Morgunblaðið - 16.12.1997, Blaðsíða 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mun færri grunaðir um ölvun
FYRSTU 14 daga þessa mánað-
ar hefur 31 ökumaður verið
stöðvaður og kærður vegna
gruns um ölvun við akstur. Á
sama tíma árið 1996 voru þessir
ökumenn 47 eða umtalsvert
fleiri.
Það er von lögreglu að sú
umfjöllun og þær ábendingar
sem lögreglan og aðrir hafa haft
uppi til að koma í veg fyrir slík-
an akstur hafi borið árangur.
Ekki er það samt svo að lögregl-
menn þurfi ekki að sinna þessum
málum. Á föstudagsmorgun
urðu lögreglumenn á eftirliti í
Árbæ varir við ungling á vél-
hjóli sem ók án þess að hafa
öryggishjálm. Hann var auk þess
með farþega sem er óheimilt auk
þess sem hann var einnig hjálm-
laus. Lögreglumönnum tókst að
stöðva aksturinn og reyndist hér
vera 15 ára bam á ferðinni og
við frekari rannsókn kom í ljós
að það var undir áhrifum áfeng-
is. Lögreglan lítur þetta brot
mjög alvarlegum augum og ekki
þarf að hafa mörg orð um þá
hættu sem pilturinn skapaði sér
og öðrum.
Umferðarslys
Kona varð fyrir ökutæki um
miðjan dag á föstudag á Skóg-
arseli við Breiðholtsbraut. Atvik-
ið var ekki tilkynnt lögreglu fyrr
en síðar um daginn, en konan
sem slasaðist fór sjálf og leitaði
sér aðhlynningar. Ökutæki var
ekið á ijósastaur í Síðumúla að
morgni laugardags. Ökutækið
varð að flytja af vettvangi óöku-
fært en ökumaður ætlaði sjálfur
á slysadeild vegna verkjar í höfði.
Líkamsmeiðingar
Tveir menn réðust á mann á
Laugvegi laust eftir miðnætti á
laugardag. Hinn slasaði var
fluttur á slysadeild af lögreglu
en árásarmenn handteknir og
fluttir á lögreglustöð. Slagsmál
milli tveggja vina laust eftir
klukkan þrjú aðfaranótt laugar-
dags enduðu með því að annar
kastaðist á framrúðu bifreiðar
og braut hana. Maðurinn hlaut
áverka á höfði og var fluttur á
slysadeild af lögreglu.
Á föstudag varð að flytja karl-
mann á slysadeild eftir að hann
hafði rotast í handalögmálum í
miðborginni. Árásarmaður var
handtekinn og fluttur á lögreglu-
stöð. Laust eftir miðnætti á laug-
ardag var ráðist að leigubílstjóra
og honum veittir áverkar á höfði.
Árásarmaður var handtekinn og
færður í fangamóttöku.
Að morgni sunnudags var ráð-
ist á karlmann á Lækjargötu við
Bókhlöðustíg. Maðurinn hlaut
áverka í andliti og fleira og var
fluttur á slysadeild. Árásarmað-
ur er ófundinn.
Skemmdir á flugvél
Á föstudaginn var lögreglu
tilkynnt um að skemmdir hefðu
orðið á flugvél á Reykjavíkur-
flugvelli. Skemmdirnar urðu er
stöng á sökkli féll á væng vélar-
innar.
Innbrot
Á föstudaginn var kært til lög-
reglu innbrot í húsgagnaverslun
í miðborginni. Þar hafði verið
stolið borðbúnaði fyrir andvirði
hálfrar miljónar. Þjófamir eru
ófundnir. Karlmaður var hand-
tekinn á veitingastað laust fyrir
klukkan hálf átta að morgni laug-
ardags. Maðurinn hafði brotist
inn í veitingahúsið og unnið
nokkrar skemmdir. Síðan hafði
hann sest að veigum hússins og
drukkið þær ótæpilega. Pilturinn,
sem er 19 ára, var handtekinn
og fluttur á lögreglustöð.
Þrennt var handtekið eftir inn-
brot í Breiðholti að morgni sunnu-
dags. í kjölfarið var gerð húsleit
sem skilaði nokkru magni af þýfi.
Annað
Um miðjan dag á laugardag
stóð yfir leit lögreglu að 3 ára
dreng sem saknað var í Grafar-
vogi. Auk fjölmenns lögregluliðs
úr Reykjavík og Kópavogi tóku
björgunarsveitir þátt í leitinni.
Rúmri klukkustund eftir að til-
kynning barst lögreglu fannst
pilturinn heill á húfí en hann
hafði falið sig.
HJÓNIN Róbert Amfínnsson
og Stella voru á fyrsta hand-
verksmarkaði eldri borgara í
Kópavogi sem haldinn var í
nóvember sl. og þótti takast vel.
Handverksdag-
ur í Gjábakka
ELDRI borgarar í Kópavogi selja í
dag, þriðjudaginn 16. september,
handverk sitt í Gjábakka, Fannborg
8, og hefst salan kl. 13.
Á handverksmarkaðnum, sem er
opinn til kl. 18.30, eru margir eiguleg-
ir munir til jólagjafa. Allir eru þeir
unnir af eldri borgurum sjálfum og
verðið ætti ekki að spilla fyrir við-
skiptum.
-----» ♦ ♦-----
LEIÐRÉTT
Fulltrúi Cuxhaven
í FRÉTT fyrir helgi var sagt frá því
að þýski sendiherrann myndi tendra
ljósin á jólatré á Flensborgarhöfn í
Hafharfírði á laugardag. Þetta reynd-
ist rangt því Jurgen Donner, fulltrúi
Cuxhaven, kveikti á jólaljósunum.
Kostnaður við félags- og
þjónustumiðstöðvar aldraðra
GYÐA Jóhannsdóttir skrifaði grein
í Morgunblaðið sl. föstudag um
þrýstihóp aldraðra. í greininni segir
að félags- og þjónustumiðstöðvar
sem Reykjavíkurborg hefur byggt
víðsvegar um borgina muni nú vera
15 talsins og með búnaði sem til
heyrir hafa þær ekki kostað skatt-
greiðendur undir 15 milljörðum
króna. Hið rétta er að þar átti að
standa 1500 milljónir.
Nákvæmni.
Tækni er ekki eingöngu vísindi, heldur líka list.
AUt frá því fyrsta Samurai sverðið var smíðað, hefur
Japan verið þekkt fyrir að skapa heimsins vönduðustu
tækni. Hjá EPSON trúum við á það að lifa í samræmi
við þann orðstír, með því að gefa þér fremstu tækni
og hafa þannig áhrif á líf þitt og starf. Skuldbinding
okkar við stöðugar nýjungar hefur skipað EPSON
afurðum sess í fytkingarbroddi tækninnar.
PhotoReal™ blekdæluprentarar með einstakri
EPSON Piezo kristaltækni eru að gerbylta heimi
borðlitaprentara. Háþróuð tölvumyndspeglunartækni
leysir sköpunargleði þína úr læðingi. Feikn skýr,
hásamþjöppuð, margmiðla sýningarvél gæðir allar
hugmyndir þínar lífi. EPSON, því tækni er líka list.
http://www.epson.com