Morgunblaðið - 16.12.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.12.1997, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Helgi Bjamason GUNNAR Oddsson stöðvarstjdri og Guðmundur Öm Ingólfsson, framkvæmdastjóri Máka, háfa barra úr keri. Máki að ljúka rannsóknum á eldiskerfí fyrir hlýsjávarfísk Ný áfeng- islög- gjöf til umræðu ÞAÐ mun skýrast í dag eða á morg- un hvort ríJdsstjómin leggur fyrir áramót fram á Alþingi frumvarp um nýja áfengislöggjöf. Nefnd þriggja ráðuneyta hefur lagt fyrir fjármála- ráðherra, heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra fullmótað frum- varp en þeir hafa ekki lokið umfjöll- un um málið. Fyrr á þessu ári var aðstoðar- mönnum fjármálaráðherra, heil- brigðisráðherra og dómsmálaráð- herra, falið að semja frumvarp um heildarlöggjöf í áfengismálum. Frumvarpið átti m.a. að ná til sölu á áfengi, heilbrigðis- og forvamamála og reglna sem lúta að opnun vínveit- ingahúsa og veitingu vínveitinga- leyfa. Frumvarpið gerir ekki ráð fyr- ir að áfengiseinkasala ÁTVR verði afnumin, en lagt er til að ýmsar breytingar verði gerðar á vínssölu og leyfismálum. Þá er stefnt að því að gera breytingar í skipulagi forvama- mála, sem miða að því að gera for- vamastarf einfaldara og markviss- ara. Dómsmálaráðuneytið hefur lagt áherslu á að reglur um meðferð áfengis, sem heyra undir það, verði samþykktar sem fyrst og fjármála- ráðuneytið hefur einnig talið nauð- synlegt að gera breytingar á við- skiptaháttum með áfengi. Stefht hafði verið að því að leggja frumvarpið fram fyrir jól, en óvíst er hvort það tekst. Frumvarpið hefur verið tíl umræðu milli fjárroálaráð- herra, heilbrigðisráðherra og dóms- málaráðherra og er þeirri umfjöllun ekki lokið. Það mun skýrast í dag eða morgun hvort frumvarpið verður lagt fram á Alþingi fyrir jól eða hvort það verður sent þingflokkum einungis til kynningar. Framvarpið gerir ráð fyrir að lögin taki giidi um mitt næsta ár. --------------- Ætlaði að skila stolnu jólaskrauti JÓLASKREYTINGUM, sem komið hafði verið fyrir utandyra við tvö fyr- irtæki á Ákureyri, var stolið um helgina. A sunnudagskvöld handtók lög- reglan mann sem granaður var um verknaðinn og í farangursgeymslu bifreiðar hans fundust jólaskreytíng- amar stolnu. Eigandi bifreiðarinnar kvaðst hafa verið mjög ölvaður á laugardagsnóttina og hefði vinur hans ekið bifreiðinni. Kvaðst hann mima eftir að hafa farið að þessum fyrirtælqum og tekið jóiaskreyting- arnar, en þegar ölvíman var rannin af honum iðraðist hann gjörða sinna og ákvað að skila skreytingunum. Hann hafi einmitt verið í þeim er- indagjörðum þegar lögreglan stöðv- aði for hans. MÁKI hf. sem hannað hefúr eldis- kerfi fyrir hlýsjávarfiskinn barra og gert tilraunir með eldi hans í fiskeldisstöð sinni á Sauðárkróki hefur látið vinna forathugun á hag- kvæmni þess að ala barra í stórum stil í laxeldisstöð sem var í eigu Miklalax hf. í Fljótum. Stjórn fá- lagsins hefur ákveðið að auka hlutafé til þess að Ijúka hönnun eldiskerfisins og ráðast f fullnaðar- hönnun barraeldis f Miklalaxstöð- inni. Jafnframt hefur Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Útflutnings- ráð ákveðið að láta gera viðamikla markaðskönnun fyrir íslenskan barra. „Við teljum okkur vera búna að þróa tæknina og höfum möguleika á að nota hana í stærri stíl en unnt er í okkar stöð,“ segir Guðmundur Örn Ingólfsson sjávarlíffræðingur, stofnandi og framkvæmdastjóri Máka hf. Félagið hefúr leitt um- fangsmikið verkefni erlendra og innlendra rannsóknastofnana og fyrirtækja sem miðar að hönnun eldiskerfis með endurnotkun vatns fyrir barraeldi sem Evrópusam- bandið styður. Máki hefúr orðið fyrir miklum skakkaföllum f stöð sinni, vegna tæknilegra örðug- leika, en Guðmundur segir að fé- lagið hafi staðið þau af sér og sé nú tilbúið með það kerfi sem stefnt var að. Hlutafjárútboð Miklilax f Fljótum hafði komið sér upp mikilli seiðaeldisstöð auk útikera þegar fyrirtækið varð gjaldþrota. Byggðastofnun leysti til sín fasteignirnar en hefur ekki tekist að koma þeim f varanlegan rekstur á nýjan leik. Guðmundur Örn segir að Máki eigi kost á að fá þessa aðstöðu til eignar eða afnota með góðum kjörum, svo fremi sem fyrirtækinu takist að fá trausta fjárfesta til að standa við bakið á sér f málinu. Stjórn félagsins hefúr ákveðið að auka hlutafé um 25 milljónir til að gera upp tilraunirn- Hugmyndir um stóreldi á barra í Fljótum ar á Sauðárkróki og kosta fullnað- arrannsókn á möguleikunum f F’ljótum. Býst hann við að núver- andi fjárfestar leggi fram 10 millj- ónir og er vongóður um að nýir hluthafar komi til liðs við félagið vegna þessa nýja verkefnis. Hefur hann kynnt málið fyrir hópi fjár- festa og átt fundi með þeim. Guðmundur Örn vonast einnig eftir stuðningi opinberra sjóða, en vill ekki fara nánar út f það. Miklar breytingar eru að verða á sjóða- kerfi atvinnuveganna með stofnun Fjárfestingarbanka íslands og Ný- sköpunarsjóðs. Áframeldi f Fljótum Byggingarnar í Fljótum eru stór- ar og vandaðar. Þó þarf að leggja f töluverðar fjárfestingar til viðbót- ar, meðal annars að byggja yfir útikerin. Kostnaður við að taka seiðaeldisstöðina og öll átta kerin f notkun er áætlaður 310 milljónir kr. auk þeirra 100 milljóna sem það kostar að koma upp eldisstofni. Mögulegt er að taka helming úti- keranna f notkun fyrst en það myndi kosta 190 milljónir kr. f fjár- festingu og 50 milljónir f að byggja upp lífmassa stöðvarinnar. Gert er ráð fyrir því að stöðin á Sauðárkróki verði klakstöð og seiðin þar alin upp f 10-12 gramma þyngd. Millieldið yrði f seiðastöðinni f Fljótum og sfðan yrði fiskurinn alinn úr 100 gramma stærð f matfiskstærð, 600-800 gr., í eldiskerunum í Fljótum. Fram- leiðsluverðmæti er áætlað 500 milljónir kr. á ári og 20-30 menn fengju vinnu við framleiðsluna. Þykir góð vara Máki hefur verið í samvinnu við útflutningsfyrirtækið Nasco ehf. um útflutning á þeim barra sem komið hefur út úr tilraunaeldinu. Fiskurinn hefur verið seldur f Bretlandi og segir Guðmundur að hann hafi fengið góðar viðtökur. „Barri frá íslandi þykir góður og menn eru tilbúnir að greiða fyrir hann hærra verð en barra sem framleiddur er annars staðar. Það tel ég eitt mikilvægasta atriðið sem komið hefúr út úr Evrópuverkefn- inu,“ segir Guðmundur Örn. Nú eru Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Útflutningsráð að láta gera viðamikla markaðskönnun á þess- ari afúrð. Styrkir vegna útflutnings búvara 37 millj. til markaðs- setningar lambakjöts FRAMLEIÐNISJÓÐUR landbún- aðarins hefur veitt rúmlega 37 millj- ónir króna í styrki vegna markaðs- setningar lambalq'öts erlendis und- anfarin sjö ár og þar af hefur átaks- verkefnið Áform fengið um 8,6 milljónir króna til sölu á kindakjöti í Bandaríkjunum. Styrkur vegna markaðssetningar nautakjöts í Bandaríkjunum nemur 5,5 milljón- um króna. Þessar upplýsingar komu fram á Alþingi í svari landbúnaðarráðherra við fyrirspum Gísla S. Einarssonar alþingismanns, en ranghermt var í Morgunblaðinu síðastliðinn sunnu- dag að Framleiðnisjóður landbún- aðarins hefði á undanfömum sjö ár- um veitt samtals rúmlega einn milljarð króna í styrki vegna mark- aðssetningar íslenskra landbúnað- arvara erlendis. Hið rétta er að styrkimir námu samtals tæplega 102,4 milljónum króna. Hæsti einstaki styrkur Fram- leiðnisjóðs á þessu tímabili var til Fagráðs bleikjuframleiðenda sem fékk 20 milljónir árið 1991 til mark- aðsáætlunar vegna útflutnings á bleikju. -----♦♦♦ Refsingu fyr- ir ffkniefna- brot frestað HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær mann í 75 daga varð- hald fyrir brot á fíkniefnalöggjöf. Refsing hans var hins vegar skil- orðsbundin í tvö ár, með vísan til þess að þetta væri fyrsta fíkniefna- brot mannsins, hann hefði nýlega farið í meðferð og ætti við þung- lyndi að stríða. Maðurinn játaði að hafa afhent öðram manni 8 grömm af am- fetamíni til geymslu á nýársnótt sl., auk þess sem lögreglan tók hann í apríl með tæp 14 grömm af sama efni. Skipulagsnefnd leyfír byggingu húss á Laugavegi 53a íbúar kæra til um- hverfisráðuneytis 10-18:30 Sum fyrirtæki eru opin iengur. KRINGMN SKIPULAGSNEFND Reykjavík- ur samþykkti á fundi sínum í gær að leyfa byggingu um 2.000 fer- metra húss á Laugavegi 53b og niðurrif tveggja tímburhúsa á lóð- inni. Tveir fulltrúar R-listans í nefndinni greiddu atkvæði gegn leyfisveitingunni, Guðrún Jóns- dóttir og Óskar Dýrmundur Ólafs- son. Guðrún Jónsdóttir, varaformað- ur skipulagsnefndar, sagði að þeg- ar tillögur að húsinu vora skoðaðar fyrir viku hefði komið fram að nefndarmenn gætu fallist á fjög- urra hæða byggingu sem sneri að Laugavegi. Hins vegar vildu þeir láta skoða betur bakbygginguna. „Húsið hefúr minnkað mjög lítið því að því sem var tekið ofan af bak- byggingunni var eiginlega bætt við frambygginguna,“ segir Guðrún. Fjármagnið ræður ferðum, ekki einstaklingarnir Elín Ebba Ásmundsdóttir, íbúi í húsinu á Laugavegi 53a, hefúr ásamt öðrum íbúum í hverfinu mótmælt byggingunni sem þeir telja að muni yfirgnæfa bakhúsa- byggðina á þessum stað. Þá hafa íbúasamtök Skólavörðuholts lýst vanþóknun á afgreiðslu skipulags- nefndar. Elín Ebba segir að Guðrún Ágústsdóttir, formaður skipulags- nefndar, hafi haldið því fram að hún hafi oft haft samband við íbú- ana út af þessu máli. „Við hittum hana tvisvar sinnum að okkar eigin frumkvæði. Hún kvaðst ætla að fara fram á deiliskipulag en í stað þess að gera það atti hún okkur saman við bygg- ingaraðilann. Við áttum að semja við hann um að lækka bygginguna. Byggingaraðilinn stýrir allan tím- ann málinu. Niðurstaðan í skipu- lagsnefnd sýnir að það er fjár- magnið sem ræður ferðum en ekki einstaklingamir,“ segir Elín Ebba. Hún segir að þeirra leið til sátta hafi verið að kaupa húsið eða bjóða skaðabætur ef íbúamir myndu láta málið kyrrt liggja, „Við ætlum að kæra þetta mál til umhverfisráðuneytisins á sömu forsendum og Þórsgötumálið, héma sé það mikið inngrip í um- hverfið og mikil breytíng frá því sem fyrir var að það þurfi að koma til deiliskipulag. Eins sé þetta svo mikil skerðing á birtu að sömu for- sendur gilda þar,“ sagði Elín Ebba. Ekki náðist í Guðrúnu Ágústs- dóttur í gær. í ! I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.