Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Morgunblaðið/Gunnar Þór Hallgrímsson
Glókollar
í Elliða-
árdal
FUGLAÁHUGAMENN hafa að
undanförnu orðið varir við þrjá
glókolla (Regulus regulus) í
Elliðaárdalnum í Reylqavi'k.
Glókollar eru minnstu fuglar í
Evrópu, aðeins 9 sm að lengd.
Þeir eru auðgreindir á gulum
kolli eða kórónu og eru oft
nefndir fuglakóngar vegna þessa
einkennis.
Glókollarnir þrír hafa að öllum
líkindum flækst hingað síðastlið-
ið haust og haldið til hér í vetur.
Þótt þeir séu smáir eiga þeir
auðvelt með að lifa af íslenskan
vetur og gætu mögulega tekið
upp á að verpa hérlendis, að
sögn Gunnars Þórs Hallgríms-
sonar fuglaáhugamanns.
Konan
sem lést
KONAN sem lést, þegar ekið var á
hana við gatnamót Háaleitisbraut-
ar, Safamýrar og Armúla í fyrra-
dag, hét Kristín Auðunsdóttir.
Kristín var á áttugasta og öðru
aldursári, fædd 29. júní árið 1916.
Hún var búsett í Bólstaðarhh'ð.
Kristín var ekkja en lætur eftir sig
þrjú uppkomin böm.
Fiskimjölsverksmiðja SR-mjöls á Seyðisfírði
Mildi að engan sakaði
er þurrkari sprakk
Seyðisfirði. Morgunblaðid.
ENGAN sakaði er mikil
sprenging varð í fiski-
mjölsverksmiðju SR-Mjöls
á Seyðisfirði aðfaranótt
fímmtudagsins. Hvellurinn
heyrðist um allan bæ og
vöknuðu sumir bæjarbúar
við lætin. Sprengingin
varð þegar verið var að
tæma mjölþurrkara. Mikill
hiti var í þurrkaranum og
við þær aðstæður getur
kviknað í mjölryki sem þá
brennur mjög hratt.
Skemmdir urðu töluverðar.
Svokallaður mjölkassi,
sem er umfangsmikill bún-
aður við enda þurrkarans,
losnaði frá og skekktist á
undirstöðum. Utiklæðning
verksmiðjuhússins losnaði
frá víða og sumstaðar rifn-
uðu stórar bárujámsplöt-
ur alveg af. Stórar útidyr
þeyttust af, auk þess sem
þakplötur losnuðu.
Fimm menn vom við
vinnu á svæðinu þegar at-
burðurinn átti sér stað.
Þar af vom fjórir í stjóm-
stöð, en aðeins einn í véla-
sal. Maðurinn sem var í
sjálfu verksmiðjuhúsinu
var staddur við útvegg þar
sem öll klæðning þeyttist
af svo að aðeins grindin
á Seyðisfirði áður. Örygg-
isbúnaður er á þurrkumn-
um, svokölluð sprengilúga’
sem opnast ef sprenging
verður. Hún hefur hingað
til dugað, og virkaði
reyndar nú einnig. Hins
vegar er ekki ljóst hvers
vegna sprengingin nú varð
svo öflug að öryggisbúnað-
urinn dugði ekki til.
Gunnar sagði að farið
yrði yfir allan ferihnn og
allt kapp lagt á að fyrir-
byggja að slíkur atburður
gæti endurtekið sig. Hann
sagði ljóst að tjón væri
verulegt, en ekki væri, að
svo komnu máh, hægt að
segja hversu mikið í krón-
um taUð.
Framleiðslu
haldið áfram
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
BÁRUJÁRNSPLÖTUR flettust utan af verk-
smiðjubyggingunni í sprengingunni. Einn af
starfsmönnum verksmiðjunnar stóð við vegginn
þegar sprengingin varð og má teljast mildi að
hann skyldi ekki saka.
ein stóð eftir. Mesta mildi þykir að
hann skyldi sleppa með skrekkinn.
Að sögn Gunnars Sverrissonar
verksmiðjustjóra era sprengingar í unni
mjölþurrkumm vel þekkt fyrir- gerð
bæri og hafa orðið í verksmiðjunni hefst.
Framleiðslu í verksmiðj-
unni var haldið áfram í
gær. Þurrkarar em tveir
og tókst mönnum fljótlega
að ganga þannig frá að
hægt væri að halda áfram
með aðeins annan þeirra.
Trúlega verður lokið við að
bræða það hráefni sem til
er í verksmiðjunni fyrir
helgi. Ekki er von á loðnu
til Seyðisfjarðar á næst-
og gert ráð fyrir því að við-
verði lokáð þegar næsta töm
Dómur um biðlaun
Ráðuneyt-
ið áfrýjar
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur ákveðið að áfrýja til
Hæstaréttar dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur frá 1. apríl sl. um
að íslenska í-íkinu beri að
greiða sex starfsmönnum
Lyfjaverslunar Islands hf., sem
áður störfuðu hjá Lyfjaverslun
ríkisins, biðlaun vegna breyt-
inga sem gerðar vom á starfs-
kjörum þeirra.
Starfsmennirnir sex höfðuðu
mál hver um sig og vom kröfur
þeirra á bilinu 417.000 til
1.313.000 kr. Dæmdi héraðs-
dómur ríkið til að greiða upp-
hæðimar með dráttarvöxtum
frá 10. janúar 1997 og auk þess
samtals 890.000 kr. í máls-
kostnað.
Steingrímur Ari Arason, að-
stoðarmaður fjármálaráðherra,
vildi lítið tjá sig um málið en
sagði að ráðuneytið væri ósátt
við dóminn.
Slys vegna
farsíma-
notkunar
MAÐUR slapp ómeiddur en
bifreið hans stórskemmdist eft-
ir að hún fór út af og valt á
Ólafsvíkurvegi í gær.
Maðurinn var, að sögn lög-
reglu, að ræða í farsíma meðan
á akstri stóð og missti vald á
bílnum. Um jeppabifreið er að
ræða og þurfti að fá vömbíl til
að fjarlægja hana. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu er
mildi að ekki fór verr.
>
Hæstiréttur dæmir í máli Húsnæðisstofnunar gegn formanni Húseigendafélagsins
Ummæli ekki dæmd ómerk
i
HÆSTIRÉTTUR hefur að miklu
leyti sýknað Sigurð Helga Guð-
jónsson, formann og framkvæmda-
stjóra Húseigendafélagsins, af
kröfu Húsnæðisstofnunar ríkisins
og þrettán starfsmanna hennar um
ómerkingu ummæla sem hann lét
falla um Húsnæðisstofnun og lög-
fræðideild stofnunarinnar í frétta-
tímum Stöðvar 2 og Bylgjunnar í
október 1996.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði
dæmt flest ummælin sem Sigurður
Helgi viðhafði ómerk og dæmt
hann og Húseigendafélagið til
greiðslu miskabóta, birtingar
dómsins og málskostnaðar.
Orðastaður er fyrsta íslenska
orðabókin sem samin er til að
lýsa málnotkun og orðtengslum.
• 11.000 uppflettiorð
• 45.000 orðaeambönd
• 15.000 notkunardsmi
• 100.000 samsett orð
Málavextir em þeir að Sigurður
Helgi ritaði Húsnæðisstofnun bréf
11. september 1996, þar sem hann
gerði í nafni félagsins kröfu um að
stofnunin endurskoðaði afstöðu
sína í máli konu sem taldi sig eiga
skildar bætur frá hendi stofnunar-
innar vegna fasteignakaupa Bygg-
ingarsjóðs ríkisins.
Stofnunin vísaði kröfum Húseig-
endafélagsins fyrir hönd konunnar
á bug með bréfi mánuði síðar og fór
Sigurður Helgi í viðtal á Stöð 2 og
Bylgjunni nokkm síðar vegna máls-
ins og viðhafði þau ummæli sem
óskað var ómerkingar á. í kjölfarið
óskaði framkvæmdastjóri Húsnæð-
isstofnunar við stjóm félagsins eftir
opinberri afsökun á ummælum for-
mannsins í garð stofnunarinnar og
starfsmanna hennar.
Stjómin varð ekki við þeirri ósk,
heldur staðfesti á stjórnarfundi 9.
nóvember 1996 að ummælin væra
sett fram í nafni félagsins og með
fullum stuðningi allra stjómar-
manna. í framhaldi af þessu
stefndi stofnunin og starfsmenn
lögfræðideildar hennar Sigurði.
Ekki farið út fyrir
mörk tjáningarfrelsis
Orðastaður á heima við hlið
íslenskrar orðabókar.
0
ÉÉóft
fWfxi og monning
Laugavegl 18 • Siml 515 2500 • Síðumúla 7 • Slml 510 2500
í dómi Hæstaréttar segir að
mörg ummæla Sigurðar Helga hafi
verið óvægin og harkaleg, en við
ákvörðun þess hvort hann hafi með
þeim farið út fyrir mörk tjáningar-
frelsis verði hins vegar fallist á þau
rök hans sem lúta að því að játa
verði mönnum rúmu tjáningar-
frelsi á því sviði sem hér um ræðir.
Einnig verði fallist á að mörg
ummælin hafi falið í sér gildisdóma
þar sem Sigurður Helgi hafi lagt
mat sitt á staðreyndir sem hann
hafi talið vera fyrir hendi. Hann
hafi í málsvöm sinni gert grein fyr-
ir misbrestum í starfsemi Húsnæð-
isstofnunar ríkisins og lögfræði-
deild hennar og verði fallist á að
hann hafi með því rennt nægum
stoðum undir þá niðurstöðu að ekki
hafi verið farið út fyrir mörk tján-
ingarfrelsis með því að lýsa skoð-
unum sem í flestum þessara gildis-
dóma birtast.
Meðal þeirra ummæla sem
dæmd höfðu verið ómerk í héraðs-
dómi en Hæstiréttur fellst ekki á
ómeridngu á era ummæli um að
saga Húsnæðisstofnunar sé svört,
vörðuð spillingu, hroka, vanhæfni
og eiginhagsmunapoti, og þar séu
brotnar allar góðar venjur og regl-
ur í stjómsýslunni.
Einnig þessi ummæli Sigurðar
Helga: „Það er ljóst að það em
margar meinsemdir og innanmein
sem hrjá líkama þessarar stofnun-
ar og ég held að lögfræðideildin sé
jafnvel sú illkynjaðasta." Segir í
dómi Hæstaréttar að sú líking sem
Sigurður Helgi hafi dregið með
þessu upp af ástandi mála hjá Hús-
næðisstofnun ríkisins sé hvöss og
óvægin. Engu að síður verði að játa
honum heimild til að setja fram
skoðun sína á stofnuninni með
þeim hætti sem gert var í Ijósi þess
sem fram hafi komið.
Hins vegar staðfestir Hæstirétt-
ur m.a. ómerkingu ummæla þar
sem segir „lögfræðingar deildar-
innar hafa í gegnum tíðina stundað
fjárplógsstarfsemi í eiginhags-
munaskyni á kostnað fólks í nauð-
um, þeir hafa ótal sporslur í gegn-
um uppboðsmeðferð á fólki sem
minnst má sín“, og ummæla um að
eftir lögfræðideildina liggi slóð af
klúðri sem kostað hafi Húsnæðis-
stofnun og borgara landsins háar
fjárhæðir. Þá staðfestir Hæstirétt-
ur ómerkingu ummæla um að enn
hafi margar og alvarlegar brota-
lamir í starfsemi stofnunarinnar
ekki séð dagsins ljós. Engum stoð-
um hafi verið rennt undir þessar
staðhæfingar og sýnist ummælin
vera úr lausu lofti gripin.
Ekki fallist á kröfu
um miskabætur
t
i
Sigurði Helga og Húseigendafé-
laginu var í héraðsdómi gert að
greiða 120 þúsund krónur í sekt eða
sæta 12 daga varðhaldi ella, greiða
málskostnað stefnenda, Húsnæðis-
stofnunar ríkisins og þrettán ein-
staklinga sem starfa innan hennar,
samtals 350 þúsund krónur að við-
bættum virðisaukaskatti, greiða
miskabætur að upphæð 20 þúsund
krónur fyrir hvem og einn stefn-
anda að undanstólinni Húsnæðis-
stofhun ríkisins og til að greiða 200
þúsund krónur vegna kostnaðar við
að birta dóminn, forsendur hans og
dómsorð í þremur dagblöðum.
Heildarkostnaður sem þannig féll á
hinn steftida nam um 930 þúsund
krónum, fyrir utan vexti.
Hæstiréttur telur að þegar öll
atvik málsins séu virt þyki ekki
ástæða til að fallast á kröfur um
refsingu, miskabætur og kostnað
við birtingu dóms og em Sigurður
Helgi og Húseigendafélagið því
sýknuð af þeim. Hins vegar ber
þeim samkvæmt dómi Hæstaréttar
að greiða Húsnæðisstofnun ríkisins
og einstaklingunum þrettán 25
þúsund kr. hverju í málskostnað í
héraði og fyrir Hæstarétti.
Mál þetta dæmdu hæstaréttar-
dómararnir Guðrún Erlendsdóttir,
Gunnlaugur Claessen og Haraldur
Henrysson.