Morgunblaðið - 16.12.1997, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997
MINIMINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
»>
>
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR Á. SIGURÐSSON
frá Þingeyri,
Hátúni 12,
Reykjavík,
er látinn.
Sigríður B. Guðmundsdóttir, Björn R. Ingólfsson,
Guðbjörg Guðmundsdóttir
og afastrákarnir.
Útför eiginkonu minnar,
SIGRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Kleppsvegi 142,
Reykjavík,
var gerð í kyrrþey frá Áskirkju föstudaginn
12. desember si.
Þökkum auðsýnda samúð.
Fyrir hönd vandamanna,
Halldór Halldórsson.
Frænka mín,
SIGURLÍNA HERMANNSDÓTTIR
frá Grindum,
Lindargötu 64,
Reykjavík,
sem lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 10. desember síðastliðinn, verður
jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 17. desember kl. 13.30.
Fyrir hönd vandamanna,
Unnbjörg Eygió Sigurjónsdóttir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
BERGÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund laugar-
daginn 13. desember.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn
22. desember kl. 13.30.
Helga Vilhjálmsdóttir Frahm, Sven Frahm,
Gíslína Vilhjálmsdóttir, Bjarni Sæmundsson,
Guðmundur Vilhjálmsson, Guðbjörg Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær faðir okkar,
KRISTJÁN J. REYKDAL,
til heimilis
á Guðrúnargötu 10,
andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 14. desember.
Gylfi Reykdal,
Jón Reykdal.
+
AÐALGEIR ÓLAFUR JÓNSSON
frá Hólum,
Eiðsvallagötu 9,
Akureyri,
lést í Kristnesi að kvöldi föstudagsins 12. des-
ember.
Aðstandendur.
+
Bróðir okkar,
TRYGGVI HALLDÓR TRYGGVASON
frá Syðri-Hraundal
á Mýrum,
andaðist á Landspítalanum laugardaginn 13. desember.
Systkini hins látna.
RAFN ALEXANDER
PÉTURSSON
+ Rafn Alexander
Pétursson
fæddist í Bakka-
koti, Lýtingsstaða-
hreppi í Skagafirði
3. ágúst 1918. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 6. des-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Pétur Jónsson,
verksljóri á Sauðár-
króki, og kona hans
Ólafía Sigurðar-
dóttir, húsmóðir frá
Dýarafirði. Pétur
var sonur Jóns
Jónssonar, bónda á Kimbastöð-
um, og konu hans Guðrúnar
Eggertsdóttur, frá Skefilsstöð-
um. Ólafía, móðjr Rafns, var
dóttir Sigurðar Ólafssonar frá
Dýrafirði og konu hans Dag-
bjartar Helgu Jónsdóttur. Syst-
ur Rafns eru Guðrún, Dag-
björt, Björg, Elinborg, Guðný,
Olga, Ingibjörg, Ingigerður,
Edda, Hrafnhildur Ester, sem
lést sem barn, Hrafnhildur og
Brynja, sem lést árið 1995.
Rafn kvæntist 19. október
1946 Karólínu Júlíusdóttur en
hún lést 6. desember 1994.
Foreldrar hennar voru Júlíus
Vigfússon sjómaður og Guð-
finna Magnúsdóttir frá
Grindavík. Börn þeirra eru: 1)
Arni Júlíusson verslunarstjóri,
sonur Karólínu, kvæntur Sól-
veigu Jónsdóttur og eiga þau
fjögur börn og níu barnabörn;
2) Bergljót, skólaritari, dóttir
Rafns og Þórunnar Bjargar
Magnúsdóttur, húsmóður á
Akureyri, gift Birni Einars-
syni, múrarameistara, og eiga
þau tvö börn og eitt barna-
barn; 3) Júlíus Guðfinnur,
framkvæmdastjóri, kvæntur
Guðrúnu Gísladóttur, for-
stjóra, og eiga þau átta börn
og átta barnabörn; 4) Pétur,
ráðgjafi, kvæntur Guðríði
Friðriksdóttur, lyfjatækni, og
eiga þau fimm börn og tvö
barnabörn; 5) Kjartan, tækni-
fræðingur, kvæntur Sólveigu
Einarsdóttur, snyrtifræðingi,
og eiga þau þrjú börn; 6) Auð-
ur, skrifstofumaður, gift Júl-
íusi Bjarnasyni, framkv.stj., og
eiga þau tvö börn; 7) Dröfn,
Okkur systkinin langar með
örfáum orðum að minnast hans
Rafns afa. Hann afi var hörkudug-
legur og átti það við allt það sem
hann tók sér fyrir hendur. Hann
var einstaklega sérvitur en
skemmtilega þó. T.d. var það ávallt
þannig eftir að amma dó að hann
borðaði morgun- og kvöldmat á
ákveðnum tíma og mátti enginn
og ekkert raska því. Við systkinin
lærðum það fljótt að það þýddi
ekkert að segjast ætla að koma í
heimsókn til afa og ömmu í kring-
um tvö eða þrjú, við urðum að segja
ákveðinn tíma og þá var líka ætl-
ast til að maður mætti á þeim tíma
en ekki fimm eða tíu mínútum
seinna enda var afi ákaflega stund-
vís maður.
Við minnumst margra stunda
með ömmu og afa og þá sérstak-
lega suður á Flórída þar sem þau
bjuggu á veturna í rúm 15 ár, þar
eyddum við með þeim mörgum
góðum stundum. Heimili ömmu og
afa á Flórída var einstaklega vina-
legt og þar var þægilegt að vera.
Minnisstæðust okkur eru kvöldin
yfir sjónvarpinu þar sem afi sat og
spurði ömmu spjörunum úr varð-
andi efni þáttarins eða myndarinn-
ar sem verið var að horfa á, þegar
ömmu fóru síðan að leiðast spurn-
ingamar, var afi ekki ráðalaus,
hann bara skáldaði söguþráðinn og
sagði okkur hinum frá sinni túlkun
á sjónvarpsefninu.
Við getum ekki minnst afa án
þess að minnast þess hversu hag-
kennaranemi, gift
Sigurði Sævarssyni
tónskáldi og eiga
þau tvö börn.
Rafn lærði skipa-
smíði hjá Nóa
Kristjánssyni á Ak-
ureyri 1937-41.
Hann stundaði nám
við Iðnskólann á
Akureyri sömu ár
og lauk sveinsprófi
1942. Hann lauk
námi í fiskvinnslu
hjá Fiskmati ríkis-
ins 1949 og var Síld-
ar- og fiskmatsmað-
ur frá 1950. Skipasmíði stund-
aði hann á Akureyri 1937-45
og var yfirsmiður við skipa-
smíðastöð Eggerts Jónssonar í
I.-Njarðvík 1945-54. Frystihús-
sljóri var hann 1950-54 á sama
stað og síðar hjá Haraldi Böðv-
arssyni & Co., á Akranesi 1954-
1960. Framkvæmdasljóri og
eigandi Fiskiðju Flateyrar hf.
1960-67. Verkstjóri hjá Foss-
krafti við byggingu Búrfells-
virkjunar 1968-69. Fulltrúi
Landsbanka Islands við Utgerð-
arstöð Guðm. Jónssonar í Sand-
gerði 1969-70. Frá 1970 til
1988 stofnaði hann og rak
frystihúsið R.A. Pétursson hf.
í Y.-Njarðvík. Hann var í próf-
nefnd skipasmiða á Suðurnesj-
um 1945-54. í stjórn Fél. ungra
sjálfstæðismanna á Suðurnesj-
um 1946. I hreppsnefnd Njarð-
víkurhrepps fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn 1946-50 og aftur
1954. Hann sat í bæjarstjórn
Akraness fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn og í útgerðarráði
1958-60. Rafn var formaður
Sjálfstæðisfélags Önundar-
fjarðar 1961-67. í hreppsnefnd
og oddviti Flateyrarhrepps
1962-66. Hann var í stjórn Iðn-
aðarmannafélags Flateyrar.
Stofnfélagi og I stjórn félags
fiskvinnslustöðva á Vestfjörð-
um. I stjórn Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna 1962-68.
Rafn var varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Vestfjarða-
kjördæmi 1963-67 og sat á
Alþingi.
Útför Rafns fer fram frá
Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.30
orður hann var og voru margar
skemmtilegar ferskeytlurnar sem
við fengum að heyra.
Síðustu árin bjó afi á Dvalar-
heimilinu Ási í Hveragerði og síðar
á Elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund í Reykjavík, þar var einstak-
lega vel hugsað um hann og viljum
við þakka starfsfólki þessara heim-
ila innilega fyrir þá umönnun.
Að lokum viljum við segja, elsku
afi, við söknum þín mikið en við
vitum að nú líður þér vel við hlið
konunnar sem þú elskaðir svo mik-
ið, hennar Línu ömmu.
Karólína, Greipur og Rafn.
Elsku afi, er við kveðjum þig í
hinsta sinn minnumst við þín með
þakklæti fyrir þann tíma sem við
nutum nærveru þinnar í þessum
heimi. Nú ertu kominn í faðm henn-
ar ömmu. Þið njótið nú aftur sam-
verunnar í þeim heimi sem þú varst
svo forvitinn um og þú sagðir okk-
ur svo oft frá. Á þessari kveðju-
stund koma upp í hugann margar
góðar minningar um þær stundir
sem við áttum saman. Við bræð-
urnir minnumst sérstaklega jól-
anna sem við eyddum hjá ykkur
ásamt frændum okkar í Flórída.
Þá áttum við saman yndislegan
tíma þegar þið amma sýnduð okkur
ævintýri Ameríku. Við barnabörnin
þín eigum eftir að sakna frásagnar-
gleði þinnar og kímnigáfu og vitum
það frá þér að hægt er að sjá
spaugilegu hliðina á flestu.
Elsku afi, við kveðjum þig með
söknuði en þó fyrst og fremst þakk-
læti fyrir að hafa verið góður afi
og vinur.
Einar Mar, Krislján Örn
og Maren.
Mágur minn, Rafn Alexander
Pétursson, tók upp á því að skipta
um tilverustig hinn 6. desember síð-
astliðinn. Varla er hægt að segja
að það hafi komið á óvart, því hann
var búinn að kljást við sjúkdóm
þann, sem að lokum lagði hann að
velli, eins og flesta sem hann taka.
Reyndar átti þessi sjúkdómur sér
bandamann sem lýsti sér í sárum
söknuði eftir lát eiginkonu hans,
Karólínu Júlíusdóttur sem, lést hinn
6. desember 1994 eða réttum þrem-
ur árum áður upp á dag, jafnvel á
sama klukkutíma og hann lést sjálf-
ur! Má með sanni segja að hann
hafi aldrei borið sitt barr síðan.
Rafn var mikill athafnamaður,
sérstaklega á sviði sjávarútvegs-
og sveitarstjórnarmála, og gekk af
dugnaði og atorku að öllu, sem
hann tók sér fyrir hendur. Á
mannafundum var hann hrókur
alls fagnaðar, góður ræðumaður
og hnyttinn hagyrðingur, enda
Skagfirðingur eins og þeir gerast
bestir. Okkur Rafni varð vel til vina
og áttum margar góðar stundir
saman.
Þau Rafn og Lína, eins og Karó-
lína var ævinlega kölluð, byggðu
sér fallegt hús í Flórída fyrir um
það bil 15 árum. Þar dvöldu þau
yfir vetrarmánuðina en sneru heim
til Islands þegar voraði eins og
farfuglarnir.
Rafn var afar hrifinn af hafinu
og öllu sem því tengdist, þó einkan-
lega skipunum, enda útlærður
skipasmiður frá Nóa Kristjánssyni
á Akureyri. Síðan má segja að
hann hafi verið jafnvígur á skipa-
og húsasmíði. Það lék allt í höndum
hans.
Ég minnist þess hve hann naut
þess í ríkum mæli er þau hjónin
sigldu með mér á m/s Skógafossi
yfir Atlantshafið og ljómaði hann
af ánægju frá morgni til kvölds.
Hann þurfti að vita allt um skipið
að utan og innan og helst áhöfnina
líka, því Rafn var fróðleiksfús með
afbrigðum. Hápunktur ferðarinnar
var þó þegar nokkrir borgarísjakar
urðu á vegi okkar austur af Ný-
fundnalandi, en það hafði hann
aldrei séð áður. Þótti honum mikið
til um þennan arkitektúr náttúr-
unnar.
Það voru lika ógleymanlegar
ferðir sem við hjónin fórum með
hann í fallegu veðri um Suðurlands-
undirlendi. Ég minnist þess að í
einni slíkri ferð fór hann með frum-
samda ferskeytlu og svo fyndna
að ég hló svo mikið að ég varð að
stöðva bílinn; við hjónin bókstaf-
lega grétum af hlátri. Hann hélt
að við værum að þessu bara hans
vegna, en okkur var þetta ósjálf-
rátt. Okkur hjónum þóttu þessar
ferðir ákaflega ánægjulegar og
nutum þeirra með honum. Nú sökn-
um við vinar í stað.
Um ættir Rafns og uppruna fjöl-
yrði ég ekki, enda nokkuð viss um
að það muni aðrir mér færari gera.
Rafn Alexander. Farðu heill á
fund skapara þíns. Þar mun þér
vel tekið.
Ragnar Ágústsson.
„Þið eigið ekki að syrgja mig,
þið eigið að vera kát og glöð og
lyfta glasi til minningar um mig.“
Éitthvað á þessa leið sagði Rafn
vinur minn við mig oftar en einu
sinni á því stutta tímabili lífsskeiðs
okkar sem lá saman. Ég var ungur
að árum þegar Rafn Alexander
kom til Flateyrar. Hann settist að
í húsinu í Hafnarstræti 1, Flateyri.
Forstjórahúsinu, Rafnshúsinu síð-
ar, eða Bergshúsi fyrir þá sem elst-
ir voru.
Kominn til þess að reka Fiskiðju
Flateyrar sem hann hafði keypt af
Einari ríka - fyrir allt of mikið
verð að sögn margra, aðallega þó
þeirra sem hvergi höfðu nærri