Morgunblaðið - 12.03.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.03.1998, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 59. TBL. 86. ÁRG. FIMMTUDAGUR12. MARZ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Poul Nyrup Rasmussen og jafnaðarmenn unnu óvæntan sigur í þingkosningunum í Danmörku Líklegt að ríkisstjórnin haldi velli Kristiánsoorgarhöíl, Kaupinannahöfn. Morgimbláðið. RÍKISSTJÓRN Poul Nyrup Rasmussens, forsætisráðherra Dan- merkur, hélt óvænt velli í þingkosn- ingunum í gær þvert ofan í spár um sigur borgaraflokkanna. Er meiri- hluti hennar raunar aðeins eitt þing- sæti, 88 á móti 87, en Rasmussen getur þó unað sínum hlut vel því að jafnaðarmenn bættu við sig einu þingsæti í stað þess að tapa nokkrum eins og spáð hafði verið. Hefur hann nú 63. Frá Færeyjum koma tveir þingmenn, einn frá Fólkaflokknum og annar frá Jafnað- arflokknum, og styður hvor sína fylkinguna á danska þinginu. Ekki var búist við niðurstöðu um græn- lensku þingmennina tvo fyrr en nú með morgninum. Sigurvegara kosninganna má kalla Danska þjóðarflokkinn, sem bauð nú fram í fyrsta sinn og fékk 13 þingmenn, en íhaldsflokkurinn beið afhroð, fær 16 þingmenn og tapar 11. Eru úrslitin einnig mikil vonbrigði fyrir Uffe Ellemann-Jen- sen, leiðtoga Venstre, sem gerði sér ekki aðeins vonir um sigur borgara- flokkanna, heldur einnig um góðan sigur síns flokks. Hann fékk hins vegar sömu þingmannatölu og á síð- asta þingi eða 42. Góður endasprettur jafnaðarmanna „Það er enginn efi á að harður endasprettur jafnaðarmanna hefur haft áhrif,“ segir Hans Engell, fyrr- verandi formaður íhaldsflokksins, í samtali við Morgunblaðið. Hann var þó enn vongóður um að hægri- vængnum tækist að fá nógu mörg atkvæði til að mynda stjóm, en það stóð glöggt langt frameftir kvöldi. Útgönguspáin gaf til kynna, að stjórn Poul Nyrup Rasmussen héldi velli og var því vel fagnað meðal jafnaðaimanna í Kristjánsborgar- höll. Þegar atkvæðatölur fóra að berast og dreifing og þingsæti fóru að skýrast benti hins vegar allt til að hægristjóm væri í uppsiglingu. Lítið rætt um fjármál Það komu ýmsir gestir til að fylgj- ast með kosningunum og einn af þeim sem heiðraði jafnaðarmenn með nærveru sinni var Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkis- ráðherra Norðmanna og núverandi Reuters NOKKRIR stuðningsmenn Poul Nyrup Rasmussens, forsætisráðherra Danmerkur, færðu honum blómvönd er hann kom út frá því að kjósa í gærmorgun. Voru kosningarnar nokkur persónulegur sigur fyrir hann þar sem flokkur hans bætti við sig einu þingsæti þvert ofan í spár. sendiherra í Danmörku. í samtali við Morgunblaðið sagði hann að það hefði verið áhugavert að fylgjast með kosningabaráttunni, sem hefði verið heldur þung í byrjun, en síðan náð sér á strik. Jafnaðarmönnum hefði greinilega tekist að drífa bar- áttu sína áfram á endasprettinum. Annar gestur var Sigrún Bene- diktsdóttir, gjaldkeri Alþýðuflokks- ins, sem fylgdist með lokasprettin- um ásamt nokkrum öðrum Islend- ingum. Hún sagði baráttuna í sínum augum hafa einkennst af því hvað Danir væru auðugir, þar sem fjár- málin hefðu verið jaðarmál miðað við ýmis önnur mál. Tími kraftaverkanna ekki liðinn Kosningavaka í Kristjánsborgar- höll, þinghúsi Dana, er sérstök uppá- koma þar sem allir þingflokkamir koma saman, ráðherrar, stuðnings- menn og fjölmiðlafólk og skammt á milli sigurvegara og hinna. Það hafði spurst út að Nyrup myndi koma um kl. 21.30 en hann lét þó bíða eftir sér enda staðan lengi óljós. Þegar hann kom loksins var hann hylltur af sínu fólki og þá varð honum á orði, að hann hefði haldið, að tími krafta- verkanna væri liðinn í Danmörku. Þakkaði hann einnig verkalýðshreyf- ingunni en talið er, að hún hafi átt stóran þátt í gengi jafnaðarmanna. Albanir krefj ast fulls sjálfstæðis í Kosovo Pristina, Genf. Reuters. Reuters Barna- þrælkun mótmælt BÖRN frá Indiandi, Pakistan, Bangladesh og Nepal komu sam- an í gær í Kalkútta á Indlandi til að mótmæla barnaþrælkun. í þessum löndum og miklu víðar eru mörg börn svipt æsku sinni og þau neydd til að strita langan vinnudag fyrir sáralitil laun. Nú stendur yfir alþjóðlegt átak og barátta fyrir því, að réttindi barna verði hvergi fyrir borð borin. IBRAHIM Rugova, einn helsti leið- togi albanska meirihlutans í Kosovo, krafðist í gær fulls sjálf- stæðis héraðsins en talsmaður Serb- íustjómar vísaði því á bug. Sagði hann, að ekki yrði rætt við fulltrúa albanska þjóðarbrotsins fyrr en það léti af sjálfstæðiskröfum sínum. Er- indrekar vestrænna ríkja, sem kenna Serbum um ofbeldisverkin í Kosovo, hafa einnig lagt að leiðtog- um Albana að draga í land með kröfuna um algert sjálfstæði. Rugova, sem er leiðtogi helsta stjórnmálaflokks Albana í Kosovo, sagði á blaðamannafundi í Pristina, höfuðborg héraðsins, í gær, að Alb- anir krefðust fulls sjálfstæðis og væru ekki til viðræðu um neitt ann- að. Sagði hann þá ekki mundu sætta sig við takmarkaða sjálfstjórn, enda yrði hún aðeins ávísun á áframhald- andi átök. Engar viðræður Með yfirlýsingu Rugova virðist vera girt fyrir einhverjar viðræður milli Albana í Kosovo og Serbíu- stjórnar. Slobodan Milosevic, for- seti Serbíu, sagði á þriðjudag, að Serbíustjórn vísar því á bug og einnig vestræn ríki stjórn sín væri fús til að ræða við Albani en 1 gær lýsti hún yfir, að viðræður kæmu ekki til greina fyrr en látið yrði af sjálfstæðiskröfunni. Fulltrúar vestrænna n'kja, sem hafa hvatt til, að Albanir í Kosovo fái þá sjálfstjórn, sem þeir höfðu til 1989, hafa lagt áherslu á það við alb- önsku leiðtogana, að ekki sé um aðra lausn að ræða en semja við Serbíustjórn. Sjálfstæði héraðsins sé ekki inni í myndinni og verði kröfunni um það haldið til streitu sé hætt við, að stuðningur vestrænna ríkja við albanska þjóðarbrotið minnki. Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, sagði í gær, að hugsan- lega yrðu inneignir Serbíustjórnar erlendis frystar vegna kúgunarað- gerða hennar í Kosovo en rússneska dúman samþykkti hins vegar ein- róma að koma í veg fyrir alþjóðleg- ar refsiaðgerðir gegn Serbum. Starfsmenn Rauða krossins fluttir burt Talið er, að um 80 manns hafi lát- ið lífið í árás serbneskra hermanna á tvö þorp í Kosovo í síðustu viku. Grófu Serbar 50 þeirra í einni fjöldagröf en í gær grófu ættingjar þeirra þá upp aftur og jarðsettu síð- an að sínum sið. Robin Cook sagði í gær, að meirihluti þeirra, sem féllu, hefði verið börn, konur og aldrað fólk. Sagði hann, að stjórnin í Belgrad gæti ekki haldið fram, að morðverk af þessu tagi væru bara innanríkismál. Sagði hann, að Júg- óslavía yrði ekki tekin í samfélag Evrópuríkja fyrr en ofbeldinu linnti. Alþjóða Rauði krossinn hefur flutt allt sitt fólk frá Kosovo en því hefur margoft verið hótað dauða síðustu daga, einkum eftir að því var leyft að aðstoða þá, sem hafa særst eða orðið fyrir barðinu á serbneska hernum. Deilt um forræði yfír hundi London. The Daily Telegraph. FRÁSKILINN Breti, Chris Dy- son, varð að sjá á eftir besta vini sínum til fyrrverandi eiginkonu sinnar eftir að óskað var eftir úr- skurði bresks dómstóls í deilu þeirra um forræði yfir heimilis- hundinum. Dómarinn í málinu komst að þeirri niðurstöðu að hundurinn ætti að vera hjá konunni, sem skildi við mann sinn fyrir rúmu ári. Var hundurinn í fyrstu hjá eiginmanninum fyrrverandi en konan hélt tveimur af þremur dætrum þeirra. Skömmu eftir skilnaðinn sakaði Dyson konuna um að hafa stolið hundinum. Konan var skráður eigandi hans en Dyson sagði hana hafa gefið sér hann í afmælisgjöf. Konan fagnaði úrskurðinum og sagði að dæturnar væra mjög ánægðar með að halda hundin- um. „Eins og í mörgum skilnað- armálum og forræðisdeilum tók dómarinn afstöðu með konunni," sagði Dyson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.