Morgunblaðið - 11.02.1998, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998 39
MINNINGAR
KIRKJUSTARF
ASBJORN
DAGBJARTSSON
+ Ásbjörn Dagbjartsson fæddist
í Álftagerði í Mývatnssveit 15.
maí 1954. Hann lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri 28. janú-
ar síðastliðinn og fór útför hans
fram frá Akureyrarkirkju 6. febr-
úar.
Sorg fyllti hugann þegar fréttin
barst um lát skólafélaga og vinar,
Asbjöms Dagbjartssonar, öllum
spurningum um tilgang var ósvar-
að. Eg kynntist Bödda þegar hann
kom í Menntaskólann á Akureyri
ásamt fríðu fömneyti Mývetninga
með öllum þeim slætti sem fylgir
þvi lífsglaða fólki. Við vorum
bekkjarfélagar og lengst af aðeins
tvær Akureyrarstelpurnar í
strákabekk þar sem Mývetningar
voru í miklum meirihluta ef miðað
er við fyrirferð. Uppátæki Mývetn-
inga í kennslustundum með þríeyk-
ið þá Bödda, Ásgeir og Steinda í
fararbroddi voru ógleymanleg.
Ymsar uppákomur í eðlisfræðitím-
um hjá Oldu Möller, vel valdar
kvikmyndir í líffræði hjá Jóhanni,
sérstaklega til að ganga fram af
okkur stelpunum, stærðfræðin hjá
Habbanum þar sem allir kepptust
við að ná niður dæmunum sem
hann skrifaði með hægri hendi og
þurrkaði jafn óðum út með
töflupúðann í þeirri vinstri, að
ógleymdum athugasemdum í sögu-
stundum hjá Aðalsteini.
I kjallaranum í Akurgerðinu var
oft glatt á hjalla, þar sýndi Böddi
sínar skemmtilegu hliðar, rólegur
og yfírvegaður á yfírborðinu tott-
aði hann pípuna sína, en undir niðri
ólgaði húmorinn og kímnin. Að öllu
jöfnu var hann tillitssamur og
skilningsríkur þegar átroðningur
minn og herbergisfélaga hans var
annars vegar, en átti það til að
launa með eftirminnilegum en sak-
lausum hrekkjum sem félagarnir
höfðu ómælda gleði af. Böddi var
hrókur alls fagnaðar í hópi vina,
mikill söngmaður og bridge spiluð-
um við langar nætur, þá var mikið
skrafað og hlegið. Allar ævintýra-
ferðirnar sem við fórum saman upp
í sveit, hvernig sem viðraði var lagt
af stað, oftast þurfti að fara strönd-
ina og sandinn í hríðarbyl og renn-
ingi sem var svo mikill að hetjurn-
ar þurftu að ganga á undan jeppan-
um þar sem ekki sá á milli stika.
En Mývatnssveitin hafði það að-
dráttarafl sem þurfti til að leggja á
sig þessar ferðir. Að alast upp í
slíkri náttúraperlu lætur engan
ósnortinn. Á þessum áram kynnt-
ust Böddi og Tóta og 17. júní 1975
urðu þau fallegasta brúðarparið í
okkar árgangi. Tóta mín, missir
þinn og barnanna ykkar er mikill.
Við sem útskrifuðumst frá MA
1975 höfum misst góðan félaga,
hans verður alltaf minnst þar sem
hljómar „Steinar í berjamó". Elsku
Tóta, Magnús Dagur, Kristjana
Hrönn og Auður, ég votta ykkur
mína dýpstu samúð. Guð gefi ykk-
ur styi’k í sorginni.
Auður.
Vegferð manna er mislöng,
margir fá að lifa í háa elli en aðrír
era hrifnir burt á miðri vegferð,
hátindi lífsins.
Þannig var með Bödda, sem við
kölluðum ætíð en svo hét réttu
nafni Ásbjörn og var sonur hjón-
anna Dagbjarts og Kristjönu í
Álftagerði í Mývatnssveit. Hann
ólst upp hjá foreldrum sínum,
yngstur í stóram hópi systkina í
þessari einni fegurstu sveit lands-
ins. Það var ekki einungis fegurð
umhverfísins, heldur einnig kær-
leikur í samskiptum foreldra hans
sem lagði hornstein að heilsteypt-
um góðum manni.
Eg kynntist Bödda og Tótu fyrir
rúmlega tíu áram og allt frá fyrsta
hljómuðu nöfn þeirra hjóna saman.
Það var ekki nefnt annars öðra vísi
en hitt fylgdi ósjálfrátt með. Tóta
okkar svokölluð er Þóra Björg
dóttir hjónanna Magnúsar og Áuð-
ar í Fagraskógi í Eyjafirði.
Við erum búin að eiga margar
+ Björn Ingvar Pétursson fædd-
ist í Reykjavík 9. mars 1981.
Hann lést af slysförum þriðjudag-
inn 20. janúar síðastliðinn og fór
útför hans fram frá Blönduós-
kirkju 31. janúar.
Af hveiju Bjössi okkar af öllum?
spurðu börnin mín þegar við feng-
um frétt um andlát Bjössa okkar.
Hann passaði þau mikið og reynd-
ist þeim sem stóri bróðir.
Bjössi átti stórt pláss í okkar
hjörtum. Alltaf tók hann á móti
okkur með hlýju í hjarta og á vör-
um. Þau gátu treyst honum og trú-
að í einu og öllu. Álltaf var hann til-
búinn að gera eitthvað fyrir þau.
Elsku Ragna og Birgir, megi al-
góði Guð gefa ykkur allan sinn
styrk og huggun í sorginni.
Lóa, Óskar Þór og Edda.
Nú kveðjum við góðan dreng,
Björn Ingvar, sem fór svo skyndi-
góðar stundir og yndislegur var 17.
júní síðastliðinn er sonur þeirra og
minn settu upp hvítu kollana. Það
hefur eflaust dýpkað ljúfar minn-
ingar frá 17. júní 1975 þegar þau
hjónin settu bæði upp hvítu kollana
og gengu síðan í hjónaband þann
sama dag.
Samhent og samstiga hafa þau
síðan stigið lífsdansinn og vissu-
lega vora gleðistundirnar margar
og ávallt var lífsgleðin í fyrirrúmi.
Á þessu rúmlega tuttugu ára
tímabili fóra þau saman gegnum
háskólanám og þaðan út í atvinnu-
lífið. Börnin komu, fyrst Magnús,
síðan Kristjana og að lokum Auður
sem er níu ára.
Af starfsvettvangi fannst mér
stundum á þeim hjónum að Afríku-
dvöl þeirra hefði fært þeim nýjar
víddir og víst er að margir inn-
fæddir nutu góðs af störfum
þeirra. Og það var ekki bara að
heimssýn þeirra breyttist heldur
einnig okkar er heima sátum og
nutum fréttabréfanna sem bárust
með reglulegu millibili.
Það er mikill missir að starfs-
kröftum ungs manns í blóma lífs-
ins, að ekki sé nefnt það skarð sem
nú hefur verið höggvið í glaðværa,
vinmörgu fjölskylduna í Heiðar-
lundinum.
Elsku Tóta, Magnús, Kristjana
og Auður, mannkostir Bödda
kristölluðust í kærleiksríkri um-
hyggju hans fyrir ykkur fjölskyld-
unni hans og mun gefa minning-
unni um hann dýpt um alla eilífð.
lega frá okkur. Hann var yndisleg-
ur drengur sem sást aldrei öðravísi
en brosandi hvar og hvenær sem
við mættumst, á götu, eða í kaupfé-
laginu, þá kom hann með opna
arma og tók mig í fangið og sagði:
„Elsku amma mín, ertu komin,
viltu ekki koma heim til mömmu og
fá kaffisopa."
Okkar kynni urðu of stutt. Eng-
inn veit hvenær kallið kemur, en í
þessu tilfelli allt of snemma.
Með þessum fátæklegu orðum
kveðjum við góðan ömmudreng.
Þeir sem undu áður glaðir
ala núna sáran streng.
Dauðinn óvænt birtist bráður
burtu hreif hinn góða dreng.
(Rl)
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Erla amma, Litlu-Hlíð.
Katrín Þorvaldsdóttir.
BJÖRNINGVAR
PÉTURSSON
Kristjana S.G.
Sveinsdóttir
fæddist á Þingeyri
við Dýrafjörð 21.
september 1916.
Hún Iést 5. desem-
ber síðastliðinn og
fór útför liennar
fram frá Akureyr-
arkirkju 11. desem-
ber.
Um klukkan 11
föstudagsmorguninn 5.
desember hringdi
Bogga vinkona í mig og
spurði hvort ég gæti
passað „litla prinsinn" fyrir sig því
að þau þyrftu upp á sjúkrahús, hún
Jana væri dáin.
Litli Esra kom, og ég fór að
hugsa um hvað hann myndi missa
af miklu þar sem
amma Jana yrði ekki
þátttakandi.
Ég kynntist Jönu
fyrst lítil stelpa á
heimili hennar Litla-
Hóli, en þar var bróðii-
minn á sumrin í sveit.
Voru þau góðir vinir,
og hún bað alltaf að
heilsa Stebba þótt þau
hefðu ekki sést í mörg
ár.
Eftir að hún fluttist
til Boggu og Bjössa
áttum við margar in-
dælar stundir, það var
alltaf svo notalegt að fá molasopa í
Laxagötunni eftir bæjarrölt og
Jana tók vel á móti öllum. Oft pass-
aði hún dæturnar fyrir mig og þeim
leiddist ekki á meðan, því hún var
sannur leikfélagi þeira, sat á gólf-
inu með þeim, sat með þau og reri
og raulaði. Hún yljar minningin þar
sem hún hlær og grínast af hjart-
ans lyst. Það var auðvelt að slá á
létta strengi, þar sem hún var ann-
ars vegar. Og ekki mátti skamma
börnin, þá heyrðist „Æ, vertu ekki
vond við greyið“. Ýið mæðgur í
Langholti þökkum samverustund-
irnar með Jönu og vitum að henni
líður vel þar sem hún er. Við send-
um Boggu, Bjössa, Friðrik og Esra
innilegar samúðarkveðjur og biðj-
um guð að gæta ykkar allra.
Við kveðjum með þessu ljóði:
Lítill drengur leggst á koddann
- lokar sinni þreyttu brá
uns í draumi er hann staddur
ömmu sinni góðu hjá.
Amma brosir - amma kyssir
undurbh'tt á kollinn hans.
Breiðist ást af öðrum heimi
yfir beð hins litla manns.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Steinunn Benna, Gunnur Lilja,
Berglind og Herdís Júlía.
KRISTJANA S.G.
SVEINSDÓTTIR
Safnaðarstarf
Ást og agi í
Hafnarfjarðar-
kirkju
FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 12. febr-
úar kl. 20.30 mun Sæmundur Haf-
steinsson, sálfræðingur, koma í
Strandberg, safnaðarheimili Hafnar-
fjaðarkirkju, og fjalla þar um ung-
linga og uppeldismál. Hann nefnir
umfjöllun sína ,Á-St og agi“ og mun
ræða það hvernig þessum þáttum
verði helst komið við í uppeldinu.
I óróa og umróti samtímans er
margt sem villir ungu fólki sýn og
freistar þess inn á ógæfubrautir svo
sem dæmin sanna. Þýðingarmikið er
að geta veitt ungu fólki innri styrk,
öryggi og lífstrú.
Fundur þessi er einkum hugsaður
fyrir foreldra fermingarbarna en
hann er öllum opinn. Boðið verður
upp á kaffi og samræður eftir um-
fjöllun sálfræðingsins.
Áskirkja. Opið hús fyrir foreldra
ungra barna kl. 10-12. Starf fyrir 10-
12 ára kl. 17.
Bústaðakirkja. Félagsstarf aldr-
aðra: Opið hús í dag kl. 13.30-17.
Æskulýðsstarf fyrir 10-12 ára kl. 17.
Dómkirkjan. Hádegisbænfr kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á kirkjuloftinu á eftir.
Grensáskirlga. Þorrasamvera starfs
eldri borgara hefst kl. 12. Þorramat-
ur o.fl. Starf fyrir 10-12 ára kl. 17.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir for-
eldra ungra barna kl. 10-12.
Fræðsla: Svefn og svefnvenjur. Jóna
Margrét Jónsdóttir, hjúkrunarfr.
Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17.
Háteigskirkja. Mömmumorgunn kl.
10. Foreldrar og böm þeirra hjart-
anlega velkomin. Sr. María Ágústs-
dóttir. Kvöldbænir og fyrirbænir kl.
18.
Langholtskirkja. Starf fyrir aldraða
í dag kl. 13-17.
Laugameskirkja. Fundur í æsku-
lýðsfélaginu í kvöld. Húsið opnað kl.
19.30.
Neskirkja. Litli kórinn (kór eldri
borgara) æfn- kl. 11.30-13. Umsjón
Inga J. Backman. Fótsnyrting kl. 13-
16. Bænamessa kl. 18.05. Sr. Halldór
Reynisson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra, opið hús kl. 13.30-16. Handa-
vinna og spil. Fyrirbænaguðsþjón-
usta kl. 16. Bænarefnum er hægt að
koma til presta safnaðarins.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu, á eftir TTT starf fyrir 10-
12 ára í dag k. 17.15. Æskulýðsfund-
ur kl. 20.
Digraneskirkja. KFUM & K fyrir
10-12 ára kl. 16.30. Æskulýðsstarf í
samstarfi við KFUM og K kl. 20 fyr-
ir 13 ára og eldri.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl.
10.30.
Grafarvogskirkja. KFUK kl. 17.30
fyrir 9-12 ára stúlkur.
Hjallakirkja. Mömmumorgunn kl.
10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 16.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára
börnum kl. 16.30-17.30 í safnaðar-
heimilinu Borgum. Starf á sama stað
með 10-12 ára (TTT) bömum kl.
17.30-18.30.
Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel-
komnir. Tekið á móti fyrirbænaefn-
um í kirkjunni og í síma 567 0110.
Léttur kvöldverður að bænastund
lokinni. Fundur Æskulýðsfélagsins
Sela kl. 20.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund
kl. 12. Orgelleikur, fyrirbænir og alt-
arisganga. Léttur hádegisverður á
eftir. Kl. 20 Æskulýðsfundur í
Strandbergi. Kl. 21 kyrrðarstund í
kirkjunni.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara milli kl. 14 og 16.30. Helgi-
stund, spil og kaffi.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
10 mömmumorgunn. Kl. 12.10 kyrrð-
arstund í hádegi. Kl. 15.30 ferming-
artímar, Barnaskólinn. Kl. 16.30
fermingartímar, Hamarsskóli. Kl. 20
KFUM & K, húsið opið unglingum.
Kl. 20.30 fundur með foreldrum og
fermingarbörnum úr Hamarsskóla.
Keflavíkurkirkja. Alfanámskeið í
Kirkjulundi kl. 19-22.
Kletturinn, kristið samfélag. Bæna-
stund kl. 20. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Kl.
18.30 er fjölskyklusamvera sem
hefst með léttu borðhaldi á vægu
verði. Kl. 19.30 er fræðsla og bæn.
Allir hjartanlega velkomnir.
PClÉiogfuguefni
;:±
iií 4
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sfmi 567 4844
+
Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur hlýju
og samúð vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns, föður okkar, tengdaföður og afa,
KRISTINS JÓNSSONAR,
Vesturvangi 26,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til allra þeirra, sem studdu
hann og okkur öll í veikindum hans.
Guð blessi ykkur öll.
Gunnhildur Sigurðardóttir,
Sigríður Kristinsdóttir, Stefán Helgi Helgason,
Jóhann Helgi Stefánsson, Guðrún Kristín Stefánsdóttir,
Inga Valgerður Kristinsdóttir, Pétur Vilberg Guðnason,
Gunnhildur Pétursdóttir, Vilborg Pétursdóttir.
+
Innilegar þakkir sendum við þeim, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
ÓSKARS ÁRNASONAR,
Norðurgötu 11,
Sandgerði.
Anna Þ. Sigurðardóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.