Morgunblaðið - 12.03.1998, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1998 21
ERLENT
Ráðstefna um stækkun ESB
Tyrkir fjarverandi
og enn deilt um
aðild Kýpurbúa
Lundúnum, París. Reuters.
Deilt um niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar á
obeinum reykingum og lungnakrabba
Engin tölfræðitengsl?
London, Genf. The Daily Telegi*aph, Reuters.
RÁÐSTEFNA Evrópusambands-
ins um stækkun þess, með þátt-
töku núverandi og tilvonandi að-
ildarríkja, var haldin í Lundúnum
í gær, með einn stól við ráðstefnu-
borðið áberandi auðan. Tyrkir
neituðu að taka þátt í ráðstefn-
unni þar sem þeir fengu ekki vil-
yrði fyrir aðild eins og ellefu önn-
ur lönd sem sækjast eftir henni.
Talsmaður Jacques Chiracs
Frakklandsfor-
seta sagði í gær
að frönsk
sljórnvöld væru
eindregið fylgj-
andi því að í
lokayfirlýsingu
ráðstefnunnar
yrðu Tyrkjum gefin skýr skilaboð
um að þeir væru velkomnir að
taka þátt í framhaldsfundum
stækkunarráðstefnunnar.
Samtals sátu fulltrúar 26 ríkja
ráðstefnuna, þ.e. ESB-ríkjanna
15, 10 Mið- og Austur-Evrópu-
ríkja, auk Kýpur. Þar sem ekki
tókst að koma saman sameigin-
legri sendinefnd beggja þjóða-
brota sem byggja eyna var ennþá
deilt um það hvort mögulegt væri
að halda til streitu áformum um
að formlegar viðræður um aðild
Kýpur að ESB hæfust í Iok þessa
mánaðar, á sama tíma og við hin
fimm útvöldu Austurevrópuríki,
sem dæmd hafa verið hæfust til
aðildar og hefur verið heitið
henni í fyrstu lotu stækkunar.
Þessi lönd eru Pólland, Tékkland,
Ungverjaland, Slóvenía og Eist-
land.
Viðræður um aðild
Kýpur frystar?
Talsmaður Tonys Blairs forsæt-
isráðherra, gestgjafa ráðstefn-
unnar, greindi frá því í gær að
brezka stjórnin
vildi ekki sjá
neina töf á aðild-
arviðræðum
Kýpur. Þar sem
nú lítur út fyrir
að ekki takist
um sinn að fá
fulltrúa bæði Kýpur-Grikkja og
Kýpur-Tyrkja til að koma sér
saman um skilmála viðræðna um
ESB-aðild eyjarinnar og þar með
að ekki verði hægt að heíja form-
lega aðildarviðræður eins og að
var stefnt, þá munu Frakkar hafa
lagt til að brugðið verði á það ráð
að hefja viðræður við Kýpur og
hin ríkin fímm í lok mánaðarins
eins og áformað hafði verið, en
frysta þær siðan strax í tilviki
Kýpur.
Grikkir hafa hins vegar hótað
því að hindra viðræður við hin
ríkin fímm ef ekki verður staðið
við að hefja viðræður um aðild
Kýpur.
RANNSÓKN á tengslum óbeinna
reykinga og lungnakrabbameins
hefur ekki leitt í ljós vísbendingar
um að um tengsl sé að ræða, að því
er breska blaðið The Daily Tel-
egraph greindi frá í byrjun vikunn-
ar. Rannsóknin var gerð á vegum
Alþjóða heilbrigðismálastofnunar-
innar (WHO), og hefur ekki verið
gerð grein fyrir niðurstöðum henn-
ar opinberlega, og segir blaðið að
WHÖ hafi reynt að stinga þeim
undir stól. Samantekt hafi verið
dreift innan stofnunarinnar.
Rannsóknin var gerð í 12 rann-
sóknarmiðstöðvum í sjö Evrópu-
löndum. Fulltrúar WHO brugðust
við frétt Telegraph og sögðu hana
ekki með öllu rétta og neituðu því
alfarið að reynt hafi verið að
hylma yfir niðurstöður rannsókn-
arinnar.
Fréttaskýrandi Telegraph segir
líklegt að niðurstöðumar muni
koma illa við WHO, sem varið hafi
fjölda ára og miklum fjárhæðum í
herferðir gegn reykingum og tób-
aksframleiðslu. Þetta er ein um-
fangsmesta rannsókn sem gerð
hefur verið á tengslum óbeinna
reykinga og lungnakrabbameins og
hafa sérfræðingar og baráttuhópar
beðið útkomunnar með óþreyju.
Engar vísbendingar
Samkvæmt niðurstöðunum, sem
The Daily Telegraph hefur komist
yfir, fundust engar tölfræðilegar
vísbendingar um að óbeinar reyk-
Fréttaflutningur
breskra fjölmiðla af
rannsókninni hefur
vakið harkaleg við-
brögð Alþjóða heil-
brigðisstofnunarinnar
ingar valdi lungnakrabbameini.
Bornir voru saman 650 lungna-
krabbameinssjúklingar og 1.542
heilbrigðir einstaklingar. Athugað
var fólk sem á maka sem reykir,
fólk sem vinnur með reykingafólki,
fólk sem bæði á maka sem reykir
og vinnur með reykingafólki og
fólk sem ólst upp innan um reyk-
ingafólk.
Samkvæmt niðurstöðunum
eykst hætta á lungnakrabbameini
ekki við það að maður búi með eða
vinni með reykingafólki. I saman-
tekt WHO segir ennfremur: „Eng-
in tengsl voru milli hættu á lungna-
krabbameini og óbeinna reykinga á
bamsaldri.“ Fulltrúi breskra sam-
taka, er beita sér gegn reykingum,
sagði að niðurstöðumar kæmu á
óvart í Ijósi vísbendinga úr öðrum
rannsóknum sem sýndu greinilega
að tengsl væru milli óbeinna reyk-
inga og lungnakrabba.
Aukin hætta
Fulltrúar WHO segja hins vegar
að rannsóknin hafi leitt í ljós að
hætta á lungnakrabba aukist að
líkindum um 16% reyki maki og að
líkindum um 17% reyki samstarfs-
fólk. í yfirlýsingu WHO segir m.a.:
„Það er engin tilviljun að þessar
villandi upplýsingar komu fyrst
fram í breskum fjölmiðlum
skömmu fyrir reyklausa daginn í
Bretlandi."
Samkvæmt skýrslu sem birt var
í British Medical Journal í október
sl. benda rannsóknir til þess að
fólki sem ekki reykir en býr með
reykingafólki sé 25% hættara við
lungnakrabba en þeim sem ekki
væru í þessari aðstöðu. Chris
Proctor, yfirmaður vísindarann-
sókna hjá tóbaksframleiðandanum
BAT Industries, sagði um helgina
að taka yrði niðurstöður WHO
rannsóknarinnar alvarlega. „Ef
þessi rannsókn bendir ekki til
neinna tölfræðilegra tengsla hlýtur
maður að efast um að um nokkur
tengsl sé að ræða,“ sagði hann.
Proctor sagði að rannsóknin
„staðfesti það sem við og aðrir vís-
indamenn hafa lengi talið vera, að
þótt reykingar á almannafæri valdi
sumum, sem ekki reykja, óþægind-
um, séu engin vísindaleg rök fyrir
því að nálægð við reykingafólk auki
hættu á lungnakrabba".
I yfirlýsingu WHO segir að nið-
urstöður umræddrai- rannsóknar
stofnunarinnar verði birtar hjá
breskri vísindanefnd er fjallar um
heilsufar og tóbaksneyslu á næst-
unni.
^★★★^.
EVRÓPA^
84.170
Litir: Rauður m/gukim Llónum
GuDarúnn m/iauðum Uórnum
Stóllmeð linöppumílnlá
Litír Blár, vmcaiðuí graam, gukir
pironm 84.550
Stólamir eru allir hvíldarstólar
meÓ shemli oa haJlandi hala
GAGNAVER
invr eru einmg faaniegir aja sceta meö o
lýnu (svefnsófar) og stahir stólar í stíi
www.marco.is
ÖH verð miðast við staðgreiðslu
RAC H E L
HITNEY
ClaiBORNE
Dundee
G LENDA
Natches
L A U R E Ú
Rac H E L
QuINLAN