Morgunblaðið - 12.12.1997, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 12.12.1997, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 39 Á ögurstundu BÆKUR Slysfarir ÚTKALL TF-LÍF Sextíu menn í lífshættu. Eftir Óttar Sveinsson. Islenska bókaútgáfan, 1997 - 220 bls. SLYS gera ekki boð á undan sér. Fólkið sem hér lýsir reynslu sinni hefur upplifað baráttu upp á líf og dauða. Bókin skiptist í fjóra kafla, þrír fjalla um skipsskaða í ofsaveðri í norðurhöfum í mars sl. Sá fjórði er all ólíkur. Hann gerist á suðlægum slóðum og föstu landi þar sem einn karl er villtur í frum- skógi í Gvatemala, í framandi um- hverfi og ókunnur um allar hætt- ur. Fy stjómstöð Landhelgisgæsl- unnar og á sandinum. Næsti kafli er tengdur við þann fyrsta þar sem brottför Dísarfells er áætluð á sama tíma og heimkoma Ægis, varðskipsins sem ætlaði að draga Víkartind en varð að forða sér. Auk þess var sama þyrlusveitin á vakt og stóð að báðum þessum björgunum. Þrif á TF-LÍF tóku langan tíma en var lokið þegar enn á ný var kallað. Nú var það áhöfnin á Þor- steini sem þurfti aðstoð. Björgunin gekk upp þó ekki væri hún átakalaus frekar en hinar fyrri. Kaflan- um lýkur á samantekt um þessa viðburðaríku daga í mars, þann lær- dóm sem draga má af þeim fyrir þá sem lentu í þeim og komu að þeim, hvort sem var við björgun eða heim- komu. Frásögnin er frá mörgum sjónarhom- um og fær lesandinn að vita hvað er að ger- ast á mörgum stöðum á sama tíma. Fram- gangan verður svolítið snúin og era kaflarnir misþýðing- armiklir. Það er vissulega erfitt að hoppa á milli persóna og setja sig inn í líðan allra. Til dæmis hljómar frásögn af aðstandanda björgunar- manns að strauja skyrtur an- kannalega mitt á milli þess sem aðrir eru í bráðri hættu. Tilgang- urinn er þó ljós, sá að sýna hversu marga snertir hvert mannslíf og hvað aðstandendur gera þegar óvissan nagar þá. Afallahjálp, tilgangur hennar og árangur er mikið umfjöllunarefni og í inngangi segist höfundur ætla „að leitast við að gefa lesendum innsýn í hvað áfallahjálp er með frásögnum úr raun- veruleikanum" (bls. 10). Sýnt er inn í hug- arheim manna, fjöl- skylduaðstæður og til- finningar á líðandi stundu. Hetjur eru skapaðar með því að sýna hversu ótrúlega fljótt menn geta ýtt til hliðar slæmum frétt- um á meðan enn er hættuástand en um leið og því linnir kem- ur álagið í ljós. Frásagnir af björg- un manna úr skips- skaða mættu vera greinarbetri til að gagnast almennum lesendum sem hafa hvorki verið til sjós né flogið þyrlu. Bókin hefur að geyma margar ljósmyndir svo auðvelt hefði verið að bæta inn skýringar- myndum. Verkið er helgað minningu þeirra þriggja sjómanna er létu líf- ið við störf sín á hafi úti og er það vel við hæfi. Það er í senn vitnis- burður þeirra sem mest á mæddi og rituð heimild um atburði sem munu lifa meðal þjóðarinnar. Kristín Ólafs Óttar Sveinsson Úr læðingi BÆKUR Skáldsaga SUMARIÐ BAKVIÐ BREKKUNA eftir Jón Kalman Stefánsson. Bókaútgáfan Bjartur, Reykjavfk 1997. 177 bls. SÖGUMAÐUR í smásagnasafni Jóns Kalmans Stefánssonar, Skurð- ir í rígningu (1996), spyr „knýjandi spurninga" í upphafi bókar: „Til hvers að skrifa um íslenska sveit á ofanverðri tuttugustu öld, þegar borgir þenjast út, mannúðin skreppur saman? Er hreinlega rétt- lætanlegt að segja setninguna: þessi sveit hefur Guðmund á Hömrum, eins og hún skipti einhverju máli? (14)“ Spurninguna má kannski um- orða á þessa lund: Væri ekki nær fyrir rithöfund í yngri kantinum að halda sig við malbikið og kókaínköld borgarævintýri, í takt við tíðaranda og hallgrímsk skáldskaparfræði (Grim-ævintýr)? Þó sögumaður segist ekki vita svarið er hann nú mættur aftur á sömu slóðir, ekki af baki dottinn, enn við sama heygarðshornið í sveitinni sinni, og lausnin liggur kannski í upphafsorðum nýrrar skáldsögu: „Maður verður að beygja af þjóðveginum. Ekki æða áfram eftir malbikuðum leiðum, heldur beygja og leysa rykorminn úr læðingi malai-vegarins“ (7). Það er auðvitað í gamni gert, og útúr- snúningur, að kalla þetta beint svar: réttlæting þessara sveita-skrifa (eins og hennar sé þörf) eru einfald- lega bækurnar sjálfar sem eru stór- skemmtilegar og afar vel skrifaðar. Þar fyrir utan er staðhæfingin ef til vill vísbending um kjarnann í frum- legum skáldskap og þeirri skringi- legu iðju að skrifa. Sumaiið bakvið Brekkuna er fyi-sta skáldsaga höfundar en auk áðurnefndrar sagnabókar hefur hann sent frá sér þrjár ljóðabækur. Bókin er nokkurs konar sjálfstætt framhald af Skurðum í rigningu (sem hægt væri að kalla skáldsögu); sögusviðið er það sama, sama per- sónugalleríið og sömu innansveitar- goðsagnirnar. Yfir frásögnum beggja bókanna hangir eins konar súrrealískur blær hversdagsleikans. Frásögnin er í grunninn upprifj- un manns á fertugsaldri á sumrum í sveit þar sem ungur drengur lifir og hrærist innan um bændur og búalið (og einstaka malbiksbarn) og verð- ur vitni að atburðum og átökum. Sú frásögn er þó ekki einföld því at- burðir í íslenskri sveit, sem virðast svo órafjarlægir í tíma, eru séðir með þroskuð- um augum manns sem situr með blýant í borg og hlustar á „síðustu andvörp aldarinnar" í heimi þar sem veru- leikinn er ekki lengur gjafar heldur sýndar. Frásagnarröddin í Sumrinu er styrkari en í Skurðum. Kannski að hluta vegna þess að hún er fjarlægari „drengnum í sveitinni". Við það er eins og frá- sögnin öðlist meiri vídd. Það mætti benda á veika punkta í síðar- nefndu bókinni en í þeirri fýrrnefndu eru þeir fáir. Það er helst að maður verði var við gír- skiptingar í seinni hluta bókarinnar, í kringum ballið og við þjóðsögu af Sveini á Brekku, á Landróvernum sínum sem kemst allt á endanum, en ekki svo að rykormurinn, öðru nafni „frásagnarmökkurinn“, slitni. Rétt eins og í Skurðum á sögu- maður í samræðum við menningar- ai-fleifðina og hefðina; þær bók- menntir og þau skáld sem á undan honum hafa farið. Þá má eiginlega segja að höfundur fremji táknræn fóðurmorð á skáldskaparfeðrum sínum, þeim HKL og Þórbergi. Skáldskapur þess fyrrnefnda er notaður í klénar auglýsingar en Þórbergur er hundurinn á bænum. Að auki eru ýmsar, oft skoplegar, vísanir höfuðskáld íslenskrar bók- menntakanónu. Þá er sjálft atóm- ljóðið (í líki Starkaðar) rekið á flótta, til fjalla, með lofsöng fjöld- ans. Sumarið er ekki bara húmorískar og hugljúfar sögur úr sveit: í þær eru fléttaðar vangaveltur um tilver- una og lífið og það sem kannski ger- ir hvort tveggja mögulegt: skáld- skap. Einn kaflinn heitir: „Og eftir allt saman er lífið lítið annað en kafli í bók“ (16) og sveitaskáldið Starkaður heldur því fram að sveit- in sé varla nema „hugarfóstur skálds, sem {situr} einhvers staðar fyrir sunnan og {þvælir} henni allri með fólki, fjöllum og vindum upp úr sér“ (16). Ef til vill fjallar Sumarið ekki síst um skrif og eðli frá- sagnar. Lesandi er dreginn á tálar og óskir hans um „almennilega sögu. Svona frásögn þar sem allt leiðir að öðru“ eru hunsaðar, því „sönn saga er eins og lífið: aldrei bein, alltaf hlykkjótt“ (20). Líkt og vegir til sveita. Það má auðvitað draga í efa þá játningu sögumanns að hann sé bara skrásetjari sagna, skrifari, sem berist með sögunni, rétt eins og „báturinn lætur ána fleyta sér“, því ekki megi „beita söguna of- beldi“. Þessi sögumaður er stríðinn. Hann gantast við lesendur sína og heldur þeim í spennu. Það er ekki víst að allt það sem hann „ætlar að segja“ komist að öllu leyti til skila. En það er allt í lagi; a.m.k. hafði þessi lesandi gaman af því að fá að fljóta með í frásagnarfljóti sögu- manns, hanga með honum á „þeim ólma hesti sem frásögnin er“ (64) og sem æðir áfram sama hvað æpt er og togað í tauma. Sumarið bakvið Brekkuna (og Skurðii• í íigningu) segir sögu af þroska. Ekki bara ungs drengs heldur þroska rithöf- undar sem trúir ekki lengur þeim „útbreidda misskilningi“ að þegar talað er um „að vaxa úr grasi sé það bókstaflega meint: maður {vaxi} úr grasinu og {standi} síðan þroskað- ur á malbikinu" (92). Sögumaður hefur lært, fyrir sitt leyti, að það er nauðsynlegt að hlúa að rótum sín- um, gramsa kannski í þeim, og rýna í „iðandi atburði fortíðar" (102); með þessu, með því að fara út af hringveginum, hefur honum tekist að leysa úr læðingi ekki bara rykorma aftan í bláum Landróver- um heldur öldungis ágætan skáld- skap. Geir Svansson Jón Kalman Stefánsson Myndskreytt Laxnessljóð BÆKUR Ljórt o« mviMlir ÚNGLÍNGURINN f SKÓGINUM Halldór Laxness og ýmsir listamenn. Vaka-Helgafell. KVÆÐAKVER Halldórs Laxness hefur komið þrisvar út og í hvert skipti verið bætt í það ljóðum, nýjum ljóðum eða ljóðum sem tekin voru úr leikritum og öðrum verkum hans. Mörg þessara ljóða eru ákaflega vel þekkt þótt önnur - og jafnvel sum þeirra bestu - séu langt frá því að vera á hvers manns vörum. Mörg Ijóða Halldórs þóttu líka ankannaleg og ögrandi þegar þau voru fyrst birt, einkum líklega tit- illjóðið í þessari bók sem myndaði eins konar millikafla í Vefaranum mikla frá Kasmír. Mörg þessi Ijóð vekja reyndar enn sterkar kenndir þótt engum dyljist leng- ur hve sterklega þau era ort. í þessari bók hefur verið brugðið á það ráð að fá nokkra listmálara til að vinna myndir við Ijóð Laxness, þau Magn- ús Kjartansson, Jón Ax- el, Kristján Davíðsson, Eh'ík Smith, Kristínu Gunnlaugsdóttur, Braga Asgeirsson, Gunnar Öm, Valgarð Gunnars- son, Eitó, Magnús Tómasson og Helga Þorgils Friðjónsson. Að- alsteinn Ingólfsson list- fræðingur var hafður til ráðlegginga þegar lista- mennirnir voru valdir. Helgi Þorgils á mynd- ina við titilljóðið og bh’t- ist hún líka á hlífðai- kápu bókarinnar. Helgi tekur á þessu verkefni eins og honum er lagið, mál- ar ungling sem svífur um í skógi þar sem dýr, fugl og jafnvel fiskur leyn- ast bak við tré. Þótt hér sé um ein- falda útfærslu að ræða er hún mjög í anda annarra málverka Helga þar sem einföld frásögn er lykilatriði og persónum og hlutum teflt djarft fram á myndflötinn án þess að hirða um of um venjulegt rökrænt samhengi þeirra. Hér er það einfaldlega ung- lingurinn sjálfur úr titli ljóðsins sem við hittum í myndmni, líklega með til- vísun í síðustu erindi ljóðsins: „Eia ég er skógurinn / skógurinn sjálfur: / morgunskógurinn drifinn dögg / demantalandið.“ Hitt kemur frekar á óvart hve var- fæmislega hinir málaramir taka flestir á verkefni sínu í bókinni, nema þá helst þeh' Kristján Davíðsson og Bragi Asgeirsson. Myndimar era vissulega allar vel unnar, enda höf- undai- þeirra allir meðal fremstu mál- ara, en í þeim er ekki að sjá að tekist sé veralega á við ljóðin eða samhengi þeirra, hvað þá heldur við neinn höf- uðtón í lífsverki Laxness. Kannski er virðingin fyrir þessum ljóðum einfaldlega svo mikil að máluranum finnst þeir ekki geta neinu við bætt og verði að láta sér nægja að skreyta í auðmýkt orð skáldsins án þess að bæta þar neinu við frá eigin hjai’ta. Það væri miður því skáldskapur, líkt og myndlist, lifir því aðeins að hver kynslóð takist á við hann af nokkurri festu og geri hann þannig að sínum. Það ætti líka að vera viðleitni útgefenda að ýta undh- slík efnistök. EkM svo að skilja að myndimar í þessari bók slái ekki sterkan sam- hljóm með ljóðunum. Mynd Valgarðs Gunn- arssonar vekur til dæmis sterka tilfinn- ingu fyrir lestarferð hins þreytta manns sem andvökufólur fór um löndin auð „fullur af dauðs manns hroka, sjúks manns gleði“, eins og segir í kvæðinu „Ontario". Mynd Errós við ljóðið „Spegillinn“ er síðan nokkuð ögrandi fyrir það að hún teflir fram popp- ímyndum gegn texta Halldórs og hin við- kvæma, ástblíða, komúnga mær í Ijóðinu verður að pelsklæddri konu í nælonsokkum sem situr með allt upp um sig í aftur- sætinu á límósínu. Magnús Tómas- son nær að enduróma á skemmtileg- an hátt kaldhæðnina í ljóðinu „Um hina heittelskuðu" með því að taka mjög bókstaflega hryssulíkinguna úr fyrsta erindi og teygja hana jafnvel útí það að ná yfir leikfimihesta. Þessai- myndir era nefndar að öðr- um ólöstuðum því í heild er hér á ferðinni falleg bók, vönduð gjafaút- gáfa af litlu úrvali ljóða efth' Halldór. Jón Proppé Pétur Már Ólafsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.