Morgunblaðið - 12.03.1998, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1998
AKUREYRI
MORGUNB LAÐIÐ
Kuldaleg vist Dalvíkinga í snjóhúsinu
á Þorbj arnartungum
Frosnar baunir
og núðlur með
smjöri í matinn
Morgunblaðið/Haukur Gunnarsson
DALVÍKINGARNIR átta leggja af stað frá skálanum Litlakoti í blíðskaparveðri eftir hádegi á sunnudag, en
um 20 mínútum síðar hafði skollið á aftakaveður.
„VIÐ tókum veðurspá í Laugafelli
snemma á sunnudagsmorgun og
við vissum að veðrið myndi versna
seinni part dags, en óveðrið skall á
mun fyrr en við héldum og af meiri
krafti,“ sagði Haukur Gunnarsson,
einn Dalvíkinganna sem höfðust
við í snjóhúsinu í Þorbjamartung-
um við Hraunárdal í um 36 klukku-
stundir, frá því á sunnudag og
fram á þriðjudagsmorgun. Hann
sagði að þeir hefðu einnig reynt að
skrifa nöfn sín í gestabók í einum
skálanna á leiðinni, en penninn ver-
ið frosinn. Björgunarsveitarmenn-
imir hafa verið gagnrýndir fyrir að
hafa hvorki fylgst með veðurspá né
skrifað í gestabækur í skálunum.
Um 20 mínútum eftir að hópur-
inn hafði gert stuttan stans við
skálann Litlakot gerði aftakaveður,
en þekkt veðravíti em á þessum
slóðum. Ætluðu þeir þá að snúa
aftur að skálanum og gerðu þeir
ráð fyrir að um 15 kílómetra leið
væri að honum. Veðurofsinn kom í
veg fyrir að þeir kæmust alla leið
og tóku þeir því til þess bragðs að
grafa sig í fónn, útbúa lítið snjóhús
til að dvelja í meðan veðrið gengi
yfír. Haukur nefndi sem dæmi um
veðurofsann að 300 kg vélsleði
hefði nánast fokið á hliðina í einni
hviðunni.
Lágu á
sætum sleðanna
Haukur og félagar hófu að grafa
snjóhúsið um kl. 15 á sunnudag og
tók það mjög langan tíma en verk-
inu lauk ekki íyrr en undir morgun
á mánudag. „Það var líka kalt í
snjóhúsinu þannig að ég stóð tölu-
vert lengi fyrir utan húsið,“ sagði
Haukur, en þeir einangruðu sig frá
snjónum með því að taka sæti af
þremur vélsleðanna og liggja á
þeim í snjóhúsinu. Sagði Haukur
það ásamt því að þeir voru með
hjálma allan tímann sennilega hafa
bjargað lífí þeirra. „Eg hef aldrei
lent í jafnslæmu veðri en hef þó
reynt ýmislegt. Einu sinni þegar
ég fór út að pissa steig ég tvö skref
frá snjóhúsinu, en átti í mestu
vandræðum með að finna það aft-
ur.“
í kuldagalla Hauks er svokallað-
ur Max Ecco-svarboði fyrir snjó-
flóðaleitartæki, en Haukur sagði að
búnaður til að nema hann væri bara
til í Reykjavík. Þá var Haukur með
NMT-farsíma meðferðis og gerðu
þeir nokkrar tilraunir til að hringja
í Neyðarlínuna, en án árangurs.
Hann sagði að kveikt hefði verið á
símanum allan tímann.
Nánast allur farangur áttmenn-
inganna var settur í jeppa í Lauga-
felli þannig að þeir höfðu lítið mat-
arkyns meðferðis. „Við borðuðum
frosnar baunir og núðlur með
smjöri. Það kom stundum upp um-
ræða um hvað okkur langaði í góð-
an mat og menn sáu fyrir sér rjúk-
andi kjötsúpu."
Allir vélsleðarnir eru nýir, tveir
þeirra árgerð 1998, hinir frá síð-
asta ári og er verðmæti þeirra á
bilinu 4-5 milljónir króna. Fyrir-
hugað er að sækja þá innan tíðar
og hafa margir boðið fram aðstoð
sína við þann leiðangur.
HAGKAUP
ÞREYTTIR en ánægðir á heimleið í snjóbíl frá Dalvík, Þórarinn
Gunnarsson björgunarmaður, Hörður Másson, Hlini Gíslason og
Gunnar Gunnarsson.
Bingó
á Poll-
inum
BINGÓ verður haldið á veit-
ingahúsinu Við Pollinn ann-
aðkvöld, föstudagskvöldið 13.
mars, kl. 19.45.
Nokkuð er um liðið frá því
Akureyringum hefur boðist
að leika bingó á heimavelli,
en aðstandendur veitinga-
hússins hafa nú ákveðið að
efna vikulega til bingókvölda
á Pollinum. í framtíðinni
verða þau á sunnudagskvöld-
um og eru góðir vinningar í
boði.
Aksjóim
Fimmtudagur 12. mars
h|PTTID 20 00 ►Sjónvarps-
rILI IIK kringlan - Akureyri
21.00 ►Úrbæjarlífinu
IIVUII 21.10 ►Niubíó-Roswell
MTHU Sumarið 1947eigasérstað
skrýtnir atburðir í smábænum
Rosswell í Nýju-Mexico sem eiga
eftir að draga dilk á eftir sér. Sagan
af mögnuðustu yfirhylmingu aldar-
innar og manninn sem þorði að segja
sannleikann. Aðalhlutverk: Kyle
Maclachlan og Martin Sheen. 1994.
23.00 ►Dagskrárlok
Viður-
kenndu hass-
reykingar
RANNSÓKNARDEILD lögregl-
unnar á Akureyri handtók fjóra
pilta, rétt innan við tvítugt, um helg-
ina vegna gruns um fíkniefnaneyslu.
Við yfírheyrslu viðurkenndu þrír
piltanna að hafa reykt hass. Ekki
fundust þó nein fíkniefni á piltunum.
-------------------
Jóna sterka
í Deiglunni
DJASSTÓNLEIKAR verða í Deigl-
unni í Kaupvangsstræti í kvöld,
fímmtudagskvöld, kl. 21 á vegum
Jazzklúbbs Akureyrar, en um er að
ræða tónleika með Jónu sterku sem
fresta varð fyrir hálfum mánuði
vegna veðurs.
Jóna sterka er dbáelandhljómsveit
skipuð þeim Reyni Jónassyni á klar-
inett, Þorsteini Kjartanssyni á tenór-
saxófón, Atla Guðlaugssyni á trompet,
Guðlaugi Baldurssyni á básúnu,
Heimi Ingimarssyni á túbu, Gunnari
H. Jónssyni á banjó, Guðjóni Pálssyni
á píanó og Karli Petersen á trommur.
Auk Jónu sterku leikur Tríó Birgis
Karlssonar á tónleikunum, en auk
Birgis, sem leikm- á gítar, ei-u í tríóinu
Stefán Ingólfsson sem spilar á túbu
og Karl Petersen trommuleikari.
Aðgangur er ókeypis fyrir klúbb-
félaga en 500 krónur fyrir aðra.