Morgunblaðið - 16.12.1997, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRl
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akureyrar afgreidd á bæjarstjórnarfundi í dag
Stóðumst allar freistingar
„VIÐ STÓÐUMST allar freisting-
ar, höldum okkur innan eðlilegra
marka og lítum ekkert sérstaklega
til þess að kosningaár er framund-
an,“ segir Gísli Bragi Hjartarson,
fulltrúi Alþýðuflokks í bæjarstjórn
Akureyrar, en flokkurinn myndar
meirihluta með Framsóknarflokki.
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akur-
eyrar verður afgi’eidd á fundi bæj-
arstjórnar síðdegis í dag, þriðju-
dag.
Aætlað er að tekjur bæjarsjóðs
verði 2,1 milljarður króna á næsta
ári og rekstrargjöld verða tæplega
1,7 milljarðar. Samkvæmt áætlun-
inni fara 303 milljónir króna til
framkvæmda. Um 170 milljónir
króna fara til gjaldfærðra fjárfest-
inga.
Lokið við fyrsta
áfanga Giljaskóla
Gísli Bragi segir að mestu fé
verði varið til framkvæmda við
grunnskóla, en stefnt er að því að
ljúka fyrsta áfanga við byggingu
Giljaskóla og voru áætlaðar um 80
milljónir króna til verksins. Gert er
ráð fyrir að taka fyrsta áfanga
byggingarinnar í notkun fyrir upp-
haf næsta skólaárs. Þá verður haf-
ist handa við byggingu nýn-ar
álmu við Síðuskóla og er kostnaður
áætlaður um 28 milljónir króna. Til
framkvæmda við Sundlaug Akur-
eyrar fai’a 60 milljónir króna, en ný
sundlaug verður tekin í notkun á
næsta ári. I áætluninni er gert ráð
fyrir kaupum á nýjum snjótroðara
fyrir 16 milljónir króna og einnig
er áætlað að kaupa nýjan strætis-
vagn.
I áætluninni er gert ráð fyrir að
88 milljónir króna fari til gatna-
gerðarframkvæmda á næsta ári, en
m.a. á að gera götur í nýju iðnaðar-
hverfí í Krossaneshaga, norðan við
Skeljung á Hörgárbraut.
Fyrri umræða um frumvarp að
fjárhagsáætlun Framkvæmdasjóðs
Akureyrar verður á bæjarstjórnar-
fundinum í dag, en samkvæmt því
verða 80 milljónir króna úr sjóðn-
um notaðar til margvíslegra fram-
kvæmda.
Ábyrg fjármálastjórn
„Við stefnum einkum að því að
ljúka þeim framkvæmdum sem við
höfum þegar byrjað á. Auðvitað er
alltaf freistandi að byrja á ein-
hverju nýju þegar framundan eru
kosningar, en við höfum staðist
þær og leggjum áherslu á ábyi’ga
fjármálastjóm og þess vegna hefur
okkur tekist að lækka skuldir bæj-
arins verulega," sagði Gísli Bragi.
Tunnur og
þak fuku
á fólksbíia
FÓLKSBÍLL skemmdist nokkuð
er þak af vinnuskúr í Giljahverfí
fauk á bílinn í hvassviðri skömmu
eftir hádegi í gær. Einnig fuku
tunnur af flutningabíl og skemmdu
fólksbíl.
Töluvert hvassviðri var á Akur-
eyri í gær og á sunnudag og fór ým-
islegt lauslegt af stað, auk þess sem
jólatré og skreytingar skemmdust.
Lögreglan á Akureyri hafði þó ekld
haft spurnir af miklu tjóni né
meiðslum á fólki seinni partinn í
gær.
Jólatré við Akureyrarkirkju fauk
í gær. Þá brotnaði toppurinn af hinu
stóra jólatré Akureyringa á Ráð-
hústorgi á sunnudag.
----------------
Friðarljós
og' matarbúr
Hjálpar-
stofnunar
FRIÐARLJÓS verða seld á Akur-
eyri á vegum Hjálparstofnunar
kirkjunnar líkt og síðustu ár og
munu nemendur Brekkuskóla
ganga í hús og bjóða þau til sölu. Á
Þorláksmessu verður bifreið í
göngugötunni í Hafnarstræti þar
sem tekið verður á móti framlögum
í árlega söfnun stofnunarinnar og
einnig verða seld þar friðarljós. Þá
verða ljósin seld við hlið kirkju-
garðs Ákureyrar á aðfangadag og
gamlársdag.
Fyrir þremur árum var opnað á
vegum Hjálparstofnunarinnar mat-
arbúr á Ákureyri fyrir þá sem þess
þurfa með og verður svo einnig nú.
Prestarnir á Akureyri taka við um-
sóknum og hafa milligöngu um aðra
aðstoð. Umboðsmaður Hjálpar-
stofnunar ldrkjunnar á Akureyri er
Jón Oddgeir Guðmundsson.
„ Morgunblaðið/Kristján
DANIEL Snorrason, t.h., og Tómas Viðarsson, frá rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri, að störfum í
fískvinnslu Norðurstrandar á Dalvík í gær.
Milljónatjón í eldsvoða í fískvinnsluhúsi á Dalvík
Starfsmaður viður-
kenndi íkveikju
MILLJÓNATJÓN varð í eldsvoða
í fiskvinnslu Norðurstrandar hf. á
Dalvík á fimmta tímanum aðfara-
nótt sunnudags. Á sunnudag var
starfsmaður Norðurstrandar hand-
tekinn og við yfírheyrslu hjá lög-
reglu, viðurkenndi hann að vera
valdur að brunanum.
Slökkvistarf gekk vel en eldur-
inn kom upp í rými í norðaustur-
horni hússins. Þar urðu mestu
skemmdimar en einnig urðu
skemmdir annars staðar í húsinu
og þá aðallega af sóti og reyk. Hús-
næði Norðurstrandar er tæpir 400
fermetrar að stærð en yfir hluta
þess er geymsluloft og skrifstofur.
Þorsteinn Már Aðalsteinsson,
framkvæmdastjóri Norðurstrand-
ar, sagði í samtali við Morgunblað-
ið í gær að fyrirtækið væri tryggt
en eftir væri að meta tjónið, það
skipti þó einhverjum milljónum
króna. Þorsteinn sagði ljóst að ekki
yrði um frekari vinnslu að ræða á
þessu ári en stefnt væri að því að
koma húsnæðinu í samt lag og
hefja vinnslu strax á nýju ári. Að
undanfórnu hafa 13 manns unnið
hjá Norðurströnd og nýlega höfðu
verið unnin 1.000 tonn af fiski hjá
fyrirtækinu á þessu ári.
Morgunblaðið/Kristján
VALHÖLL vígð, frá vinstri sóra Gunnlaugur Garðarsson, Unnur
Helga Möller og Þorsteinn Pétursson skátaforingi.
Skátar vígja nýjan úti-
leguskála í Vaðlaheiði
ÞAÐ var stór stund í starfsemi
Skátafélagsins Klakks á Akur-
eyri siðastliðinn sunnudag þegar
skátar vígðu nýjan útileguskála,
Valhöll sem er í landi Veiga-
staða. Fjölmargir skátar voru
viðstaddir vígsluna.
Skálinn leysir af hólmi eldri
skála á sömu jörð, en stendur
nokkru ofar í Vaðlaheiðinni.
Hann er 90 fermetrar að grunn-
fleti, á jarðhæð er forstofa, bak-
pokageymsla, stofa, eldhús,
snyrtingar og foringjaherbergi.
Á efri hæðinni er svefnloft.
Trausti Adamsson var yfirsmið-
ur, en í bygginganefnd voru þeir
Ólafur Kjartansson og Elías
Óskarsson.
Skátar hafa til umráða um
þriggja hektara stórt land og er
þegar búið að vinna land undir
tjaldstæöi auk þess sem um 800
plöntur hafa verið gróðursettar.
Við athöfnina á sunnudag,
blessaði séra Gunnlaugur Garð-
arsson, sóknarprestur í Glerár-
prestakalli, húsið, Dúi Björnsson
klippti á borða og opnaði það
formlega og Unnur Helga Möller
flutti ávarp þar sem hún rakti
m.a. byggingarsögu hússins.
Mývatnssveit
Kveikt
á jólatré
Mývatnssveit. Morgunblaðiö.
KVEIKT var á jólatré við
Barnaskólann í Reykjahh'ð kl.
16 sunnudaginn 14. desember.
Sungin voru jólalög, Jón Árni
Sigfússon lék á haiinoníku,
Sigbjörn Gunnarsson sveitar-
stjóri flutti ávarp, jólasveinar
komu í heimsókn og á eftir
var öllum viðstöddum boðið
upp á veitingar í skólanum.
Á sunnudagskvöld var síð-
an aðventukvöld í Reykjahlíð-
arkirkju 14. desember kl.
20.30. Börn úr Reykjahlíðar-
skóla sungu, þá söng kór
kirkjunnar. Söngstjóri var
Jón Árni Sigfússon, einsöngv-
ari Ólöf Kolbrún Harðardóttir
og undirleikari Glaudio Rizzi.
Séra Örn Friðriksson, fyrr-
verandi sóknarprestur, flutti
jólahugvekju, hann var einnig
kynnir og fór síðast með bæn
og blessunarorð. I lokin var
almennur söngur, Heims um
ból. Mikið fjölmenni var.
Átak Sjálfsbjargar
um léttar hurðir
Fimm hlutu
viður-
kenningu
FIMM fyrirtæki hlutu viður-
kenningu Sjálfsbjargar á
Akureyri fyrir að bregðast við
áskorun félagsins um að bæta
aðgengi að húsakynnum sín-
um með sjálfvirkum opnunar-
búnaði hurða og voru þær af-
hentar á Alþjóðadegi fatlaðra
í liðinni viku. Fyrirtækin eru
Hagkaup, Kaupangur, húsfé-
lag B, Landsbanki Islands við
Strandgötu á Akureyri, Veit-
ingahúsið Greifinn og Bjarg
fyrir aðgengi að félagssal.
Forsvarsmenn félagsins
telja árangurinn nokkuð góð-
an, en auk áðurnefndra lyrir-
tækja eru ýmis önnur í bæn-
um að huga að úrbótum varð-
andi útihurðir sínar. Hvetja
Sjálfsbjargarfélagar almenn-
ing til þess að beita áhrifum
sínum til frekari úrbóta á
þessu sviði, benda á það sem
vel er gert og hvar úrbóta sé
þörf.
Aðventu-
tónleikar
AÐVENTUTÓNLEIKAR
verða í Glerárkirkju í kvöld,
þriðjudagskvöldið 16. desem-
ber, kl. 20.30.
Fram koma Barnakór Gler-
árkirkju undir stjóm
Michaels Jóns Clarkes og Kór
Glerárkirkju undir stjóm
Hjartar Steinbergssonar sem
einnig leikur á orgel. Á efnis-
skránni em verk tengd að-
ventunni og jólum. Aðgangur
er ókeypis og allir velkomnir.
Mývatnssveit
Nýr sóknar-
prestur
Mýyatnssveit. Morpunblaöið.
SÉRA Örnólfur Ólafsson var
settur inn í embættið í messu
í Skútustaðakirkju sunnudag-
inn 14. desember af Ingimari
Ingimarssyni prófasti. Mý-
vetningar bjóða séra Örnólf
velkominn til starfa hér í
sveitinni.