Morgunblaðið - 12.03.1998, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 12.03.1998, Blaðsíða 60
I Það besta úr báðum heimum! unix og NT = hp OPIN KERFIHF ¥hp% hewletT’ mXtiÆ PACKARD IBM notenda- ráðstefna Hótel Örk 23. 24. mars Skráning . erhafin! www.nyhBrji.is MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMIS69UOO, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 12. MARZ 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Hitasóttin hefur áhrif á ferðaþjónustu Samskip kaupir Bischoff Group Ishestum er farið að hafa sam- band við erlendar ferðaskrifstofur og fella niður ferðir sem bókaðar hafa verið á næstu dögum og vik- um. Nú um næstu helgi verður t.d. á annað hundrað manns af út- reiðartúr með Ishestum. Einar Bollason, framkvæmdastjóri fyrir- tækisins, gerir ráð fyrir að ferðir falli niður næstu tvær til þijár vik- urnar en hann telur að veikin muni ganga mjög hratt yfir á höfuðborg- arsvæðinu. Mikill hluti hesta fshesta geng- ur úti fyrir austan fjall, en þeir sem notaðir eru á veturna eru í hesthúsi í Kópavogi og veiktust þeir fyrstu þar um helgina. Þar er ^nií sólarhringsvakt og fylgst grannt með hita og líðan hross- anna. Einar segist lítið vera farinn að horfa til sumarsins. „Maður vonar bara að þeir fari að komast að því hverslags veira þetta er, þannig að hægft verði að meðhöndla hana betur. En ég held að útilokað sé að hefta útbreiðsluna úr þessu. Meg- inmálið er að reyna að halda landsbyggðinni frá þessu a.m.k. fram í maf, eða þar til fer að hlýna,“ segir hann. Einar segir ennfremur að ástandið nú hafi skelfileg áhrif á útflutning hesta en kveðst þó ekki geta séð að hann þurfi að Iiggja svo lengi niðri frá höfuðborgar- svæðinu, þar sem veikin hljóti að fara að ganga yfir. Sjálfur er hann hættur hrossaútflutningi en hefur þó milligöngu um að útvega fólki hesta til útflutnings. SAMSKIP hafa samið um kaup á þýska flutningafyrirtækinu Bischoff Group. Eftir kaupin verður árleg velta samstæðu Samskipa 12 millj- arðar kr., tvöfalt meiri en nú, og meirihluti viðskiptanna erlendis. Heildaráhætta Samskipa vegna kaupanna er 300 milljónir kr., að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækis- ins. Bisehoff Group er með umfangs- mikla flutningastarfsemi og skipa- þjónustu í Evrópu. Sjálft á það hlut í átta skipum sem eru í áætlanasigl- ingum. Innan Bischoff samstæðunn- ar eru nokkur hlutafélög, meðal ann- ars eitt sem gerir út 44 leiguskip viðsvegar um heim. Starfsmenn eru 280, fyrir utan áhafnir skipanna. Vaxtarmöguleikarnir erlendis „Við sjáum þetta sem eðlilegt framhald þess sem við höfum verið að gera,“ sagði Ólafur Ólafsson, framkvæmdastjóri Samskipa hf., þegar hann kynnti kaupin í gær. „Við h'tum á Island sem takmarkað- an markað. Við höfum náð viðun- andi hlutdeild í honum og barist hart fyrh- henni. Við höfum byggt upp flutninganet innanlands. Við teljum erfitt að stækka miklu meira hér heima . . . Vaxtarmöguleikarnir eru erlendis og þetta er byrjunin,“ sagði Ólafur. Bischoff Group eignaðist hlut í Samskipum hf. á árinu 1994. Sá hlut- ui- er nú kominn í eigu frú Bischoff, sem verið hefur aðaleigandi sam- stæðunnar. I tengslum við kaup Samskipa á fyrirtækinu hefur hún aukið hlut sinn í Samskipum og á fjölskylda hennar nú 23% í félaginu. Velta samstæðu Samskipa/Bl Til veiða á ný eftir að hafa rek- ist á ísjaka TOGARINN Bessi ÍS sigldi á ísjaka á Dohrnbanka í fyiradag þegar skipið var að veiðum. Varð því að snúa skipinu til hafnar á ísafirði til að kanna skemmdir. Gat kom á jafn- vægistank í skipinu, en skemmdir reyndust ekki meiri en svo að skipið hélt aftur til veiða síðdegis í gær. Barði Ingibjartsson, skipstjóri á Bessa, segir að ís hafi verið víða á svæðinu. „Það er yfirleitt alltaf ís hérna í köntunum. Það venst þó merkilega vel að sigla í þessu. Smá- vægileg skemmd varð á jafn- vægistanki og lak aðeins inn í hann. _Við vorum að toga þegar þetta gerð- ■Kt. Þetta kom mér raunar dálítið á óvart því ég varð alls ekki var við neitt óvenjulegt högg. Það heyrist samt alltaf þetta venjulega bank frá ísnum. Þarna eru jakar og spangir sem standa út úr aðalísjaðrinum," sagði Barði. Hann sagði að oft væri góð veiði í grennd við hafísinn en svo hafi þó ekki verið að undanförnu. Is var að leggjast yfir Dohrnbanka um svipað leyti og skipverjar köstuðu þar þrí- vegis í fyrradag. 295 millj- ,■ óna tap hjá Flugleiðum 295 MILLJÓNA króna tap varð af rekstri Flugleiða og dótturfé- laga í fyrra, samanborið við 632 milljóna hagnað árið 1996. Tap varð af reglulegri starfsemi Flugleiða eftir tekju- og eignai-- skatta í fyrra að fjárhæð 693 milljónir króna en hagnaðurinn nam 194 milljónum árið 1996. Velta samstæðunnar var 23 milljarðar króna í fyrra en lið- Ilega 20 milljai-ðar 1996 og jókst því um rúm 13% á milli ára. Rekstrargjöld samstæðu án fjármagnsgjalda voru 23,5 millj- arðar króna 1997 en voru 19,3 milljarðar árið 1996. Tap sam- stæðunnar í fyrra nam um 1,3% af veltu. Vaxandi umsvif/31 i§siiífcT' ms- tfi wmjsmm m í j í : j i 1 B" b 9 & m ^ 1 J g .J rfl s 5r ! l i ‘ 1 1 1 tfr Lj i i i I -i i 1 ji 1 1 IftlÍSL mI . í Morgunblaðið/RAX Klæðning á kerskála N orðuráls Hægt miðar í sjómannadeilimni Aðeins jákvæðari tónn eftir sáttafund í gær HÆGT miðar í samkomulagsátt í sjómannadeilunni og voru menn já- kvæðari eftir fund gærdagsins, en þeir voru eftir að þráðurinn var tekinn upp á nýjan leik á samn- ingafundinum á þriðjudag þegar ekkert miðaði. Nýr fundur hefur verið boðaður í deilunni fyrir há- degi í dag, en verkfall sjómanna hefst klukkan 23 á sunnudaginn kemur, 15. mars, hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Guðjón Arnar Kristjánsson, for- maður Farmanna- og fiskimanna- sambandsins, sagði að viðræðurnar hefðu verið jákvæðari á fundinum í gær en þær hefðu verið daginn áð- ur, hvað svo sem dagurinn í dag bæri í skauti sínu í þeim efnum. Fram kom að gengið hefði verið frá ákvæðum varðandi endur- menntunaiTnál Farmanna- og fiski- mannasambandsins á fundinum í gær. Aðspurður hvort hann væri enn þeirrar skoðunar að hægt væri að klára samninga á þremur sólar- hringum ef gengið væri til þess verks af heilindum, eins og hann hefði látið hafa eftir sér, sagðist hann vera eindregið þeirrar skoð- unar. Guðjón sagði að nú væri búið að fara yfii- kröfugerðirnar að mestu leyti. Menn væru svona að þreifa sig áfram. „Það er oft svolítið erfitt að byrja að slaka," sagði hann enn- fremur. Ágreiningsefnum fækkar Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, sagði að þokast hefði í átt- ina á fundinum í gær og ágrein- ingsefnum hefði fækkað. Viðræð- urnar hefðu verið á jákvæðari nót- um en undanfarna daga, en hins vegar væri heilmikið eftir ennþá. STARFSMENN Lava hf., dótt- urfélags Islenskra aðalverk- taka, hafa lokið við að reisa stálvirki og klæða meginhluta kerskála Norðuráls á Grundar- tanga. Á myndinni er hluti starfsmannahópsins sem unnið hefur að verkefninu. Einnig er lokið við byggingu 2.700 fer- metra spennistöðvar og megin- hluta skautsmiðju, sem er níu þúsund fermetrar að stærð, samkvæmt upplýsingum frá LAVA. Á næstunni verður unn- ið að frágangsvinnu og reistur 2-3 þúsund fermetra steypu- skáli tengdur kerskálum. Að þessum verkum hefur unnið hátt í 100 manns á vöktum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.