Morgunblaðið - 12.12.1997, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 12.12.1997, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Meistaranám í tölvunarfræði við Háskólann samþykkt Eykur áhuga og tekj- ur fastakennara BÆJAR- og sveitarstjórnarmenn úr Garðabæ, Bessastaðahreppi og Hafnarfirði hittust í gær í Hafnar- firði til að ræða ýmis sameiginleg málefni. Fulltrúar Hafnfirðinga boðuðu til fundarins og var m.a. rætt um sameiningarmál. Samein- ing var þó ekkert aðalatriði í fundinum að sögn Ingimundar Sigurpálssonar, bæjarstjóra í Garðabæ. „Þarna var rætt um samstarf á ýmsum sviðum sem við höfum átt í mörg ár, svo sem vatnsveitu- og raforkumál og síðan hugsanleg sameiningarmál," sagði Ingi- mundur ennfremur. Hann kvaðst ekki eiga von á frekari fundum um sameiningu en menn hefðu orðið sammála um að gagnlegt væri að hittast og ræða málin. „Ég á von á því að sveitarstjórnar- menn í þessum þremur sveitarfé- lögum eigi eftir að hittast oftar til ræða sameiginleg málefni. En sameiningarumræðan er ekkert atriði í þessu,“ sagði Ingimundur ennfremur. Ingimundur sagði að fram- kvæmdastjórar sveitarfélaganna hittust mánaðarlega til að fjalla um sameiginleg mál en langt væri síðan að allir bæjarfulltrúar hefðu hist. FJÁRLAGANEFND Alþingis leggur til í áliti sínu í gær að framlag til Háskóla íslands á fjárlögum næsta árs hækki um 50 milijónir króna en ekki 250 milljónir eins og skólinn hafði farið fram á. Þar af hækkar framlag til rannsóknarnáms um 35 milljónir króna, en farið var fram á 43 milljónir. Háskólaráð samþykkti á fundi sín- um í gær tillögu um að komið yrði á skipulögðu meistaranámi í tölvun- arfræðum sem mun geta aukið veru- lega rannsóknarnám í skorinni. skAk Groningen HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í SKÁK Heimsmeistaramótið í skák fer fram í Hollandi 8.-30. desember EINVÍGIN í annarri umferð á heimsmeistaramótinu í skák hó- fust í gær. 64 skákmeistarar sett- ust niður til að tefla, en margir sterkir skákmenn eru fallnir úr keppni, þeirra á meðal bandarísku stórmeistararnir Christiansen, Benjamin, Gulko og Yermolinsky, undrabörnin Leko frá Ungveija- landi og Bacrot (Frakklandi), Smyslov, fyrrverandi heimsmeist- ari frá Rússlandi, danski stór- meistarinn Curt Hansen og Mar- geir Pétursson. Jóhann Hjartarson og Helgi Áss Grétarsson eru enn með í barátt- unni, sem fer harðnandi, því að nú eru nánast allir keppendur mjög hátt skrifaðir, ef tekið er mið af 2. 600 stiga markinu á aljóðlega listanum. Helgi Áss og kólombíski stórmeistarinn Garcia hafa langfæst stig þeirra, sem enn keppa á mótinu. Það er þó engin ástæða fyrir þá til að láta hugfallast, því að gamla spakmælið er enn í fullu gildi: „Það er ekki nóg að vera sterkur skákmaður, það verður líka að tefla vel!“ Jóhann hafði svart í skák við 24 ára stórmeistara frá Hvíta-Rúss- landi, Alexej Alexandrov að nafni. Hvít-Rússinn er lítið þekktur hér á landi, en hann hefur þrisvar orðið meistari lands síns, og hefur 55 stigum meira en Jóhann. Byijunin Einnig var samþykkt að bjóða stúd- entum í öllum deildum 30 eininga nám í tölvunarfræði frá haustinu 1999. Að sögn Gunnlaugs Jónssonar háskólaritara er skilyrðið að nægi- legt fé fáist til að starfsins og nú sé ljóst að það hafi verið tryggt. „Mér sýnist að niðurstaða fárlaga- nefndarinnar breyti engu um ákvörðun okkar, séu frekar eindreg- in skilaboð frá menntamálaráðu- neytinu um að það vilji efla fram- halds- og meistaranám og rannsókn- ir við Háskólann. Ég tel að túlka megi ákvörðun fjárlaganefndar þannig." Lengi hefur verið ljóst að hug- búnaðarfyrirtæki hafa boðið mun hærri laun en Háskólinn og því ver- ið rætt um að tölvunarfræðiskorin myndi ekki geta tryggt hæfa kenn- ara til lengdar nema með því að bæta aðstöðu og kjör, bjóða upp á flóknari kennslustörf. Er einnig bent á að hægt sé að styrkja B.S.- námið í greininni með meistaranám- inu. Nemendur í meistaranámi geti verið með dæmatíma fyrir B.S.- nemendur og kennarar geti nýtt vinnu þeirra við rannsóknir og með öðrum hætti. Oddur Benediktsson, prófessor í tölvunarfræði, fékk í vor launalaust leyfi í eitt ár og lýsti mikilli óánægju með kjör sín. Snorri Agnarsson pró- fessor sagði stöðu sinni lausri í haust en hyggst nú að sögn Jóhanns P. Malmqvist, prófessors og deildarfor- seta raunvísindadeildar, draga upp- var nimzoindversk vörn og hafði Jóhann þrönga stöðu framan af skákinni. Honum tókst þó að losa um sig og vann peð, sem ekki dugði til sigurs í endatafli. Jafntefli var samið, eftir 62 leiki. Helgi Áss tefldi við hinn 37 ára gamla Rússa Artúr Júsupov, sem nú teflir undir þýskum fána. Helgi eyddi miklum tíma í byijunina og lenti í vandræðum, og greip þess vegna tækifærið til að fórna manni og þráskáka, þegar það bauðst. Af öðrum úrslitum má nefna, að ofurstórmeistarinn Vassilíj ívan- sjúk tapaði fyrir Yasser Seirawan í aðeins 22 leikjum. Önnur athyglis- verð úrslit: Andersson-Milov, 1-0; Adams-Georgadze, 1-0; Hracek- Lautier, 0-1; Nikolic-Anand, 0-1; Luther-Akopjan, 'A; Bologan-Vag- anjan, 0-1; Barejev-Malanjuk, 1-0; Svidler-Adianto, 1-0; Rozentalis- Tiviakov, 0-1; Morozevistj-Oll, 0-1; 1. Sokolov-Episjin, 1-0. Seinni skákirnar í einvígjunum í 2. umferð verða tefldar í dag, en komi til bráðabana, verður hann tefldur á morgun. Hvítt: Helgi Áss Grétarsson Svart: Artúr Júsúpov Drottningarbragð 1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3 - d5 4. Rc3 - Be7 5. Bg5 - h6 6. Bh4 - 0-0 7. e3 - b6 8. Be2 - Bb7 9. Bxf6 - Bxf6 10. cxd5 - exd5 11. b4 - c6 12. 0-0 - a5 13. b5 - c5 14. Hcl - Rd7 15. dxc5 - Rxc5 16. Rd4 — Hc8 17. Bg4 - Hc7 18. Ra4 - Re4 19. Dd3 - Eðlilegast virðist að leika 19. Hxc7 - Dxc7 20. Dcl o.s.frv. 19. - Hc4! 20. Rb2 - Ekki gengur 20. Hxc4 - dxc4 21. sögnina til baka en sækja þess í stað um launaiaust leyfi vegna annarra starfa sem hann tók að sér. Mun hann taka þátt í að undirbúa meist- aranámið nú í desember ef af verð- ur, að sögn Jóhanns. Vonast eftir stuðningi tölvufyrirtækja Gunnlaugur sagði aðspurður að menn vonuðu að tölvufyrirtækin myndu styrkja meistaranámið með einhveijum hætti, t.d. með tölvu- kosti og öðrum búnaði. Einnig væri ljóst að með því að efna til meistara- náms væri hægt að bjóða áhugaverð- ari aðstæður fyrir kennara, þeir fengju aukna möguleika á að sækja um ýmsa rannsóknastyrki. Eins og aðrar ríkisstofnanir hefur Háskólinn nú fengið meira svigrúm en áður til að ráðstafa fé sínu í sam- ræmi við þarfir á hveijum tíma. Verða launakjör kennara í tölvunar- fræði betri en annarra kennara við skólann? „Með auknum fjölda nemenda er svigrúmið auðvitað meira,“ sagði Gunnlaugur. „Almennt hefur nú Háskólinn ekki tekið neina ákvörðun um að mismuna mönnum í launum eftir því hvaða starfi þeir eru. Ég held því að menn ættu að fara var- lega í að fullyrða eitthvað um það. Ef aðstaða kennara batnar til rann- sókna og þeir skila meiri afköstum samkvæmt reglum vinnumatssjóðs um árangursmat geta tekjur þeirra hækkað." Dxc4 - Rd2 og svartur vinnur skiptamun. 20. - Hc5 21. Ra4 - Bxd4! 22. exd4 - Því miður má Helgi ekki drepa með drottningu, því að þá fellur peðið á b5. 22. - Hc4 23. Rc3 - Dc7 24. Re2 - f5 25. Bh3 - g5?! Júsupov hefur náð varanlegum stöðuyfirburðum, vegna þess, að hann hefur góð tök á c-línunni og menn hans standa flestir betur en þeir hvítu, sérstaklega hrókurinn á c4 og riddarinn á e4. Það er þess vegna óþarfí hjá honum að veikja kóngsstöðuna og gefa þannig Helga kost á mannsfórn og þrá- skák. 26. f3 - Rd6 27. f4! - g4 28. Bxg4! - fxg4 29. Dg6+ - Kh8 Svarta drottningin getur ekki tekið þátt í vörninni, því að þá fellur ridd- arinn á d6. 30. Dxh6+ - Kg8 31. Dg6+ - Kh8 32. Dh6+ - Kg8 33. Dg6+ - Kh8 og keppendur sömdu um jafntefli. Bragi Kristjánsson Utanlandspóstur Reykjanesbæjar Sendur til Reykjavík- ur og aftur til baka EFTIR að pósthúsi Pósts og síma hf. var lokað í Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar eftir síðustu áramót hef- ur allur póstur frá Reykjanesbæ, sem póstlagður er til útlanda, ver- ið sendur til flokkunar í póstmið- stöðinni í Ármúla í Reykjavík og þaðan sendur til flugstöðvarinnar í stað þess að vera sendur beint frá Reykjanesbæ til flugstöðvar- innar eins og áður. Að sögn Harðar Jónssonar, for- stöðumanns sölu- og þjónustu- staða Pósts og síma hf., á þetta nýja skipulag ekki að valda nein- um töfum á utanlandspósti sem póstlagður er í Reykjanesbæ, jafn- vel þótt vegalengdin til Reykjavík- ur og til baka sé 100 kílómetrar. „Allur póstur sem þar er póst- lagður fyrir lokun pósthússins í Reykjanesbæ kl. 16.30 er sendur sama dag til Reykjavíkur til flokk- unar. Um kvöldið eða kl. 21 er allur utanlandspóstur síðan sendur til Keflavíkurflugvallar. Það fer síðan eftir áætlunarflugi Flugleiða hvenær pósturinn er sendur utan,“ segir Hörður. Þannig nær sá póst- ur Reykjanesbæjar sem flokkaður er í Reykjavík sama utanlandsflugi og ef hann hefði verið sendur beint frá Reykjanesbæ til flugstöðvar- innar, að sögn Harðar. Bæjarfulltrúar þriggja sveitarfélaga hittust í gær Morgunblaðið/Golli BÆJARFULLTRÚAR úr Hafnarfirði, Garðabæ og frá Bessastaða- hreppi hittust og ræddu sameiginleg málefni á fundi í Hafnarfirði í gær, meðal annars um vatnsveitu og raforkumál. Ekki líkur á frekari sameiningarumræðu Helgi Ass og Jóhann tefla í 2. umferð á HM í skák Helgi náði að þráskáka í mjög erfiðri stöðu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.