Morgunblaðið - 12.12.1997, Blaðsíða 72
72 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍDAG
Á MYNDINNI eru: Geirlaug Þorvaldsdóttir, formaður félags ís-
Ienskra háskólakvenna, Birna Bjamadóttir, Herdís Heiðdal, móð-
ir Ingibjargar, og Sveinn Víkingur Ámason, eiginmaður Lilju.
Styrkveitingar Félags
íslenskra háskólakvenna
FÉLAG íslenskra háskólakvenna
hefur veitt árlega einn styrk til
konu á lokastigi framhaldsnáms.
I ár veitti félagið þijá slíka styrki
að upphæð 100.000 kr. til hvers
styrkþega.
Styrkirnir vom veittir 10. októ-
ber sl. í Norræna húsinu á fyrsta
fundi félagsins í haust en þar lék
Snorri Sigfús Birgisson, tónskáld
og píanóleikari, verk eftir sjálfan
sig. Styrkþegar stunda nám á sviði
bólkmennta, raunvísinda og lækn-
isfræði.
Bima Bjarnadóttir stundar
doktorsnám í íslenskum bók-
menntum við Háskóla íslands.
Doktorsritgerðin snýst um tóm-
hyggju í samhengi bókmennta,
trúar og heimspeki og hvemig
textar Guðbergs Bergssonar sýna
hlutdeild í þeirri samræðu með
því að bregðast við raunvemleika
guðleysis.
Ingibjörg Magnúsdóttir stundar
framhaldsnám til MS-gráðu við
HÍ í kennilegri eðlisfræði hálfleið-
ara og mun leggja áherslu á mjög
smátt mótaða hálfleiðara, svokall-
aða skammtímavíra eða skamm-
tímapunkta, sem em grunneining-
ar tölvukubba framtíðarinnar.
Hún tekur nú 3 námskeið við Éc-
ole Normale Superieure í París.
Lilja Sigrún Jónsdóttir læknir
er í framhaldsnámi í faraldsfræði
til doktorsgráðu við Erasmus há-
skólann í Rotterdam. Verkefni
hennar er sérstaklega afmarkað
við kransæðasjúkdóma í konum.
Ný samtök Skagafjarðar
listans stofnuð
NÚ um nokkurt skeið hafa farið
fram viðræður um hvernig best verði
staðið að framboðsmálum til nýrrar
sveitarstjórnar í sameinuðu sveitar-
félagi í Skagafirði, segir í fréttatil-
kynningu frá samráðshópi um
Skagafj arðarlistans.
Þar segir einnig: „Einstaklingar
úr Alþýðubandalagi, Alþýðuflokki,
Kvennalista og Þjóðvaka ásamt
óflokksbundnu fólki víða úr Skaga-
firði hafa hist á undanförnum vikum
og rætt leiðir til að mæta þessum
breyttu aðstæðum. Mikilvægt er að
í hinu nýja sveitarfélagi verði félags-
legt réttlæti haft að leiðarljósi og
að tekið verði tillit til allra íbúa hins
nýja sveitarfélags við stefnumótun.
Því hefur verið ákveðið að stofna
samtök Skagafjarðarlistans, sem
bjóða mun fram til sveitarstjórnar í
nýju sveitarfélagi í Skagafirði.
Við teljum að móta verði heild-
stæða stefnu í fjölmörgum mála-
flokkum þar sem áhersla verði lögð
á þátttöku sem flestra íbúa sveitar-
félagsins. Við viljum auka áhrif fólks
með valddreifingu og virku upplýs-
ingastreymi. Að ákvarðanir verði
teknar á faglegum grunni með hags-
muni heildarinnar að leiðarljósi. Þar
fari saman ábyrgð og festa en jafn-
framt áræði til nýrrar sóknar.
Samtökin munu byggja starf sitt
á hugsjónum um réttlát samfélag
þar sem jöfnuður, jafnrétti og virkt
lýðræði verður í fyrirrúmi. Samtökin
verða óháð landspólitískum flokkum
og félögum.
Ákveðið hefur verið að stofnfund-
ur þessra samtaka fari fram í janúar
á næsta ári.“
Úrval af velúrfatnaði, nátt- og nærfatnaði
Kvenbuxur frá kx. 2.990
einnig peysur og fleira
'lœsimewjcm
Austurveri,
Háaleitisbraut 68, sími 553 3305.
N*gbík
'astæð;
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Þakkir fyrir gott
jólahlaðborð
MIG langar til að koma á
framfæri þakklæti til Veit-
ingastaðarins Glæsibæjar
fyrir glæsilegt jólahlað-
borð. Það eina sem hægt
var að setja út á þetta var
að það voru of margar teg-
undir. Þetta var framúr-
skarandi góður matur, góð
þjónusta og hef ég sjaldan
borðað eins mikið á ævinni.
Sá sem stendur fyrir þessu
á hrós skilið. Sem sagt,
kærar þakkir fyrir.
Valdimar.
Augun þín blá
VIÐ sáum sýningu Borg-
arleikhússins sem færir
upp á stóra sviði sínu nú
í desember samantekt tón-
listar með söngvum og
textum bræðranna Jónas-
ar og Jóns Múla Árnasona
sem frá þeim hefír komið
gegnum tíðina. Lista-
mennirnir sem sungu, léku
og dönsuðu eru Andrea
Gylfadóttir, sem hér birtist
okkur óvænt sem klassísk
söngkona, Bergþór Páls-
son, okkar snjalli söngvari,
sem líka leikur hér einstak-
lega vel, með þeim Jó-
hanna Jónas, Kjartan Guð-
jónsson, Selma Bjömsdótt-
ir, Theodór Júlíusson og
Víðir Stefánsson. Hljóm-
sveitina skipa Kjartan
Valdimarsson, Gunnlaug-
ur Briem, Sigurður Flosa-
son og Þórður Högnason.
Sýning þessi er hið
mesta þarfaverk og er hin
ágætasta skemmtun. Ekki
aðeins var tónlistin ein-
staklega falleg heldur og
vel leikin, og aðallega heill-
uðu flytjendur áheyrendur
með góðum söng, dansi,
tali og einstaklega
skemmtilegum atriðum
sem flutt voru í kringum
söngvana um íslenzkan
tíma höfundanna.
Ljóðasöngur þessi á
svona fagurri íslenzku
heyrir algjörlega til undan-
tekningar, því flutningur-
inn var aliur gjörr af hinni
mestu kunnáttu í framsögn
og söng málhljóða. Slíkir
íslenzkir ljóðatónleikar
með fágaðri glettni minna
mest á gömlu revíurnar,
Bláu stjörnuna og gamla
daga, nema hér er þetta
flutt í nútímanum - af
snjöllum listamönnum -
og er saga um okkur sjálf.
Flytjendunum ber að
þakka fyrir afburða góða
sýningu sem gestir sýndu
að náði vel til þeirra, beint
í æð. Óskandi væri að slík-
ar uppfærslur yrðu fleiri.
150726-2209.
Óperuflutningur
á Rás 1
VEGNA fyrirspumar
Kristínar um óperuflutning
á Rás 1:
Óperuflutningur á Rás 1
á laugardagskvöldum
helgast af því að oft er um
beinar útsendingar að
ræða frá erlendum óperu-
húsum og þá ráðum við
ekki tímasetningu hljóm-
leikanna. Óperuunnendur
hafa fagnað þessu dag-
skrárefni en óperurnar
geta samt átt heima á öðr-
um tíma í dagskránni, ef
þær eru teknar upp og
fluttar síðar. Þessi mál eru
nú til endurskoðunar. Við
vitum að flöldi fólks kýs
létta og alþýðlega dagskrá
í Útvarpinu á laugardags-
kvöldum. Á Rás 1 eiga
„gömlu, góðu gildin" sinn
samastað og dans- og
dægurlög frá fyrri tíð eru
svo sannarlega hluti af
góðri laugardagshefð í
Útvarpinu. Undir það skal
tekið með Kristínu.
Með kveðju.
Markús Om Antonsson
framkvæmdastjóri.
Tapað/fundiö
Kvengullúr týndist
KVENGULLÚR týndist sl.
sunnudag í Holtagörðum.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 554 5254.
Húslyklar í óskilum
TVEIR húslyklar fundust
á Miklatúni sl. sunnudag.
Uppl. í síma 562 2885.
Dýrahald
Köttur týndur
í Mosfellssveit
SVARTUR og hvítur gelt-
ur fress á fjórða ári týnd-
ist frá Sveinsstöðum við
Úlfarsfell í Mosfellssveit.
Kötturinn er haltur á aft-
urfæti. Þeir sem hafa orðið
varir við hann hafi sam-
band við Viktor í síma
854 4111.
Svartur fress
týndist frá
Langholtsvegi
STÓR, svartur fress með
hvítt á löppunum, hvíta
bringu og hvítan kvið og
hvítt á snoppu hvarf frá
Langholtsvegi 3. desem-
ber. Hann er eymamerkt-
ur. Hans er sárt saknað.
Uppl. í síma 568 1523.
Júlíus Máni
er týndur
JÚLÍUS Máni er fress,
fæddur í júní, bröndóttur
og ómerktur. Júlíus fór að
heiman frá Suðurgötu 4
14. nóvember. Þeir sem
hafa orðið hans varir vin-
samlega hafið samband í
síma 562 2762 eða
899 3370.
SKAK
IJmsjón Margcir
Pétursson
Staðan kom upp á alþjóð-
legu skákmóti í La Plata í
Argentínu í haust. Stór-
meistarinn Oscar Panno
(2.450) hafði hvítt og átti
leik gegn Hector Rossetto
(2.285), sem einnig ber stór-
meistaranafnbót.
38. Bxb6 - Dxb6 39.
Hxd5! (Hvíta fléttan er
möguleg vegna þess að
bæði svörtu peðin sem valda
riddarann eru leppar) 39. -
exd5 40. Dxc8 - Hxe5 41.
Dxc6 - Dd8 42. Dxa6 -
Dg5 43. Hc8 og svartur
gafst upp.
Bent Larsen vann góðan
sigur á mótinu, hlaut 6‘A
vinning af 9 mögulegum.
Argentínumennirnir Panno
og Zamicki og Rússinn So-
rokin komu næstir með 6 v.
Heimsmeistaramótið í
Hollandi: Seinni skákin í
annarri umferð er tefld í
dag.
HVÍTUR
leikur
og vinnur
Víkveiji skrifar...
SÚ GLEÐILEGA þróun hefur átt
sér stað á undanförnum árum
að stjórnmálaflokkarnir hafa opnað
fundi sína fyrir ijölmiðlum. Þannig
er tryggt, að þjóðin fái fréttir af
vettvangi stjórnmálanna. Meira að
segja Kvennalistinn, sem gjarn hef-
ur verið á að læðupokast með sín
mál, hafði landsfund sinn í haust
galopinn.
Því skaut það nokkuð skökku við
á dögunum, að formanna- og
flokksráðsfundur Sjálfstæðis-
flokksins var að stórum hluta lokað-
ur fjölmiðlum. M.a. var fundinum
lokað þegar rætt var um fiskveiði-
stefnuna.
Blaðamönnum var aðeins leyft
að hlýða á ræðu formanns flokksins
og formanna einstakra sambanda.
Það vakti athygli að formaður SUS
skammaði fjölmiðlana fyrir að fjalla
nær eingöngu um hvað vinstri menn
væru að bardúsa en lítið um starf
innan Sjálfstæðisflokksins.
Skömmu síðar voru fjölmiðlamenn
beðnir að yfirgefa salinn! Ráðherrar
flokksins ætluðu að sitja fyrir svör-
um og fundinum var lokað að nýju.
xxx
ELDRI kona hafði samband við
skrifara og sagðist hafa
hrokkið illilega við er hún fékk
upplýsingar um kostnað vegna sím-
tala nýlega. Hún sagðist hringja
talsvert til útlanda, meðal annars
til barna sinna sem búa erlendis.
Hún hefði tekið það sem gott og
gilt er frá því var greint í fréttum
í haust að símgjöld til útlanda
myndu lækka.
Hún hefði ekki áttað sig á að
þetta væri misjafnt eftir löndum og
m.a. hefði hún komist að því að
símtöl tii ríkja í Suður- og Mið-
Ameríku hefðu alls ekki lækkað.
Hún sagði þetta hafa verið mjög
bagalegt í sínu tilviki og eflaust
hefðu fleiri tekið það sem gott og
gilt að þessi kostnaður myndi
lækka.
Sagðist konan velta því fyrir sér
hvort Póstur og sími hf. gæti ekki
dreift upplýsingum um verð fyrir
símgjöld til einstakra staða og hvar
orðið hefðu breytingar. Breyting-
arnar síðastliðið haust hefðu væg-
ast sagt verið mjög ruglingslegar
fyrir venjulegt fólk.
xxx
ÍKVERJI er einn af þeim fjöl-
mörgu sem lagt hafa leið sína
á veitingahús nú í byijun desember
til að njóta glæsilegra jólahlað-
borða. Að þessu sinni varð Hótel
Borg fyrir valinu enda hefur veit-
ingastaður hótelsins þótt bjóða upp
á ágæt hlaðborð undanfarin ár.
Panta þurfti borð með góðum fyrir-
vara og um síðustu helgi rann stóra
stundin upp.
En hátíðlegt yfirbragð kvöldsins
dvínaði fljótt þegar í ljós kom að
ótrúlega mikill mannfjöldi var þar
saman kominn. Strax og borðhaldið
hófst um kl. 19.00 mynduðust lang-
ar biðraðir og örtröð við hlaðborðin.
Langur tími fór í að sækja forrétt,
aðalrétt og eftirrétt. Fyrr en varði
kom þjónn að borðinu og mæltist
til þess að staðið yrði upp frá borð-
um, enda þurfti að undirbúa borð-
haldið fyrir þá gesti sem voru vænt-
anlegir kl. 21.00.
Víkveiji og samferðamenn hans
urðu fyrir töluverðum vonbrigðum
með borðhaldið þetta kvöld þótt
maturinn hafi bragðast ágætlega.
Það getur vart talist viðunandi að
fólk þurfi að eyða löngum tíma í
biðröðum á jafn virðulegum veit-
ingastað sem krefur hvern gest um
3.300 krónur fyrir jólahlaðborð.
Lætur nærri að reikningur fyrir
hjón eftir þessa stuttu stund hafí
hljóðað .upp á um 10 þúsund kr.
að öllu meðtöldu. Víkveiji er ákveð-
inn í því að fara annað á næsta ári
þar sem mögulegt er að njóta mat-
arins betur í ró og næði.