Morgunblaðið - 11.02.1998, Qupperneq 1
72 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
34. TBL. 86. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hernaðaruppbygginfflii á Persaflóa vex ásmegin
Cohen segir stuðn-
ing við árásir vaxa
Washington, Ottawa, Bagdad. Reuters.
BANDARÍSK stjómvöld vísuðu því
á bug í gær að þau væru gripin
stríðsæsingi en BiU Clinton, forseti
Bandaríkjanna, ítrekaði þá yfírlýstu
afstöðu sína að ekki yrði hikað við að
beita hernaði gegn Irak ef ekki tekst
að leysa deiluna um vopnaeftirlit í
landinu með samningum.
William Cohen, vamarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði frétta-
mönnum í Abu Dhabi, höfuðborg
Saudi-Arabíu, að stuðningur væri sí-
vaxandi við hemaðarárásir gegn
meintum gereyðingarvopnabúram
Iraka. „Þetta er sannkallað banda-
lag,“ sagði Cohen, og benti á að
stjómvöld í Oman hefðu lýst stuðn-
ingi við stefnu Bandaríkjamanna og
fleiri lönd væra nú að bjóða liðveizlu
sína í hemaðaraðgerðum. Heima í
Washington fagnaði Clinton nýjum
stuðningsyfirlýsingum Kanadamanna
og Ástrala. „Við verðum að vera
reiðubúnir til að láta verkin tala og ég
er mjög þakklátur fyrir að aðrir skuli
vera tilbúnir til að standa með Banda-
ríkjunum,“ sagði Clinton.
Jean Chretien, forsætisráðhema
Kanada, lýsti því yfir í gær að
Kanadamenn myndu leggja hemað-
arviðbúnaði við Persaflóa til frei-
gátu, tvær herflutningaflugvélar og
300-400 hermenn. Einungis Banda-
ríkjamenn og Bretar eru með meiri
viðbúnað á svæðinu, sem ætlað er að
vera til taks ef ákvörðun verður tek-
in um að gera hernaðarárás á Irak.
Astralíustjóm gaf einnig til kynna
í gær að hún myndi senda herskip til
Persaflóa og stjómvöld í Þýzkalandi
og Portúgal sögðust hafa samþykkt
að bandaríski herinn hefði afnot af
flugvöllum á þeirra landsvæði ef
þurfa þætti í hemaði gegn írak.
Rússar ítreka aðvaranir
Irösk stjórnvöld gáfu í gær út opið
boð til stjórnmálamanna heimsins að
koma til Bagdad til að kynna sér
þeirra málstað í deilunni. Rússar ít-
rekuðu fyrri aðvaranir við því að
Irakar yrðu beittir hervaldi; deiluna
beri að leysa með friðsamlegum
hætti. Rússnesk flugvél með þing-
menn, blaðamenn og hjálpargögn
innanborðs fékk í gær að halda
áfram ferð til Bagdad eftir að nefnd
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna,
sem hefur yfiramsjón með refsiað-
gerðum gegn Irak, veitti til þess
heimild. Vélin hafði verið kyrrsett í
Armeníu frá því á sunnudag og hafði
það valdið gremju í Rússlandi.
Reuters
ÞYZKUR lögreglumaður skoðar staðinn í rútunni, þar sem farþegi
skaut tvo tollverði til bana í gær. Eftir verknaðinn stökk maður-
inn út um gluggann og reyndi að forða sér, en náðist.
Fjórir toll-
verðir skotnir
FJÓRIR landamæraverðir, þrír þýzkir og einn svissneskur, vora í gær
skotnir til bana við störf á tveimur landamærastöðvum, annars vegar við
Görlitz, sunnarlega við landamæri Þýzkalands og Póllands, og hins vegar á
svissnesk-þýzku landamæranum hjá Bodensee-vatninu.
Reuters
KONA þreskti hveiti í rústum heimilis síns í bænum Ghanj í Afganistan í gær.
Gífurleg eyðilegging varð í jarðskjálftunum í Afganistan
Hungnrsneyð vofir yfir
Ghanj í Afganistan. Reuters.
Stjórnmála-
mönnum
úthýst
Búdapest. Reuters.
UNGVERSKUM stjórnmálamönn-
um hefur verið meinaður aðgangur
að tónleikum þekktrar sinfóníu-
hljómsveitar í Búdapest svo lengi
sem þeir neita að útvega hljóm-
sveitinni meira rekstrarfé. Hljóm-
sveitarstjórinn lýsti þessu yfir í
gær. Ivan Fischer, sem á örfáum
árum hefur tekizt að byggja upp al-
þjóðlegan orðstír Hátíðarhljóm-
sveitar Búdapest, ákvað að veita
borgarfulltrúum ráðningu með því
að neita að láta þeim í té frímiða á
tónlcika hljómsveitarinnar.
„Sljórnmálamenn eru óvelkomn-
ir,“ sagði Fischer. „Ég tel mig hafa
því hlutverki að gegna að sjá til
þess að halda hljómsveitinni alþjóð-
lega samkeppnishæfri og að halda í
hæfa tónlistarmenn, en þeir [borg-
arfulltrúarnir] skilja það ekki og
gera mér mjög erfitt fyrir.“
Fischer áformar að fara með
hljómsveitina í tónleikaferðalag um
Evrópu og Bandaríkin seint á þessu
ári. Hann segir að tilboð borgaryf-
irvalda um að hljómsveitin fái 134
milljónir flórinta í rekstrarfé (um
46,5 milljónir kr.) sé „algerlega út í
hött“. Þessi upphæð dygði engan
veginn fyrir lágmarksrekstri hljóm-
sveitarinnar. Fái hljómsveitin ekki
meira fé mun hún, að sögn
Fischers, missa gott tónlistarfólk
og jafnvel gæti svo farið að sveitin
leystist upp.
Ferenc Kormendy, formaður
menningarmálanefndar borgar-
stjórnar Búdapest, sagði það fárán-
legt af Fischer að meina stjóm-
málamönnum aðgang að hljómleik-
um. „Hann lætur eins og hann sé
við stjórnvöl einkarekinnar hljóm-
sveitar," sagði Kormendy. Hann
sagði það ekki borgaryfirvöldum að
kenna að upphaflegur rekstrar-
styrkur sem hljómsveitin naut hafi
ekki hækkað í samræmi við verð-
bólgu í iandinu, sem er nú 23%,
enda hefðu laun í Ungveijalandi
ekki gert það heldur.
AFGANSKIR embættismenn og
fulltrúar hjálparsamtaka sögðu í
gær að bærinn Ghanj hefði orðið
verst úti í jarðskjálftanum sem reið
yfir norðurhluta Afganistans í síð-
ustu viku. Þegar fréttamenn
komust til bæjarins í gær sögðu
sumir íbúanna, sem lifðu jarð-
skjálftann af, að þeir myndu brátt
deyja úr hungri ef matvæli bærust
ekki fljótlega.
Hvítur fáni blakti yfir nýrri gröf í
Ghanj í gær og á hann var letruð
múslímsk trúarjátning Afgana:
„Það er enginn guð nema Guð.“
Margir þeirra er létu lífið í skjálft-
anum voru lagðir í fjöldagröf vegna
þess að í múslimskum sið er kveðið
á um að greftrun skuli fara fram án
tafar.
Skammt frá gröfinni sat fjöl-
skylda skjálfandi af kulda úti fyrir
skýli sem hróflað hafði verið upp,
gert af teppum og stráum. Börnin
voru berfætt. Dauður búfénaður lá
eins og hráviði í grenndinni.
Alls urðu um 28 bæir í Rostaq-
héraði illa úti í skjálftanum og í gær
reið enn einn eftirskjálfti yfir hér-
aðið.
Sheila Hall, fulltrúi samtakanna
Læknar án landamæra, sagði í gær
að vont veður hamlaði enn björgun-
arstörfum og hefðu tvær flugvélar á
vegum Rauða krossins orðið frá að
hverfa. í gær gerði mikla snjókomu.
Samtökin áætla nú að um 4.200
manns hafi týnt lífi í jarðskjálftan-
um, þar af 1.800 í Rustaq.
Samgönguerfiðleikar hafa gert
mörgum íbúum bæjanna erfitt um
vik að komast til höfuðstaðar hér-
aðsins eftir matvælum og aðhlynn-
ingu. Sagði Hall að margir hinna
slösuðu kæmu á asnabaki.
Maður, sem talinn er vera upp-
runninn annaðhvort í Kasakstan eða
Ukraínu, skaut tvo þýzka tollverði í
fullsetinni fólksflutningabifreið með
byssu annars þeirra, sem honum
hafði tekizt að hrifsa úr slíðri varð-
arins. Tollverðimir vora að sinna
venjulegu eftirliti á landamæram
Þýzkalands og Póllands. Einnig
hlutu tveir farþegar skotsár.
Um sjö klukkustundum síðar
skaut maður, sem að sögn lögreglu
var af ítölsku þjóðerni, þýzkan
landamæravörð og svissneskan
starfsbróður hans á fáfarinni
landamærastöð milli Sviss og
Þýzkalands við Bodensee-vatnið,
750 km frá vettvangi fyrri morðanna
tveggja. Stjórnvöld sögðu frá því
síðar að í farangursrými bifreiðar
Italans hefði fundizt sprengiefni og
svo virtist sem hann hefði ætlað að
freista þess að smygla vopnum inn
til Þýzkalands. Eftir að hann skaut
landamæraverðina út um bílglugg-
ann ók hann spölkorn áfram en
skaut svo sjálfan sig í höfuðið. Hann
var fluttur á sjúkrahús og lézt þar
nokkra síðar.
Orsök morðanna á tollvörðunum
tveimur á pólsk-þýzku landamærun-
um var hins vegar talið að rekja
mætti til geðveilu morðingjans.
-----------------
35 stunda
vinnuvika
París, Róm. Reuters.
FRANSKA þingið samþykkti í gær
tímamótalöggjöf um að stytta
vinnuvikuna í 35 stundir úr 39 í því
augnamiði að draga úr atvinnuleysi.
Þessi breyting á að koma til fram-
kvæmda í áföngum á næstu þremur
árum.
Neðri deild þingsins samþykkti
lögin með 316 atkvæðum gegn 254.
Franskir atvinnuveitendur og
hægrimenn eru andvígir breyting-
unni og telja að hún muni draga úr
samkeppnishæfni landsins.
Varð þetta kommúnistum á Italíu
tilefni til þess að hvetja þarlend
stjórnvöld til þess að standa við gef-
in fyrirheit um að gera slíkt hið
sama fyrir 2001.