Morgunblaðið - 03.04.1998, Page 2

Morgunblaðið - 03.04.1998, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Togað í ísnum ÍSSPÖNG var í um 12-15 sjómflur vestur af Kolbeinsey í gær og var rækjuskipið Svalbakur EA þar að veiðum og togaði í gegnum spöng- ina. I könnunarflugi TF-SYN, flugvélar Land- helgisgæslunnar, var komið að ísbrúninni 84 sjdmflum vestnorðvestur af Bjargtöngum og var flogið með henni til NA að Fonti. Þéttleiki ísbrúnarinnar reyndist víðast hvar vera 7-9/10 og voru ísdreifar og gisnar ísrastir í allt að 10 sjómflur út frá ísjaðrinum. Vegna slæms skyggnis var aðeins um ratsjárkönnun að ræða að hluta. Viðskiptaráðherra fékk rangar upplýsingar um kostnað Landsbankans vegna kaupa á laxveiðileyfum Kostnaður var 41,7 millj- ónir en ekki 18,3 milljónir Tvíburar dæmdir fyrir manndráp Dómur yf- ir öðrum þyngdur um 4 ár HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær tví- burabræðuma Ólaf Hannes Hálf- dánarson og Sigurð Júlíus Hálfdán- arson í tólf ára og sextán ára langt fangelsi fyrir að hafa orðið Lárusi Ágústi Lárussyni að bana í Heiðmörk í byrjun október sl. og rænt hann. Þá era þeir dæmdir til að greiða sambýliskonu Lárusar heitins og þremur ófjárráða sonum hans sam- tals rúmlega 8,4 milljónir króna í skaðabætur auk vaxta, ásamt því að greiða 850 þúsund krónur í máls- og sakarkostnað, samtals um 9,25 millj- ónir króna. Til frádráttar refsingu þeirra bræðra kemur gæsluvarð- haldsvist þeirra frá 3. október 1997. Ólafur Hannes fékk átta ára fang- elsi í Héraðsdómi Reykjaness vegna þessa máls og krafðist lækkunar á refsingu við áfrýjun, en Hæstarétti þótti ástæða til að þyngja refsingu hans um fjögur ár. Sigurður Júlíus breytti framburði sínum eftir að dómur féll í héraðsdómi bróður sín- um í hag en breyttur framburður hafði ekki áhrif á niðurstöðu dóms- ins. Dómur sá sem Sigurður Júlíus hlaut í héraðsdómi var hins vegar staðfestur, en hann gerði einnig kröfu um refsilækkun, jafnframt því að í stað venjulegrar refsivistar í fangelsi verði hann dæmdur til að afplána dóm sinn á viðeigandi stofn- un. Hæstiréttur taldi ekki ástæðu til að Sigurður afplánaði refsingu sína á stofnun, en við það verði að miða að vistun hans við afplánun verði í samræmi við heilsu hans. Hæstiréttur segir í dómi sínum að bræðumir séu einir til frásagnar um hvað gerðist þegar Lárus beið bana og hafí frásögn þeirra tekið nokkrum breytingum meðan á meðferð og rannsókn málsins stóð. Þó þyki Ijóst að þeir hafi elt Lárus uppi eftir að hann komst út úr bifreið þeirra í Heiðmörk og hvarf þeim sjónum. Ók yfir liggjandi manninn „Eftir að þeir fundu hann aftur réðust þeir að honum og eftir ein- hver átök yfirbuguðu þeir hann og hjálpuðust að við að koma honum á veginn þar sem bifreiðin var. Var hann þá að þrotum kominn og féll til jarðar rétt framan við bifreiðina. Sem þeir stóðu þarna yfir honum keyrði ákærði Sigurður stóran stein í höfuð hans, að minnsta kosti tví- vegis, og lá hann eftir það ósjálf- bjarga. I beinu framhaldi þessa, eft- ir að annar ákærðu tók veski Lárus- ar, fóru þeir upp 1 bifreiðina. Ákærði Ólafur settist undir stýri og ók beint yfír hinn liggjandi mann,“ segir í dómi Hæstaréttar. Hæstaréttardómararnir Pétur Kr. Hafstein, Garðar Gíslason, Haraldur Henrysson, Hjörtur Torfason og Hrafn Bragason kváðu upp dóminn. ATHUGUN Ríkisendurskoðunar hefur leitt í ljós að kostnaður Lands- bankans og dótturfyrirtækja af lax- veiðiferðum síðastliðin fimm ár er tæplega 42 milljónir króna en ekki 18,3 milljónir eins og bankinn upp- lýsti viðskiptaráðherra um og hann greindi frá í svari við fyrirspurn á Alþingi í síðasta mánuði. Finnur Ing- ólfsson viðskiptaráðherra sagði í gærkvöld að hann liti þetta mál mjög alvarlegum augum og það væri álits- hnekkir fyrir bankann. Ríkisendurskoðandi ákvað að taka fyrir alla laxveiði á vegum Lands- bankans og dótturfélaga bankans í kjölfar þess að Sverrii- Hermanns- son bankastjóri óskaði eftir úttekt á meintum kaupum bankans á veiði- leyfum í Hrútafjarðará. í framhaldi af þessu óskaði bankaráð Lands- bankans eftir því að Ríkisendurskoð- un framkvæmdi einnig sérstaka at- hugun á öllum risnukostnaði bank- ans 1994-1997 svo og öllum ferða- kostnaði innanlands og erlendis og bifreiða- og aksturskostnaði. í fram- haldi af frumathugun Ríkisendur- skoðunar á þessum málum hefur hún gert bankaráðinu viðvart um að svar bankans til viðskiptaráðherra vegna fyrirspurnar á Alþingi um kostnað bankans vegna laxveiða sé ekki nægjanlega nákvæmt og í framhaldi af þessari ábendingu hefur Ríkisend- urskoðun að ósk bankaráðsins kann- að þennan þátt sérstaklega. Sverrir Hermannsson vildi ekki tjá sig um þetta mál þegar rætt var við hann í gærkvöld. I upphaflegu svari Landsbankans frá 3. mars sl. kom fram að kostnaður Landsbankans sjálfs af laxveiðiferð- um er talinn hafa numið 18.309.000 kr., en þær upplýsingar sem nú liggja fyrir bera hins vegar með sér að þessi kostnaður nam 41.667.000 kr. í fréttatilkynningu frá bankaráðinu segir að þessi hækkun skýrist meðal annars í fyrsta lagi af því að nú er meðtalinn allur laxveiðikostnaður dótturfélaga bankans, í öðru lagi er þátttaka bankans í kostnaði við lax- veiðiferðir með dótturfélögum og/eða hlutdeildarfélögum og öðrum bönk- um talin með. Þar segir að í þriðja lagi hafi annar kostnaður í tengslum við veiðiferðirnar ekki verið að fullu tilgreindur í fyrra svari bankans. Harmar Landsbanki íslands þessi mistök og hefur þegar gert viðskipta- ráðherra grein íýrir þeim bréflega. Lítur á þetta sem slys Finnur Ingólfsson viðskiptaráð- herra sagði í samtali við Morgun- blaðið að hann liti þetta mál mjög al- varlegum augum og hans fyrstu við- brögð hefðu verið að senda forseta Alþingis leiðréttar upplýsingar til að koma á framfæri við þingið eins fljótt og auðið væri. Finnur sagðist ekki hafa haft neinar efasemdir um að fyrstu upplýsingamar frá Lands- bankanum hefðu verið í góðu lagi og eins sagðist hann ekki hafa efasemd- ir um að þær upplýsingar sem hann hefði fengið m.a. um risnukostnað Landsbankans og lagt fyrir Alþingi hefðu verið réttar. ,Á meðan ég veit ekki annað vil ég líta á þetta sem einstök mistök ein- göngu í sambandi við þetta svar. Ég hef enga ástæðu tO að ætla að menn séu að gefa rangar upplýsingar að yfírlögðu ráði og lít á þetta sem slys. Ég mun hins vegar óska skýringa á því frá stjórnendum bankans hvem- ig þetta er til komið,“ sagði Finnur. Hann sagði að ef í ljós kæmi að vísvitandi hefðu verið gefnar rangar upplýsingar um laxveiðikostnað Landsbankans þá væri það enn al- varlegra mál, en hann tryði því hins vegar ekki að svo gæti verið. „Þetta er traustasti banki landsins og stærsti banki landsins og hefur notið mikils álits og mikillar virðing- ar og trausts og hann nýtur þess áfram, vona ég, en það er hins vegar engum vafa undirorpið að þetta er áfall fyrir bankann að lenda í. Ekki fjárhagslegt áfall heldur álitshnekk- ir,“ sagði Finnur. Aðspurður sagði Finnur að hann hefði farið í laxveiði í boði Halldórs Guðbjarnarsonar, bankastjóra Landsbankans, í Selá árið 1994. Þangað hefði honum verið boðið sem alþingismanni með bankastjóra er- lends banka. „Ég veiddi síðan á árinu 1996 á efra svæðinu í Selá og þar greiddi ég eigin reikning og það var ekkert á vegum Landsbankans," sagði Finn- ur. Málið rætt í þingi þegar það kemur saman Ólafui- G. Einarsson, forseti Al- þingis, sagðist hafa gert Jóhönnu Sigurðardóttur, þingflokki jafnaðar- manna, grein íyrir hinum nýju upp- lýsingum frá bankaráði Landsbank- ans, en Jóhanna bar fram fyrir- spurnina til viðskiptaráðherra um laxveiðikostnað ríkisbankanna. Hann sagði að upplýsingarnar yrðu birtar í þingskjali og málið yrði rætt í þinginu þegar það kemur saman. „Mér þykir það auðvitað jafn vont og ráðherranum að rangar upplýs- ingar séu gefnar þinginu. Ráðhen'- ann hefur gert gi'ein fyrir því í bréfi til mín að hann muni krefja banka- ráðið um skýringar á því hvernig það hafi mátt verða að hann fékk rangar upplýsingar og hann muni gera mér grein fyrir þeim svörum þegar þau berast," sagði Ólafur. Kjartan Gunnarsson, sem situr í bankaráði Landsbankans og var for- maður þess á umræddu tímabili, vildi ekkert láta eftir sér hafa um málið í gær, né heldur Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi. ■ Yfirlýsing/10 Kvennablabafrœbi áttunda til tíunda áratugarsins • WWWWWTHWtO ffg Hermannaföt og út- víðar brettabuxur /B1 Brjóst endurskapað úr eigin vef /B4 :ennablaðafræði Götutíska: Eldheit ást og píuböll í Dillonshúsi /B6 ‘70-’80 Jóhann Haukur meiddist á æfingu fyrir Landsmótið/C1 KA sigraði Val í fyrsta leik undanúrslitanna /C2 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is Tíska Bfl D - r— D

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.