Morgunblaðið - 12.03.1998, Blaðsíða 6
M0RGUN3LAÐIÐ
6
FÍMMTUDAGUR 12. MARZ1998
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
FREYR Jónsson jeppaekill kom til landsins í gær eftir langa dvöl á
Suðurskautslandinu. Kristjana Harðardóttir, kona Freys, og sonurinn
Jón Snær, sem er 13 mánaða gamall, tóku á móti eiginmanni og fóður.
Jeppamenn frá Suðurskautslandinu
Feginn að
koma heim eftir
langa útivist
Keflavík. Morgunblaðið.
„GERA klárt, það er ferð um
helgina," sögðu vinir Suður-
skautslandsfarans Freys Jónsson-
ar í gríni þegar hann kom til
landsins í gær eftir þriggja og
hálfs mánaðar ævintýraferð.
Freyr sagðist vera feginn að
koma heim. Þetta hefði verið löng
útvist og hann hefði saknað konu
og barns. Síðasti leggurinn á
heimferðinni hefði einnig verið
strembinn, því hann væri að koma
frá Höfðaborg í Suður-Afríku og
væri búinn að vera rúman sólar-
hring á ferð. Jón Svanþórsson, fé-
lagi Freys, sem einnig var á Suð-
urskautslandinu, kom til landsins
í síðustu viku og hann var einnig
mættur til að taka á móti Frey.
Samanlagt óku þeir jeppum sín-
um tæpa 10.000 kílómetra á Suð-
urskautslandinu.
Jeppamir
vekja athygli
í fyrrakvöld var fjallað um
Toyota Land Cruiser-jöklajepp-
ana sem félagarnir óku um Suð-
urskautslandið í sjónvarpsþættin-
um Extreme Machines sem sýnd-
ur er víða um heim á Discovery-
sjónvarpsstöðinni. Þátturinn var
að þessu sinni helgaður fjórhjóla-
drifnum farartækjum.
Sagt var frá íslensku tor-
færunni, en þessi íslenska keppn-
isgrein er vinsælt efni á eriendum
sjónvarpsstöðvum. Eftir að tor-
færukappar höfðu att tækjum sín-
um á sandbörð og pytti með
glæsilegum tilþrifum sagði þulur
að á íslandi væru fjórhjóladrifs-
bflar ekki einungis til gamans.
Þaðan hefði verið farið með sér-
búna jeppa Arctic Trucks til akst-
urs um torfærasta svæði jarðar,
Suðurskautslandið.
Sýnt var frá ferð sem sjón-
varpsmenn Discovery fóru með
jeppum Arctic Trucks á Langjök-
ul síðasta sumar og útskýrt
hvernig íslenskt hugvit var notað
til að breyta venjulegum jeppum í
jöklajeppa.
Að sögn Lofts Ágústssonar,
deildarsljóra hjá P. Samúelssyni
ehf., bárust margar fyrirspurnir á
heimasíðu Arctic Trucks, einkum
frá Bandarflgunum, eftir að þátt-
urinn var sýndur.
FRÉTTIR
Anna Geirsdóttir skipi
níunda sæti R-listans
INGIBJORG Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri leggur til
að Anna Geirsdóttir, læknir á
heilsugæslustöðinni í Grafar-
vogi, skipi 9. sæti Reykjavík-
urlistans við sveitarstjómar-
kosningamar í vor. Að sögn
borgarstjóra mun á næstu
dögum skýrast hverjir skipa
önnur efri sæti listans og
verður endanlegur framboðs-
hsti væntanlega kynntur um
næstu helgi.
„Anna hefur ekki haft af-
skipti af stjómmálum,“ sagði
Ingibjörg. „Hún kemur eins
og ráð var fyrir gert sem
óflokksbundin manneskja í
þetta sæti og ég mun gera til-
lögu um hana vegna þess að
mér finnst hún hafa til bmnns
að bera reynslu, sem ég held
að nýtist vel í borgarmálum.“
í samræmi við leikreglur
Borgarstjóri sagði að þessi
ákvörðun væri í samræmi við
þær leikreglur, sem samdar
vom og samþykktar fyrir prófkjör,
um að óflokksbundinn einstakling-
sagði borgarstjóri. „Þó að
þessi umræða hafi verið í fjöl-
miðlum hefur ekki verið þrýst
á mig um að setja Arna Þór
Sigurðsson eða Pétur Jónsson
í sætið en ég hef vissulega
haft þá báða í huga. Ég tel að
það væri mikill fengur að hafa
þá áfram í borgarstjórnar-
flokknum."
Ingibjörg sagðist hafa
þekkt Onnu lengi. Þær væm
jafnöldrur og sagðist hún hafa
fylgst með henni í mörg ár.
„Ég hef dáðst að krafti hennar
og viljastyrk en ég var ekki
með hana né nokkum annan í
huga um það leyti sem próf-
kjörið fór fram,“ sagði hún.
Anna er fötluð og er í hjóla-
stól eftir slys, sem hún lenti í
um tvítugt. Hún tók próf í
læknisfræði frá Háskóla Is-
lands og lauk síðan framhalds-
námi í Svíþjóð eftir að hún
slasaðist.
Samkvæmt prófkjörsregl-
um kemur 10. sætið í hlut
Kvennalistans og 11. sætið í hlut
Alþýðubandalagsins.
ANNA Geirsdóttir, læknir á heilsugæslustöð-
inni í Grafarvogi.
ur tæki 9. sætið og að hún skipaði í
það sæti. „Þetta hafa allir vitað,“
Könnun sýnir aukna notkun öryggisbúnaðar barna í bflum
Mikill munur er á
milli sveitarfélaga
Morgunblaðið/Golli
MIKILVÆGT er að barnabflstólar henti þyngd og aldri barna og að
þeim sé komið fyrir á réttan hátt.
Hlutfall barna sem
notuðu öryggisbúnað
við komu í leikskóla
1996-98
Öryggisbúnaður slasaðra barna
0-6 ára í bifreiðum 1993-97
Skv. skráningu lögreglu
Með öryggisbúnað
Með lítil meiðsl
§ 9 með mikil meiðsl
| 4 látin
1996 1997 1998
Ekki með öryggisbúnað
||| 27 m. lítil meiðsl
| 4 með mikil meiðsl
| 2 látin
Ekki vitað um
öryggisbúnað
IIÉ118
i'
UMTALSVERÐ aukning hefur orð-
ið á notkun öryggisbúnaðar bama í
bílum. Mikill munur er þó á notkun
öryggisbúnaðar eftir sveitarfélögum.
Þetta kom fram er Umferðarráð og
Slysavarnafélag Islands kynntu nið-
urstöður könnunar sem gerð var við
leikskóla í 31. sveitarfélagi víðsvegar
um landið.
Könnunin var framkvæmd af fé-
lögum í deildum Slysavarnafélagsins
og leikskólakennurum vikuna 16.-20.
febrúar. Úrtakið var 2.736 börn og
notuðu 83% þeirra einhvern öryggis-
búnað í bíl. 17% voru hins vegar án
alls öryggisbúnaðar. I hliðstæðri
könnun frá árinu 1997 notuðu 68%
úrtaksins öryggisbúnað en 32% voru
án hans og í könnun frá árinu 1996
notuðu 72% úrtaksins öryggisbúnað
en 28% voru án hans.
Óli H. Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Umferðarráðs, sagði vissulega
hafa orðið mikla framfór í öryggis-
málum barna í bifreiðum en að betur
mætti ef duga skyldi. „Við þurfum að
halda áfram að vinna að almennri
notkun öryggisbúnaðar en einnig
leggja áherslu á að fólk geri sér
grein fyrir mikilvægi þess að örygg-
isbúnaðurinn henti þyngd og aldri
barnanna," sagði hann. „Einnig þarf
fólk að gera sér grein fyrir því að
það geti skipt höfuðmáli að rétt sé
frá búnaðinum gengið.
Óli sagði það áhyggjuefni að sam-
kvæmt könnuninni notuðu mörg 2 til
6 ára börn eingöngu bflbelti. Bflbelti
væru hins vegar hönnuð fyrir þá sem
væru a.m.k. 1,40 m á hæð og yfir 40
kg að þyngd og hentuðu því ekki
bömum án viðeigandi aukabúnaðar.
Einnig sagði hann það undrunar- og
áhyggjuefni að enn virtist nokkuð
um að börn stæðu á milli sæta eða
sætu í framsætum. „Böm eigi aldrei
að sitja í framsætum bíla nema þau
séu í barnabílstólum sem snúa baki í
akstursstefnu og þá einungis í bílum
án öryggispúða," sagði hann.
Nýjar reglur um innflutning
Á fundinum kom einnig fram að
mikill munur er á notkun öryggis-
búnaðar eftir sveitarfélögum. Sam-
kvæmt könnuninni er ástandið best á
Akureyri, Egilsstöðum og í Kópa-
vogi þar sem rúmlega 90% bama
vom með öryggisbúnað. Verst er
það hins vegar á Raufarhöfn þar sem
einungis um 36% úrtaksins voru með
öryggisbúnað og á Eskifirði, Ólafs-
vík, Garði, Norðfirði og Grindavík,
en á öllum þessum stöðum var innan
við helmingur barnanna með viðun-
andi búnað.
Við samanburð á könnunum und-
anfarinna þriggja ára kemur hins
vegar í ljós að sums staðar hefur
ástandið batnað veralega. í Vík í
Mýrdal var t.d. rúmlega 40% úrtaks-
ins árin 1996 og 1997 án öryggisbún-
aðar samanborið við rúm 10% úr-
taksins nú.
Einnig kom fram á fundinum að
settar hafi verið nýjar reglur um
sölu öryggisbúnaðar hér á landi og
að frá og með 1. september næst-
komandi verði óheimilt að selja ann-
an búnað en þann sem hafi verið ör-
yggisprófaður samkvæmt ECE
44.03 staðli Evrópusambandsins,
FMVSS staðli Bandaríkjanna eða
CMVSS staðli Kanada.