Morgunblaðið - 12.12.1997, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 12.12.1997, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 67 I I I I I Morgunblaðið/Jón Svavarsson ÞÁTTTAKENDURNIR íslcnsku á Norðurlandamótinu í dansi. HILMIR Jensson og Ragnheiður Eiríks- dóttir dönsuðu nijög vel og unnu til fjórðu verðlauna í flokki 12-13 ára en þetta efnilega par er einungis búið að dansa saman í 3 mánuði. Dansað til verð- launa í Noregi __________DANS_____________ Rykkinhallen í Ósló NORÐURLANDAMÓT Norðurlandamótið í dansi fór fram í Ósló sl. laugardag, 6. desember. Keppt var í 5 aldursflokkum, frá flokki 12-13 ára upp í 35 ára og eldri. Frá Islandi voru 6 pör mætt til leiks; tvö pör í flokki 12-13 ára, tvö í flokki 14-15 ára, eitt í 16-18 ára og eitt par í flokki 35 ára og eldri. í FLOKKUM 12-13 ára, 14-15 ára og 16-18 ára var keppt með 10 dansa fyrir- komulagi, þ.e. að lagður er saman árangur pars í suður-amerísku dönsunum og stand- arddönsunum. Þetta fyrirkoniulag hefur ekki reynst okkur Islendingum heppilegt á undanförnum áraum, þar sem pörin okkar hafa verið mjög sterk í annarri greininni, þá yfirleitt í suður-amerísku dönsunum. Mótherjar okkar hafa hins vegar verið jafn- ari og oft unnið á því. Islenzku pörin í flokki 12-13 ára stóðu sig mjög vel í keppninni á laugardeginum og komust bæði pörin í úrslit. Þar dönsuðu þau enn betur en í undanrásunum og fór svo að Guðni Kristinsson og Helga Dögg Helgadótt- ir unnu til silfurverðlauna. Þegar nánar var rýnt í úrslitin kom svo í ljós að þau voru hlut- skörpust allra paranna í standarddönsunum. Hilmir Jensson og Ragnheiður Eiríksdóttir dönsuðu einnig mjög vel og unnu til fjórðu verðlauna, en þetta efnilega par er einungis búið að dansa saman í 3 mánuði. I þessum flokki voru það Danir sem tóku gullið. í flokki 14-15 ára var keppnin mjög hörð 9g stóðu íslenzku pörin sig með stakri prýði. Isak Halldórsson Nguyen og Halldóra Osk Reynisdóttir unnu til silfurverðlauna með glæsibrag. Þar kom einnig í ljós að þau höfðu verið hlutskörpust í suður-amerísku dönsunum. Snorri Engilbertsson og Dóris Osk Guðjónsdóttir voru í fínu formi og unnu til fjórðu verðlauna. Það voru svo Danir, sem endranær, sem unnu gullið í þessum flokki. í flokki 16-18 ára kepptu Hinrik Bjarna- son og Ragnhildur Þórúnn Óskarsdóttir og í flokki 35 ára og eldri kepptu Björn Sveins- son og Bergþóra Bergþórsdóttir. Stóðu bæði pörins sem með mestu ágætum þó svo þau kæmust ekki í úrslit. Arangur íslenzku keppendanna var mjög góður á þessu Norðurlandamóti og verður gaman að fylgjast með íslenzku keppendun- um á næsta Norðurlandamóti sem fram fer í Stokkhólmi á næsta ári. GUÐNI Kristinsson og Helga Dögg Helgadóttir unnu til silfurverðlauna f flokki 12-13 ára. Kim og Cecil Ieggja dansskóna á hilluna Hið heimsfræga danspar Kim og Cecil Rygel voru með glæsilega danssýningu fyrir úrslitaumferðina á Norðurlandamótinu. Kim tilkynnti jafnframt að þau væru hætt að dansa í keppnum og ætluðu að einbeita sér að kennslu og hugsanlega sýningum. Eins ljóstruðu þau því upp á þau ættu von á erf- ingja, það er ekki ofsögum sagt að þakið ætl- aði að rifna af Rykkinhallen við uppljóstrun þessa. Eitt er þó vist að það verður mikil eft- irsjá af þessu glæsilega danspari, þar sem það hefur lagt keppnisskóna á hilluna. Opna jóladanskeppnin Á sunnudeginum var boðið uppá opna al- þjóðlega danskeppni og tóku íslenzku pörin þátt í henni. Keppnisformið í þeirri keppni var með svolítið öðru formi heldur en í keppninni á laugardeginum. Hér var keppt í standarddönsunum sér og suður-amerísku dönsunum sér. Keppt var í flokkum 12-15 ára, 16-18 ára, 19 ára og eldri og í flokki 35 ára og eldri. I flokki 12-15 ára komust öll íslenzku pörin 4 í undanúrslit í standard- dönsunum. Af þeim komust 2 í úrslit, en hin tvö Snorri Engilbertsson og Dóris Ósk Guð- jónsdóttir og Hilmir Jensson og Ragnheiður SNORRI Engilbertsson og Dóris Ósk Guðjónsdóttir voru í fínu formi og unnu til fjórðu verðlauna í flokki 14-15 ára. Eiríksdóttir voru svo 7. og 8. par inn í úrslit. ísak Halldórsson Nguyen og Halldóra Ósk Reynisdóttir unnu til 4. verðlauna og Guðni Kristinsson og Helga Dögg Helgadóttir til 6. verðlauna. Það var par frá Litháen sem sigraði í þessum flokki. í suður-amerísku dönsunum áttum við 3 pör í úrslitum og 4. parið Hilmir Jensson og Ragnheiður Eiríksdóttir voru næsta par inn í úrslitin. En það var íslenzkt par sem fór með sigur af hólmi í þessum flokki; þau ísak Halldórsson Nguyen og Halldóra Ósk Reynisdóttir. Þau dönsuðu einstaklega vel á sunnudeginum og voru svo sannarlega vel að sigrinum komin. Til bronzverðlauna unnu Snorri Engilbertsson og Dóris Ósk Guð- jónsdóttir, sem einnig dönsuðu ákaflega vel. Guðni Kristinsson og Helga Dögg Helga- dóttir komu sjálfum sér mjög á óvart með að komast inn í úrslitin í þessum flokki, en þau unnu mjög verðskuldað til 5. verðlauna. Hinrik Bjarnason og Ragnhildur Þórunn Óskarsdóttir dönsuðu mun betur á sunnu- deginum og komust í undanúrlsit í suður- amerískum dönsum í flokki 16 ára og eldri og Björn Sveinsson og Bergþóra Bergþórs- dóttir unnu til 6. verðlauna í flokki 35 ára og eldri. Það verður ekki annað sagt en að árangur íslenzku keppendanna hafi vakið athygli í Ósló og ekki að ástæðulausu. Þessir glæsi- legu íþróttamenn stóðu sig líka með stakri prýði og voru landi og þjóð til mikils sóma. Dómarar kepjmanna voru 9 samtals, en ávallt voru 7 dómarar á gólfinu en þeir voru: Biruta Baumane (Litháen), Carola Tuokko (Finnlandi), Elo Pedersen (Danmörku), Frank Knief (Þýzkalandi), Gunnar Lilja (Svíþjóð), Johan Fr. Eftedal (BNA) Michael Stylianos (Englandi), Reymond Myhrengen (Noregi) og Sigurður Hákonarson (Islandi). Stjórnarfundur Norræna dansíþróttasambandsins Aðalfundir stjórnar Norræna dansí- þróttasambandsins NFS, hafa verið haldnir daginn fyrir Norðurlandamót, ár hvert. Að þessu sinni lá fyrir dagskrá um venjuleg að- alfundarstörf. Fljótlega bar þó á því í um- ræðum um skýrslu formanns að stutt var í ágreining af hálfu fulltrúum Dana á fundin- um, sem voru tveir. Aðeins einn fulltrúi sat fundinn fyrir hönd Noregs og Svíþjóðar og fóru þeir með þrjú atkvæði hvor. Fyrir hönd Islands og Finnlands sátu þrír lögmætir fulltrúar. Danir hófu fundinn á að gagnrýna finnska sambandið harðlega, vegna tilnefninga um dómara á opin alþjóðleg dansmót sem hald- in hafa verið í Finnlandi. Samkvæmt sam- þykktum Alþjóða dansíþróttasambandsins IDSF, sem Norræna dansíþróttasambandið er aðili að, ber að senda beiðni um dómara í hverju landi til danssambandanna en ekki til dómaranna persónulega eða þeirra sérsam- bands. Formaður fínnska sambandsins gerði grein fyrir ástæðum þessa og lauk umræð- um með sáttum og loforðum um breytingu á þessu fyrirkomulagi. Dansíþróttasamband Islands var gagnrýnt fyrir sams konar mál fyrir einu ári, en allt síðastliðið ár hefur ver- ið farið eftir reglum þessum. Þá var tekin fyrir tillaga sænska dans- sambandsins um að hefja keppni í rokki og boogie woogie, jafnhliða Norðurlandamót- unum. Sú tillaga hefur verið til umræðu á tveim undanfórnum fundum en ekki hlotið samþykki. Viðbrögð dönsku fulltrúanna við Vþessari tillögu og umræðum urðu mjög hörð. Þeir gerðu grein fyrir því að danska sambandið mundi endurskoða þátttöku sinna félaga á keppnum Non-æna dansí- þróttasambandsins og töldu fram þau rök að þátttaka þeirra á þessum keppnum væri sambandinu of dýr, miðað við þá samkeppni sem þeir fengju á mótunum. En Danir hafa ávallt mætt með sitt sterkasta lið og til að mynda unnu þeir öll gullverðlaunin á mótinu nú í Ósló, nema ein. Það er ljóst að ef Danir slíta sig út úr Norðurlandamótinu í dansi, verður mjög erfítt fyrir hin löndin sem eftir sitja að halda þessa keppni. Umræðum þessum lauk með ákvörðun um að halda stjórnarfund NFS, í maí á næsta ári að loknum aðalfundi danska sambandsins og þá verður tekin ákvörðun um framtíð næstu keppna NFS. Aðalfundur Alþjóðadansí- þróttasambandsins IDSF verður síðan hald- inn 14. júní 1998, og á NFS einn fulltrúa á þeim fundi, núverandi fulltrúi er danskur. Jóhann Gunnar Arnarssón
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.