Morgunblaðið - 16.12.1997, Blaðsíða 18
I
[
[
(
18 ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Spariskór
í úrvali
BRUNO MAGLI
PETER KAISFIJ
LOUIS NORMAN
Reykholt í Biskupstungum
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Domus Medica - Kringlunni
Vígsla nýs íþróttahúss
á Fáskrúðsfirði
Jólaleikur hjá Kaup-
félagi Arnesinga
á Suðurlandi
40 ferðir
til Flórída
í vinning
Selfossi - Jólaleikur fyrir við-
skiptavini KÁ á Suðurlandi hófst
10. desember og stendur yfir í
desember. í boði eru 40 ferðir til
Flórída með Flugleiðum og verða
tveir vinningar dregnir út daglega
að jafnaði.
Leikurinn fer þannig fram, að
ef viðskiptavinurinn verslar fyrir
ákveðna upphæð, kr. 3000.00 eða
meira, í verslunum K.Á. og Kjar-
vai, kr 2000.00 eða meira í Selfoss
apóteki og kr. 1000.00 eða meira
í söluskálum, veitinga- og gisti-
stöðum KÁ og bensínstöðvum Essó
og KÁ, þá fær hann afhentan þátt-
tökuseðil þar sem hann skrifar
nafn, heimilisfang og símanúmer,
og setur í þátttökukassa. Síðan eru
dregnir út tveir vinningshafar dag-
lega, og þeim tilkynnt um vinning-
inn. Þátttökuseðlar gilda allan tím-
ann meðan leikurinn stendur yfir.
Sami viðskiptavinur getur átt
marga seðla í pottinum þegar nær
dregur jólum.
Vinningurinn er flug og gisting
í Orlando í átta nætur fyrir einn,
gist er á hótel Best Western Plaza
sem er gott hótel í næsta ná-
grenni við vinsæla ferðamanna-
staði. Ferðir þessar þarf að nota
á tímabilinu 5. janúar til 28. febr-
úar 1998. Geta vinningshafar
pantað hjá Flugleiðum strax þegar
þeim hefur verið tilkynnt um vinn-
inginn.
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
SARA Guðjónsdóttir setur
miða í vinningspottinn.
FICRDILUMfi
Fyrsta skóflu-
stungan að
nýju íþróttahúsi
Selfossi - Á dögunum tók Gísli Sig-
urðsson oddviti Biskupstungna-
hrepps fyrstu skóflustunguna að
nýju íþróttahúsi í Reykholti.
íþróttahúsinu er ætlað að þjóna
Reykholtsskóla og öðrum þeim fé-
lögum í hreppnum sem þess óska.
Áætlun gerir ráð fyrir að húsið
verði tekið í notkun á næsta ári.
Kostnaður við bygginguna er í
kringum 45 miiljónir en húsið er
samtengt Reykholtslaug og hug-
myndin er að nýta þannig saman
búningsaðstöðuna sem er þar fyrir
hendi. Salur íþróttahússins er 608
m2 eða sem nemur löglegum körfu-
knattleiksvelli ásamt áhorfenda-
stæðum.
Gísli Sigurðsson oddviti segir að
húsið hafi verið á óskalista hrepps-
nefndar ansi lengi og því sé þessi
framkvæmd kærkomin. Jöfnunar-
sjóður sveitarfélaga greiðir 40% af
kostnaði við bygginuna á móti 60%
sveitarfélagsins. Gísli segir húsið
framtíðaríjárfestingu sem komi til
með að skila sér til komandi kyn-
slóða.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Fyrsti snjórinn
Grundarfirði - Börnin á leik-
skólanum Sólvöllum undu sér
vel er fyrsti snjórinn kom hér í
Grundarfirði, en'þá snjóaði
10-15 sentimetra. Þau renndu
sér niður brekkuna af fullum
krafti, veltu sér í snjónum og
skemmtu sér konunglega eins
og börnum er einum lagið.
Sum gáfu sér þó tíma til að
syngja eitt jólalag fyrir ljós-
myndarann.
íþróttamiðstöðin í Borgarnesi
Ný og betri laug
Fáskrúðsfirði - Vígsla nýs íþrótta-
húss á Fáskrúðsfirði fór fram laug-
ardaginn 13. desember. Vígslan
hófst með skrúðgöngu frá gamla
íþróttahúsinu að hinu nýja undir
fána Ungmennafélagins Leiknis.
Við vígsluathöfnina voru flutt
nokkur ávörp. M.a. talaði oddviti
Búðahrepps, Albert Kemp, formað-
ur byggingarnefndarinnar, Ingólf-
ur Hjaltason, rakti bygginu húss-
ins, síðan fluttu ávörp Reynir
Karlsson, íþróttafulitrúi ríkisins,
Örn Magnússon, framkvæmda-
stjóri HSI, Lúðvík Geirsson, bæjar-
fuiltrúi í Hafnarfirði, og formaður
Leiknis, Jóna B. Jónsdóttir. Sókn-
arpresturinn, sr. Carlos A. Ferrer,
blessaði húsið.
Húsinu bárust margar gjafir frá
nágrannabyggðarlögum og öðrum
velunnurum, einnig bárust kveðjur.
Eftir ávörp gesta skemmti Magnús
Ólafsson, Bjössi bolla, yngri kyn-
slóðinni.
í tilefni af vígslu hússins komu
Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar
og léku þama gestaleik en þarna
var um hörkuleik að ræða sem
endaði með jafntefli, 28:28.
Gólfflötur íþróttahússins er
44x22 metrar, bygging hússins
hófst árið 1991. Heildarkostnaður
er um 118 milljónir kr. Tilkoma
þessa hús skapar ýmsa möguleika
í íþróttaiðkunum jafnt fyrir börn
sem fullorðna og virðist svo vera
að mikil aðsókn sé í húsið nú þegar.
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
GISLI Sigurðsson oddviti tekur fyrstu skóflustunguna að nýju
íþróttahúsi i Reykhoiti.
Borgarnesi - í sumar varð mikil
breyting í sundlaugarmálum Borg-
nesinga. í byrjun júlí var ný sund-
laug ásamt rennibrautum og pott-
um tekin í notkun við íþróttamið-
stöðina. Við það varð mikill munur
á aðstöðunni og jókst aðsóknin
mjög mikið.
Ekki var öllum framkvæmdum
við húsið lokið í sumar. Fyrir
skömmu hófst vinna við eimbað
og vaktherbergi. Sér Loftorka um
þær framkvæmdir. Áætlað er að
þeim ljúki í febrúar nk.
✓
I Kringlunni
fæst einnig
p
D I S A N D R O
Marco Polo
Gott urval af töskum og hönskum
__________ J
Morgunblaðið/
HAFNARFJARÐARLIÐIN FH og Haukar léku vináttuleik við vígslu hússins sl. laugardag og lauk
þeim leik með jafntefli.