Morgunblaðið - 16.12.1997, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997 33
Dómari hafnar beiðni um að láta
„Sjakalann“ lausan
Verjendurnir
gengu út í
mótmælaskyni
París. Reuters.
YVES Corneloup, dómarinn í rétt-
arhöldunum yfir „Sjakalanum
Carlos" í Paris, hafnaði í gær
kröfu hermdarverkamannsins um
að hann yrði leystur úr haldi og
réttarhöldunum yrði hætt á þeirri
forsendu að handtaka hans í Súd-
an árið 1994 hefði verið ólögleg.
Lögfræðingar Carlosar gengu út
úr réttarsalnum i mótmælaskyni
við ákvörðun dómarans en hægt
var að halda réttarhöldunum
áfram þar sem sakborningurinn
ákvað að veija sig sjálfur.
„Ákvörðun þín er í andstöðu
við þær reglur sem ég hef svarið
að veija,“ sagði aðalveijandi Car-
losar, Isabelle Coutant-Peyre, eft-
ir að dómarinn hafnaði beiðninni
um að láta sakborninginn lausan.
Dómarinn fyrirskipaði
Coutant-Peyre að halda áfram að
veija Carlos en hún neitaði því.
Hugsanlegt er að dómarinn víki
henni frá sem veijanda Carlosar
en Coutant-Peyre kvaðst ekki
telja að hún myndi missa lög-
mannsréttindi sín.
„Ég hef ekki lengur lögfræð-
ing. Þetta er ólöglegt," sagði
Carlos eftir að veijendurnir gengu
út.
Handtakan sögð ólögleg
Carlos, réttu nafni Illich Ram-
irez Sanchez, fæddist í Venezuela
og var álitinn hættulegasti
hermdarverkamaður heims þegar
hann barðist fyrir málstað Palest-
ínumanna á áttunda áratugnum
og þar til hann var handtekinn í
Súdan fyrir þremur árum. Hann
hefur verið ákærður fyrir morð á
tveimur frönskum leyniþjónustu-
mönnum og Líbana, sem hafði
gengið til samstarfs við leyniþjón-
ustuna, í París árið 1975.
Carlos lýsti drápunum sem lið
í samsæri ísraelsku leyniþjón-
ustunnar Mossad og háttsettra
embættismanna í frönsku leyni-
þjónustunni sem hann sagði hafa
viljað egna Frökkum gegn Palest-
ínumönnum. Coutant-Peyre sagði
að saksóknarar hefðu ekki gert
nóg til að hafa upp á vitnum að
drápunum, en eitt þeirra er nú
þekktur prófessor í fjölmiðlafræði
í Venezuela.
Carlos hélt því fram að réttar-
höldin væru ólögleg þar sem hon-
um hefði verið rænt í Khartoum
árið 1994 og hann síðan fluttur
með ólöglegum hætti með flugvél
til Frakklands. Lögfræðingar
hans sögðu einnig að franskir
leyniþjónustumenn, sem báru
hann í poka um borð í fiugvélina,
hefðu ekki haft lagalega heimild
til handtökunnar.
Dómarinn sagði hins vegar að
æðsti dómstóll Frakklands hefði
lagt blessun sína yfir handtökuna.
Dómarinn hafnaði einnig beiðni
Carlosar um að SOS Attentats,
samtökum fórnarlamba hryðju-
verkamanna, yrði meinað að taka
þátt í réttarhöldunum. Samtökin
eru undir stjórn gyðingsins
Francoise Rudetskis og Carlos
sakaði þau um „kynþáttahatur,
öfgastefnu, síonisma og endur-
skoðunarstefnu".
Segir dómarann vanhæfan
Carlos varð æfur yfir
ákvörðunum dómarans og krafð-
ist þess að hann viki þar sem
hann væri vanhæfur vegna fyrri
starfa sinna sem rannsóknardóm-
ari. Hann sagði að Corneloup
hefði tekið þátt í rannsókn
sprengjutilræðis í veitingahúsi í
París árið 1983 þar sem Rudetski
særðist. Corneloup rannsakaði
einnig annað sprengjutilræði í
París árið 1979 sem Carlos er
grunaður um.
Carlos var dæmdur í lífstíðar-
fangelsi fyrir drápin á leyniþjón-
ustumönnunum og samstarfs-
manni þeirra i réttarhöidum sem
fram fóru að honum flarstöddum
fyrir fimm árum. Frönsk lög heim-
ila að málið sé tekið upp að nýju
til að hann geti varið sig fyrir rétti.
Frönsk yfirvöld hyggjast einnig
sækja Carlos til saka fyrir
sprengjutilræði sem urðu 17
manns að bana í Frakklandi á
árunum 1979-82. Að minnsta
kosti tvö önnur ríki vilja leiða
hann fyrir rétt: Þýskaland vegna
sprengjutiiræðis í Frönsku menn-
ingarmiðstöðinni í Berlín og Aust-
urríki vegna gíslatöku á fundi
Samtaka olíuútflutningsríkja,
OPEC, í Vin árið 1975, þar sem
ellefu olíumálaráðherrum var
rænt.
Nýkomið glæsilegt
úrval af velúrgöllum
- bæði pils og buxur
Einnig stakar
jakkapeysur.
Pantanir óskast
sóttar.
Reuters
Farrakhan
yfirgefur ísrael
LOUIS Farrakhan, leiðtogi Þjóð-
ar íslams, mest áberandi sam-
taka múslima í Bandaríkjunum,
yfirgaf Israel í skyndingu í gær
þar sem hann kvaðst óttast um
öryggi sitt. Farrakhan kom til
Israels öllum að óvörum á sunnu-
dag en hann var í heimsókn í
nágrannaríkinu Jórdaniu.
Hugðist Farrakhan m.a. halda
að mosku í Austur-Jerúsalem en
hætti við er honum bárust fregn-
ir af því að hópur gyðinga hygð-
ist standa fyrir mótmælum þar.
Þrátt fyrir að ísraelsk yfirvöld
reyndu að sannfæra hann um
að öryggi hans yrði tryggt,
ákvað Farrakhan að halda heim
á leið.
Sagði hann að kæmi eitthvað
fyrir sig yrði það til að sam-
skipti gyðinga og blökkumanna
í Bandaríkjunuin myndu versna
enn frá því sem nú væri en löng-
um hefur verið stirt á milli hóp-
anna.
Hlutafjárútboð
Þorbjörn hf.
Þriðjudaginn 16. desember hefst almennt sölutímabil
f hlutafjárútboði Þorbjörns hf.
Helstu upplýsingar um útboðið:
Nafnverð Ailt að krónur 30.000.000 að nafnverði, ný hlutabréf.
Gengi 7,57.
Útgefandi Þorbjörn hf.
Sölutímabil Sölutímabil er 16. desember 1997 til 16. janúar 1998.
Forkaupsréttur Á forkaupsréttartímabilinu, 24. nóvember 1997 til
12. desember 1997, seldust 5.110.862 kr. að nafnvirði, eða.
17% af heildarfjárhæð útboðs.
Skilmálar í almennri sölu er lágmarks fjárhæð kr. 130.000 af markaðs-
virði á hverja kennitölu. Hlutabréf í almennu útboði skulu
staðgreidd við kaup.
Umsjön
með útboði íslandsbanki hf„ kt. 421289-5069, Kirkjusandi, 155 Rvík.
Söluaðilar Bréfin verða til sölu hjá VÍB, Kirkjusandi, 105 Reykjavík, auk
eftirfarandi útibúa íslandsbanka:
íslandsbanki hf., Lækjargötu 12,101 Reykjavík,
íslandsbanki hf„ Háaleitisbraut 58,108 Reykjavík.
íslandsbanki hf„ Suðurlandsbraut 30,108 Reykjavík
íslandsbanki hf„ Kringlunni 7,103 Reykjavík.
íslandsbanki hf„ Hafnargötu 60, 230 Keflavík.
íslandsbanki hf„ Strandgötu 1, 220 Hafnarfirði.
íslandsbanki hf„ Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.
íslandsbanki hf„ Skipagötu 14,600 Akureyri.
íslandsbanki hf„ Kirkjuvegi 23,900 Vestmannaeyjum.
íslandsbanki hf„ Austurvegi 9,800 Selfossi.
íslandsbanki hf„ Hafnarstræti 1,400 Isafirði.
Útboðs- og skráningarlýsingu og önnur gögn s.s. samþykktir og síðasta
ársreikning er hægt að nálgast á skrifstofu Þorbjörns hf„ hjá viðskiptastofu
íslandsbanka, Kirkjusandi, 155 Reykjavík, Verðbrétamarkaði Islandsbanka
hf. og ofangreindum útibúum íslandsbanka hf.
ÍSLANDSBANKI
Fjármálamiöstöö Kirkjusandi, 155 Reykjavík.
Sfmi: 560 8000, bréfasfmi: 560 8921