Morgunblaðið - 12.12.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.12.1997, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR KEIKO HEIM ÞAÐ er öll fjölskyldan mætt til að bjóða þig velkominn heim Keiko minn. . . Morgunblaðið/Þorkell Ys og þys á pósthúsum NÓG hefur verið að gera á pósthúsum landsins nú í desember, enda margir sem þurfa að koma bréfum og bögglum til ættingja um allt land eða í útlöndum. í pósthúsinu í Kringlunni var ys og þys þegar ljósmynd- ari stakk þar inn linsu. Enginn formlegur skilatími er á jólapóstinum innanlands, en bréfapósti til Norðurland- anna þarf að skila fyrir 18. desember og í dag, föstu- dag, rennur út fresturinn til að koma bréfapóstinum til annarra landa í Evrópu. Bögglana eru vonandi allir búnir að senda af stað. Rauðakrosshúsið á 13. starfsári Erum í við- bragðsstöðu all- an sólarhringinn Óiöf Helga Þór Rauðakrosshúsið, neyð- arathvarf fyrir 18 ára og yngri, verður opið nú um jólin í 13. skipti frá upphafi. Forstöðumaður hússins, Ólöf Helga Þór, segir að desember virðist oft koma frekar róti á tilfinn- ingalífið og að fólki finnist mjög erfitt að viðurkenna að séu erfiðleikar í fjölskyldum á þessum árstíma. - Hvernig er þjónust- unni háttað? „Böm og unglinga sem leita til okkar köllum við gesti. Þeir geta hringt á undan sér eða bara komið. Aðalatriðið ér að þeir koma af sjálfsdáðum. Hér gilda mjög fáar reglur aðrar en þær sem búast má við á hverju öðru heimili. Starf- semin er sniðin í samræmi við grundvallarmarkmið Rauða krossins, það er mannúð, óhlut- drægni og virðingu fyrir öllum einstaklingum.“ - Hvað hafa margir leitað til Rauðakrosshússins frá upphafí? „Hér hafa gist yfir 700 ein- staklingar í um 1.370 skipti. Skiptingin á milli kynja er jöfn og meðalaldurinn er um það bil 16 og hálft ár. Sá yngsti sem til okkar hefur leitað er tíu ára.“ - Hvað eru gestirnir yíirleitt lengi? „Sumir gista eina nótt og sá sem lengst hefur dvalið hér bjó hjá okkur í fimm mánuði. Ein- staklingar geta verið hér þann tíma sem þeim er nauðsynlegur til þess að finna leið út úr erfið- leikum sínum.“ - Hvað eru margir á vakt í einu? „Hér er einn á vakt og þetta kerfi er því mjög ódýrt miðað við fjölda þeirra sem hingað leita. Á þessu ári hafa 87 einstaklingar gist í 134 skipti og í um 900 næt- ur. Þá hafa 450 leitað eftir ráð- gjöf og notað aðstöðuna. Margir koma til þess að fá að setja í þvottavél, horfa á sjónvarpið, spila, spjalla við okkur eða til þess að heimsækja starfsmenn. Það er svo gaman þegar einstak- lingar sem verið hafa gestir hér halda tryggð við okkur og leyfa okkur að fylgjast með hvernig þeim vegnar. Þetta er mjög sjaldgæft í meðferðar- geiranum en kemur tjl af því að þeir leita hingað sjálfir, á sínum eigin forsendum.“ - Hverjar eru helstu ástæður þess að börn og unglingar leita til ykkar? „Þær eru margar en ein sú al- gengasta er að neysla vímuefna og áfengis hefur farið úr böndun- um hjá viðkomandi einstaklingi. Eldri hópurinn kemur út af at- vinnu- og húsnæðisleysi, sá yngsti út af samskiptaörðugleik- um, til dæmis erfíðleikum heima vegna drykkju eða vímuefna- neyslu foreldra. Þá er hópur sem kemur í neyðarathvarfið vegna ofbeldis, sem skilgreint er nánar sem andlegt, líkamlegt eða kyn- ferðislegt." - Verðið þið vör við miklar árstíðasveiflur? „Nei, á þeim tíma sem við höf- um starfrækt athvarfið hefur verið leitað til okkar í öllum mán- uðum ársins. Desember virðist hins vegar oft koma frekar róti á tilfinningalífið og fólki finnst ► Ólöf Helga Þór fæddist í Reykjavík árið 1956. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1977, lauk prófi frá Kennaraháskóla Islands árið 1983 og prófi í fjölskylduráðgjöf frá Manitoba-háskóla árið 1986. Sama ár hóf hún störf sem námsráðgjafí við Fellaskóla sem hún gegndi til 1992. Ólöf hefur verið forstöðumaður Rauðakrosshússins frá 1992. Hún á 19 ára son í mennta- skóla og sambýlismaður henn- ar er Björn Marteinsson verk- fræðingur og arkitekt. mjög erfitt að viðurke nna að séu erfiðleikar í fjölskyldum á þess- um árstíma. Eg hef skoðað starf- semina yfir jólin frá upphafi og hér hafa dvalið frá einum gesti upp í fimm á aðfangadag og jóla- dag á þessum tólf árum. Síðan er áberandi að þau koma hingað á kvöldi annars jóladags eða milli jóla og nýárs, alveg uppgefin, en vilja oft ekki gista heldur bara taka sér smá pásu. I janúar er líka oft mjög mikið að gera því þá gera vart við sig peningavandræði vegna jólanna eða þá í Ijós kemur að þau hafa ekki náð prófi í skóla.“ - Hvar getur þú sagt um starfsemi Trúnaðarsímans? „Hann er fyrir börn, unglinga og aðstandendur þeirra og mjög mikið notaður, ekki síst af foreldrum, sem nú eru um fjórðungur þeirra sem hringja. Ég finn fyrir mikilli foreldravakningu, sem er nýtt. Þeir hringja út af börnunum sínum og leita ráða. Síminn er opinn allan sólar- hringinn og alltaf hægt að ná í okkur.“ - Hvað hafa mörg símtöl borist á árinu? „Þau eru orðin um 4.300 og stúlkur enn í meirihluta, kannski um 65%. Þegar við erum með kynningu í framhaldsskólunum hringja fleiri strákar 18-19 ára. Sveiflumar á sólarhring eru mis- jafnar, það hringir alltaf einhver og ef símtölin eru færri en fimm verðum við verulega hissa. Þau geta síðan farið upp í 40 á dag. Mest er hringt mifli tvö á daginn og fimm eða sex og svo aftur frá sjö til níu. Við leggjum mjög mikla áherslu á að veita neyðar- þjónustu og sálræna skyndihjálp í anda Rauða krossins og erum alltaf í viðbragðsstöðu." Yngsti gestur hússins tíu ára gamall
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.