Morgunblaðið - 12.12.1997, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1997 35
Orð konunga
BÆKUR
T r ú a r r i t
SPEKI JESÚ KRISTS
í samantekt Philips Law. Biblran,
Hið íslenska Bibiíufélag ísienskaði.
Inngang ritaði Sigurður Pálsson.
Utgefandi er Skálholtsútgáfan.
Hvor bók er 48 bls., innbundin.
Leiðbeinandi verð hvorrar bókar
um sig er 690 kr.
ÞETTA litla kver er safn orða
Jesú um 30 þemu, auk formála og
eftirmála. Um er að ræða beinar
tilvitnanir í orð hans í Nýja testa-
mentinu. Dæmi um þemu eru: Sönn
speki, tvöfalda kærleiksboðorðið,
afneita sjálfum sér, sönn hamingja,
Guð bænheyrir og sönn elska.
í inngangi segir m.a.: „Sértu að
leita að lífsspeki ertu með réttu
bókina í höndunum. - Hvaðan kom
Jesú þessi speki? Eitt er víst. Hann
var alinn upp við þá speki sem birt-
ist í heilögum ritningum Gyðinga.
- Þessi speki er ekki
lífsfjarlæg og óræðin,
heldur speki sem talar
beint inn í mannlegt
líf. Hún er - tímalaus,
vegna þess að hún tal-
ar um dýpstu spurn-
ingar mannsins á öllum
tímum“ (bls. 8).
Speki Jesú Krists er
hentugt kver fyrir þá
sem finnst Biblían stór
og óaðgengileg. Hér
hefur mörgum helstu
kjarnaorðum Jesú ver-
ið safnað saman. Lest-
ur þessa kvers getur
verið ágætur inngang-
ur að meiri biblíulestri.
Utlit bókarinnar er mjög vandað.
Hún er skreytt mörgum fornum
helgimyndum í lit auk þess sem
hver blaðsíða meginmálsins hefur
smekklegan bakgrunn.
SPEKI DAVÍÐSSÁLMA
Þetta kver er svipað úr garði
gert og Speki Jesú Krists. Því er
ætlað að auðvelda
óvönum biblíulesurum
aðgang að sálmum
Davíðs konungs sem
hafa alla tíð verið svo
handgengnir kristinni
kirkju. Astæðan fyrir
því að þeir hafa verið
í svo miklum metum
er ef til vill sú, að „þeir
segja satt um manninn
og líðan hans við
breytilegar aðstæður í
lífinu, og um Guð. Ef
til vill er það vegna
þess að þar hafa menn
fundið samhljóm með
þörf sinni fyrir til-
beiðslu og ákall í gleði
og hryggð“ (bls. 6-7). Nokkrir
þekktustu Davíðssálmarnir hafa
verið valdir eða hlutar úr þeim og
þeim raðað um fimm þemu: Til-
beiðslu, íhugun, játningar, þjáningu
og von og blessun og fögnuð.
Bókin er fagurlega skreytt á
sama hátt og Speki Jesú Krists.
Kjartan Jónsson
Sigurður
Pálsson
Séð með augnm fjárhirðisins
_____________BÆKUR____________________
Barnabók
NÓTTIN SEM STJÖRNURNAR DÖNSUÐU
AFGLEÐI
Höfundur: Bob Hartman. Myndskreyting: Tim Jonke.
Þýðandi: Hreinn S. Hákonarson.
Útgefandi: Skálholtsútgáfan. Staerð: 32 bls., innbundin.
Viðmiðunarverð: 1.190 kr.
UNDRIÐ í Betlehem er séð með augum eins fjárhirð-
anna, konu hans og sonar. Þetta er dálitið óvenjulegt
sjónarhorn en það er tilbreyting að heyra jóiafrásöguna
á þennan hátt og það varpar nýju ljósi á hana að nálg-
ast hana frá annarri hlið en venjulega. Hirðirinn og
fjölskylda eru úti í haga á Betlehemsvöllum. Þau vaka
ásamt mörgum öðrum hirðum yfir kindum sínum og
berjast við að halda sér vakandi um nóttina sem er
eins og aðrar nætur, ósköp venjuleg. Á slíkum stundum
er nægur tími tii að láta hugann reika um lífið og tilver-
una. Skyndilega gerist eitthvað sem er öðru vísi en
allt sem þau höfðu kynnst og allt breytist. Fæðing frels-
arans er uppfylling langana þeirra. Bókin er í stóru
broti. Fallegar myndskreytingar uppfylla textann mjög
vel og skapa söguna ekki síður en textinn. Bókin hent-
ar vel til lestrar á aðventunni.
Barnabók
MÚSIN OG EGGIÐ
Höfundur: William Mayne. Myndskreyting: Krystyna
Turska. Þýðandi: Hreinn S. Hákonarson.
Útgefandi: Skálholtsútgáfan. Stærð: 32 blaðsíður.
Viðmiðunarverð: 490 kr.
AFI og amma lifa fábreyttu lífí og hafa aldrei liðið
hungur þótt stundum hafi verið þröngt í búi því að dop-
pótta hænan hefur alltaf verpt einu eggi á dag og þann-
ig séð fyrir þeim. En dag nokkurn verður afi óánægður
með hlutskipti sitt og fer að kvarta. Hann vill fá eitt-
hvað annað í matinn. Hænan reynir að gera honum til
hæfis en það tekst ekki sem skyldi og afi lærir að meta
það sem hann hafði.
Eins og góð ævintýri hefur sagan um músina og
eggið lærdóm fyrir lesendurna, bæði unga og eldri.
Myndskreytingarnar eru hrein listaverk og gera söguna
ljóslifandi fyrir lesandanum. Bókin er góð bók fyrir for-
eldra, afa og ömmur til að lesa fyrir litlu börnin.
Kjartan Jónsson
Fyrst og
fremst fugl
BÆKUR
Barnabækur
LEITIN AÐ FJÁR-
SJÓÐNUM
LINDA HITTIR VETUR
KONUNG
RASMUSKLUMPUR
OG MÓRI
LITLI VÆNGUR
eftir Susannah Leigh og Brendu
Haw; Harald Sonesson; Mats Wán-
blad og Per Gustavsson.
Útgefandi: Vaka-Helgafell, 1997.
SVO SEM ráða má af nafni fyrstu
bókarinnar, Leitinni að fjársjóðn-
um, fjallar hún um leit að fjár-
sjóði, nokkuð sem vekur örugglega
áhuga barna. Þessi bók hefur þá
sérstöðu að á hverri opnu er þraut
sem börnunum er ætlað að leysa
og vekur það auðvitað enn frekari
áhuga þeirra. Lausnirnar á þraut-
unum eru síðan aftast í bókinni.
Lausnablaðið er ekki nógu ná-
kvæmt því myndir hafa ruglast,
það vantar eina mynd og blaðsíðut-
al við eina myndina er ekki rétt.
Að öðru leyti er bókin ágæt og
myndirnar skemmtilegar.
Linda hittir Vetur konung er bók
um litla stúlku sem öllum vill hjálpa
og leysa hvers manns vanda. Henni
tekst meira að segja að bræða
ískaldar hjartarætur Vetrar kon-
ungs. Teikningarnar eru fallegar
og boðskapurinn svolítið gamal-
dags, allir eru góðir við kjarkaða
bjargvættinn því hann er svo góður
við alla. Þetta er sem sé lítil og
skemmtleg hetjusaga.
Þriðja bókin er eftir sama höf-
und og bókin um Lindu, Harald
Sonesson. Það er bókin um Ras-
mus klump og Móra. Þeir félagar
fara í tívolí og það finnst öllum
börnum spennandi. Draugagang-
urinn í tívolíinu er krydd sem bragð
er að. Myndirnar eru fallegar og
smellnar en sá sem þekkir ekki vel
til söguhetja bókarinnar er nokk-
urn tíma að klóra sig fram því
hver er hver á myndunum.
Fjórða og skemmtilegasta bókin
er Litlivængur. Teikningarnar í
þeirri bók eru fallega barnalegar
og sögurþráðurinn reglulega heill-
andi. Bókin segir frá litlum far-
fugli, Litlavæng, sem fæðist með
of litla vængi til að geta flogið.
Eftir mikla þrautagöngu verða þau
mæðginin að sætta sig við örlög
Litlavængs. Hann verður eftir þeg-
ar fjölskyldan flýgur á brott að
hausti og verður að spjara sig sjálf-
ur. Upp úr stendur að hvort sem
fugl hefur litla vængi eða stóra
er hann fyrst og síðast fugl og af
því er hann stoltur.
María Hrönn Gunnarsdóttir
fV-i
WcV
Tilboð 20% afsláttur
Verð frá kr. 2.450.
Sníðum þaer í gluggann þinn.
Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD,
FAXAFENI 14, SÍMI 533 5333.
Þreyta?
BÆKUR
Barnabók
GOTT HJÁ ÞÉR, SVANUR!
eftir Sören Olsson og Anders Jacobs-
son í þýðingu Jóns Daníelssonar.
Myndir: Sören Olsson. Bókaútgáfan
Skjaldborg 1997 - 148 síður.
TELJIST mér rétt, þá er þetta
sjötta bókin um Svan, og bendir
slíkt til, að höfundum þyki efnið
snjallt og útgefendum líka.
Hér segir af 10 ára snáða, hug-
myndaríkum hrekkjalómi, sprelli
hans - tilburðum til þess að sýnast
maður. Hann á eldri systur, sem
augljóslega, að mati drengsins,
þyrfti í stillingu, eins og bílskijóður
föður hans, því stelpubjálfinn hefir
áhuga á bikkjum og strákum.
Kannske skiljanlegt með strákana,
en þetta með gangandi brauðálegg,
það hlýtur að vera rannsóknarefni
sálfræðinga! Nú, svo á snáðinn
yngri bróður, herfilega missmíð
skaparans. Sjálfur er hann „gull
og gersemi", stúlkum slíkt augna-
yndi, að annað þekkist ekki meir -
að hann álítur. Höfundar reyna að
telja lesenda trú um, að Karl Svan-
ur Rúdolf, það er pjakkurinn, hafí
aðaláhuga á stelpum, en það er
algjör misskilningur, því hann er
kvæntur Soffíu, gengur með bréf
upp á það í vasa. Þó hann fái svona
„sinadrátt" í augun, þegar ein og
ein „gellan“ gengur hjá, þá er það
ekki sönnun eins eða neins, gæti
verið ættgengt og höfundum viss-
ast að hampa því ekki um of.
Nú, Svanur er brellinn heima -
í skóla, ja, svona í trúnaði: ALLS
STAÐAR!
Þessu lýsa höfundar, leggja sig
alla fram, en ná ekki háu flugi -
reyna að vera fyndnir, en það mis-
tekst líka. Hér ber mér að minna
á, að það er ekki víst, að sama
atvik veki mér og þér hláturs, það
hefir lífið kennt mér. Þú verður því
sjálf(ur) að lesa og dæma. Heimtu-
frekja er það sjálfsagt að ætlast
til, að höfundar hafi tamið sér slík
stílbrögð er Astrid Lindgren náði.
Það sem prýðir þessa bók, í mínum
huga, eru bráðfyndnar myndir og
svo þýðing Jóns, hann fer á kostum.
Sig. Haukur
TIIJJOÐ
j£já>mynd(u)tafa
(junna’tí Jnyitnatómncut
Suöurveri, sími 553 4852
SKILAFRESTUR
HANDRITA
FRAMLENGDUR
Ert þú með liandrit að barnabók í skúiTunni eða i huganum?
Ákveðið hefur verið að framlengja skilafrest handrita í samkeppninni um
íslensku barnabókaverðlaunin til 15.febrúar 1998. Til mikils er að vinna því
verðlaunin nema 200.000 krónum auk höfundarlauna fyrir bókina sem kemur
út hjáVöku-Helgafelli á árinu 1998.
íslensku barnabókaverðlaunin hafa á
undanförnum árum greitt mörgum
nýjum höfundum leið út á rithöfunda-
brautina og orðið um leið til þess að
auka úrval góðra bókmennta fyrir börn
og unglinga.
Stjórn Verðlaunasjóðsins hvetur
jafnt þekkta sem óþekkta höfunda til
þess að taka þátt í samkeppninni um
íslensku bamabókaverðlaunin. í ár hlaut
Þorgrímur Þráinsson verðlaunin fyrir
bók sína Margt býr í myrkrinu.
Skila á útprentuðu handriti að sögu
fyrir börn eða unglinga og skal hún
vera a.m.k. 50 vélritaðar blaðsíður að
lengd. Ekki er gert ráð fyrir að sögumar
séu myndskreyttar. Handrit á að merkja
með dulnefni en rétt nafn höfundar
fylgi með í umslagi
Utanáskriftin er:
Verðlaunasjóður íslenskra bamabóka
Vaka-Helgafell
Síðumúla 6
108 Reykjavík
VAKA-HELGAFELL • Síðumúla 6 • 108 Reykjavík • Sími 550 3000