Morgunblaðið - 11.02.1998, Síða 1

Morgunblaðið - 11.02.1998, Síða 1
72 SIÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 34. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Hernaðaruppbygginfflii á Persaflóa vex ásmegin Cohen segir stuðn- ing við árásir vaxa Washington, Ottawa, Bagdad. Reuters. BANDARÍSK stjómvöld vísuðu því á bug í gær að þau væru gripin stríðsæsingi en BiU Clinton, forseti Bandaríkjanna, ítrekaði þá yfírlýstu afstöðu sína að ekki yrði hikað við að beita hernaði gegn Irak ef ekki tekst að leysa deiluna um vopnaeftirlit í landinu með samningum. William Cohen, vamarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði frétta- mönnum í Abu Dhabi, höfuðborg Saudi-Arabíu, að stuðningur væri sí- vaxandi við hemaðarárásir gegn meintum gereyðingarvopnabúram Iraka. „Þetta er sannkallað banda- lag,“ sagði Cohen, og benti á að stjómvöld í Oman hefðu lýst stuðn- ingi við stefnu Bandaríkjamanna og fleiri lönd væra nú að bjóða liðveizlu sína í hemaðaraðgerðum. Heima í Washington fagnaði Clinton nýjum stuðningsyfirlýsingum Kanadamanna og Ástrala. „Við verðum að vera reiðubúnir til að láta verkin tala og ég er mjög þakklátur fyrir að aðrir skuli vera tilbúnir til að standa með Banda- ríkjunum,“ sagði Clinton. Jean Chretien, forsætisráðhema Kanada, lýsti því yfir í gær að Kanadamenn myndu leggja hemað- arviðbúnaði við Persaflóa til frei- gátu, tvær herflutningaflugvélar og 300-400 hermenn. Einungis Banda- ríkjamenn og Bretar eru með meiri viðbúnað á svæðinu, sem ætlað er að vera til taks ef ákvörðun verður tek- in um að gera hernaðarárás á Irak. Astralíustjóm gaf einnig til kynna í gær að hún myndi senda herskip til Persaflóa og stjómvöld í Þýzkalandi og Portúgal sögðust hafa samþykkt að bandaríski herinn hefði afnot af flugvöllum á þeirra landsvæði ef þurfa þætti í hemaði gegn írak. Rússar ítreka aðvaranir Irösk stjórnvöld gáfu í gær út opið boð til stjórnmálamanna heimsins að koma til Bagdad til að kynna sér þeirra málstað í deilunni. Rússar ít- rekuðu fyrri aðvaranir við því að Irakar yrðu beittir hervaldi; deiluna beri að leysa með friðsamlegum hætti. Rússnesk flugvél með þing- menn, blaðamenn og hjálpargögn innanborðs fékk í gær að halda áfram ferð til Bagdad eftir að nefnd öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem hefur yfiramsjón með refsiað- gerðum gegn Irak, veitti til þess heimild. Vélin hafði verið kyrrsett í Armeníu frá því á sunnudag og hafði það valdið gremju í Rússlandi. Reuters ÞYZKUR lögreglumaður skoðar staðinn í rútunni, þar sem farþegi skaut tvo tollverði til bana í gær. Eftir verknaðinn stökk maður- inn út um gluggann og reyndi að forða sér, en náðist. Fjórir toll- verðir skotnir FJÓRIR landamæraverðir, þrír þýzkir og einn svissneskur, vora í gær skotnir til bana við störf á tveimur landamærastöðvum, annars vegar við Görlitz, sunnarlega við landamæri Þýzkalands og Póllands, og hins vegar á svissnesk-þýzku landamæranum hjá Bodensee-vatninu. Reuters KONA þreskti hveiti í rústum heimilis síns í bænum Ghanj í Afganistan í gær. Gífurleg eyðilegging varð í jarðskjálftunum í Afganistan Hungnrsneyð vofir yfir Ghanj í Afganistan. Reuters. Stjórnmála- mönnum úthýst Búdapest. Reuters. UNGVERSKUM stjórnmálamönn- um hefur verið meinaður aðgangur að tónleikum þekktrar sinfóníu- hljómsveitar í Búdapest svo lengi sem þeir neita að útvega hljóm- sveitinni meira rekstrarfé. Hljóm- sveitarstjórinn lýsti þessu yfir í gær. Ivan Fischer, sem á örfáum árum hefur tekizt að byggja upp al- þjóðlegan orðstír Hátíðarhljóm- sveitar Búdapest, ákvað að veita borgarfulltrúum ráðningu með því að neita að láta þeim í té frímiða á tónlcika hljómsveitarinnar. „Sljórnmálamenn eru óvelkomn- ir,“ sagði Fischer. „Ég tel mig hafa því hlutverki að gegna að sjá til þess að halda hljómsveitinni alþjóð- lega samkeppnishæfri og að halda í hæfa tónlistarmenn, en þeir [borg- arfulltrúarnir] skilja það ekki og gera mér mjög erfitt fyrir.“ Fischer áformar að fara með hljómsveitina í tónleikaferðalag um Evrópu og Bandaríkin seint á þessu ári. Hann segir að tilboð borgaryf- irvalda um að hljómsveitin fái 134 milljónir flórinta í rekstrarfé (um 46,5 milljónir kr.) sé „algerlega út í hött“. Þessi upphæð dygði engan veginn fyrir lágmarksrekstri hljóm- sveitarinnar. Fái hljómsveitin ekki meira fé mun hún, að sögn Fischers, missa gott tónlistarfólk og jafnvel gæti svo farið að sveitin leystist upp. Ferenc Kormendy, formaður menningarmálanefndar borgar- stjórnar Búdapest, sagði það fárán- legt af Fischer að meina stjóm- málamönnum aðgang að hljómleik- um. „Hann lætur eins og hann sé við stjórnvöl einkarekinnar hljóm- sveitar," sagði Kormendy. Hann sagði það ekki borgaryfirvöldum að kenna að upphaflegur rekstrar- styrkur sem hljómsveitin naut hafi ekki hækkað í samræmi við verð- bólgu í iandinu, sem er nú 23%, enda hefðu laun í Ungveijalandi ekki gert það heldur. AFGANSKIR embættismenn og fulltrúar hjálparsamtaka sögðu í gær að bærinn Ghanj hefði orðið verst úti í jarðskjálftanum sem reið yfir norðurhluta Afganistans í síð- ustu viku. Þegar fréttamenn komust til bæjarins í gær sögðu sumir íbúanna, sem lifðu jarð- skjálftann af, að þeir myndu brátt deyja úr hungri ef matvæli bærust ekki fljótlega. Hvítur fáni blakti yfir nýrri gröf í Ghanj í gær og á hann var letruð múslímsk trúarjátning Afgana: „Það er enginn guð nema Guð.“ Margir þeirra er létu lífið í skjálft- anum voru lagðir í fjöldagröf vegna þess að í múslimskum sið er kveðið á um að greftrun skuli fara fram án tafar. Skammt frá gröfinni sat fjöl- skylda skjálfandi af kulda úti fyrir skýli sem hróflað hafði verið upp, gert af teppum og stráum. Börnin voru berfætt. Dauður búfénaður lá eins og hráviði í grenndinni. Alls urðu um 28 bæir í Rostaq- héraði illa úti í skjálftanum og í gær reið enn einn eftirskjálfti yfir hér- aðið. Sheila Hall, fulltrúi samtakanna Læknar án landamæra, sagði í gær að vont veður hamlaði enn björgun- arstörfum og hefðu tvær flugvélar á vegum Rauða krossins orðið frá að hverfa. í gær gerði mikla snjókomu. Samtökin áætla nú að um 4.200 manns hafi týnt lífi í jarðskjálftan- um, þar af 1.800 í Rustaq. Samgönguerfiðleikar hafa gert mörgum íbúum bæjanna erfitt um vik að komast til höfuðstaðar hér- aðsins eftir matvælum og aðhlynn- ingu. Sagði Hall að margir hinna slösuðu kæmu á asnabaki. Maður, sem talinn er vera upp- runninn annaðhvort í Kasakstan eða Ukraínu, skaut tvo þýzka tollverði í fullsetinni fólksflutningabifreið með byssu annars þeirra, sem honum hafði tekizt að hrifsa úr slíðri varð- arins. Tollverðimir vora að sinna venjulegu eftirliti á landamæram Þýzkalands og Póllands. Einnig hlutu tveir farþegar skotsár. Um sjö klukkustundum síðar skaut maður, sem að sögn lögreglu var af ítölsku þjóðerni, þýzkan landamæravörð og svissneskan starfsbróður hans á fáfarinni landamærastöð milli Sviss og Þýzkalands við Bodensee-vatnið, 750 km frá vettvangi fyrri morðanna tveggja. Stjórnvöld sögðu frá því síðar að í farangursrými bifreiðar Italans hefði fundizt sprengiefni og svo virtist sem hann hefði ætlað að freista þess að smygla vopnum inn til Þýzkalands. Eftir að hann skaut landamæraverðina út um bílglugg- ann ók hann spölkorn áfram en skaut svo sjálfan sig í höfuðið. Hann var fluttur á sjúkrahús og lézt þar nokkra síðar. Orsök morðanna á tollvörðunum tveimur á pólsk-þýzku landamærun- um var hins vegar talið að rekja mætti til geðveilu morðingjans. ----------------- 35 stunda vinnuvika París, Róm. Reuters. FRANSKA þingið samþykkti í gær tímamótalöggjöf um að stytta vinnuvikuna í 35 stundir úr 39 í því augnamiði að draga úr atvinnuleysi. Þessi breyting á að koma til fram- kvæmda í áföngum á næstu þremur árum. Neðri deild þingsins samþykkti lögin með 316 atkvæðum gegn 254. Franskir atvinnuveitendur og hægrimenn eru andvígir breyting- unni og telja að hún muni draga úr samkeppnishæfni landsins. Varð þetta kommúnistum á Italíu tilefni til þess að hvetja þarlend stjórnvöld til þess að standa við gef- in fyrirheit um að gera slíkt hið sama fyrir 2001.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.