Morgunblaðið - 16.12.1997, Page 27

Morgunblaðið - 16.12.1997, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997 2 7 Viltu góðan Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn hf. hefur skilað umtalsverðum hagnaði á undanförnum árum. Á árinu 1996 nam heildarhagnaður til hækkunar á eigin fé 345 milljónum króna og áætlanir gera ráð fyrir um 450 milljóna króna heildarhagnaði á yfirstandandi ári. Eigið fé félagsins hefur aukist úr 961 milljón króna árið 1994 í 1.506 milljónir króna á síðasta ári. Arðsemi eigin fjár var 29,8% á síðasta ári og stefnir í að verða svipuð í ár. Á síðasta ári greiddi félagið hluthöfum sínum 10% arð auk þess sem nafnvirði hlutabréfa var hækkað um 25% með útgáfu jöfnunarhlutabréfa. nýsköpun Mvinnulífinu... Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn hf. er fyrsta almenningshlutafélagið sem leggur áherslu á fjárfestingar í fyrirtækjum sem ekki eru skráð á Verðbréfaþingi og hafa að öðru jöfnu ekki greiðan aðgang að áhættufjármágni. Þetta er í samræmi við það meginmarkmið félagsins að efla atvinnuþróun og treysta atvinnuöryggi launafólks á íslandi. Félagið hefur x þessu skyni tekið þátt í að fjármagna framsækin nýsköpunarfyrirtæki, m.a. í hugbúnaðargerð, útrás íslenskra fyrirtækja á erlenda markaði, hagkvæma sameiningu íslenskra fyrirtækja og einkavæðingu ríkisfýrirtækja. Það hefur einnig keypt hlutafé í erlendum fyrirtækjum í því skyni að laða þau til samstarfs um fjárfestingar hér á landi. og alslátt af skatti að auki? Einstaklingur sem kaupir hlutabréf x Eignarhaldsféiaginu Alþýðubankinn hf. fyrir 130 þúsund krónur fyrir næstu áramót, fær 32 þúsund króna afslátt af tekjuskatti á næsta ári. Hjón eða sambúðarfólk sem kaupa hlutabréf í Eignarhaldsfélaginu Alþýðubankinn hf. fyrir 260 þúsund krónur, fá 64 þúsund krónur greiddar út á næsta ári sem afslátt af tekjuskatti. Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn hf. Síðumúla 28, sími 588 3370, bréfasími 588 3340 Hlutabréf eru seld hjá félaginu, Landsbréfum og útibúum Landsbankans um allt land. LANDSBRÉF HF.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.