Morgunblaðið - 16.12.1997, Blaðsíða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Gerd: A3 litableksprautuprentari fyrir
PC og Mac - 2ja hylkja kerfi
Kraði: 4.5 bls. á mín (A4)
Upplausn: 720 dpi
Pappírsmeðierð: Arkamatari
fyrir 100 blöð
Annað: Mjög hagkvæmur í rekstri
Qpið til 18:00 á
laugaráagum
NÝHERJI
- Varalun ■
Skaflahlið 24 - Simi 569 7700
http://www Jiyharji.la
Ferð þú á HM í
Frakklandi nasta
sumar?
Allir sem festa kaup á Canon
prentara fyrir 1. maí nk. fara í
HM-pottinn og heppinn
vinningshafi fær tvo miða á
HM'98 í boði Nýherja og Canon.
OFFICIAL SPONSOR OF
SX/ORLD CUR FRANCE 98
Canon
Tongis. í
Macinf
mm
AÐSENDAR GREINAR
Ekkert kemur af sjálfu sér
- ekki heldur jafnrétti
UNDANFARIÐ hef-
ur töluvert verið rætt
um jafnréttismál og
þann 20. nóvember sl.
fór fram utandag-
skrárumræða um
framkvæmd 12. gr.
laga um jafnréttismál.
í þessari umræðu
koma m.a. fram að
aðeins 23% nefndar-
manna á vegum ríkis-
ins eru konur. Ráðu-
neytin virðast því ekki
ætíð fara eftir þessar
grein laganna en þar
segir, m.a. að í nefnd-
um, stjórnum og ráð-
um á vegum ríkis,
sveitarfélaga og félagasamtaka
skulu sitja sem næst jafnmargar
konur og karlar og skal ávalit á
það minnt þegar óskað er tilnefn-
ingar í hlutaðeigandi stjómir,
nefndir og ráð. í þessari umræðu
viðurkenndi forsætisráðherra, Dav-
íð Oddsson, að það væri rétt að
þetta ákvæði í Jafnréttislögunum
væri ekki alltaf virt og það væri
nauðsynlegt að árétta við ráðuneyt-
in að fara eftir þessu ákvæði.
íslensku jafnréttislögin
Samkvæmt íslenskum lögum eru
réttindi kvenna nokkuð vel tryggð
en ísland var fyrst Norðurlandanna
til að setja jafnréttislög, árið 1976.
Jafnréttislögin hafa síðan verið end-
urskoðuð og nafni þeirra breytt í
„Lög um jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla". Árið 1985 var
bætt inn í lögin ákvæði að bæta
megi stöðu kvenna til að koma á
jafnrétti. Annað nýmæli í þessum
lögum var ákvæði um gerð fram-
kvæmdaáætlana í jafnréttismálum.
Meginrökstuðningurinn fyrir slíku
ákvæði var m.a. sá að
með því yrðu stjómvöld
gerð sérstaklega ábyrg
fyrir virkni laganna. I
nýjum lögum jafna
stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla sem
samþykkt voru árið
1991 er kveðið skýrar
en áður um gerð fram-
kvæmdaáætlana og
jafnframt hafa verið
sett inn í lögin fyrr-
greind ákvæði að í
nefndum, stjórnum og
ráðum á vegum ríkis,
sveitarfélaga og fé-
lagasamtaka skulu
sitja sem næst jafn-
margar konur og karlar.
í framkvæmdaáætlun ríkis-
stjómarinnar í jafnréttismálum sem
gildir fyrir tímabilið 1993-1997
segir m.a. að ríkisstjóminni sé falið
að ná því markmiði að hlutur
kvenna í nefndum á vegum ríkisins
verði 30% í lok gildistíma áætlunar-
innar. En eins og þegar hefur kom-
ið fram er þetta hlutfall ekki nema
23% í lok nóvember 1997. Félags-
málaráðuneytið, sem er ráðuneyti
jafnréttismála hér á landi, sker sig
þó úr því á þess vegum eru um 40%
konur í nefndum og ráðum.
Nefnd Sameinuðu þjóðanna
(CEDAW) lagði áherslu á að breyt-
ingar yrðu gerðar á jafnréttisiögun-
um hér á landi til að tryggja að
hvort kyn ætti að minnsta kosti 40%
fulltrúa í opinberum nefndum og
nauðsjmlegt sé að árétta frekar við
ráðuneytin að fara eftir þessu
ákvæði. í fyrrgreindri utandag-
skrárumræðu um jafnréttismál kom
fram í máli Páls Péturssonar, fé-
lagsmálaráðherra, að nú væri verið
að vinna við endurskoðun jafnréttis-
laganna sem lögð verða fyrir Al-
þingi næsta vor. Áhugavert verður
að fylgjast með hvaða breytingar
verða gerðar á lögunum og hvort
þær muni uppfylla þessi skilyrði.
Samanburður við önnur
Norðurlönd
í Noregi og Svíþjóð hefur konum
stöðugt verið að fjölga í ríkisstjóm-
um, á þingi, í sveitarstjórnum og
einnig í nefndum og ráðum á vegum
hins opinbera. Þessi breyting sést
glöggt bæði á ráðherralista Norð-
manna og Svía. í norsku ríkisstjórn-
inni, sem tók við nú í haust, em
Forsætisráðherra viður-
kenndi að ákvæði í jafn-
réttislögum væri ekki
alltaf virt, segir Sigur-
rós Þorgrímsdóttir, og
að árétta þyrfti við
ráðuneyti að fara eftir
þessu ákvæði.
níu ráðherrar af átján konur og í
Svíþjóð em ellefu ráðherrar konur
af tuttugu og tveimur eða 50%.
Hér á landi er ein kona, af tíu, ráð-
herra. Þróunina sem átt hefur sér
stað í jafnréttismálum í þessum
löndum undanfarna áratugi má
m.a. rekja til þeirra laga sem sett
hafa verið á þessu sviði en þau
kveða skýrar á um kynjahlutfali en
í þeim er tilgreint að hvort kyn eigi
að minnsta kosti 40% fulltrúa í
nefndum og ráðum. Jafnframt er
fylgst grannt með því að lögunum
sé framfylgt af hinu opinbera.
Þegar staða kvenna í Noregi og
á íslandi í nefndum og ráðum er
könnuð kemur fram að hlutfall
kvenna er um 39% í Noregi en um
23% hér á landi. Á þingi er hlut-
falj kvenna í Noregi 39%, en 25%
á íslandi. í Svíþjóð er þetta hlut-
fall enn hærra en þar er hlutfall
kvenna á þingi nú 41%. Megin-
ástæður fyrir þessum mun virðast
• Smiðjuvegi 9 • Sími 564 1475*
Sigurrós
Þorgrímsdóttir
Fisléttir gönguskór úr
„Kevlar". Aðeins 1180gr.
parið. Gríðarlega sterkir
og vel vatnsheldir.
Með mjúkum sóla
Verð kr. 10.900.-
V« 0*99
Mjúkir alhliða gönguskór
úrleðri. Saumalausir og
vatnsvarðir i
Verðkr. 11.900.- J
Heill saumlaus leðurskór.
Hólfstífur „vibram" sóli.
Öflugir skór fyrir krefjandi
aðstæður
Verð kr. 14.500.-
Léttir skór úr „nubuck"
leðri með mjúkum sóla.
Góðir í styttri ferðir sem
dagsferðir
Verð kr. 7.990,-
Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími: 5814670 • Fax: 581 3882
BR0NC0 PLUS
YUKON GIRL
N0MAD
EINN TVEIR OG ÞRlR / 31.033