Morgunblaðið - 11.02.1998, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Söluverð Englaborgarinnar
lægra en tilboð borgarinnar
Englaborgin, hús Jóns Engilberts listmál-
ara, var selt einkaaðilum í lok janúar eftir
tveggja ára árangurslausar samningavið-
ræður erfíngja Jóns og Reykjavíkurborg-
ar. Frá því húsið var selt hafa nokkrar
deilur risið um það hvernig staðið var að
þessu máli af hálfu borgarinnar.
SÖLUVERÐ Englaborgarinnar,
sem er á horni Flókagötu og Rauð-
arárstígs, var lægra en tilboð
Reykjavíkurborgar. Greiðslur voru
hins vegar mun hagstæðari en þær
sem borgin bauð. Þetta kom fram í
samtali við Grétu Engilberts, dótt-
urdóttur Jóns og einn af erfingjum
hans.
Gréta segir erfíngjana ekki hafa
krafist þess að borgaryfirvöld
hækkuðu tilboð sitt í eignina, eftir
að tilboð barst frá einkaaðilum,
eins og haldið er fram í grein Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur í
Morgunblaðinu 5. febrúar. Þau hafi
hins vegar verið ósátt við það
hvemig borgaryfirvöld mátu íbúð í
Listhúsinu við Engjateig sem til
stóð að gengi upp í kaupverðið.
„Borgin vildi meta þessa íbúð á
10,5 milljónir króna. Við höfðum
hins vegar talað við fasteignasala
sem sagði að við fengjum í hæsta
lagi 9 milljónir fyrir hana,“ segir
Gréta, „Auk þess hefðum við átt
eftir að borga sölulaun og annan
kostnað og höfðum ekki hugmynd
um hvað það tæki langan tíma að
selja íbúðina."
Ibúðin sem um ræðir er á 2. og
3. hæð Listhússins við Engjateig
og var seld Reykjavíkurborg fyrir
9,456 milljónir króna árið 1991. A
sama tíma keypti borgin vinnu-
stofu á fyrstu hæð fyrir 4,610 millj-
ónir króna. Borgarstjóri hefur bent
á að heildarkaupverð íbúðar og
vinnustofu verið 14,066 milljónir
króna en Gréta segir aldrei hafa
staðið til að vinnustofan fylgdi með
í kaupunum og því sé sú tala mál-
inu óviðkomandi.
Segir að greinar Ingu Jónu
greini frá staðreyndum málsins
Gréta segir að greinar Ingu
Jónu Þórðardóttur, í Morgunblað-
inu að undanfórnu, greini frá stað-
reyndum þessa máls, eins og það
horfi við sér, og því hvernig að því
hafi verið staðið af hálfu borgarinn-
ar.
Þá segir hún erfingjana hafa
haft fullan hug á að ganga til samn-
inga við borgina enda hafi verið
unnið að þeim í tvö ár. „Mér finnst
óneitanlega leiðinlegt að þetta
skyldi fara svona þótt við séum
mjög sátt við það fólk sem er að
fara í húsið og okkur þyki gott að
vita að þar verði áfram stundaðar
Morgunblaðið/Ásdís
ENGLABORGIN á horni Flókagötu og Rauðarárstígs.
listir,“ segir hún. „Ég veit hins
vegar að það voru margir búnir að
leggja mikla vinnu í að samningur-
inn við borgina gæti gengið upp og
að það ríkti mikil gleði og spenna
innan SÍM, Samtaka íslenskra
myndlistarmanna, sem átti að fá
afnot af hluta hússins."
Erfingjarnir leituðu
til borgarinnar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði, í samtali við
Morgunblaðið í gær, að mikilvægt
væri að hafa í huga að það hefðu
verið erfingjamir sem leituðu til
borgarinnar þar sem þeim hefði
verið annt um það að listir yrðu
áfram stundaðar í húsinu. Borgar-
yfírvöld hefðu hins vegar ekki haft
áhuga á að kaupa húsið án þess að
vita hvað þau ætluðu að gera við
það. Því hefði verið byrjað á því að
kanna hvemig hægt yrði að nýta
húsið.
Borgarstjóri sagðist telja eðli-
legt að íbúð sem var keypt fyrir
9,456 milljónir árið 1991, þá tilbúin
undir tréverk, væri metin á 10,5
milljónir nú með gólfefnum, eld-
hús- og baðaðstöðu. Einnig sagðist
hún hafa sett það sem grundvallar-
skilyrði fyrir þessum viðskiptum
að íbúðin í Listhúsinu gengi upp í
kaupin og að sú starfsemi sem þar
hefði verið yrði flutt í Englaborg-
ina. Hún hefði því litið svo á að
lækkun á matsverði íbúðarinnar
jafngilti hækkuðu kaupverði
Englaborgarinnar.
Borgarráð
staðfestir
leigu-
samning
um Iðnó
BORGARRÁÐ samþykkti í
gær samning um leigu Reykja-
víkurborgar á Iðnó til hlutafé-
lagsins Iðnós ehf., sem er í
eigu Leikfélags Islands og
veitingastaðarins Við Tjörn-
ina, og er samningurinn til
fimm ára. Leigjendur greiða
225.400 kr. á mánuði og hefst
leigutími 15. aprfl næstkom-
andi.
Skilyrði Reykjavíkurborgar
fyrir leigusamningnum eru
m.a. þau að Iðnó verði lifandi
og fjölsótt menningarmiðstöð
með metnaðarfullri starfsemi
sem taki til sem flestra þátta
menningar, lista og fræða, að
starfsemin hæfi virðulegri
sögu hússins og að þar fái sem
flestir flytjendur inni en
rekstraraðili hússins einoki
ekki aðstöðuna til eigin flutn-
ings. Einnig er heimilt að fram
fari í húsinu veitingasala og
e.t.v. önnur viðskiptastarfsemi
er renni fjárhagslegum stoð-
um undir menninguna þannig
að rekstur hússins sem menn-
ingarmiðstöðvar komist af án
beinna fjárstyrkja Reykjavík-
urborgar. Starfandi verður
samráðsnefnd sem skipuð er
fimm fulltrúum; einum til-
nefndum af menningarmála-
nefnd Reykjavíkur, einum af
Bandalagi ísl. listamanna, ein-
um tilnefndum af meðeigend-
um borgarinnar og tveimur af
hálfu rekstraraðila. Hlutverk
hennar verður að fylgjast með
því að starfsemin í húsinu sé í
samræmi við markmið og for-
sendur leigusala.
Morgunblaðið/Þorkell
fbúasamtök Grafarvogs um samgöngumál hverfísins
Meiri vandi á Víkur-
og V esturlandsvegi
ÍBÚASAMTÖK Grafarvogs telja að
áætlanir borgarstjóra og sam-
gönguráðherra um úrbætur í sam-
göngumálum Grafarvogsbúa leysi
engan vanda fyrr en í fyrsta lagi ár-
ið 1999.
Snorri Hjaltason, verktaki og íbúi
í Grafarvogi og frambjóðandi á lista
sjálfstæðismanna við næstu borgar-
stjórnarkosningar, hefur sent Graf-
Búnaðar-
ráðunautar
funda
RÁÐUNAUTAFUNDUR hófst í
gær og stendur fram á föstudag.
Fundinn sækja búvísindamenn og
ráðunautar af öllu landinu. Á
myndinni sem tekin var við setn-
ingu fundarins sjást meðal ann-
arra Sigurgeir Þorgeirsson
framkvæmdastjóri Bændasam-
taka Islands og Þorsteinn Tómas-
son forstjóri Rannsóknastofnun-
ar landbúnaðarins. í gær var
fjallað um hagfræði iandbúnað-
arstefnunnar, tækni við hirðingu
heys, ný skipulagslög og um end-
urheimt votlendis. I dag verður
rætt um markvissa framsetningu
leiðbeininga og um fóðurfræði.
Tilboði lægstbjóðanda í gatnagerð
og lagnir í Víkurhverfí
Jarðvélar buðu 74%
af kostnaðaráætlun
SAMÞYKKT var á fundi borgar-
ráðs í gær að taka tilboði Jarð-
véla sf. í gatnagerð og lagnir í
fjórða áfanga Víkurhverfis í
Reykjavík. Tilboðið nemur
74,2% af kostnaðaráætlun. Sex
tilboð bárust í verkið.
Fimm tilboðanna voru undir
kostnaðaráætlun, sem hljóðaði
uppá 93.959.634 krónur, en eitt
þeirra var talsvert yfir áætlun
eða nærri 122 milljónir. Var það
frá Víkurverki hf.
Önnur tilboð voru frá
Loftorku Reykjavík hf., sem
bauð rúmar 87 milljónir eða
92,78% af kostnaðaráætlun, Há-
felli ehf., sem bauð 88,8 milljónir
sem er 94,57% af kostnaðaráætl-
un, Dalverki sf. sem bauð 70,9
milljónir, 75,53% af áætlun, og
Borgarverki hf., sem bauð 82,9
milljónir, 88,28% af kostnaðará-
ætlun.
Lögð voru fram bréf frá
gatnamálastjóra og Hitaveitu
Reykjavíkur sem lögðu til að til-
boði lægstbjóðanda yrði tekið.
arvogsbúum orðsendingu þar sem
hann segir að tveggja vikna frestur
sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri og Guðrún Ágústsdótt-
ir, forseti borgarstjórnar, gefa rík-
isvaldinu til að bæta samgöngurnar
í hverfinu sé pólitískur loddara-
skapur.
íbúasamtök Grafarvogs benda
einnig á að umferðarþungi um Vík-
urveg og Vesturlandsveg fari ört
vaxandi eftir því sem íbúum í Graf-
arvogi fjölgi. Þar stefni í meiri
vanda en við Gullinbrú.
„Furðu sætir að borgarstjóri
skuli fyrst nú lýsa því yfir að borgin
ætli að leggja áherslu á fram-
kvæmdir við Gullinbrú. Ibúasamtök
Grafarvogs hafa á síðustu árum
margítrekað við borgaryfirvöld
nauðsyn þess að ráðast í samgöngu-
bætur. Þrátt fyrir þetta hefur borg-
arstjóri ekki lagt megináherslu á
þessar framkvæmdir fyrr en nú
með bréfi til ríkisvaldsins. Ljóst er
að borgaryfirvöld hafa það í hendi
sér að forgangsraða þeim fjármun-
um sem ríkið leggur til vegagerðar í
þéttbýli. Með því að borgaryfirvöld
hafa ekki sett Gullinbrú á forgangs-
lista hafa Grafarvogsbúar mátt þola
viðvarandi tafir á leið til og frá
hverfinu," segir í bréfí íbúasamtak-
anna.
Þar segir ennfremur að það veki
undrun hve langur tími er ætlaður í
framkvæmdir. Verkinu eigi ekki að
ljúka fyrr en á árinu 1999. Veridnu
eigi hæglega að vera hægt að ljúka
á rúmlega hálfu ári. Væri verkið
boðið út nú í febrúar eða mars væri
hægur vandi að taka tvöfalda Gull-
inbrú í notkun næsta haust. Gatna-
mótin Víkurvegur, Vesturlandsveg-
ur og Vesturlandsvegur niður að
gatnamótum við Suðurlandsveg sé
að verða svipað vandamál og Gullin-
brú. Biðröð bíla sem koma frá Mos-
fellsbæ á morgnana og þurfa að
bíða á ljósum við Víkurveg sé gjarn-
an tvö til þrjú hundruð metra löng.
Bréfið kemur þremur
árum of seint
I orðsendingu Snorra Hjaltason-
ar til Grafarvogsbúa segir að bréf
borgaryfirvalda til ríkisvaldsins
komi þremur árum of seint. „Það er
ekkert annað en dæmigerður póli-
tískur loddaraskapur þess sem veit
upp á sig skömmina. Frekar en að
hlusta á bálreiða Grafarvogsbúa
þriðja árið í röð skrifar borgarstjóri
bréf og lofar öllu fógru. Þetta er
svokölluð redding fyrir horn enda
eru kosningar í nánd. Sannleikur
málsins er einfaldur. Borgarstjóri
hefur aldrei sett framkvæmdir við
Gullinbrú á forgangslista. Þess
vegna eru engar framkvæmdir
hafnar. Ástandið í samgöngumálum
okkar Grafarvogsbúa skrifast því
eingöngu á reikning Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur og samstarfs-
fólks hennar í R-listanum,“ segir í
bréfinu.