Morgunblaðið - 16.12.1997, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýtt
Barna-
fatalína
UM þessar mundir kynnir fyrir-
tækið Húfur sem hlæja nýja barna-
fatalínu sem unnin er í samvinnu
við Öryrkjabandalag Islands. Lín-
an samanstendur af heilum peys-
um, hnepptum peysum og
nokkrum gerðum af „leggings“. I
fréttatilkynningu frá fyrirtækinu
kemur fram að fatnaðurinn sé
prjónaður hjá Öryrkjabandalaginu.
Hann er hannaður hjá Húfum sem
hlæja sem sjá einnig um endanleg-
an frágang. Fötin eru framleidd úr
100% ull sem má þvo í þvottavél.
Fatnaðurinn fæst hjá Húfum sem
hlæja á Laugavegi 24.
Fljótandi kjötkraftur
ÁSBJÖRN Ólafsson ehf. hefur sett
á markað nýja tegund af fljótandi
kjötkrafti undir nafninu Rnorr
Fond. Um er að ræða fjórar bragð-
tegundir, kálfakjötkraft, kjöt og vín,
físk og vín og kjötkraft fyrir villi-
bráð.
I fréttatilkynningu frá Ásbimi
Ólafssyni segir að Knorr Fond kjöt-
krafturinn sé soðkjami eða þykkni
sem fæst við langtíma suðu sérval-
inna hráefna. Nokkram dropum er
bætt út í pottinn við lok matreiðslu
til að ná upp góðu bragði af sósum,
súpum eða pottréttum. Bæklingur
hefur verið útbúinn með uppskrift-
um og mun hann liggja frammi í
flestum matvöraverslunum.
Ostcih 'st
sem
Þribja bákin íþessari vinsrelastu röð matreiðslubóka á
Islandi er mi komin út. Hiíu beftir að geyma uppskriftir
af marguislegum réttum setn eiga það eitt sameiginlegt
að iþeim er smjör og/eða ostur. I bókinni er m.a. að
finna uppskrifiir afbrauðtertum, sem lengi bcftr vantað
i íslenska matreiðslubók. 1 bókiuni eru áþriðja bundrað
afbragðs uppskrifiir, meðal annars:
Hvað kostar jólatréð? i 4 | £ * 4 á 4 4 A Norðmannsþinur Rauðgreni - Stafafura >
Höfuðborgarsvæðið 4 Hæð 101- 125 cm 126- 150 cm 151- 175 cm 176- 200 cm 101- 125cm 126- 150 cm 151- ! 176- 175cm .200 cm 101- 125cm 126- 150 cm 151- 175 cm 176- 200 cm
Alaska - Miklatorgi, Reykjavík Kr. 1.890 2.990 3.690 4.590 1.190 1.690 2.390 3.090 1.590 2.390 2.990 4.290
Bergiðjan, Vatnagarðar, Rvk. / 2.100 2.990 3.900 4.900 I
Blómaval - Sigtúni, Rvk. og Akureyri 2.390 3.345 3.990 4.990 1.250 U.760 a2.400 3.150 1.760 2.500 3.250 4.400
Eðaltrá v/Glæsihæ og Sprengisand, Rvk. 2.100 2.800 3.600 4.600 tí P l
Flugbjörgunarsveitin, við Flugvallarveg og v/Skógarsel, Rvk. 2.800 3.450 4.150 5.150 1.400 1.900 2.600 3.500 4 4 4
Garðshorn, Suðurhlíð 35, Rvk. 2.100 2.700 3.500 4.600 1.800 2.500 2.600 3.400
Gróðrarstöðin Birkihlfð, Dalvegi, Kópav. 2.450 3.250 3.950 4.750 1.300 1.800 2.400 3.200 2.300 2.900 3.750 4.650
Jólatréssalan við Landakot og IKEA, Rvk. 2.190 2.790 3.590 4.590 1.100 1.700 2.200 3.000 A 3.190 4.190
KR-handknattleiksd. við KR-heimilið Frostaskjóli, Rvk. 2.150 2.800 3.750 4.800 Uj M 4 4
Landgræðslusjoður, Suðurhlíð 38, Fossvogur, Rvk. 2.900 3.800 4.700 5.800 1.260 1.770 2.360 3.150 2.000 2.830 3.770 5.040
Landsbyggðin a * ik t
Skógrækt ríkisins, Skorradal i 1.050 1.440 1.900 2.550 1.430 2.000 2.700 3.570
Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstaðir ‘ 2.250 3.000 ,3.900 , 4.900 1.300 1.700 2.400 3.100 1.750 2.500 3.500 4.500
Skógræktarf. Eyfirðinga í Kjarnaskógi, göngugölu og KEA Nettó, Akureyri 4 4 4 4 Medaiverð kr- 1.250 1.750 2.340 3.120 1.699 2.390 3.180 4.140
2.302 3.083 \3.884 4.879 1.233 1.731 2.249 3.098 1.780 2.514 3.303 4.348
Verðkönnun á jólatrjám
Verð hækkar lítillega
VERÐ á jólatrjám hefur að meðal-
tali hækkað lítillega frá í fyrra en
einstaka seljendur eru með óbreytt
verð.
Margar fjölskyldur era íhalds-
samar þegar kemur að vali á jóla-
tré, fara á sama staðinn ár eftir ár
og velja sitt tré. Færst hefur í vöxt
að fólk hafi jólatré með rót hjá sér í
stofunni yfir jólin og einnig verður
æ vinsælla að fara út í skóg, velja
sitt eigið tré og höggva.
í sjóðandi vatn
Stundum fellur barr af trjánum
rétt eftir að þau era komin inn í
stofu. Að sögn Rristins Skærings-
sonar hjá Landgræðslusjóði á það
aðallega við um rauðgreni. „Til að
fyrirbyggja að slíkt gerist borgar
sig að setja rauðgrenið í sjóðandi
vatn, láta það vera í vatninu í um
átta mínútur eða í sírennandi hita-
veituvatni í um korter til tuttugu
mínútur.“
Kristinn mælir alls ekki með að
þetta sé gert við norðmannsþin né
stafafuru. „Það á að vera alveg nóg
að tálga af legg þeirra og setja í
vatnsfót. Því miður hefur fólk verið
að gera þetta við þessar tegundii’
líka og jafnvel eyðilagt trén. Norð-
mannsþinur verður t.d. brúnn eftir
tvo eða þrjá daga ef hann er soðinn á
þennan hátt.“ Kristinn segir að ekki
borgi sig að taka trén beint inn úr
kuldanum heldur venja þau við með
því að taka þau fyrst í bilskúrinn eða
köldu geymsluna og svo inn í stofu.
„Eins og veðrið er núna er ágætt að
spúla þau vel með vatni áður en þeim
er kippt inn í bflskúr. Eins og rignt
hefur að undanförnu era trén hins-
vegar orðin vel vot og hrein."
Kristinn segir að yfirleitt sé
Landgræðslusjóður með hæsta
verðið en hann bendir á að þar sé
alltaf boðin fyrsta flokks vara.
Grenitré með rót
Hólmfríður Geirsdóttir hjá Foss-
vogsstöðinni segir að þeim fjölgi
alltaf sem kaupi jólatré með rót.
Tréð er sett inn í hús um jólin og
það er skreytt að vanda. Eftir jólin
er tréð síðan geymt á skjólgóðum
stað fram á vor en þá má gróður-
setja það þar sem vill.
Hólmfríður segir að það þurfi að
vökva moldina um leið og stofublóm-
um er gefið vatn en annað á ekki að
þurfa að gera fyrir tréð á meðan það
er inni. Hið eina sem þarf að varast
er að hafa það nálægt ofni eða á
heitasta staðnum í húsinu eða floúð-
inni. Hún segir að blágreni og sitka-
greni séu hentugustu tegundimar.
Sitkagreni sem er um metra hátt
kostar 2.980 krónur og blágreni í
sömu stærð kostar 3.880 krónur.
„Þessi tré eru það sem við köllum
skóluð. Þau era rótstungin, með góð-
um rótarhaus og ætluð til flutnings
að vori. Sé tréð geymt í anddyri eða
þar sem rigning eða snjór nær ekki
til þess þarf að vökva það af og til.
Hægt að höggva sitt tré
Hjá Skógrækt ríkisins í Skorra-
dal gefst fólki kostur á að velja sér
tré og höggva á staðnum. Þó nokk-
uð er um að fólk komi saman í hóp-
um t.d. starfsmannafélög og velji
tré en fólk getur líka komið á eigin
vegum og valið sér t.d rauðgreni
eða stafafuru.
Að lokum skal bent á að þessi
verðkönnun er á engan hátt tæm-
andi, sölustaðir era mun fleiri, bæði
á höfiiðborgarsvæðinu og úti á landi.
Ekkert tillit er tekið til gæða trjánna
sem í boði eru heldur er einungis um
beinan verðsamanburð að ræða.
Nýtt
Morgunblaðið/Kristinn
Kahlúaísterta
KAHLÚAÍSTERTA er nú fáanleg í
verslunum Hagkaups. Þetta er
mokka ísterta sem er að hluta til
handskreytt og bragðbætt með ekta
kahlúalíkjör.
(OJO\dr W
tónleikar
fyrir alla fjölskylduna
í Háskólabíói laugardaginn 20. desember kl. 15:00.
Á efnisskránni verbur m.a. Ævintýrib um
snjókarlinn eftir Howard Blake ásamt íslenskum
og erlendum jólalögum
og jólasálmum.
Hljómsveitarstjóri:
Bernharbur Wilkinson
Sögumabur og kynnir:
Karl Ágúst Úlfsson
Einleikari á flautu:
Emelía Rós Sigfúsdóttir
Einsöngvarar:
Einar jónsson
Kári Jónsson
Kórar:
Kór Öldutúnsskóla,
Gradualekór
Langholtskirkju og
Kór Kársnesskóla.
Ómissandi hljómdiskur
um hver jól
SINFÓNI'UHLJÓMSVEIT ÍSLANDS (S\
Háskólabíói vfb Hagatorg - sfmi 562 2255 • veffang www.slnfonia.is
Miðasala á skrifstofu hljómsveitarinnar og vib innganginn