Morgunblaðið - 12.12.1997, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.12.1997, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Lokayfirlýsing þriggja daga fundar múslimaríkja í Teheran Leiðtogamir fordæma hryðjuverk í nafni trúar Teheran. Reuters Reuters ÞÁTTTAKANDI frá Qatar biðst fyrir á leiðtogafundi samtaka múslimaríkja, OIC, sem lauk í gær. ÞRIGGJA daga leiðtogafundi sam- taka múslimankja, OIC, lauk í Te- heran í gær. í lokayfirlýsingu fund- arinns eru hryðjuverk í nafni trúar- innar fordæmd en þó gerður grein- armunur á hryðjuverkum og bar- áttu undirokaðra þjóða gegn erlend- um yfírráðum. ísraelsríki er einnig harðlega for- dæmt í yfírlýsingunni fyrir hemám á landi araba, útbreiðslustefnu og hryðjuverkastarfsemi. Þá áréttuðu þátttakendur þann ásetning sinn að endurvinna réttindi palestínsku þjóðarinnar auk hinnar helgu borg- ar Al-Quds, eða Jerúsalem. Ekki er hins vegar minnst á friðarsamn- inga ísraels- og Palestínumanna í yfírlýsingunni. Samtökin hafa hing- að til stutt friðarsamningana en Iranir eru þeim mjög mótfallnir þar sem þeir segja þá óhagstæða fyrir Palestínumenn. Árangursríkur fundur Mikils ágreinings gætti meðal þátttakenda á fundinum en á næt- urlöngum fundi í fyrrinótt náðist samkomulag um lokayfírlýsinguna. Hvorki náðist hins vegar samkomu- lag um kröfu Iraka þess efnis að þess skyldi krafist að viðskipta- þvingunum Sameinuðu þjóðanna gegn þeim verði aflétt né þá kröfu Irana að allt erlent hervald verði hrakið burt af svæðinu. Er gengið hafði verið frá ákvörð- un þess efnis að næsti fundur verði haldinn í Qatar að þremur árum liðnum, lýstu margir fulltrúar yfír ánægju sinni með árangur fundar- ins. M.a. sagði Amr Moussa, utan- ríkisráðherra Egyptalands, að fund- urinn hafí verið mjög árangursríkur og að mjög jákvæð þróun hefði átt sér þar stað. Á fundinum, sem er stærsti al- þjóðlegi viðburðurinn sem haldinn hefur verið í íran frá því bylting heittrúarmanna var gerð árið 1979, hitti Mohammad Khatami, forseti landsins, bæði þá Taha Yassin Ramadan, varaforseta íraks, og Mohammed bin Mubarak al-Kha- lifa, utanríkisráðherra Bahraini, en bæðj þessi ríki hafa átt í útistöðum við írani. Eftir fund Ramandans og Khata- mis, sem var fyrsti fundur svo hátt- settra embættismanna þjóðanna frá því að átta ára styrjöld þeirra lauk árið 1988, sagði Ramandan að ákveðið hefði verið að hefja umræð- ur um fangaskipti, iraskar flugvélar sem sendar voru til írans í Persa- flóastríðinu og fleiri deilumál. Kha- lifa sagði hins vegar eftir fund sinn með Iransforseta að hann væri ánægður með að sjá að nýjar vídd- ir væru að opnast í samskiptum ríkjanna en stjómvöld í Bahraini hefur ásakað írani um óviðeigandi afskipti af innaríkismálum landsins. Þá átti Khatami einnig tvo fundi með Abdullah, krónprinsi Sádi- Arabíu, á meðan á leiðtogafundin- um stóð og þótti það merki um nýja þíðu í samskiptum súnní og síta múslima. Ekki voru þó allir jafn ánægðir með niðurstöður fundarins. Suley- man Demirel Tyrklandsforseti yfír- gaf fundinn í fyrradag að því er talið er til þess að komast hjá því að bregðast við fordæmingu lokayf- irlýsingarinnar á hemaðarsamstarfí múslimaríkja við ísrael en á undan- fömum tveimur árum hafa Tyrkir verið að byggja upp víðtækt hemað- arsamstaf við þá. BBC hættir útsendingum á finnsku Helsingfors. Morgunblaðið. BRESKA ríkisútvarpið (BBC) hættir fréttaútsendingum á finnsku um næstu áramót. Stjórn erlendrar deildar BBC tilkynnti þessa ákvörðun sína á þriðjudaginn en helsta ástæða þessa er fjárhagsvandi stofnun- arinnar. Hátt í tuttugu finnskar einkaútvarpsstöðvar hafa end- urvarpað útsendingunum á FM. BBC hefur sent út fréttir á finnsku síðan vorið 1940 en þá var útvarpað á mörgum erlend- um málum vegna stríðsins. Þeg- ar heimsstyrjöldinni lauk voru m.a. útsendingar á sænsku og norsku lagðar niður. Vegna nálægðar Finnlands við Sovétríkin var hins vegar talin hætta á því að Finnar gætu komist undir stjórn kommúnista. Til þess að tryggja óháðan fréttaflutning handa Finnum var finnska fréttastofan hjá BBC rekin áfram. Nokkrum sinnum hefur hvarflað að yfirmönnum BBC að leggja þjónustuna niður eftir hrun kommúnismans í A-Evr- ópu og er nú látið verða af því. Indland þrói kjarn- orkuvarnir TALSMENN Janataflokksins, sem talinn er líklegastur til að mynda næstu ríkisstjórn á' Ind- landi, sögðu í gær að þeir vildu að Indverjar kæmu sér upp kjarnorkuvarnakerfí upp á eig- in spýtur. Kosið verður á Ind- landi í byijun næsta árs. For- maður flokksins sagði í gær að hann yrði reiðubúinn til stjórnarmyndunar í mars. Ind- veijar sprengdu kjarnorku- sprengju 1974 en hafa síðan haldið að sér höndum. Átta fórust í Rússlandi ÁTTA manns fórust er far- þegaþyrla og herflutningaflug- vél rákust á, á flugvelli í Naij- an Mar í Norður-Rússlandi. Ekki hafa borist fregnir af or- sökum slyssins. Mannskæð árás á flótta- mannabúðir AÐ MINNSTA kosti 231 lét líf- ið og tæplega 230 særðust í árás á flóttamannabúðir í norð- vesturhluta Rúanda á miðviku- dagskvöld, þar sem tútsar frá Kóngó dvöldu, að því er flótta- mannastofnun Sameinuðu þjóð- anna greindi frá í gær. Árásar- mennimir voru hútúar að sögn stjómvalda í Rúanda og réðust flestir á fólkið með sveðjum. í kjölfar árásarinnar flýði allt fólkið, um 17.000 manns, úr flóttamannabúðunum. Hillary vísað ádyr HILLARY Clinton, eiginkonu Bandaríkjaforseta, var vísað á dyr á virðulegum, 132 ára gömlum veit- ingastað á Manhattan í New York á miðvikudag, þar sem hún var á fundi með slúður- dálkahöfund- Hillary inum Cindy Ciinton Adams, að því er Adams greindi frá í gær. Ekki var alveg ljóst hvers vegna Hillary og fömneyti hennar var gert að yfirgefa húsakynnin, en svo virðist sem einhver í hópnum hafí brotið reglur staðarins með því að nota farsíma. Skammt er síðan konum var í fyrsta sinn leyfður aðgangur að staðnum, Univers- ity Club. Flugu hættu- lega nærri BOEING 737 þota breska flug- félagsins British Airways með 115 manns um borð flaug hættulega nærri tveim rúss- neskum orrustuþotum og tank- vél fyrr á þessu ári, að því er greint var frá í gær. Rússnesku vélarnar voru á leið á flugsýn- ingu á Englandi og höfðu lækk- að flugið meira en heimilt var. Boeing-þotunni var beygt snar- lega eftir að viðvörun barst frá flugumferðarstjórn. Atvikið varð yfír bænum Reading, vest- ur af London, 16. júlí. • • # Oryggjtsstofnun samgöngumála í Bandaríkjunum Reynt að draga úr líkum á tanksprengingu í þotum Baltimore. Reuters. VITNALEIÐSLUR Öryggisstofnunar samgöngu- mála í Bandaríkjunum (NTSB) beindust í gær að möguleikum á því að koma í veg fyrir flugslys á borð við það er breiðþota bandaríska flugfélagsins TWA fórst með 230 manns 17. júlí 1996. Sprakk hún á flugi skömmu eftir flugtak frá New York í upphafi ferðar til Parísar. Þrátt fyrir að rannsókn NTSB á orsökum spreng- ingar í eldsneytistanki undir gólfí þotunnar við fram- brún vængs hafí verið sú umfangsmesta og kostnað- arsamasta í sögu stofnunarinnar hafa engin skýr svör fundist á því hvað kveikti í eldsneytisgufum í miðtanknum. Stofnunin hefur því samhliða rannsókninni beint sjónum sínum að því hvernig gera megi eldsneytist- anka farþegaflugvéla hættuminni. Einnig er til at- hugunar hvort gera þurfí sérstakar ráðstafanir í þessu sambandi vegna eldri flugvéla. Hrömun í rafleiðslum er vandi í flugvélum en sérfræðingar NTSB sögðust í fyrradag nú einskorða athugunina á TWA-þotunni á því hvort einhvers konar rafbilun í mælibúnaði miðtanksins hafí leitt til sprengingarinnar. Bob Swain, sérfræðingar NTSB í flugrafkerfum, sagði sérfræðinga stofnunarinnar óttast að lág- spennumælar gætu hafa spanast upp vegna skamm- hlaups eða vegna spönunar frá straumi í samliggj- andi rafleiðslu. Swain sagði við vitnaleiðslumar, að sérstök tæring í vírfestum mælanna gætu einnig hafa átt sinn þátt í að auka á rafbilun í tankmælun- um. Dæmi um slíka tæringu væru þekkt úr herflug- vélum. Þrátt fyrir allt hafa engin merki um neistamyndun við miðtankinn enn fundist í braki TWA-þotunnar. Stofnunin hefur með öllu afskrifað kenninguna um að sprengju hafí verið komið fyrir í flugvélinni eða hún hafi verið skotin niður fyrir slysni. Einnig sé útilokað að loftsteinn hafí grandað henni, en William Cassidy, jarðfræðingur við háskólann í Pittsburgh, hefur reiknað út að líkur á að flugvél verði fyrir loftsteini í Bandaríkjunum séu að það gerist einu sinni á 59 til 77 þúsund árum. Ný rannsókn á rafleiðslum Á næstunni munu sérfræðingar NTSB taka að nýju til við rannsóknir í flaki TWA-þotunnar. Að þessu sinni mun hún einskorðast við marga kílómetra af leiðslum úr rafkerfí hennar, að sögn Bobs Swains. „Þetta er eins og að leita að saumnál í heystakki. Við verðum að reyna að fínna hana,“ sagði hann. Hjá bandaríska loftferðaeftirlitinu (FAA), sem einnig hefur látið rannsókn TWA-slyssins til sín taka, hafa vaknað grunsemdir um að svonefndur raf- spennuhnykkur hafí orðið í mælibúnaði miðtanksins vegna málmflísa á botni tanksins. Telur stofnunin það líklegra en skammhlaup í tengslum við tæringu. Það veldur þó rannsóknaraðilum heilabrotum að engin klárleg vísbending hefur fundist um neista- myndun. Verður því farið enn á ný yfír rafleiðslur úr þotunni til þess að leita af sér allan grun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.