Morgunblaðið - 16.12.1997, Side 70
>70 ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Mlk M
CJAFAKORT - CÓÐ JÓLAGJÖF
Miðasala s. 552 3000, fax 562 6775
Miðasala opin 10—18, lau. 13—18
FJÖGUR HJÖRTU
eftir Ólaf Jóhann Ólafsson
Fmmsýning 30. des. kl. 20
fös. 2. jan. kl. 20
sun. 11. jan. kl. 20
LISTAVERKIÐ
Sýning Þjóðleikhússins
lau. 3. jan. kl. 20
VEÐMÁLIÐ
Næstu sýningar verða í janúar
Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI
fös. 9. jan. kl. 20
Ath. aðeins örfáar sýningar.
BIOIN í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson / Arnaldur Indriðason / Anna Sveinbjarnardóttir
BÍÓBORGIN
L.A. Confidential -k-k-k'A
Frambærilegri sakamálamynd en
maður á að venjast frá Hollywood
þessa dagana. Smart útlit, laglegur
leikur og ívið flóknari söguþráður
en gerist og gengur.
Gröf Rósönnu, „Roseanna’s
Grave" Vrk
Það er ekki heiglum hent að gera
grín að dauðanum. Það sannar þessi
kolsvarta gamanmynd um endalok-
in sem gengur ekld nógu langt. Á þó
sína spretti, þökk sé hr. Reno.
Herkúles ***
Sögumenn og teiknarar Disney-
verksmiðjunnar í fínu formi en tón-
listin ekld eins grípandi og oftast á
undanfómum árum og óvenjulegur
doði yfir íslensku talsetningunni..
Á strákaveiðum
„Walking and Talking“ ★★★
Mynd um mannleg samskipti sem
ristir ekki djúpt en er fyndin og
hittir oft naglann á höfuðið.
SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA
Tomorrow Never Dies ★★★
Bond myndimar era eiginlega hafn-
ar yfir gagnrýni, Farið bara og
skemmtið ykkur.
Night Falls on Manhattan ★
Hugleiðing frá Sidney Lumet um
bandaríska dómkerfið, heiðarleika
og mútuþægni. Líður fyrir frekar
vandræðalega aðalpersónu, leikna
af Andy Garcia en er bjargað fyrir
hom af aukaleikuram einsog Ric-
hard Dreyfuss.
Herkúles ★★★
Sjá Bíóborgin
Pabbadagurk★
Tveir afburða gamanleikarar hafa
úr litlu að moða í veikburða sögu í
meðalgamanmynd um táning í til-
vistarkreppu og hugsanlega feður
hans þijá.
Air Force One ★★★
Topp hasarspennumynd með Harri-
son Ford í hlutverld Bandaríkjafor-
seta sem tekst á við hryðjuverka-
menn í forsetaflugvélinni. Fyrirtaks
skemmtun.
Conspiracy Theory ★★Í4
Laglegasti samsæristryllir. Mel
Gibson er fyndinn og aumkunar-
verður sem ruglaður leigubílstjóri
og Julia Roberts er góð sem hjálp-
samur lögfræðingur.
Batman & Robin ★
Leðurblökumaðurinn flýgur lágt í
fjórða innlegginu um ævintýri hans.
Eini leikarinn sem virkilega nýtur
sín er Uma Thunnan sem náttúra-
vemdarsinni. George Clooney er
hreint út sagt vonlaus í aðalhlut-
verkinu.
Face/Off ★★★>/2
Þramugóð afþreying, spennandi,
framleg með Travolta í toppformi.
Ein af bestu myndum ársins.
HÁSKÓLABÍÓ
Tomorrow Never Dies ★★★
Bond myndimar era eiginlega hafn-
ar yfír gagnrýni. Farið bara og
skemmtið ykkur.
Leikurinn ★★1/2
Ágætlega heppnuð mynd að flestu
leyti nema endirinn veldur von-
brigðum
Event Horizon ★★1/2
Spennandi og oft vel gerður geim-
tryllir sem tapar nokkuð fluginu í
lokin
The Peacemaker ★★1/2
Gölluð en virðingarverð tilraun til
að gera metnaðarfulla hasarmynd
um kjamorkuógnina og stríðshrjáða
menn.
Austin Powers ★★
Gamanmynd Mike Myers er lagleg-
asta skemmtun þó erfiðlega gangi
að gera grín að James Bond mynd-
unum og myndin líði fyrir ofurá-
herslu á neðanbeltisbrandara.
KRINGLUBÍÓ
Face
Grimm og raunsæ vel leikin og gerð
bresk sakamálamynd um glæpa-
gengi sem missir gjörsamlega
stjóm á hlutunum.
Herkúies ★★★
Sjá Bíóborgin
L.A. Confidential ★★★'/»
Frambærilegri sakamálamynd en
maður á að venjast frá Hollywood
þessa dagana. Smart útlit, laglegur
leikur og ívið flóknari söguþráður
en gerist og gengur.
Air Force One ★★★
Sjá Bíóborgin
LAUGARÁSBÍÓ
Playing God ★'/>
Most Wanted ★★
Samsærismynd þar sem söguhetj-
an á í höggi við bandarísku þjóðina,
mínus einn. Hröð en heilalaus.
Wilde ★★★
Að sumu leyti vönduð mynd um
ástir og raunir breska skáldsins
Oscars Wilde setur samkynhneigð
hans á ómarkvissan oddinn en orð-
snilldin nýtur sín á milli. Afburða
vel leikin af Stephen Fry og flestum
öðram.
REGNBOGINN
Sling Blade ★★★>/2
Nýr, óvæntur kvikmyndahöfundur
bankar hressilega uppá með sinni
fyrstu meynd sem leikstjóri/hand-
ritshöfundur/leikari, Billy Bob
Thornton sigrar á öllum vígstöðv-
um með einni athyglisverðustu
mynd ársins.
Með fullri reisn ★★★
Einkar skemmtileg og fyndin
bresk verkalýðssaga um menn sem
bjarga sér í atvinnuleysi.
María ★★★
Lítil og ánægjuleg mynd sem tekst
í aðalatriðum að segja hálfgleymda
örlagasögu þýsku flóttakvennanna
sem komu til landsins eftir seinna
stríð.
STJÖRNUBÍÓ
Auðveld bráð ★★★
Kraftmikil gamanmynd um tvo nú-
tíma Hróa hetti. Þeir stela að sjálf-
dögðu frá ríkum en styrkja ein-
göngu sjálfa sig. Enda atvinnu-
lausir.
Ráðabruggið ★1/2
Undarleg mannránssaga og lítt
áhugavekjandi nema Benetio Del
Toro er ágætur.
Brúðkaup besta
vinar míns ★★★
Ástralinn J.P. Hogan heldur áfram
að hugleiða gildi giftinga í lífi nú-
tímakvenna. Þægileg grínmynd
sem leyfir Juliu Roberts að skína í
hlutverki óskammfeilins og eigin-
gjarns matargagnrýnanda.
C|p ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sóiðið fd. 20.00:
HAMLET — William Shakespeare
Frumsýning á annan í jólum 26/12 uppselt — 2. sýn. lau. 27/12 örfá sæti laus — 3. sýn.
sun. 28/12 nokkur sæti laus — 4. sýn. sun. 4/1 nokkur sæti laus — 5. sýn. fim. 8/1 nokkur
sæti laus — 6. sýn. fös. 9/1 nokkur sæti laus.
GRANDAVEGUR 7 - Vigdís Grímsdóttir
Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigriður M. Guðmundsdóttir.
Þri. 30/12 örfá sæti laus — lau. 3/1.
FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Harnick
Fös. 2/1 — lau. 10/1.
Sýnt i Loftkastalanum kl. 20.00:
LISTAVERKIÐ - Yasmina Reza
Lau. 3/1 - lau. 10/1.
---GJAFAKORT ER GJÖF SEM GLEÐUR....................
Miðasalan eropin mán.-þri. 13—18, mið.-sun. 13—20.
Simapantanir frá kl. 10 virka daga.
FÓLK í FRÉTTUM
Glataður
Allen
LEONARDO DiCaprio og söngkonan Celine Dion sem
syngur titillag myndarinnar.
Ungfrú
Frakkland
SOPHIE Talman var valin ungfrú
Frakkland árið 1998 um helgina.
Hún sést hér taka við kórónunni af
sigurvegaranum í fyrra, Patriciu
Spehar. Thalman er 21 árs og býr í
Bar-le-Duc í Austur-Frakklandi.
fundinn
Stórmyndin
Titanic frumsýnd
STÓRMYNDIN Titanic
var framsýnd í Mann’s
Chinese Theatre í
Hollywood síðastliðinn
sunnudag og verður
tekin til sýninga vítt
og breitt um Banda-
ríkin næstkomandi
fóstudag. Titanic kostaði 200
milljónir dollara eða rúma 14
milljarða króna í framleiðslu og
er dýrasta kvikmynd sem gerð
hefur verið.
Hún hefur þegar vakið miklar
deilur. James Cameron, leikstjóri
myndarinnar, hefur legið undir
ámæli fyrir harðstjóm á tökustað
og fyrir að standast engar áætlanir
sem gerðar vora fyrirfram um tök-
ur myndarinnar. Fregnir herma
einnig að hann hafi lent í deilum við
Kate Winslet, aðalleikkonu myndar-
innar, og hefur hún ekki tekið þátt í
kynningarvinnu við myndina.
Cameron hefur borið þessar sögu-
sagnir til baka. Hann segir fullkomna
sátt hafa ríkt á tökustað, aðeins þrjá
áhættuleikara hafa slasast illa og að
tökur hafi aðeins faiið mánuð fram úr
áætlun. Einnig gagnrýnir hann harð-
lega þá gagnrýnendur sem hafa haldið
því fram að myndin sé „andvana
fædd“ og segir að þefr séu andsnúnir
myndinni. Hann segir að gagnrýni
Time „hafi verið miskunnarlaus af
engi-i sýnilegri ástæðu".
Loks neitar hann orðrómi sem ver-
ið hefur í gangi um að myndin hafi í
raun kostað 285 milljónir dollara í
framleiðslu.
► GÖMUL stuttmynd Woody
Allens, „Men of Crisis: The
Harvey Wallinger Story“, sem
var talin glötuð hefur komið aft-
ur í leitirnar. Allen gerði „Men
in Crisis“, sem er gamansöm
gervi-heimildarmynd, fyrir
sjónvarpsstöðina WNET-TV í
New York árið 1971. Myndin
þótti of pólitísk af sljórnendum
sjónvarpsstöðvarinnar og var
tekin af dagskrá. I henni leikur
Allen Harvey Wallinger sem á
að vera einn af ráðgjöfum
Nixons forseta, og Diane
Keaton fer með hlutverk fyrr-
verandi eiginkonu Wallingers.
Einnig Ieikur í myndinni Louise
Lasser en hún og Allen voru eitt
sinn gift.
Núverandi stjórnandi WNET,
William Baker, fékk myndina í
hendurnar nýverið þegar í ljós
kom að framleiðandi hennar,
Jack Kuney, hafði geymt hana í
öll þessi ár. Baker vill nú ólmur
fá að sýna „Men in Crisis" en
óvíst er hvort hann fær það í
gegn. I þetta skipti getur nefni-
lega Allen sjálfur sett sjón-
varpsstöðinni stólinn fyrir dyrn-
ar. Baker verður að fá leyfi Al-
len til að sýna myndina og hann
er allt eins líklegur til þess að
segja nei.
LEYFIR Woody Allen sýningu á
„Men in Crisis"?
Graf keppir í febrúar
ÞÝSKA tennisstjarnan Steffi
Graf nuddar hnéð á Thomas
Gottschalk, þýskum skemmti-
krafti, og ef marka má svipinn
á honum kann hún til verka.
Nuddið fór fram í þýska sjón-
varpsþættinum „Wetten
Dass?“ sem sýndur var um
helgina. Þar lýsti Graf því yfír
að hún ætlaði að keppa á
tennismóti í febrúar árið 1998 í
Hannover. Það verður í fyrsta
skipti síðan hún meiddist á hné
fyrir hálfu ári.