Morgunblaðið - 12.12.1997, Blaðsíða 74
74 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
s.ý!p ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sóilið kt. 20.00:
HAMLET — William Shakespeare
Frumsýning á annan í jólum 26/12 uppselt — 2. sýn. lau. 27/12 nokkur sæti laus — 3.
sýn. sun. 28/12 nokkur sæti laus — 4. sýn. sun. 4/1 — 5. sýn. fim. 8/1 — 6. sýn. fös. 9/1.
GRANDAVEGUR 7 - Vigdís Grímsdóttir
Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður M. Guðmundsdóttir.
Þri. 30/12 - lau. 3/1.
FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Harnick
Fös. 2/1 - lau. 10/1.
Sýnt i Loftkastalanum kl. 20.00:
LISTAVERKIÐ - Yasmina Reza
Lau. 3/1.
---GJAFAKORT ER GJÖF SEM GLEÐUR...................
Miðasalan er opin mán.-þri. 13—18, mið.-sun. 13—20.
Símapantanir frá ki. 10 virka daga.
f.
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
1897- 1997
BORGARLEIKHUSIÐ
GJAFAKORT LEIKFÉLAGSINS
VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI
Stóra svið kl. 14.00
eftir Frank Baum/John Kane
Lau. 13/12 örfá sæti, sun. 14/12 upp-
selt, lau. 27/12 uppselt, sun 28/12
uppselt, AUKASÝNING KL. 17, sun.
4/1, lau. 10/1, sun. 11/1 laussæti.
Munið ósóttar miðapantanir.
GJAFAKORTÁ GALDRAKARLINN
ER TILVALIN JÓLAGJÖF!
Stóra svið kl. 20.30
Tónlist og textar Jónasar og
Jóns Múla. Ljósaljós og Ijúffengir
drykkir i anddyrínu frá kl. 20.
Lau. 13/12, örfá sæti, sun. 14/12
uppselt, fös. 19/12 örfá sæti,
AUKASÝNING lau. 27/12. Aðeins
þessar sýningar.
Kortagestir ath. valmiðar gilda.
IÐNÓ kl. 20.30:
DÓMÍNÓ
eftir Jökul Jakobsson
Fim. 18/12 uppselt, fös. 19/12 upp-
selt, lau. 20/12 örfá sæti, sun. 21/12
AÐEINS1 ÞESSAR SÝNINGAR.
Höfuðpaurar sýna á Stóra sviði:
h
Lau. 10/1 kl. 20, fös. 16/1 kl. 22.
Nótt & dagur sýnir á Litla sviði
kl. 20.30:
NTALA
eftir Hlín Agnarsdóttur
Fös. 9/1, lau. 10/1.
Miðasalan er opin daglega frá kl.
13 — 18 og fram að sýningu
sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10
Greiðslukortaþjónusta
Sími 568 8000 fax 568 0383
KafíilíiKhMðl
í HLAÐVARPANUM
„REYÍAN I DEN“
- gullkorn úr gömlu revíunum
í kvöld kl. 21, laus sæti
lau. 13/12 kl. 21, laus sæti
Síðustu sýningar fyrir jól!!!
Miðasala opin fim-lau kl. 18—21.
Miðapantanir allan sólarhringinn
í síma 551 9055.
Bond frum-
sýndur í
London
ÞAÐ var margt um manninn í
; London þegar stjörnur myndarinn-
ar mættu í kvikmyndahúsið við
Leicester torg. Pierce Brosnan fer
með hlutverk hins fræga njósnara
hennar hátignar og er það í annað
sinn sem hann spreytir sig á því.
Hann lék síðast í myndinni „Gold-
eneye“ sem naut mikilla vinsælda
og halaði inn samtals 350 milljónir
dollara og varð þar með tekjuhæsta
Bond-myndin frá upphafí.
Sem fyrr er Bond umvafínn fal-
legu kvenfólki og á í höggi við ill-
menni sem ógnar heimsbyggðinni.
Að þessu sinni er það fjölmiðla-
kóngur sem stefnir að heimsyfirráð-
um og er leikinn af breska leikaran-
um Jonathan Pryce. Aðstoðarkona
Bonds er fallegur kínverskur njósn-
ari sem er leikinn af Michelle Yeoh.
Hún er nútímaleg í fasi og klæða-
burði og sést ekki í bíkíni í mynd-
inni eins og algengt er þegar Bond-
'v konurnar eru annars vegar.
DANSKA leikkonan Cecile
Thompson, sem leikur auka
hlutverk í myndinni, mætti
ásamt unnusta sínum, kanadiska
söngvaranum Bryan Adams.
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Sambíóin og Há-
skólabíó hafa tekið til
sýninga nýjustu James
Bond myndina.
heitir Tomorrow Never
Dies og er sú 18. í röð
um njósnara
hennar hátignar.
007 á nvjum tímum
Dies. Það var ekkert til sparað að
gera sem stórkostlegust spennuat-
riði og háspennandi eltingaleiki og
svo er auðvitað allt vaðandi í falleg-
um konum.
Það hefur alltaf verið talsvert
fjallað um Bond-stúlkurnar í hverri
nýn-i James Bond mynd. Margar
kunnar leikkonur og minna þekkt
stirni hafa komist í flokk Bond-
stúlknanna. I Tomorrow Never
Dies bætist í hópinn Teri Hatcher.
Hún er þekktust fyrir að leika unn-
ustu Supermans, Lois Lane, í sjón-
varpsþáttunum um Lois og Clark.
Teri leikur eiginkonu fjöimiðla-
kóngsins, og það kemur í ljós að
hún er ein óteljandi fyrrverandi
ástkvenna James Bond, meira að
segja ein þeirra sem hann man
hvað heitir.
Það var nefnilega þannig með
James Bond hér áður fyrr að hann
var óforbetranleg karlremba og
kvenhylli hans var með algjörum
ólíkindum. Fegurðardísirnar
bókstaflega flöðruðu upp um
hann eins og hundar hvar sem
hann kom og settust, stóðu og
lögðust eftir því sem Sean
Connery, George Lazen-
by, Roger Moore og
Tomothy Dalton (þ.e.a.s.
leikararnir sem léku
Bond í fyrstu 16 mynd-
unum) veifuðu hend-
inni.
En nú eru breyttir
tímar og það gengur
Morgunblaðið/Þorkell
STEFÁN Hilmarsson syngur af innlifun.
✓
Heimsfrumsýning á Islandi
►NÝJASTA James Bond myndin
„Tomorrow Never Dies“ var
lieimsfrumsýnd í Sambíóunum
Álfabakka á þriðjudag eða á
sama tíma og í London. Stefán
Hilmarsson flutti lag af nýju plöt-
unni og einnig gamla Bond-lagið
„For Your Eyes OnIy“. Ráðgert
hafði verið að Sigríður Beinteins-
dóttir flytti lagið í útsetningu
Mána Svavarssonar, en hún for-
fallaðist á síðustu stundu.
Missti
svein-
dóminn á
hóruhúsi
► James Bond rithöfundarins
Ians Flemings fæddist árið
1924 í þýska bænum
Wattenscheid sem er í nánd
við Essen. Fleming hélt því engu að
síður fram að leyniþjónustumaður-
inn ætti alltaf að vera 36 ára.
► Faðir 007 hét Andrew Bond og
var skoskur. Hann studdi nasista á
laun og var vopnasölumaður í
Þýskalandi. Móðir hans Minique
Delacroix var frá Sviss. Þau létust
bæði í klifurslysi þegar Bond var
ellefu ára.
► Ári síðar sendi frænka Bonds,
Charmain Bond, sem búsett var í
Canterbury, frænda sinn í heima-
vist í Eton.
► 12 ára var Bond rekinn úr Eton
eftir aðeins tvær annir eftir óheppi-
legt atvik með yngismey. Hann
gekk þá í skólann Fettes í Edin-
borg, þar sem faðir hans hafði áður
setið á skólabekk. Hann hætti 15
ára með engin prófskírteini fyrir
utan hnefaleika og júdó.
► Bond missti sveindóminn 16 ára
á hóruhúsi í París, - ásamt veskinu
sínu. Síðar myrti hann konuna sem
gerði hann að manni, hórumömm-
una Mörthu Debrand, í sportbíl
sem hún keypti handa honum.
► Eftir lokaferð með HMS Sabre
hætti Bond í sjóhernum. Hann var
þá kominn með tignina sjóliðsfor-
ingi. Hann gekk í leyniþjónustuna
sem liðsforingi í deild tilræða og
sérstakra úrræða.
reiðubúinn til að misnota þau áhrif
og beita fjölmiðlum í banvænum
tilgangi.
Það eru breyttir tímai- hjá 007. í
þeim 17 myndum sem eru að baki
hefur hetjan barist við leynifélög,
austantjaldsríki og auðmenn sem
ýmist hótuðu að eyða heiminum
með kjarnorkuvopnum eða sýkla-
vopnum. Nú berst hann við fjöl-
miðlaveldið. Hvor skyldi fara með
sigur af hólmi?
Þrátt fyrir að andstæðingurinn
komi úr nýrri átt er flest annað á
sínum stað í Tomorrow Never
PIERCE Brosnan mætir í annað
sinn til leiks sem James Bond í
myndinni Tomorrow Never Dies.
Eins og jafnan áður á 007 í höggi
við stórhættulegan andstæðing og
þarf að taka á öllu sínu til þess að
forða sjálfum sér og heimsbyggð-
inni allri frá vísri glötun, sem bíður
nái andstæðingurinn sínu fram.
Ovinurinn er enginn aukvisi en
hann kemur að James Bond úr
óvenjulegri átt, úr fjölmiðlageiran-
um. Jonathan Pryce leikur mold-
ríkan og siðvilltan fjöl-
miðlakóng sem hefur
náð hættulega mikl-
um áhrifum og er
JAMES Bond
(Pierce Brosnan)
og hin kín-
verska Mai Lin
(Michelle
Yeoh) beijast
gegn sameig-
inlegum
óvini í
morrow
Never
Dies.
Frumsýning