Morgunblaðið - 11.02.1998, Side 39

Morgunblaðið - 11.02.1998, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998 39 MINNINGAR KIRKJUSTARF ASBJORN DAGBJARTSSON + Ásbjörn Dagbjartsson fæddist í Álftagerði í Mývatnssveit 15. maí 1954. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri 28. janú- ar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akureyrarkirkju 6. febr- úar. Sorg fyllti hugann þegar fréttin barst um lát skólafélaga og vinar, Asbjöms Dagbjartssonar, öllum spurningum um tilgang var ósvar- að. Eg kynntist Bödda þegar hann kom í Menntaskólann á Akureyri ásamt fríðu fömneyti Mývetninga með öllum þeim slætti sem fylgir þvi lífsglaða fólki. Við vorum bekkjarfélagar og lengst af aðeins tvær Akureyrarstelpurnar í strákabekk þar sem Mývetningar voru í miklum meirihluta ef miðað er við fyrirferð. Uppátæki Mývetn- inga í kennslustundum með þríeyk- ið þá Bödda, Ásgeir og Steinda í fararbroddi voru ógleymanleg. Ymsar uppákomur í eðlisfræðitím- um hjá Oldu Möller, vel valdar kvikmyndir í líffræði hjá Jóhanni, sérstaklega til að ganga fram af okkur stelpunum, stærðfræðin hjá Habbanum þar sem allir kepptust við að ná niður dæmunum sem hann skrifaði með hægri hendi og þurrkaði jafn óðum út með töflupúðann í þeirri vinstri, að ógleymdum athugasemdum í sögu- stundum hjá Aðalsteini. I kjallaranum í Akurgerðinu var oft glatt á hjalla, þar sýndi Böddi sínar skemmtilegu hliðar, rólegur og yfírvegaður á yfírborðinu tott- aði hann pípuna sína, en undir niðri ólgaði húmorinn og kímnin. Að öllu jöfnu var hann tillitssamur og skilningsríkur þegar átroðningur minn og herbergisfélaga hans var annars vegar, en átti það til að launa með eftirminnilegum en sak- lausum hrekkjum sem félagarnir höfðu ómælda gleði af. Böddi var hrókur alls fagnaðar í hópi vina, mikill söngmaður og bridge spiluð- um við langar nætur, þá var mikið skrafað og hlegið. Allar ævintýra- ferðirnar sem við fórum saman upp í sveit, hvernig sem viðraði var lagt af stað, oftast þurfti að fara strönd- ina og sandinn í hríðarbyl og renn- ingi sem var svo mikill að hetjurn- ar þurftu að ganga á undan jeppan- um þar sem ekki sá á milli stika. En Mývatnssveitin hafði það að- dráttarafl sem þurfti til að leggja á sig þessar ferðir. Að alast upp í slíkri náttúraperlu lætur engan ósnortinn. Á þessum áram kynnt- ust Böddi og Tóta og 17. júní 1975 urðu þau fallegasta brúðarparið í okkar árgangi. Tóta mín, missir þinn og barnanna ykkar er mikill. Við sem útskrifuðumst frá MA 1975 höfum misst góðan félaga, hans verður alltaf minnst þar sem hljómar „Steinar í berjamó". Elsku Tóta, Magnús Dagur, Kristjana Hrönn og Auður, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Guð gefi ykk- ur styi’k í sorginni. Auður. Vegferð manna er mislöng, margir fá að lifa í háa elli en aðrír era hrifnir burt á miðri vegferð, hátindi lífsins. Þannig var með Bödda, sem við kölluðum ætíð en svo hét réttu nafni Ásbjörn og var sonur hjón- anna Dagbjarts og Kristjönu í Álftagerði í Mývatnssveit. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum, yngstur í stóram hópi systkina í þessari einni fegurstu sveit lands- ins. Það var ekki einungis fegurð umhverfísins, heldur einnig kær- leikur í samskiptum foreldra hans sem lagði hornstein að heilsteypt- um góðum manni. Eg kynntist Bödda og Tótu fyrir rúmlega tíu áram og allt frá fyrsta hljómuðu nöfn þeirra hjóna saman. Það var ekki nefnt annars öðra vísi en hitt fylgdi ósjálfrátt með. Tóta okkar svokölluð er Þóra Björg dóttir hjónanna Magnúsar og Áuð- ar í Fagraskógi í Eyjafirði. Við erum búin að eiga margar + Björn Ingvar Pétursson fædd- ist í Reykjavík 9. mars 1981. Hann lést af slysförum þriðjudag- inn 20. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Blönduós- kirkju 31. janúar. Af hveiju Bjössi okkar af öllum? spurðu börnin mín þegar við feng- um frétt um andlát Bjössa okkar. Hann passaði þau mikið og reynd- ist þeim sem stóri bróðir. Bjössi átti stórt pláss í okkar hjörtum. Alltaf tók hann á móti okkur með hlýju í hjarta og á vör- um. Þau gátu treyst honum og trú- að í einu og öllu. Álltaf var hann til- búinn að gera eitthvað fyrir þau. Elsku Ragna og Birgir, megi al- góði Guð gefa ykkur allan sinn styrk og huggun í sorginni. Lóa, Óskar Þór og Edda. Nú kveðjum við góðan dreng, Björn Ingvar, sem fór svo skyndi- góðar stundir og yndislegur var 17. júní síðastliðinn er sonur þeirra og minn settu upp hvítu kollana. Það hefur eflaust dýpkað ljúfar minn- ingar frá 17. júní 1975 þegar þau hjónin settu bæði upp hvítu kollana og gengu síðan í hjónaband þann sama dag. Samhent og samstiga hafa þau síðan stigið lífsdansinn og vissu- lega vora gleðistundirnar margar og ávallt var lífsgleðin í fyrirrúmi. Á þessu rúmlega tuttugu ára tímabili fóra þau saman gegnum háskólanám og þaðan út í atvinnu- lífið. Börnin komu, fyrst Magnús, síðan Kristjana og að lokum Auður sem er níu ára. Af starfsvettvangi fannst mér stundum á þeim hjónum að Afríku- dvöl þeirra hefði fært þeim nýjar víddir og víst er að margir inn- fæddir nutu góðs af störfum þeirra. Og það var ekki bara að heimssýn þeirra breyttist heldur einnig okkar er heima sátum og nutum fréttabréfanna sem bárust með reglulegu millibili. Það er mikill missir að starfs- kröftum ungs manns í blóma lífs- ins, að ekki sé nefnt það skarð sem nú hefur verið höggvið í glaðværa, vinmörgu fjölskylduna í Heiðar- lundinum. Elsku Tóta, Magnús, Kristjana og Auður, mannkostir Bödda kristölluðust í kærleiksríkri um- hyggju hans fyrir ykkur fjölskyld- unni hans og mun gefa minning- unni um hann dýpt um alla eilífð. lega frá okkur. Hann var yndisleg- ur drengur sem sást aldrei öðravísi en brosandi hvar og hvenær sem við mættumst, á götu, eða í kaupfé- laginu, þá kom hann með opna arma og tók mig í fangið og sagði: „Elsku amma mín, ertu komin, viltu ekki koma heim til mömmu og fá kaffisopa." Okkar kynni urðu of stutt. Eng- inn veit hvenær kallið kemur, en í þessu tilfelli allt of snemma. Með þessum fátæklegu orðum kveðjum við góðan ömmudreng. Þeir sem undu áður glaðir ala núna sáran streng. Dauðinn óvænt birtist bráður burtu hreif hinn góða dreng. (Rl) Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Erla amma, Litlu-Hlíð. Katrín Þorvaldsdóttir. BJÖRNINGVAR PÉTURSSON Kristjana S.G. Sveinsdóttir fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð 21. september 1916. Hún Iést 5. desem- ber síðastliðinn og fór útför liennar fram frá Akureyr- arkirkju 11. desem- ber. Um klukkan 11 föstudagsmorguninn 5. desember hringdi Bogga vinkona í mig og spurði hvort ég gæti passað „litla prinsinn" fyrir sig því að þau þyrftu upp á sjúkrahús, hún Jana væri dáin. Litli Esra kom, og ég fór að hugsa um hvað hann myndi missa af miklu þar sem amma Jana yrði ekki þátttakandi. Ég kynntist Jönu fyrst lítil stelpa á heimili hennar Litla- Hóli, en þar var bróðii- minn á sumrin í sveit. Voru þau góðir vinir, og hún bað alltaf að heilsa Stebba þótt þau hefðu ekki sést í mörg ár. Eftir að hún fluttist til Boggu og Bjössa áttum við margar in- dælar stundir, það var alltaf svo notalegt að fá molasopa í Laxagötunni eftir bæjarrölt og Jana tók vel á móti öllum. Oft pass- aði hún dæturnar fyrir mig og þeim leiddist ekki á meðan, því hún var sannur leikfélagi þeira, sat á gólf- inu með þeim, sat með þau og reri og raulaði. Hún yljar minningin þar sem hún hlær og grínast af hjart- ans lyst. Það var auðvelt að slá á létta strengi, þar sem hún var ann- ars vegar. Og ekki mátti skamma börnin, þá heyrðist „Æ, vertu ekki vond við greyið“. Ýið mæðgur í Langholti þökkum samverustund- irnar með Jönu og vitum að henni líður vel þar sem hún er. Við send- um Boggu, Bjössa, Friðrik og Esra innilegar samúðarkveðjur og biðj- um guð að gæta ykkar allra. Við kveðjum með þessu ljóði: Lítill drengur leggst á koddann - lokar sinni þreyttu brá uns í draumi er hann staddur ömmu sinni góðu hjá. Amma brosir - amma kyssir undurbh'tt á kollinn hans. Breiðist ást af öðrum heimi yfir beð hins litla manns. (Jóhannes úr Kötlum.) Steinunn Benna, Gunnur Lilja, Berglind og Herdís Júlía. KRISTJANA S.G. SVEINSDÓTTIR Safnaðarstarf Ást og agi í Hafnarfjarðar- kirkju FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 12. febr- úar kl. 20.30 mun Sæmundur Haf- steinsson, sálfræðingur, koma í Strandberg, safnaðarheimili Hafnar- fjaðarkirkju, og fjalla þar um ung- linga og uppeldismál. Hann nefnir umfjöllun sína ,Á-St og agi“ og mun ræða það hvernig þessum þáttum verði helst komið við í uppeldinu. I óróa og umróti samtímans er margt sem villir ungu fólki sýn og freistar þess inn á ógæfubrautir svo sem dæmin sanna. Þýðingarmikið er að geta veitt ungu fólki innri styrk, öryggi og lífstrú. Fundur þessi er einkum hugsaður fyrir foreldra fermingarbarna en hann er öllum opinn. Boðið verður upp á kaffi og samræður eftir um- fjöllun sálfræðingsins. Áskirkja. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10-12. Starf fyrir 10- 12 ára kl. 17. Bústaðakirkja. Félagsstarf aldr- aðra: Opið hús í dag kl. 13.30-17. Æskulýðsstarf fyrir 10-12 ára kl. 17. Dómkirkjan. Hádegisbænfr kl. 12.10. Orgelleikur á undan. Léttur málsverður á kirkjuloftinu á eftir. Grensáskirlga. Þorrasamvera starfs eldri borgara hefst kl. 12. Þorramat- ur o.fl. Starf fyrir 10-12 ára kl. 17. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir for- eldra ungra barna kl. 10-12. Fræðsla: Svefn og svefnvenjur. Jóna Margrét Jónsdóttir, hjúkrunarfr. Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17. Háteigskirkja. Mömmumorgunn kl. 10. Foreldrar og böm þeirra hjart- anlega velkomin. Sr. María Ágústs- dóttir. Kvöldbænir og fyrirbænir kl. 18. Langholtskirkja. Starf fyrir aldraða í dag kl. 13-17. Laugameskirkja. Fundur í æsku- lýðsfélaginu í kvöld. Húsið opnað kl. 19.30. Neskirkja. Litli kórinn (kór eldri borgara) æfn- kl. 11.30-13. Umsjón Inga J. Backman. Fótsnyrting kl. 13- 16. Bænamessa kl. 18.05. Sr. Halldór Reynisson. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur hádegisverður í safn- aðarheimilinu. Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr- aðra, opið hús kl. 13.30-16. Handa- vinna og spil. Fyrirbænaguðsþjón- usta kl. 16. Bænarefnum er hægt að koma til presta safnaðarins. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur málsverður í safnaðar- heimilinu, á eftir TTT starf fyrir 10- 12 ára í dag k. 17.15. Æskulýðsfund- ur kl. 20. Digraneskirkja. KFUM & K fyrir 10-12 ára kl. 16.30. Æskulýðsstarf í samstarfi við KFUM og K kl. 20 fyr- ir 13 ára og eldri. Fella- og Hólakirkja. Helgistund í Gerðubergi á fimmtudögum kl. 10.30. Grafarvogskirkja. KFUK kl. 17.30 fyrir 9-12 ára stúlkur. Hjallakirkja. Mömmumorgunn kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 16. Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára börnum kl. 16.30-17.30 í safnaðar- heimilinu Borgum. Starf á sama stað með 10-12 ára (TTT) bömum kl. 17.30-18.30. Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel- komnir. Tekið á móti fyrirbænaefn- um í kirkjunni og í síma 567 0110. Léttur kvöldverður að bænastund lokinni. Fundur Æskulýðsfélagsins Sela kl. 20. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, fyrirbænir og alt- arisganga. Léttur hádegisverður á eftir. Kl. 20 Æskulýðsfundur í Strandbergi. Kl. 21 kyrrðarstund í kirkjunni. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir eldri borgara milli kl. 14 og 16.30. Helgi- stund, spil og kaffi. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 10 mömmumorgunn. Kl. 12.10 kyrrð- arstund í hádegi. Kl. 15.30 ferming- artímar, Barnaskólinn. Kl. 16.30 fermingartímar, Hamarsskóli. Kl. 20 KFUM & K, húsið opið unglingum. Kl. 20.30 fundur með foreldrum og fermingarbörnum úr Hamarsskóla. Keflavíkurkirkja. Alfanámskeið í Kirkjulundi kl. 19-22. Kletturinn, kristið samfélag. Bæna- stund kl. 20. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Kl. 18.30 er fjölskyklusamvera sem hefst með léttu borðhaldi á vægu verði. Kl. 19.30 er fræðsla og bæn. Allir hjartanlega velkomnir. PClÉiogfuguefni ;:± iií 4 Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sfmi 567 4844 + Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur hlýju og samúð vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður okkar, tengdaföður og afa, KRISTINS JÓNSSONAR, Vesturvangi 26, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til allra þeirra, sem studdu hann og okkur öll í veikindum hans. Guð blessi ykkur öll. Gunnhildur Sigurðardóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Stefán Helgi Helgason, Jóhann Helgi Stefánsson, Guðrún Kristín Stefánsdóttir, Inga Valgerður Kristinsdóttir, Pétur Vilberg Guðnason, Gunnhildur Pétursdóttir, Vilborg Pétursdóttir. + Innilegar þakkir sendum við þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓSKARS ÁRNASONAR, Norðurgötu 11, Sandgerði. Anna Þ. Sigurðardóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.