Morgunblaðið - 16.12.1997, Side 72
—72 PRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997
HÁTÍÐARTILBOÐ
Charmeuse 100% silki
Láttu drauminn rætast og láttu fara vel um þig
í Charmeuse silkirúmfatnaðinum yflr hátíðarnar
Nú gefst þér einstakt tækifæri til að eignast 100% silki-rdmfatnað á
frábæru verði. Silkið er einstakiega þykkt og f fjórum fallegum litum.
Bjóðum einnig upp á silki ungbarnasængurverasett.
Aðcins það bcsta fyrir barnið!
Frábært verð, aðeins kr. 8.900 — Ungbarnasængursett kr. 3.500
Hringdu og pantaðu strax! Takmarkað niagn.
K. Kristinsson ehf., póstverslun,
sími 5671654.
beurer beure i 1 i r j
Nytsamar jólagjafir
fg)Beurer) rafmagnshitapúðar
Yfir 40 ára reynsla hér á landi
Fæst í apótekum, kaupfélögum og
raftækjaverslunum um allt land
75 ára reynsla ©Beurer)
á framleiðslu
sími 55 20 300
‘Miiiidu r
HEILSUJ0LAGJ0FINA
♦♦
APÓTEKINU
Medisana
" ngsmælir
á úlnliö
Handa
þeim sem eru
þér hjarta næst.
Mælir púls,
ýtarlegar íslenskar
leiðbeiningar
nandi smásöluverð
Dreifing: i&d... ehf.
MORGUNBLAÐIÐ
TQ]\LIST
Geisladiskiir
LÍNUDANS OG
SVEITASÖNGVAR
Línudans og sveitasöngvar, breið-
skifa hljómsveitarinnar Farmalls.
Hljómsveitina skipa Þröstur Har-
aldsson gítarleikari, Haratdur J.
Baldursson söngvari, Sigurður
Ómar Hreinsson trommuleikari og
Jóhann Ólafur Ólafsson dansstjóri.
Aðstoðarmenn á plötunni eru ýms-
ir, þar á meðal Daniel K. Cassidy
fiðluleikari, Þorsteinn Magnússon
og Guðmundur Pétursson gítar-
leikarar og Ingimundur Óskarsson
og Jón Ólafsson bassaleikarar. Óm-
ar Ragnarsson, Sigrún Eva Ár-
mannsdóttir og Þorvaldur Hall-
dórsson syngja auk fleiri. Lögin
eru velflest erlend við íslenska
texta eftir Ómar Ragnarsson, Þor-
stein Eggertsson, Jón Sigurðsson
og Harald J. Baldursson, en Har-
aldur á að auki tvö lög og Ómar
eitt. Hljómsveitin og Rymur gefa
út, Japis dreifir. 34,19 mín.
BANDARÍSK sveitatónlist er
samsuða úr áhrifum úr ótal átt-
um. Fyrsti sveitasöngvarinn
vestan hafs sem eitthvað kvað að,
Jimmy Rodgers, brá eins fyrir
sig blús og þjóðlagasöng og treg-
inn hefur verið snar þáttur í tón-
listinni, samþættur kalvíniskri
trú á hið góða og hreina. Textar
við bandaríska sveitatónlist eru
hylling ástarinnar sem er ævin-
lega innan seilingar og snúast
sjaldnast um sveitina sem slíka,
glímu við nautgripi og rekstur
milli beitarhólfa. Það vekur ein-
hverjum kannski furðu en sveita-
tónlist er vinsælasta tónlistar-
form vestan hafs og söluhæsti
tónlistarmaður sögunnar er ekki
bleiknefjinn Michael Jackson,
heldur Garth Brooks, sem átti
fyrir fáum árum þrjár breiðskíf-
ur samtímis á topp tíu á banda-
riska breiðskífulistanum; þar á
meðal skífurnar í fyrsta og öðru
sæti.
Undanfara mánuði hefur línu-
dansæði gengið yfir land og þjóð;
annar hver maður er að læra
línudans eða semja og flyta tón-
list sem hentar fyrir slíka iðju.
Snörurnar gerðu það gott á síð-
asta ári með línudansplötu, þó
þær stefni þaðan á þessu ári, og
snemmsumars kom út sú skífa
sem hér er gerð að umtalsefni,
Línudans og sveitasöngvar, með
hljómsveit sem heitir því ein-
kennilega nafni Farmalls. Braut-
ryðjandi í flutningi á sveitatónlist
yfir í íslenskt umhverfi vai-
Björgvin Halldórsson sem lagði
með hljómsveit sinni Brimkló,
grunninn að íslenskri sveitatón-
list sem lagt hefur fyrir róða
kalvínismann og ástin hefur vikið
fyrir eðlunarfýsn. Þannig er því
háttað á þessari skífu Farmalls
og kemst næst botnum i flutningi
Omars Ragnarssonar á texta sín-
um við Sveitaball. „íslenskri“
sveitatónlist miðar því lítt áleiðis
með þessari skífu Farmalls og
reyndar virðist hún lítt lífvænleg
ef marka má þetta framlag
Farmalls.
Tónlistin á þessari plötu
Farmalls stendur yfirleitt nær
hreinræktuðu poppi eða rokki en
sveitatónlist, til að mynda er lag
sem Sigrún Eva Ármannsdóttir
syngur dæmigert rokklag í út-
setningu Farmalls-flokksins.
Textar plötunnar eru og yfirleitt
frekar þunnir og óttalegt hnoð á
köflum („hjartað ,,tikkar“„).
Ekki eru nema þrjú frumsamin
lög á skífunni eins og getið er, en
það fyrsta þeirra, Yfir heiðina,
hefur notið nokkurrar hylli, enda
vel flutt af Þorvaldi Halldórs-
syni. Það stingur þó í stúf á plöt-
unni, er frekar í anda gamallar
sveitatónlistar en þeirrar tónlist-
arstefnu sem risið hefur hæst
vestan hafs undanfarin ár. Önn-
ur lög eru erlend við íslenska
texta. Flutningur, þ.e. hljóðfæra-
sláttur, er víða með ágætum, því
þeir Farmalls kunna ekki síður
að velja sér aðstoðarmenn en
lög. Mikið ber á Daniel Cassidy á
skífunni, sem stendur sig að
vanda vel, og inn á milli eru frá-
bærir gítarsprettir, til að mynda
í upphafslagi plötunnar og í öðru
lagi hennar.
Arni Matthíasson
Kline í
Astin víkur
fyrir eðlunarfýsn
FÓLK
nógu að
snúast
► KEVIN Kline verður fimmtug-
ur á þessu ári og á þeim tíma-
mótum hefur hann í nógu að
snúast. Hann leikur í tveimur
kvikmyndum og í leikritinu
Ivanov eftir Chekov á Broad-
way. Kvikmyndirnar eru ann-
ars vegar In & Out undir leik-
stjórn Franks Oz og hins veg-
ar The Ice Storm sem leik-
stýrt er af Ang Lee. Sú
fyrrnefnda verður
bráðlega tekin til sýninga
hérlendis. Þar fer hann
með aðalhlutverk á móti
Tom Selleck og kyssast
þeir í myndinni. Vakti
kossinn spurningar í
fjölmiðlum ytra um
samkynhneigð Sellecks og
hefur hann þurft að
margsverja það af sér.
Kline giftist leikkonunni
Phoebe Cates fyrir átta árum
og eiga þau saman tvö börn.
Það eru Owen, sem er fimm
ára, og Greta, sem er 3 ára.
Þessi afbragðs góði leikari
hefur átt erfitt með að velja á
milli fjölskyldunnar og vinnunn-
ar og það er ef til vill þess vegna
sem hann hefur ekki verið meira
áberandi undanfarin ár en raun
ber vitni.
Cates er um þessar mundir í
leyfi frá störfum til þess að sinna
fjölskyldunni og stendur fast á
því að aðskilja vinnuna og einka-
lífið. Einhveiju sinni voru þau
saman úti að borða á veitinga-
stað á Manhattan og hún tók eft-
ir því að annar viðskiptavinur
beindi einhveiju að þeim. „Þetta
fífl er með myndbandsupptöku-
vél og er að kvikmynda okkur,“
sagði hún við Kline og gnísti
tönnum. Hann svaraði: „Er hárið
á mér í Iagi?“