Morgunblaðið - 16.12.1997, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HLJÓMSVEITIN „One man band“ slær hvert vinsældametið af öðru með laginu „Svona
gera menn ekki“.
Viðmiðunarverð
bílaumboða til
umfjöllunar
SAMKEPPNISRÁÐ hefur fjallað
um kvörtun sem barst frá Hákoni
Stefánssyni á Dalvík sem taldi bif-
reiðaumboð geta stjórnað verði á
notuðum bílum með því að gefa út
viðmiðunarlista. Var niðurstaðan
að ekki væri ástæða til frekari af-
skipta ráðsins.
Einnig var fjallað um erindi frá
Verðlagseftirliti Neytendasamtak-
anna, Alþýðusambandi íslands og
Bandalagi starfsmanna ríkis og
bæja þar sem samkeppnisstofnun
var beðin að kanna hvort bifreiða-
umboð hefðu með sér verðsamráð.
Var niðurstaðan á sömu lund og í
máli Hákonar.
Ráðið segir að notkun umboð-
anna á viðmiðunarverðlistum beri
ekki merki um samantekin ráð.
Hagkvæmni fyrir fyrirtækin, hag-
ræði og öryggi neytenda virðist
ráða þar mestu. Einnig segir að
erlendis sjái sums staðar sérstök
fyrirtæki um útgáfu lista af þessu
tagi.
Greint er frá því að verðlagning
á notuðum bílum sé flókið mál og
margt verði þar að taka með í reikn-
inginn, ástand ökutækis og fleira.
Samkeppnisráð beinir þeim tilmæl-
um til bifreiðaumboðanna að þau
láti koma skýrt fram að um leið-
beinandi verðlista sé að ræða.
Svæðisskipulag
miðhálendis
Níutíu at-
hugasemd-
ir bárust
RÚMLEGA 90 athugasemdir bár-
ust Skipulagi ríkisins við tillögur
um svæðisskipulag Miðhálendisins,
en frestur til að skila inn athuga-
semdum rann út 10. desember.
Fyrr á þessu ári voru kynntar
tillögur samvinnunefndar um svæð-
isskipulag fyrir Miðhálendi Islands.
Skipulagið lýtur að framtíðamýt-
ingu landsvæðisins til ársins 2015.
Samkvæmt upplýsingum Skipu-
lags ríkisins var þegar hafist handa
við að fara yfir tillögurnar. Sam-
vinnunefndin fundaði í gær og verð-
ur þeim fundi fram haldið í dag.
Óvíst er hvenær umfjöllun Skipu-
lagsins um athugasemdirnar lýkur.
Ef þú
lieíur smakkað
Jólasíklina
liá Islenskum matvælum
veistu að jólin eru
ekki langt undan
-þú kcm.il
í .mnnkallad jóla.ikap!
ÍSLENSK MATVÆLI
Líknarfélagið Risið tuttugu ára
Enn þörf fyrir
áfangaheimili
Líknarfélagið
Risið er tuttugu
ára um þessar
mundir en það hefur frá
upphafi rekið áfanga-
heimilið Risið fyrir þá sem
eru að feta sig á ný út í
samfélagið eftir að hafa
verið í áfengismeðferð.
Ólafur Grímsson geð-
læknir er einn af stofn-
endum félagsins og hefur
verið í stjóm þess frá upp-
hafl
„Árið 1977 var að
framkvæði Stefáns Jó-
hannssonar félagsráðu-
nauts ákveðið að fara í
að útvega húsnæði fyrir
þá áfengissjúklinga sem
höfðu verið í meðferð
vegna áfengissýki en áttu
ekki afturkvæmt til heim-
ilis. Stefán starfaði þá á Vífils-
stöðum sem var á þessum tíma
aðal meðferðarheimili áfengis-
sjúklinga. Auk Stefáns og mín
komu að stofnun líknarfélagsins
Valgarð Breiðfjörð og fleiri menn.
Að heimilinu var ráðinn mat-
reiðslumaður, Guðlaugur Sveins-
son, sem æ síðan hefur verið
starfandi á heimilinu og veitt því
forstöðu."
Ólafur segir að fyrir hafi verið
eitt áfangaheimili, Skjöldur, en
það var stofnsett árinu áður en
Risið varð til. Stefán Jóhannsson
var einnig hvatamaður að stofnun
þess heimilis.
„Fyrstu árin var heimilið til
húsa í Brautarholti. Þar bjuggu
bæði karlar og konur en þar sem
ýmsir vankantar voru á því var
síðar ákveðið að einungis karl-
menn yrðu búsettir á heimilinu.
Starfsemin var um skeið í
Tryggvagötu en hefur frá árinu
1981 verið til húsa í Stakkholti
3.“
- Hvernig hefur starfsemin
verið fjármögnuð um árin?
„Heimilismenn hafa fengið
mánuð til að útvega sér vinnu og
standa sjálfir í skilum með leigu
og fæði. Þann tíma hafa bæjarfé-
lög hlaupið undir bagga með okk-
ur. Þetta hefur alla jafna gengið
upp en hafi menn þurft lengri
tíma til að átta sig hafa bæjarfé-
löginn sýnt skilning og við leitað
eftir styrkjum ef þannig stendur
á.“
- Hefur starfsemin gengið
vei?
„Alla jafna hefur starfsemin
gengið vel þó auðvitað komi eitt-
hvað upp á af og til. Þetta er
ekki eftirmeðferð sem verið er
að bjóða mönnum upp á hjá Ris-
inu heldur stuðningur til að menn-
irnir geti sjálfir komist út í samfé-
lagið á ný.“
- Eru heimilismenn margir
hverju sinni? _________
„Þeir hafa verið frá
tuttugu og upp í tutt-
ugu og fímm þegar
mest lætur. í upphafi
var ætlunin að menn
byggju hjá okkur í þijá til sex
mánuði meðan þeir væru að ná
fótfestu. Þetta hefur ekki alltaf
gengið eftir og mörgum dugði
þessi tími ekki til að standa á
eigin fótum. Það hefur líka komið
fyrir að mennimir hafi verið orðn-
ir rosknir og kosið að búa í örygg-
inu áfram. Við tókum þá ákvörð-
un að láta það standa ef málum
væri þannig háttað og það eru
dæmi um að menn hafi búið hjá
okkur til dauðadags."
Ólafur segir að Guðlaugur
Sveinsson matreiðslumaður hafí
haldið utan um alla daglega starf-
semi frá upphafi Rissins en hlut-
Ólafur Grlmsson
►Ólafur Grímsson hefur starf-
að sem geðlæknir síðustu tvo
áratugina, aðallega við áfeng-
is- og vímuefnaskor geðdeildar
Landspítalans.
Hann hefur verið í stjórn
líknarfélagsins Rissins frá upp-
hafi en Risið á tuttugu ára af-
mæli um þessar mundir.
Eiginkona Ólafs er Fanney
Arthursdóttir og eiga þau
fimm börn.
Iðulega
biðlisti eftir
plássi
verk Ólafs hefur verið að koma
inn til aðstoðar sem læknir og
leiðbeinandi þegar eitthvað fer
úrskeiðis. „Guðlaugur hefur get-
að leitað til mín ef eitthvað hefur
farið aflaga. Þá hafa mennirnir
einnig þurft að leyfa mér að fylgj-
ast með lyfjatöku sinni en algjört
framskilyrði fyrir dvöl í Risinu
er auðvitað að mennirnir haldi sig
frá áfengi og lyfjamisnotkun
hverskonar.“
- Hefur orðið mikil breyting á
starfseminni frá upphafi?
„Nei, hún hefur verið í svipuðu
formi öll árin. Við höfum þó
neyðst til að vera aðgangsharðari
í að fá tryggingu fyrir leigu og
fæði. Hluti af heimilismönnum er
öryrkjar og þá era örorkubæturn-
ar trygging okkar.“
- Þurfa heimilismenn að hlíta
einhveijum reglum?
„Það eru mjög fáar reglur sem
þeir þurfa að fara eftir en þær
era skýrar. Heimilismenn þurfa
að vera ábyrgir fyrir gerðum sín-
um og taka tillit til annarra.
Mennirnir ganga frjálsir ferða
sinna en leyfa forstöðumanni að
fylgjast með hvemær þeir komi
og fari. Það hefur myndast náin
samstaða með heimilismönnum
og við höfum tekið eftir því að
ef einn vantar þá verða hinir óró-
legir.“
- Eru dæmi um að sömu
mennirnir komi til ykkar aftur og
aftur?
„Það kemur fyrir
og við höfum gefíð
þeim kost á að sækja
um dvöl hjá okkur aft-
ur eftir að þeir hafa
tekið sig á og farið á ný í með-
ferð.“
Ólafur segir að þörfin fyrir
áfangaheimili eins og Risið sé
ekki minni nú en fyrir tuttugu
áram þegar heimilið var stofnað.
Hann segir Risið ávallt fullnýtt
og færri komist að en vilja. „Við
eram iðulega með biðlista og þó
fleiri áfangaheimili hafí risið upp
með árunum hefur ekkert dregið
úr þörfinni fyrir pláss hjá okkur."
Ólafur segist vilja koma þakklæti
til allra þeirra sem í þessi tuttugu
ár hafa stutt við bakið á starfsem-
inni og gert kleift að halda henni
áfram.