Morgunblaðið - 10.02.1998, Blaðsíða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
r
\
\
FOLK I FRETTUM
Þú getur unnið ferð fyrir tvo til Kaupmannahafnar,
miða á sýninguna, geislaplotu með tónlistinni
úr sýningunni, og bókina Meiri gauragangur.
H morgun, miðvikudag, fimmtudag, föstudag og laugardag birtist
ein spurning á dag sem þú svarar í þar til gerða reiti.
Þú klippir svo reitinn með svarinu þínu út og límir á rétta staði hér
á síðunni. Þegar allar spurningarnar eru komnar á sinn stað fyllir
þú út í reitina hér að neðan með nafni, heimilisfangi og símanúmeri
og þá átt þú möguleika á að vinna.
Límdu svörin við spurningunum í reitina, fylltu út upplýsingarnar
um þig og sendu fyrir 21. feþrúar merkt: Morgunþlaðið „Gauragangs-
leikurinn", Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
Nafn
Sími
Heimilisfang.
Póstnúmer
4
M
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
4>
sk-í.f.a-n FORLAGIÐ
RUTH Emblow og Rhea Spohner finnst súkkulaði gott og hafa
gaman af listdansi á skautum.
Tvíburasystur fagna
100 ára afmæli
TVIBURASYSTURNAR Rhea
Spohner og Ruth Emblow héldu
upp á hundrað ára afmæli sitt á
fóstudag. Að sögn sérfræðinga eru
líkurnar 1 á móti 100 þúsund að tví-
burar nái svo háum aldri.
Systumar búa hvor í sinni íbúð-
inni á sama dvalarheimilinu en litla
systir þeirra, sem er „aðeins“ 94
ára, býr í nágrenninu. „Við gátum
ekki búið saman,“ sagði Emblow í
samtali við fjölmiðla. „Við erum al-
gjörar andstæður í öllu sem við tök-
um okkur fyrir hendur.“
En systumar deila hins vegar lyst
sinni á súkkulaði og finnst gaman að
fylgjast með listdansi á skautum í
sjónvarpinu. Þær líta mjög unglega
út, eins og sést á meðfylgjandi mynd,
og segjast elda ofan í sig sjálfar með
örlítilli aðstoð frá vinum sínum.
Að sögn James Vaupel, lýðfræð-
ings við Duke-háskólann í Durham,
Norður-Karólínu, eru líkurnar á að
tvíburar nái svona háum aldri 1 á
móti 100 þúsund. En langlífí er í
fjölskyldunni. Móðir tvíburasystr-
anna náði 101 árs aldri, faðir þeirra
87 ára aldri og allar sex systur hans
komust á tíræðisaldur.
í bígerð
Snýr aftur sem
snjókarl
► LEIKKONAN Kelly Preston
liefur ákveðið að taka að sér að-
alhlutverk á móti Michael Keaton
í kvikmyndinni „Frost“ sem áætl-
að er að frumsýna í Bandaríkjun-
um um jólin. Sagan fjallar um
mann að nafni Jack Frost. Hann
lætur lífið í kafaldsbyl, en snýr
aftur sem snjókarl næstu jól á
eftir til þess að leggja lokahönd á
uppeldi ungs sonar síns. Preston
leikur eiginkonu Keatons.
Kelly Preston á
sjálfsagt eftir að
bregða í brún þeg-
ar eiginmaður
hennar snýr aftur
sem snjókarl.
Barnaskóútsala
Moonboots frá 790,990,1790
Smáskór
í bldu húsi við Fdkafen
Sími 568 3919