgiskjali ér vitnáð til einhliða yf-
irlýsingar Vinnslustöðvarinnar um
lækkun þorskverðs niður í 60 kr.
kg en í henni eru þær ástæður til-
greindar, að þorskkvóti fískiskipa
fyrirtækisins sé búinn og því þurfi
að' leigja kvóta á 90 kr.
kg. Telur FFSÍ ekki
fara á milli mála, að með
lækkun þorskverðsins sé
verið að láta sjómenn
taka þátt í kvótaleig-
Ekki sagt varða íslensk lög
í lögum nr. 24/1986 um skipta-
verðmæti og greiðslumiðlun segir,
að ekki megi draga frá heildarverð-
mæti afla í þessu sambandi kostnað
við kaup á veiðiheimildum og eru
viðurlögin sektir nema þyngri refs-
ing liggi við samkvæmt öðrum lög-
um.
Málið varðandi Drangavík barst
sýslumannsembættinu í Vestmanna-
eyjum 6. febrúar eins og fyrr segir
en sex dögum síðar ákveður embætt-
ið að hafast ekkert frekar að. Segir í
bréfí frá því, að eins og erindið sé
lagt fyiár, eigi það ekki við málsefnið
auk þess sem embættið geti ekki
séð, að framkvæmd sú, sem málið
snúist um, varði á nokkurn hátt við
íslensk lög.
Við þessum úrskurði brást FFSÍ
18. febrúar með kæru til ríkissak-
sóknara þar sem skorað var á hann
að hrinda frávísun sýslumannsins í
Vestmannaeyjum og hefja rannsókn
í málinu eins og um hefði verið beðið
af hálfu sjávarútvegsráðuneytisins.
Síðan hefur ekkert af því frést.
28,46 kr. fyrir þorskkílóið
Eitt málanna snýst um gnm um, að
áhöfnin á Sigurborg HU 100 hafi ver-
ið látin taka þátt í kvótakaupum og í
meðfylgjandi gögnum kemur fram, að
þorskverðið, sem notað var við launa-
uppgjör, hafi aðeins verið 28,46 kr.
kg. Þetta mál fór til sýslumannsins á
Blönduósi snemma árs en 27. ágúst
ákvað embættið að vísa því til ríkis-
lögreglustjóra til frekari meðferðar.
Vitni mætti ekki
I upphafi árs var kæra
send sýslumanninum á
Höfn vegna sambærilegs
máls og varðaði áhöfnina
á Hafdísi SF 75. í meðfylgjandi
gögnum kemur fram, að í október
1996 hafí meðalsöluverð á þorski til
Borgeyjar hf. og á Fiskmarkaði
Homafjarðar verið óeðlilega lágt eða
aðeins 39,19 kr. kg.
Tilhneiging
til að vísa
málum frá
Nákvæmni.
Tækni er ekki eingöngu vísindi, heldur líka list.
Allt frá því fyrsta Samurai sverðið var smíðað, hefur
Japan verið þekkt fyrir að skapa heimsins vönduðustu
tækni. Hjá EPS0N trúum við á það að lifa í samræmi
við þann orðstír, með þvi að gefa þér fremstu taekni
og hafa þannig áhrif á lif þitt og starf. Skuldbinding
okkar við stöðugar nýjungar hefur skipað EPS0N
afurðum sess i fylkingarbroddi tækninnar.
PhotoReal™ blekdæluprentarar með einstakri
EPS0N Piezo kristaltækni eru að gerbylta heimi
borðiitaprentara. Háþróuð tölvumyndspeglunartækni
leysir sköpunargleði þína úr læðingi. Feikn skýr,
hásamþjöppuð, margmiðla sýningarvél gæðir allar
hugmyndir þínar lifi. EPS0N, þvi tækni er lika list.
http://www.epson.com
Af þessu máli fréttist ekkert fyrr
en í september þegar því var vísað til
ríkislögreglustjóra til frekari rann-
sóknar. Kom það fram hjá sýslu-
mannsembættinu, að mildlvægt vitni
í málinu, framkvæmdastjóri Bor-
geyjar hf., hefði aldrei rnætt. fyrir
rétt þótt hann hefði margsinnis verið
boðaður.
Að lokum má nefna mál, sem teng-
ist Þormóði ramma-Sæberg en það
er búið að fara í gegnum sjö dóms-
stig og nú hillir undir það áttunda.
Ósýnilegir veggir
Guðjón sagði, að gangur þessara
mála í kerfínu væri með ólíkindum
og engu líkara en þar væru einhverj-
ir ósýnilegir veggir, sem kæmu í veg
fyrir, að úr þeim yrði skorið. Þá
kvaðst hann einnig furða sig á því
réttarfari, sem leyfði mönnum að
komast upp með að mæta ekki fyrir
rétt þrátt fyrir ítrekaða boðun.
Guðjón sagði, að svo virtist sem
dómsvaldið heima í héraði, sýslu-
mannsembættin, ættu af
einhverjum ástæðum
erfítt með að fylgja þess-
um málum eftir. Augljós
_________ tilhneiging væri til að
vísa þeim frá eða þá til
ríkislögreglustjóra og kannski væri
það nálægðin, sem vefðist fyrii’
mönnum. Ef það væri tilfellið, væri
þó ekki um að ræða nálægð við þá,
sem teldu á sér brotið, heldur við
einhverja aðra.
Fengu
sfld í
nótina
TVÖ skip, Arnþór EA 16 og Jóna
Eðvalds SF 20, fengu síld í nót í
fyrrinótt og er það í fyrsta sinn frá
því snemma í nóvember að hún
fæst í það veiðarfæri. Það litla,
sem fundist hefur af henni, hefur
af einhverjum ástæðum haldið sig
við botninn og því næstum ein-
göngu verið tekið með flottrolli.
Arnþór var í gær á útleið frá
Seyðisfirði eftir að hafa landað þar
150-160 tonnum en skipið var búið
að vera í höfn í hálfan mánuð í
fyrradag þegar ákveðið var að
gera lokatilraunina með nótina.
Fékkst aflinn í Norðfjarðardjúpi
en síldin kom upp á 35 til 55
faðma. Að sögn skipverja var nú
lóðað á meiri síld en sést hefur í
margar vikur.
Jóna Eðvalds var á landleið í
gær með um 250 tonn, sem tekin
voru í nót og einnig nokkuð í
flottroll. Var litla síld að finna þeg-
ar fram á daginn kom og sögðu
þeir á Jónu, að það hefði komið
fyrir nokkrum sinnum í haust, að
síldin hefði gosið upp með þessum
hætti en síðan horfíð aftur.
----------------------------
Ráðstefna
um selveiðar
ALÞJÓÐLEG ráðstefna um fram-
tíð selveiða, sem haldin var í St.
John’s á Nýfundnalandi 25. til 27.
nóvember, hvatti til þess, að allar
hömlur á viðskiptum með selafurð-
ir yrðu afnumdar. Ráðstefnan var
haldin á vegum NAMMCO, Norð-
ur-Atlantsh afssj ávarspendýr a-
ráðsins, og sóttu hana rúmlega 200
manns víðs vegar að úr heimi.
Kate Sanderson, talsmaður
NAMMCO og framkvæmdastjóri,
sagði í ræðu á ráðstefnunni, að sel-
ir væru stór þáttur í lífríkinu á
norðurslóðum og víðar og gætu af-
urðirnar, kjöt, lýsi og skinn, og
vinnsla þeirra orðið til að útvega
fólki atvinnu á svæðum, sem ekki
hefðu upp á neitt annað að bjóða.
A ráðstefnunni voru kynntar
jafnt nýjar sem gamlar aðferðir
við að nýta selinn og til dæmis
voru birtar nýjar rannsóknaniður-
stöður, sem sýna, að neysla sels-
lýsis hefur mjög heilsusamleg
áhrif á menn.