Morgunblaðið - 11.02.1998, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998
MORGUNB LAÐIÐ
LANDIÐ
U ndirbúningur
að móttöku flótta-
fólks hafinn
Blönduósi - Blönduósbær mun end-
umýja umsókn sína um móttöku
flóttamanna frá fyrrum Júgóslavíu
og er undirbúningur þegar hafinn
að sögn Skúla Þórðarsonar, bæjar-
stjóra á Blönduósi. Það er síðan mat
fagaðila hvort það verður Blönduós
eða eitthvert annað sveitarfélag
sem fær það verkefni að bjóða vel-
komið og annast flóttafólkið þegar
þar að kemur.
Skúli Þórðarson, bæjarstjóri á
Blönduósi, sagði að Blönduós hefði
lagt inn umsókn til félagsmálaráðu-
neytis sl. vor um að taka á móti
flóttamönnum frá Júgóslavíu, en
eins og flestir vita fékk Höfn í
Homafirði það verkefni. Skúli sagði
að nú þegar væru menn farnir að
vinna heimavinnuna ef svo skyldi
fara að Blönduósi yrði falið það
verkefni að taka á móti flóttamönn-
unum tuttugu. Leitað hefur verið
eftir aðstoð félags- og líknarsam-
taka í bænum og segir Skúli það
mjög mikilvægt að stuðningur þess-
ara aðila sem og allra bæjarbúa
verði sem mestur við þetta verkefni.
Aðstæður ákjósanlegar
Skúli Þórðarson bæjarstjóri
sagði allar aðstæður á Blönduósi
ákjósaniegar til að takast á við
þetta verkefni. „Atvinnuástand
undanfarin ár hefur verið mjög
gott. Við höfum öfluga heilsugæslu
og félagsþjónusta er góð.“ Von er á
flóttamönnunum frá fyrrum Jú-
góslavíu um mánaðamótin maí/júní
og er um að ræða tuttugu manns.
„Við erum fyrst og fremst að leggja
mannúðarmáli lið og teljum að
koma þessa fólks verði samfélagi
okkar til góðs. Hvort Blönduós
verður fyrir valinu til að sinna
þessu verkefni er svo annarra að
ákveða,“ sagði Skúli Þórðarson að
lokum.
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
Útför Sigurðar frá Kirkjubæ
Holti - Fjölmenni var við útfór Sig-
urðar Haraldssonar frá Kirkjubæ
sem fram fór í Stóra-Dalskirkju 7.
febrúar sl.
Prófastur Rangæinga, sr. Sváfn-
ir Sveinbjarnarson, jarðsöng og
sonardóttir Sigurðar, sr. Iris
Kristjánsdóttir, las ritningarorð
og flutti bæn. Benedikt Arnason
flutti ljóð Einars Benediktssonar,
Fákar.
Börn og tengdabörn Sigurðar
báru kistuna fram hjá heiðursverði
Félags tamningamanna að gröf-
inni þar sem félagsmenn í hesta-
mannafélaginu Geysi stóðu við hlið
altygjaðra gæðinga, flestra rauð-
blesóttra.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
ÞÁTTTAKENDUR í laugardagsgöngunni á Kothraunskúlu í Berserkjahrauni. Ef vel er að gáð má sjá Kerl-
inguna í Kerlingarskarði sem fylgist vel með ferðum hópsins.
Stykkishólmi - í Stykkishólmi hefur
verið starfandi óformlegur félags-
skapur sem hefur það að markmiði
að fara í gönguferðir á laugardögum
kl. 13 um nágrenni Stykkishólms.
Systurnar Hrafnhildur og Hanna
Jónsdætur hafa verið í forsvari og
skipulagt ferðirnar. Að sögn þeirra
var fyrsta gönguferðin farin í ágúst
1996 og síðan hefur verið gengið
hvern laugardag að undanskildum
einum og svo í sumar var tekið
tveggja mánaða sumarfrí. Göngu-
túramir era mislangir eftir því
hvert farið er. Á þessum tíma hafa
Gengið á
Kothrauns-
kúlu
þátttakendur gengið víða um ná-
grenni bæjarins og um Helgafells-
sveit.
Um síðustu helgi var gengið á
Kothraunskúlu og slóst fréttaritari í
för með gönguhópnum. Kothrauns-
kúla er einn af fjórum gígum sem
hafa lagt til efni í Berserkjahraun.
Talið er að fyrst hafi gosið úr Kot-
hraunskúlu fyrir meira en 4000 ár-
um en síðar úr Rúðukúlu, Grákúlu
og Smáhraunkúlu. Ferðalangarair
voru heppnir með veður og nutu
þess að skoða fallegt landslag sem
annars er ekið fram hjá oft á ári án
þess að taka eftir því.
Þátttaka í gönguferðunum er
misjöfn en öllum bæjarbúum er vel-
komið að vera með. Það hefur
myndast ákveðinn hópur sem alltaf
mætir hveraig sem viðrar.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
SAUMAKONUR 66°N - Sjóklæðagerðarinnar á Hellu gáfu sér varla
tíma til að líta upp fyrir myndatökuna.
Nýsköpun í atvinnumálum á Hellu
Sjóklæðagerðin
tekin til starfa
Hellu - Saumastofa 66°N - Sjóklæða-
gerðin hf. hóf rekstur á Hellu í janú-
ar sl. en undirbúningur hófst á síð-
asta ári þegar Atvinnuþróunarsjóður
Suðurlands keyti hlutabréf í Max
ehf. Sjóðurinn seldi síðan Sjóklæða-
gerðinni bréfm með þeim skilyrðum
að opnuð yrði saumastofa á Hellu.
Að sögn Þórarins Elmars Jensen
framkvæmdastjóra hefur nú verið
sett upp framleiðslulína með sjó- og
regnfatnað fyrir innlendan og er-
lenda markað. Verið sé að þjálfa upp
mannskap og væntingar séu ágætar,
aðstaðan prýðileg í iðnaðarhúsi við
Dynskála sem áður hýsti m.a. prent-
smiðju og kjötvinnslu. I byrjun
starfa 9 konur við saumaskapinn en
væntanlega verða störfin orðin um
15 innan tveggja ára.
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
SKIPTA þurfti um 7 staura.
Eldingu slo
niður í raflínu
Öræfum - Töluverðar skemmdir
urðu í Öræfum aðfaranótt 7. febrú-
ar þegar eldingu sló niður í raflínu
nálægt Skaftafelli. Skipta þurfti um
7 staura og nokkra spenna í línunni.
Nokkrir bæir urðu rafmagnslaus-
ir fram á dag en öll hús í Skaftafelli
rafmagnslaus í rúman sólarhring.
Einnig urðu skemmdir á síma og
farsímakerfi í sveitinni svo og
nokkrar skemmdir á viðkvæmum
heimilistækjum, svo sem faxtækjum
og tölvum.
RÁÐHERRABÚSTAÐURINN við Tjarnargötu í Reykjavík var upp-
haflega reistur á Sólbakka við Flateyri.
Hyggjast reisa Ráð-
herrabústað á Flateyri
Flateyri - Eflaust rekur suma í
rogastans þegar þeir lesa þessa
fyrirsögn, en sannleikurinn er sá
að ráðherrabústaðurinn sem
stendur við Tjarnargötuna í
Reykjavík stóð upphaflega á Sól-
bakka á Flateyri á árunum 1892-
1904 og var íbúðarhús norska
hvalfangarans Hans Ellefsens.
Gaf Ellefsen þá húsið vini sínum
Hannesi Hafstein, fyrsta ráð-
herra íslands. Var húsið flutt og
reist við Tjörnina í Reykjavík
1906.
Ellefsen var stofnandi og fram-
kvæmdastjóri hvalveiðistöðvar-
innar á Sólbakka, sem var þá
stærsta atvinnufyrirtæki á Is-
landi. Árið 1996 var þess minnst
að 140 ár væru liðin frá fæðingu
Hans Ellefsens bæði á Flateyri
og í Reykjavík. Til landsins komu
afkomendur Ellefsens ásamt bæj-
arstjóra og menningarfulltrúa
Stokke, sem er fæðingarhérað
Ellefsens.
Á að verða minjasafn
Það var í framhaldi af þessari
hátíð sem hugmynd kom frá Ön-
firðingafélaginu í Reykjavik um
að byggja nýtt Eljefsenshús /
ráðherrabústað. I húsinu yrði
Ellefsenssafn og hvalveiðisafn.
Þar yrði einnig minjasafn, en
minjasafnið á Flateyri sem áður
stóð gjöreyðilagðist í snjóflóðinu.
Ákveðið var að stofna til sam-
starfs við Norðmenn um bygg-
ingu hússins og hefur bæjarfor-
ystan í Stokke í Noregi heitið
stuðningi við þessi áform. Minja-
sjóður Önundarfjarðar hefur
myndað starfshóp og standa að
honum eftirtaldir aðilar: Ibúa-
samtök Önundarfjarðar, Önfírð-
ingafélagið í Reykjavík, Byggða-
safn ísafjarðar og Menningar-
málanefnd ísafjarðar.
Fyrir skemmstu hittust þessir
aðilar til að ræða málin og móta
vinnuáætlun að frekari úr-
vinnslu hugmyndarinnar. Lagð-
ar voru fram teikningar að hús-
inu eftir Gest Ólafsson arkitekt
og einnig var við þetta sama
tækifæri afhent mynd frá tímum
hvalveiða við Sólbakka í Önund-
arfirði. Mun hún prýða húsa-
kynni Sparisjóðs Ónundarfjarð-
ar, en sparisjóðurinn hefur stutt
þetta málefni dyggilega með því
að leggja fram aðstöðu með
síma fyrir starfsmann á vegum
minjasjóðsins. Minjasjóðurinn
mun greiða laun þessa starfs-
manns.
Með byggingu þessa húss er
von manna sú að það muni hafa
aðdráttarafl bæði sem safn allan
ársins hring og um leið sem
íverustaður fyrir myndlistar-
menn og rithöfunda til skapandi
verka.