Morgunblaðið - 12.12.1997, Síða 30
30 FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MYNDLIST
IVýlistasafniít
SKULPTUR
GUÐJÓN KETILSSON
Pússað og penslað
Til 14. desember. Aðgangur ókeypis.
ÞEGAR gengið er inn í neðri sal
Nýlistasafnsins þá blasa við tólf pör
af skóm sem er snyrtilega raðað upp
við vegg. Skórnir eru vandlega
skornir úr tré, litaðir og fægðir,
þannig að giansar af þeim. Verkið
heitir „Staðgenglar", eftir Guðjón
Ketilsson. Þeir hlutir sem Guðjón
sker út eru yfírleitt hversdagslegir
og auðþekkjanlegir. A þessari sýn-
ingu eru skór áberandi, á þeirri síð-
ustu, í Norræna húsinu, voru það lág-
myndir af húsum. Kannski muna ein-
hverjir eftir höfuðmyndum gerðum
úr rótarendum trjástofna. En það
sem bindur saman allt það sem Guð-
jón gerir er einstaklega nákvæm,
þolinmóð og hægferðug vinna. Alúð
væri kannski viðeigandi orð. Engum
hefði brugðið við að koma inn í
Nýlistasafnið og sjá raunverulega,
slitna og lúna skó standandi á gólf-
inu, í staðinn fyrir þá útskomu. En
það er engar skyndilausnir að fínna í
verkum Guðjóns. Hann á það tii að
lakka verkin með mörgum lögum og
pússa þau síðan, þannig að undirlagið
skín í gegn. I einu verki á sýningunni
notfærir hann sér þetta út í æsar:
tveir fletir, annar dökkur, hinn Ijós.
Á dökka fletinum skín í ljóst undirlag
og á því ljósa er dökkur díll þar sem
Guðjón hefur pússað í gegnum lögin.
Það má kannski segja að verk Guð-
jóns veki spurningu sem hljómar
undarlega í fyrstu og hefur lengi leg-
ið óhreyfð: hvert er listrænt gildi
hins fínpússaða? Með stórfenglegri
einfóldun má segja að nútímalistin
hafí einmitt byrjað sem andóf gegn
fínpússuðu yfirborði saion málverks-
ins. Erum við komin heOan hring?
Guðjón er af þeirri íslensku
konsept-kynslóð sem tileinkaði sér
tvær meginreglur varðandi hand-
bragð og útfærslu. I fyrsta lagi, að
leggja aldrei meira á sig fyrir út-
færslu verksins en nauðsyn krefur til
að koma inntaki þess til skila, og í
öðm lagi, að gefa verkinu forgang
fram yfir listamanninn, og forðast
það að þröngva persónu listamanns-
ins upp á verkið, t.d. með því að gera
það að leikvelli fyrir leikni hans og
handbragð. Þessi prinsíp eiga sér
sögulegar forsendur. Þær vom við-
bragð við dýrkun og upphafningu á
listamanninum, þar sem persóna
listamannsins og snilldarlegt hand-
bragð hans var metið ofar öllu og
listaverkinu hampað sem einstökum
dýrgrip.
Hefur Guðjón þá brotið þessi tvö
prinsíp, með því að leggja miklu
meira á sig en inntakið virðist krefj-
ast, og gera handbragðið og nálægð
listamannsins aftur að þungamiðju
athyglinnar? Ekki ef vinnan er inn-
tak verksins, ef verkið er ekki um
skó, heldur eru skórnir um verkið, ef
svo má að orði komast. Hér er ekki
verið að tala um leikni, tækni eða
íþrótt, sem sviðsetur sig með látum,
hér er engin snilld sem fær mann til
að taka andköf af hrifningu, heldur
frekar það sem mætti kalla iðju, sem
er alltaf til staðar og sinnir öllu verki
af sömu umhyggju. Þetta er einhvers
konar tilfinning fyrir vinnu sem á
frekar heima í tímalausum heimi
klaustursins en skarkala tækni-
heims.
LÁGMYND eftir Guðjón Ketilsson.
MÁLVERK
KRISTÍN BLÖNDAL
í SÚM sal og bjai-ta sal á miðhæð-
inni sýnir Kristín Blöndal 19 olíu-
málverk. Hún útskrifaðist úr Mynd-
lista- og handíðaskóla Islands 1992
og hefur sýnt nokkrum sinnum síð-
an, sfðast í Galleríi Greip 1996 (sem
nú er lokað). Allar myndirnar eru
fígúratívar uppstillingar með
konunekt og ávöxtum, málaðar í
hlýjum litum. Andrúmsloftið er
dreymið, því rýmið sem hlutirnir eru
staddir í er ekki skilgreint og bak-
grunnur er enginn. Konulíkaminn,
ávextir og skálar fljóta um í rauð-
leitri móðu. Satt að segja er ýmis-
legt athugavert við myndirnar sem
kemur í veg fyrir að þær geti talist
sannfærandi meðferð á viðfangsefn-
inu. Mér sýnist Kristín ekki ráða al-
mennilega við mótun líkamans, sem
sést bæði af smáatriðum, eins og
höndum og fótum, en einnig inn-
byrðis hlutfóllum og stöðu. Nú er
viðtekið að allt sé leyfilegt og allt
mögulegt þegar mannamyndir eru
annars vegar, og hver og einn tekur
efnið eigin tökum. En það má ekki
skilja svo að þar með séu ekki gerð-
ar kröfur, eða allir geri hlutina vel á
eigin forsendum. Þvert a móti þýðir
þetta „frelsi" að það eru gerðar enn
meiri kröfur til að finna trúverðuga
leið til að nálgast formið, því að það
eru engir sjálfgefnir mælikvarðar
eða fyrirmyndir.
En það er ekki aðeins líkaminn
einn sem veldur vandræðum, óskýr
sem Hallsteinn hefur átt í 24 ár. All-
staðar þar sem blái Willys jeppinn er,
þar er Hallsteinn, og allstaðar þar
sem Hallsteinn er, þar er jeppinn,
þeir eru óaðskiljanlegir. Ekki þarf
annað en að nefna Willys R-35199 og
þá kemur Hallsteinn upp í hugann,
þ.e. svo framarlega sem maður er vel
kunnugur Hallsteini og háttum hans
- sjálfur hafði ég ekki hugmynd um
að Hallsteinn ætti bláan jeppa.
Nafnhvörf munu þetta í stílfræð-
um, þ.e. Hallsteinn er nefndur, ekki
með því að nefna hann beint, heldur
með því að nefna eitthvað sem teng-
ist honum náið og leiðir hugann að
honum. Og eðlilega spyr maður sig
að því hvað fær Gunnar til að nota
slíkt stílbragð. Er jeppinn persónu-
gervingur Hallsteins? Hann er gam-
all og traustur, tilheyrir fortíðinni,
fastur punktur í tilverunni, skemmti-
lega fomfálegur og sveitó, þrjóskast
áfram og neitar að láta sig hverfa -
það er að segja Willys jeppinn, ekki
Hallsteinn. Það er eitthvað skoplegt
við það að hefja á stall lítið módel
(ekki ósvipað þeim sem unglings-
strákar hafa gaman af að líma sam-
an) af gamalli bíldruslu, og baða það
kastljósi í myi-kvuðum sal. En líklega
segir þetta verk þó mest um vináttu
þeirra Gunnars og Hallsteins, að
Gunnar sé að taka ofan fyrir kollega
sínum: hommage!
MALVERK
RÚNA GÍSLADÓTTIR
„PORTRETT af inyndhöggvara", eftir Gunnar Árnason.
tengsl milli hluta innan myndarinn-
ar gera myndirnar ómarkvissar.
Myndflöturinn er illa virkjaður,
þannig að það myndast auð og tóm-
leg svæði í kring. Skýringin kann að
vera sú að það búi ekki nógu skýr
hugmynd að baki.
Akveðnum þáttum er stefnt sam-
an, konulíkamanum, ávöxtum, „frjó-
seminni", í von um að útkoman verði
heild. En hvers konar heild? Öll
verkin eru án titils, þannig að það
eru fáar vísbendingar í hvaða átt
myndirnar eru að leita, og það hefði
ekki sakað að lauma að einu og einu
stikkorði, svona rétt til áréttingar.
SKÚLPTÚR
GUNNAR ÁRNASON
Nafni minn, Gunnar Árnason, sýn-
ir eitt verk í svarta sal, sem hann
kallar „Portrett af myndhöggvara".
Þegar inn í svarta sal er komið sést
álengdar hvar módel af bláum Willys
jeppa stendur uppi á mannhæðarhá-
um stöpli. Myndhöggvarinn, sem
portrettið er af, er Hallsteinn Sig-
urðsson, kollegi Gunnars. Af hverju
er þá ekki andlitsmynd af Hallsteini,
ef þetta á að vera portrett af Hall-
steini, heldur nákvæm eftirmynd af
jeppa? Jú, módelið er af jeppa Hall-
steins, skráningarnúmer R-35199,
Að lokum skal minnast á gest
Nýlistasafnsins, Rúnu Gísladóttur,
sem sýnir á pallinum, sem er nokk-
urs konar forstofa eða millistofa milli
allra salanna og skiifstofunnar. Rúna
sýnir smáar myndir teiknaðar og
málaðar á pappír, sem hafa yfir sér
austrænan andblæ, rósemi og rytma.
Þetta eru ósköp snotrar myndir sem
eru meira í ætt við skreytingai- og
ættu frekar heima á listmunasölu en í
Nýlistasafninu. Eg er ekki alveg viss
um hvernig eigi að skilja það að Rúna
skuli vera sérstakur gestur Nýlista-
safnsins. Er það listræn ákvörðun?
Eða er það til að sanna að Nýlista-
safnið sé safn allra listamanna og
allra landsmanna, allar sannfæringar
og allur smekkur eigi þar heima?
Omögulegt að segja, því vegir
Nýlistasafnsins geta verið svo órann-
sakanlegir að það þarf sérstaka
Kremlólóga til að ráða í þá. En varla
verður sagt að Nýlistasafnið sé að
gera gestum sínum sérstaklega hátt
undir höfði með því að leyfa þeim að
hengja upp myndir á pallinum, sem
er líklega lakasti staðurinn í öllu
safninu.
Gunnar J. Árnason
Við hjá Tæknivali bjóðum upp á margvíslega
möguleika í tungumálanámi á tölvutæku
formi. Um er að ræða létt og skemmtileg
tungumálaforrit, aðgengileg fyrir byrjendur
jafnt sem þá sem eru lengra komnir eða hafa
áður lært erlent tungumál og langar til að
endurnýja kynni sín af því.
Hafir þú ekki tíma til að læra tungumál í
þaula en þarft á góðri undirstöðu að halda
á skömmum tíma eru tungumálaforritin frá
Tæknivali kjörin lausn.
Lærið ný tungumál
- án óþarfa málalenginga.
Tæknival
Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • Sími 5504000
Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarfirði • Sfmi 550 4020
vvww.taeknival. is
i
i
í
I