Morgunblaðið - 12.12.1997, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 15
AKUREYRI
Smíði rannsóknarskips fyrir Hafrannsóknastofnun
fari ekki út fyrir landsteinana
Tilboði Slippstöðvar-
innar verði tekið
ODDUR Halldórsson fulltrúi
Framsóknarflokks í bæjarstjórn
Akureyra lagði á fundi bæjarráðs
í gær fram tillögu um að skorað
verði á ríkisstjóm íslands að leita
allra leiða til að verkefni við smíði
nýs rannsóknarskips fyrir Haf-
rannsóknastofnun fari ekki út fyr-
ir landsteinana, heldur verði tilboði
Slippstöðvarinnar á Akureyri tek-
ið.
Tilboð í smíði skipsins voru opn-
uð í síðustu viku og bárust fimmt-
án tilboð, þar af eitt innlent, frá
Slippstöðinni á Akureyri en það
hljóðaði upp á 1,6 milljarða króna.
Lægsta tilboðið var frá skipa-
smíðastöð í Kína, 918 milljónir
króna, en það hæsta var frá skipa-
smíðastöð í Bandaríkjunum, 2,2
milljarðar króna. Áætlað var að
kostnaður við smíði skipsins yrði
1,3 til 1,4 milljarðar króna.
Um 60 ársstörf
Oddur sagði að ánægjulegt væri
að á Akureyri væri svo stórt og
öflugt fyrirtæki eins og Slippstöðin
sem hefði getu, þekkingu, þor og
vilja til að bjóða í svo stórt og
krefjandi verkefni sem smíði rann-
sóknarskipsins væri. Það yrði mik-
il lyftistöng fyrir bæinn og stærra
svæði í rauninni því um yrði að
ræða kringum 60 ársstörf vegna
smíðinnar meðan á henni stæði auk
ýmissa hliðaráhrifa.
Oddur sagði að leiða mætti að
því rök að af þessum 1.600 milljón-
um króna sem smíðin kostar fái
ríkissjóður allt að 500 milljónum
króna í formi staðgreiðsluskatta,
annarra skatta og gjalda, þannig
að þegar allt kæmi til alls væri
munurinn kannski ekki svo ýkja
mikill. Nefndi Oddur einnig að
störf við smíði þessa skips hefðu
margföldunaráhrif, ávinningurinn
yrði mjög mikill, ekki bara fyrir
Akureyri heldur iðnaðinn og landið
í heild.
Morgunblaðið/Kristján
Skrifað undir
styrktarsamning
BÚNAÐARBANKINN á Akureyri
hefur skrifað undir styrktarsamning
við íþróttafélagið Þór. Styrkurinn
er veittur í tengslum við endurskipu-
lagningu á fjárhag félagsins og gerð
skuldaskilasamninga við aðra lánar-
drottna, bæði fyrirtæki, stofnanir
(áðrar en ríkisstofnanir) og einstakl-
inga.
Ásgrímur Hilmisson, útibússtjóri
Búnaðarbankans, t.v. og Guðmund-
ur Sigurbjömsson, formaður
íþróttafélagsins Þórs, skrifuðu undir
samninginn fyrir helgina. Fyrir aft-
an þá standa stjórnarmenn Þórs,
Gísli Kristinn Lórenzson, varafor-
maður, Andri Gylfason, formaður
körfuknattleiksdeildar, Bjarni Krist-
insson, gjaldkeri aðalstjómar, og
Þórarinn B. Jónsson, meðstjórnandi.
Morgunblaðið/Kristján
DANÍEL Snorrason í rannsóknardeild lögreglunnar á Akur-
eyri, Ólafur Guðmundsson formaður Félags íslenskra fíkniefna-
lögreglumanna, Ingjaldur Arnþórsson forstöðumaður í Varp-
holti og Gunnlaugur Valtýsson, gjaldkeri Félags íslenskra fíkni-
efnalögreglumanna.
Félag íslenskra fíkniefnalögreglumanna
Unglingaheimilum
gefnar tölvur
Miðaldra hjón á Akureyri duttu í lukkupottinn
Fengu 35 milljóna króna
happdrættisvinning
FULLTRÚAR Félags íslenskra
fíkniefnalögreglumanna færðu íbú-
um á Varpholti, meðferðarheimili
fyrir unglinga, tölvu ásamt tilheyr-
andi búnaði og áskrift að Netinu í
hálft ár. Þeir komu einnig færandi
hendi að heimilinu Árbót í Aðaldal,
sem einnig er fyrir unglinga en það
eignaðist einnig nýja tölvu og búnað
í gær. Áður hafa fíkniefnalögreglu-
menn gefið meðferðarheimilinu að
„JÓLABÆRINN Akureyri" er átak
sem nú stendur yfir, en Ferðamála-
miðstöð Eyjafjarðar hefur umsjón
með því. „Ákureyri er þekktur jóla-
bær og með þessu átaki ætlum við
að negla það skilti dálítið fastar á
bæinn,“ sagði Guðmundur Heiðar
Birgisson forstöðumaður þegar
átakið var kynnt.
Bærinn byggir á sterkri jólahefð
og auka miklar jólaskreytingar enn
frekar á stemmninguna sem jafnan
skapast í bænum og dregur að sér
fjölda gesta hvaðanæva af iandinu.
Fjölmargt verður á dagskrá fram
að jólum, en hápunktur aðventunnar
verður án efa jólatónleikar Kristjáns
Jóhannssonar og Mótettukórs Hall-
grímskirkju í Ákureyrarkirkju um
næstu helgi. Þá flytur Kammersveit
Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
Messías, auk þess sem nefna má
jólatónleika Kórs Akureyrarkirkju
Bakkaflöt í Skagafirði tölvubúnað.
Félag íslenskra fíkniefnalög-
reglumanna gaf í fyrra út bækling
með almennum upplýsingum um
fíkniefni og hefur hann nú verið
gefinn út öðru sinni. Ágóðinn af
útgáfunni var að hluta til notaður
til að fjármagna tölvukaupin.
Vænta lögreglumenn þess að tölv-
urnar muni nýtast unglingunum
bæði í námi og leik.
og ljóðakvöld á Sigurhæðum. Sýn-
ingin „Desember 97“ verður opnuð
í Deiglunni um næstu helgi og þá
verður ,jóladjass“ þar í næstu viku.
Jólaball á Ráðhústorgi
Efnt verður til jólaballs á Ráðhús-
torgi á fimmtudagskvöld í næstu
viku, 18. desember. Allir helstu tón-
listarmenn landsins koma fram og
leika lög af nýjustu hljómdiskum
sínum, kórar koma fram, jólasveinar
fara á kreik og þá verður dansaður
línudans. í lokin verður dansað í
kringum jólatréð frá Randers.
Flesta daga fram að jólum verða
sönghópar, kórar, blásarasveitir og
aðrir tónlistarmenn á ferð um
miðbæinn og kaupmenn leggja sér-
staka áherslu á að kynna það sem
þeir hafa upp á að bjóða á jólaföst-
unni, en m.a. verður sungið og lesið
upp í verslunum.
MIÐALDRA hjón á Akureyri,
sem ekki vilja láta nafn síns
getið, duttu heldur betur í
lukkupottinn er dregið var í
Happdrætti Háskóla íslands í
fyrradag og fengu alls 35
milljónir króna í vinning.
Hæsti vinningur kom á miða
númer 15012 og áttu tveir við-
skiptavinir miða með því núm-
eri. Akureyrsku hjónin eiga
trompmiða og tvo einfalda
miða, sem gáfu þeim 35 millj-
ónir króna en hinn miðinn var
keyptur á Eskifirði og fékk
eigandi hans 5 milljónir króna
í sinn hlut.
Omnya
6N-0621 í
Deiglunni
SÝNINGIN Omnya 6N-0621
verður opnuð í Deiglunni í
Kaupvangsstræti á morgun,
laugardaginn 13. desember kl.
16, en um er að ræða samsýn-
ingu 6 listamanna. Sýningin
er tileinkuð samnefndum rúss-
neskum togara sem liggur við
Torfunefsbryggju við rætur
Listagils en togarinn er eitt af
verkum sýningarinnar.
Þeir sem þátt taka í sýning-
unni eru Jón Laxdal Halldórs-
son, Jónas Viðar Sveinsson,
Sólveig Baldursdóttir, Laufey
Margrét Pálsdóttir, Hrefna
Harðardóttir og Guðrún Pálína
Guðmundsdóttir.
Sýningin verður opin frá kl.
14 til 18 alla daga og frá kl.
14 til 22 á Þorláksmessu sem
er síðasti sýningardagur.
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kirkjuskóli í Svalbarðskirkju á
laugardag, 13. desember kl.
11 og sama dag kl. 13.30 í
Grenivíkurkirkju. Kyrrðar- og
bænastund verður í Grenivíkur-
kirkju næstkomandi mánu-
dagskvöld, 15. desember kl. 21.
Aðventukvöld verður í Greni-
víkurkirkju kl. 20.30 á sunnu-
^ dagskvöld, 14. desemb»r.
Gísli Jónsson, umboðsmað-
ur HÍ á Akureyri, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að vinn-
ingurinn kæmi sér vel fyrir
hjónin en þetta er stærsti
vinningur sem komið hefur á
happdrættismiða á Norður-
landi. Hæsti vinningur sem
Gísli hafði áður greitt út var
10 milljónir króna.
50 milljónir
í desember
„Akureyringar eru ekkert
að spila meira en gengur og
gerist á landsvísu en þeir hafa
verið einstaklega heppnir.
MIKIÐ verður um að vera í Gamla
bænum í Laufási á sunnudag, 14.
desember en þá mun hópur fólks
dusta rykið af gömlum siðum og
venjum sem einkenndu undirbún-
ing jólanna hér á landi fyrir einni
öld.
í baðstofu mun fólkið sitja við
útskurð laufabrauðs sem steikt
verður á hlóðum og í gamla eldhús-
inu verður soðið hangikjöt sem
gestir fá að smakka. Tólgarkerti
verða gerð og George Hollanders
BÚNAÐARBANKINN á Akureyri
verður opið hús í afgreiðslum
bankans að Geislagötu 5 og í
Sunnuhlíð laugardaginn 13. des-
ember frá kl. 13-16.
Þar gefst bæjarbúum og nær-
sveitarmönnum kostur á að kynna
s4r starfsemi bankans, rn.a.
Með þessum stóra vinningi er
umboðið á Akureyri að borga
út um 50 milljónir króna í
vinninga nú í desember, sem
þýðir 90-100 milljónir króna
á ársgrundvelli.“
Hæsti vinningurinn í HÍ í
desember í fyrra, 5 milljónir
króna, kom á miða á Akureyri
og í nóvember sl. kom hæsti
vinningurinn í Heita
pottinum, 2 milljónir króna,
til Akureyrar. „Þannig að við
höfum verið mjög heppin á
þessu ári eins og svo oft
áður,“ sagði Gísli.
leikfangasmiður útbýr leikföng úr
tré. Jólaskraut verður búið til, jóla-
tré sett upp og það skreytt.
Eldri nemendur grunnskólans á
Grenivík verða með heitt kakó og
piparkökur til sölu svo gestir fái í
sig yl og loks má geta þess að ís-
lenskir jólasveinar heimsækja
Laufás og verða á ferðinni um kl.
14.30, en dagskráin hefst kl. 13
og lýkur kl. 15. Aðgangseyrir er
200 krónur fyrir þá sem eru eldri
en 12 ára.
Heimabankann á Internetinu,
Heimilislínuna, Hlutabréfasjóðinn,
Æskulínuna og Herkúles. Þá verð-
ur gestum kennt á hraðbankann
og þjónustusímann.
Snæfinnur snjókarl kemur í
heimsókn og heitt verður á könn-
unni.KPR>
Átakið „Jólabær-
inn Akureyri“
Gamli bærinn í Laufási
Jólahald fyrir
einni öld
Búnaðarbankinn
með opið hús