Morgunblaðið - 16.12.1997, Síða 37

Morgunblaðið - 16.12.1997, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997 37 LAUS við trega eftir Bjarna Þór Bjarnason. Viðhorf mannslíkamans Mikil að- sókn að Guggen- heim- safninu AÐSÓKN að hinu nýja Gugg- enheim-safni í Bilbao á Spáni hefur farið fram úr björtustu vonum aðstandenda þess. Á þeim rúma mánuði sem liðinn er frá opnun þess hafa fleiri gestir heimsótt það en komið hafa á öll önnur listasöfn á Spáni samanlagt, á sama tíma. Um 3.000 gestir hafa sótt safnið heim virka daga og um 7.000 manns um helgar. Hver rútuiyllin á fætur annarri af áhugafólki um myndlist hefur skoðað safnið, nú þegar eru gest- imir orðnir um 100.000. Haldi svo fram sem horfír næst tak- mark safnstjómarinnar um 400.000 gesti á ári fyrr en varir. Sá galli er þó á gjöf Njarðar að hinn mikli fjöldi gesta veldur því að safnið minnir stundum fremur á skemmtigarð en lista- safn, þar sem fjöldi gesta tekur með sér börn og virðist fyrst og fremst koma í þeim tilgangi að sýna sig og sjá aðra. Hefur þetta orðið til þess að fjöldi list- unnanda hefur lagt fram kærur þar sem þeir vilja fá að skoða verkin í friði og ró. Til að mæta þessum kröfum hefur sýningartíminn verið lengdur um fjórar klukkustundir á viku en enn er lokað á mánu- dögum, nema fýrir forframaða gesti á borð við bandaríska kvik- myndaleikarann Brad Pitt en safnið var opnað sérstaklega fyrir hann á mánudegi er hann var á ferð í Bilbao. Aðrir verða að gera sér að góðu að bíða í langi'i röð til að komast inn í byggingu Franks Gehrys, bygg- ingu sem „Lonely Planet" ferða- bókin kallar „ruslahaug úr málmi, séðan með augum þess sem hefur fengið sér vænan LSD-skammt“. MYNPLIST Gallcrí Hornið EINÞRYKK BJARNIÞÓR BJARNASON Opið alla daga frá kl. 11 -23.30. Sýn- ingin stendur til 23. desember. MYNDLISTIN getur brugðið sér í allra kvikinda líki og það er nú af að listamenn séu takmarkaðir af aðeins fáum mótífum í list sinni, Biblíuþemum, kyrralífi eða hetjusög- um úr goðafræði og rómverskri sögu. Hins vegar eru nokkur hinna eldri mótífa sem ekki vilja hverfa heldur skjóta upp kollinum aftur og aftur. Þannig virðist landslagið seint ætla að tæmast íslenskum málurum og mannslíkaminn virðist líka vera málurum og teiknurum óþtjótandi uppspretta. Þetta kemur ekki til af einhverri íhaldssemi eða af því einu að listamönnum séu innrætt þessi vinnubrögð ungum í skóla. Sannleik- urinn er bara sá að það er fátt sem haft getur sterkari áhrif á menn en myndir af öðrum mönnum, og fátt sem getur flutt okkur meiri merk- ingu en viðhorf mannslíkamans, jafnvel þegar hann er nakinn og í einföldum stellingum. Þó bregður við að listamenn haldi sig við þessi þemu af tómri leti; það er ekkert auðveldara en að teikna andlit eins og kvæðið um Óla prik kennir okkur og auðveldasta aðferð- in til að láta líta svo út að málverk hafí eitthvað að segja okkur er að skella inn í það manneskju. Nánari athugun greinir þó alltaf hismið frá kjarnanum og áhorfandinn þarf ekki að staldra lengi við myndir Bjarna Þórs til að sjá að hér er á ferðinni listamaður sem teiknar mannslíka- mann af einlægri tjáningarþörf. Myndirnar á sýningu Bjarna Þórs á Horninu eru allar einþrykk, tutt- ugu og átta talsins. Þær birtast í mörgum litum og oft sterkum, og liturinn rennur um myndflötinn í flóknum þokum, skellum og strok- um. í öllum verkunum er það þó mannslíkaminn sem myndar hinn táknandi kjarna; merking myndanna og höfðun þeirra til áhorfandans liggur í mannamyndunum. Einfald- leiki myndanna er ögrandi, þrátt fyrir litaflæðið, og titlarnir eru hafð- ir mjög almenns eðlis svo þeir veita enga leiðsögn inn í þennan nauma merkingarheim. Þama er ekkert sem auðveldar okkur verkið, að spá í inntak myndanna. En á hvern hátt er þetta þá öðru vísi en einföld módelteikning eins og hún er iðkuð í myndlistarskóium og á kvöldnámskeiðum um allan bæ? Jú, hér er greinilegur tilgang- ur með teikningunni og hann er útfærður af styrk og kunnáttu. Samt sem áður er módelteikning- unni ekki beitt sem tæki til að ná fram einhverju öðru, setja manns- líkamann í eitthvert samhengi, klæða fólkið og láta það gera eitt- hvað sem hægt væri að rýna í og túlka, fjalla um, meta og leggja út af. Hér stendur maðurinn einn með aðeins þau merkingarform sem nakinn líkami hans getur laðað fram og gagnvart honum hefur áhorfandinn heldur engin viðmið nema sinn eigin nakta líkama. Jón Proppé Jólatónleikar Kórs Landa- kirkju JÓLATÓNLEIKAR Kórs Landa- kirkju verða haldnir miðvikudaginn 17. desember og hefjast í Landa- kirkju kl. 20.30. Flutt verða jólalög frá ýmsum lönd- um auk þekktra kórverka og einsöng- slaga tengd aðventu og jólum. Einsöngvari með kórnum er Ólaf- ur Árni Bjarnason tenórsöngvari sem nú starfar við óperuna í Bol- ogna. Auk hans koma fram með kórnum hljóðfæraleikarar úr Tón- listarskóla Vestmannaeyja. Stjórn- andi og undirleikari er Guðmundur H. Guðjónsson. Aðgangseyrir kr. 800. ----»....... Jólatónleikar kórs FB KÓR FJ ÖLBRAUTASKÓLAN S í Breiðholti verður með jólatónleika í Seljakirkju miðvikudaginn 17. des- ember kl. 20.30. í kórnum eru nú um þrjátíu ung- menni sem hafa æft jóladagskrá sem saman stendur af gömlum íslenskum og erlendum jólaiögum auk nýrra laga. Nokkrir kórfélagar syngja ein- söng eða í minni hópum innan kórs- ins. Einnig leika kórfélagar á hijóð- færi. Stjórnandi kórsins er Erna Guðmundsdóttir. Aðgangur að tón- leikunum er ókeypis. ♦ ♦ ♦--- Jólatónleikar Tónlistarskóla Rangæinga TÓNLISTARSKÓLI Rangæinga heldur tvenna jólatónleika og verða þeir fyrri haldnir í Hellubíói 16. desember, og hinir síðari í Heima- landi 17. desember. Báðir tónleik- amir hefjast kl. 20.30. Nemendur sýna afrakstur starfs- ins á þessari önn sem nú er senn lokið og verður boðið bæði upp á söng og hljóðfæraleik, en einnig mun lúðrasveit skólans leika. Viðbót við „Veröld Soffíu“ í KJÖLFAR hinnar geysivinsælu bókar norska rithöfundarins og heimspekingsins Josteins Gaarders, hefur verið skrifað ítarefni um efni bókarinnar og nefnist sú bók „Orða- bók Soffíu". Hún er eftir Otto A. Böhmer, sem þýddi „Veröld Soffíu" á þýsku. Vinsældir bóka um heimspeki hafa verið ótrúlegar síðustu ár en „Veröld Soffíu" sló öllum að óvörum í gegn árið 1992. Hugmyndin að uppsláttarritinu kviknaði hjá Böhm- er er hann vann að þýðingu á bók Gaarders og hófst hann handa við skrifin þegar að henni lokinni. í bók sinni rekur hann 130 hug- tök og nöfn úr heimspekinni og vís- ar í texta bókar Gaarders. Bækurn- ar eru þó sjálfstæð verk hvor um sig. Segist Böhmer hafa reynt að skrifa afslappaðan og jafnvel bros- legan uppdrátt að heimspekinni. -----------♦ ♦ ♦----- •MYNDLISTARMAÐURINN Kristín Þorkelsdóttir hlaut fyrir skemmstu Ryvard-styrkinn norska sem veittur er einum listamanni árlega. Styrkurinn er að upphæð um 200.000 ísl. kr. og fær Kristín einnig boð um að dvelja í 4-6 vikur í menningar- miðstöðinni Ryvarden í Sveio. Þá býðst henni í kjölfarið að halda sýningu í galleríi Ryvard- en. Alls sóttu 18 um styrkinn. FINNG0MF0RT &■ v Madr xn Gtrmany / Linz Svartir /brúnir St. 35-47 12.990,- - toppurinn í skófatnaði fyrir preytta fœtur Riva Svartir/vínr. St. 36-42 12.990,- Tölz Brúnir St. 35-47 15.890,-, Ems Svartir St. 36-42 kr. 12.990,- Dublin Svartir St. 39-47 12.990,- Kissingen Svartir St. 39-47 kr. 12.990,- FinnComfort skórnir eru gerðir fyrir innlegg. Sérstakur afsláttur fyrií þá sem eru með sérsmíðuð innlegg. Ath. Gottúrvalaf inniskóm og kuldaskóm. Opið mánud. - föstud. kl. 9-18 Aukasett af alvöru nuddinnleggi fylgirmeð. FinnComfort hefur sameinað hefðbundið aldargamalt handverk og nýjustu niðurstöður úr rannsóknum lækna til að skapa einstakan fótabúnað sem stuðlar að vellíðan þinni. Niðurstaða þessara rannsókna er rétt hannaðir skór sem taka fullttillittil fótalags og leyfa eðlilega hreyfingu. Þeir eru ekki aðeins þægilegir heldur líka heilsusamlegir. Innleggin eru létt og auðvelt að taka þau úr skónum og þvo með vatni og mildri sápu. FinnComfort skófatnaður veitir góðan stuðning og frábæra fjöðrun til verndar fótum, hnjám, mjöðmum og hrygg. Sólarnir eru óvenjulóttir gúmmísólar (polyurethane) sem dreifa álaginu með sérhæfðri loftdempun undir hæl og tábergi, til að minnka álag á liðamót og vöðva. Innbyggð loftgöng í skónum tryggja góða útöndun. Xi STOÐTÆKNI k'vktrndJíaMÆÆŒ&éMMiíáámmli&ÆMámM&r Lskjargötu 4 - Reykjavik • S: 551 4711

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.