Morgunblaðið - 16.12.1997, Side 80
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Aðgerðir Seðiabanka
til að lækka vexti
Keypti
^ríkisverð-
bréf fyrir
5 milljarða
SEÐLABANKINN efndi í gær í
fyrsta sinn til svonefnds skyndiupp-
boðs á endurhverfum verðbréfa-
kaupum. Þar gafst bönkum og spari-
sjóðum kostur á að selja Seðlabank-
anum ríkisverðbréf, en þeir skuld-
binda sig til að kaupa þau til baka
eftir einn mánuð á umsömdu verði.
Samtals keypti bankinn bréf fyrir
/S jaarma 5 milljarða. Batnar lausafjár-
staða bankanna um það sem þessu
nemur, en þeir hafa búið við erfiða
stöðu að undanförnu sem aftur hef-
ur þrýst upp vöxtum á peninga-
markaði.
Snörp lækkun varð á ávöxtun
skuldabréfa á Verðbréfaþingi í kjöl-
far tilkynningar bankans um upp-
boðið, bæði á verðtryggðum og
óverðtryggðum bréfum. Lækkaði
ávöxtunarkrafa verðtryggðra lang-
tímabréfa um 4 punkta og var ávöxt-
imarkrafan í nýjasta flokki húsbréfa
ttomin í 5,37% við lokun markaðar-
Borgarstjóri um höfnun lækna SHR á kjarasamningi
Ekkí svigrúm til að
betur við lækna
ins. Hefur krafan þá lækkað um 8
punkta frá því á fóstudag. Þá lækk-
aði ávöxtun ríkisvíxla með gjalddaga
í febrúar um 7 punkta.
Metviðskipti á Verðbréfaþingi
gera
LÆKNAR á Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur felldu nýgerðan kjarasamning
með tveggja atkvæða mun. Sjúkra-
húslæknar á öðrum spítölum sam-
þykktu samninginn. Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri sagði
að það yrði æ erfiðara fyrir borgina
að eiga og reka Sjúkrahús Reykja-
víkur. Nú væri fyrirsjáanlegt að
ekki væri til fé fyrir óbreyttum
rekstri og því ljóst að borgin hefðí
ekkert svigrúm til að gera betur við
lækna þar en annars staðar.
Guðmundur Bjömsson, formaður
Læknafélags Islands, sagði þessa
niðurstöðu sýna að sú meginstefna
sem var lögð í kjarasamningnum
nyti stuðnings meirihluta lækna.
Það vantaði hins vegar herslumun-
inn til þess að hann nyti meirihluta-
stuðnings á Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur. Vera kynni að breytingar á
vinnutíma- eða vinnufyrirkomulagi
nægðu til að hægt væri að fá samn-
inginn samþykktan þar.
Hærri laun þýða niður-
skurð útgjalda
Gunnar Björnsson, formaður
samninganefndar ríkisins, sagði að
þeir sem bæru ábyrgfí á ríkissjóði
yrðu tæplega viljugir til að leggja
spítalanum til meiri fjármuni svo
hann gæti greitt hærri laun en
greidd eru læknum sem vinna á
öðrum spítölum. Ef Reykjavíkur-
borg gerði samning sem fæli í sér
aukin launaútgjöld myndi ríkið trú-
lega gera kröfu til þess að spítalinn
drægi úr útgjöldum á móti.
I kjarasamningnum er svokallað
helgunarálag hækkað úr 17% í 30%,
en það fá þeir læknar sem eingöngu
vinna á sjúkrahúsum. Mun fleiri
læknar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
eru einnig með læknastofur sam-
hliða störfum á spítalanum en á
Landspítalanum. Þetta er talið eiga
mikinn þátt í að samningurinn var
felldur á SHR.
Þá sagði sérfræðingur, sem
Morgunblaðið ræddi við, að helgun-
arálagið gæti haft það í för með sér
að margir hættu að reka stofur.
Sjúklingar yrðu þá að leita á göngu-
deildir sjúkrahúsanna, þar sem ekki
væri aðstaða til að taka á móti þeim
öllum.
Helgi H. Helgason, formaður Fé-
lags ungra lækna, sagði að ungir
læknar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur
myndu að líkindum standa við upp-
sagnir sínar, sem flestar taka gildi í
þessari viku.
■ Læknar á SHR/4
í ár
/
I jólaskapi
þrátt fyrir
slagveðrið
HELLIRIGNING, rok og sumar-
hiti náðu ekki að spilla jólaskap-
inu hjá krökkunum, sem voru
ásamt foreldrum sínum að velja
sér jólatré í Brynjudalsskógi í
Hvalfirði á sunnudaginn.
Skógræktarfélag Islands hefur
um nokkurra ára skeið boðið fyr-
irtækjum að kaupa tré í skóg-
ræktinni við Brynjudalsá fyrir
starfsfólk sitt. Starfsmenn hafa
síðan komið með fjölskyldum sín-
um og valið jólatrén sjálfir. Boðið
hefur verið upp á heitt kakó,
varðeldar kveiktir og stundum
hafa jólasveinar komið brunandi
niður brekkumar með gotterí í
poka.
í þetta sinn var ekki mjög jóla-
legj; um að litast. „Það tók tvo til
þrjá tíma að koma eldi í bálköst-
inn en síðan logaði glatt í honum,
þótt það væri eins og sprautað á
hann úr brunaslöngu," segir
Brynjólfur Jónsson hjá Skógrækt-
arfélagi Islands. Hann segir að
þrátt fyrir vætuna hafi allir farið
sáttir til síns heima og börnunum
fundist ferðin ævintýraleg, þótt
jólasnjóinn hafi vantað.
Viðskiptin á Verðbréfaþingi í gær
urðu þau mestu á einum degi í sögu
þingsins og námu alls 3.367 milljón-
um, en fyrra metið er frá 3. júlí sl.,
2.882 milljónir. Þessi miklu viðskipti
má að hluta rekja til ákvörðunar
Seðlabankans.
■ Lausaf]árstaðan/20
POTTASLEIKIR
8
DAGAR TIL JÓLA
Vatnajökull rýrnar mjög
MIKLAR breytingar hafa átt sér
stað á afkomu Vatnajökuls á undan-
fómum fimm árum samkvæmt
rannsóknum, sem Raunvísinda-
stofnun Háskólans hefur gert á
undanfomum fimm árum, og á síð-
asta ári lækkaði yfirborð jöklanna
„^to’eggja í norðanverðum Vatnajökli
^ním rúmlega 1 metra.
Helgi Björnsson, sem stjómað
hefur rannsóknunum, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að árið
1993 hefði ársafkoma jökulsins ver-
ið þannig að bæst hefði við rúmlega
einn metri. Næstu þrjú ár hefði
staðið í járnum, en árið 1997 væri
rýrnunin sláandi. Þá lækkaði yflr-
borð Brúarjökuls og Dyngjujökuis
um tæplega 1,5 metra að jafnaði.
Miðað er við jökulár, sem hefst um
haust og lýkur um haust.
Yrði vesæll í lok næstu aldar
„Það er ljóst að jökullinn verður
orðinn vesæll í lok næstu aldar ef
þetta er það sem koma skal,“ sagði
Helgi og bætti við að hyrfi jökullinn
myndi það hafa mikil áhrif á úr-
komudreifingu yfir hálendi Islands.
Þessar sveiflur í jöklinum hafa
haft mikil áhrif á ámar, sem renna
undan Brúarjökli og Dyngjujökli,
Jökulsá á Brú og Jökulsá á Fjöllum.
Árið 1997 var jökulþáttur rennslis í
Jökulsá á Brú rúmlega fjórum sinn-
um meiri en árið 1993. Munurinn á
vatnsrennsli frá jökli var ekki jafn-
mikill í Jökulsá á Fjöllum á þessum
sama tíma, en hafði rennslið þó þre-
faldast.
Evrópskt samvinnuverkefni
Þetta eru niðurstöður rannsókna,
sem Helgi hefur unnið í samvinnu
við Landsvirkjun frá árinu 1993.
Undanfarin tvö ár hefur hann notið
um 11 milljóna króna styrks frá
Evrópusambandinu til þess að
kanna tengsl afkomu jökla og veð-
urs og hafa rannsóknirnar farið
fram í samvinnu við austurríska og
hollenska vísindamenn.
■ Rýmun Vatnajökuls/41
Meðalrennsli 1993-97
vegna jökulleysingar
------+++------
Tveir með
fullt hús
STELLAN Brynell og Jacob
Aagaard eru jafnir i efsta sæti á
þriðja alþjóðlega Guðmundar Ara-
sonar mótinu í skák, sem nú stend-
ur yfir í íþróttahúsinu við Strand-
götu í Hafnarfirði, og eru báðir
með þrjá vinninga eftir þrjár um-
ferðir.
Níu íslenskir skákmenn og níu
erlendir keppa á mótinu. í gær var
tefld þriðja umferð mótsins.