Morgunblaðið - 03.04.1998, Page 14

Morgunblaðið - 03.04.1998, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞESSIR kappar voru í góðum málum er Hörgsá á Síðu var opnuð, f.v. eru Jóhannes Sigmarsson, Jón Kristinn Jónsson, Sigmar Rafn Jóhannesson og Jón Marteinsson. Fiskur Jóns Kristins er sá stærsti sem enn hefur frést af í vorveiðinni, 11 punda. Bleikjan gaf sig í Soginu BLEIKJUSVÆÐIN í Soginu komu skemmtilega á óvart er opnað var 1. apríl síðastliðinn. Ain hefur aldrei verið opnuð svo snemma fyrr og skruppu tveir nauðakunnugir menn, meira til að athuga hvort eitthvað væri af fiski. Þeir komu ekki tómhentir heim, heldur drógu fyrst 20 bleikjur og einn sjóbirting. „Þetta kom okkur að sjálf- sögðu skemmtilega á óvart. Það hefur lengi loðað við Sogið að ekki sé hægt að ná úr því silungi fyrr en liðið er vel á maí vegna vatnskulda. En það er mikið af bleikju þama víða og aðalatriðið er að koma agninu vel niður, því bleikjan liggur djúpt,“ sagði Jón Þ. Einarsson í samtali við Morg- unblaðið í gærdag, en hann var við annan mann í stórveiði á mið- vikudag. Þeir félagar byrjuðu á silunga- svæði Ásgarðs og höfðu þá vind- inn í bakið. Skipti engum togum að þeir drógu 14 stórbleikjur, allt að 5 punda, en flestar um 2 pund, á skömmum tíma. Síðan fóm þeir yfir um til að reyna frá Bíldsfells- landi. Það gekk brösulegar vegna hávaðaroks í fangið. Eigi að síður fengu þeir 6 físka, allt að 5,5 punda, og sáu talsvert af bleikju. Þeir veiddu allt á flugu, rauða Nobblera á bilinu 4 til 10 og Peacock kúluhausa. „Við vorum alsælir, þetta voru aðeins 3-4 klukkutímar," sagði Jón. Héðan og þaðan Veiðimenn sem áttu reyndar leyfí í Hörgsá og Eldvatni gátu ekki á sér setið og renndu í mið- degishléinu í Hæðargarðsvatn sem er rétt við Kirkjubæjar- klaustur, en leyfi í ámar fylgir einnig réttur í vatnið þótt fáir nýti það. Þeir sem um ræðir dorguðu með maðki í klukkutíma og fengu tvo urriða, 5 og 5,5 punda. Fyrsti dagurinn í Eidvatni á Bmnasandi gaf fímm sjóbirtinga, 3 til 5 punda og síðan hafa menn reytt upp fisk. I Hörgsá dró örlít- ið úr eftir stórveiði fyrsta morg- uninn. Það stafað aðallega af því að menn fóra og könnuðu aðra staði en þennan stóra neðst í ánni þar sem gríðarleg torfa af birt- ingi heldur til. Nokkrir fiskar bættust við á miðvikudagskvöld og í gærmorgun. Það sama er að segja um Geir- landsá. Jónas Ingimundarson, veiðimaður við ána, sagði í gær- dag að veiði hefði verið jöfn og góð þrátt fyrir leiðindaveður og væru komnir alls 23 birtingar dauðir í kælinn, en 18 hafði verið sleppt. Fiskurinn er mest á bilinu 3 til 6 pund og sá stærsti veiddist í gærmorgun, 9 punda á Reflex spón í hylnum Bláberjabrekku. „Við fórum um allt svæðið í morgun og það var fískur í öllum hyljum,“ bætti Jónas við. Flóttamenn frá fyrrverandi Júgóslavíu fari til Blönduóss Sendinefnd velur hópinn eftir helgi FLÓTTAMANNARÁÐ hefur iagt til að þegið verði boð bæjarstjórnar Blönduóss um að tuttugu manna hópur flóttamanna frá ríkjum fyrr- verandi Júgóslavíu fari þangað til dvalar. Páll Pétursson félagsmálaráð- hen’a segir að stefnt sé að því að flóttamennirnir fari til Blönduóss, og verði hópurinn valinn eftir næstu helgi. Ráðherra líklega í för Alþjóðaflóttamannastofnunin hef- ur aflient Rauða krossi Islands lista með nöfnum fjölskyldna sem til greina koma og fer hópur frá RKÍ til Belgrad og fleiri borga í fyrrum Júgóslavíu um helgina í því skyni. Um blandaðar fjölskyldur er að ræða, þ.e. hjónin era af serbneskum og króatískum upprana, og eiga af þeim sökum hvorki athvarf á yfír- ráðasvæðum Serba né Króata. Páll segir líklegt að hann muni fara með sendinefndinni sem full- skipuð er ellefu manns, þar af fimm sjónvarpsmenn sem fari á eigin kostnað. Ferð hans velti meðal ann- ars á hvort sjónvarpsmennirnir fái vegabréfsáritun fyrir ferðina. Yfir- völd ytra hafa verið treg til að sam- þykkja áritanir fyrir þá menn, en þeir hyggjast fjalla um val og mót- töku flóttamanna. „Ef óeðlileg tregða er og ein- hverjir úr sendinefndinni sitja heima fínnst mér til umhugsunar hvort ég eigi að fara. Ef ég fer mun ég ekki taka þátt í valinu, heldur bjóða fólkið velkomið og kynna mer aðstæður þess með eigin augum. Ég legg upp úr að við reynum að taka myndarlega á móti flóttamönnum, sjá vel um þá og ieyfa þeim að fínna að þeir era velkomnir," segir Páll. Hann segir að verði af ferð hans muni hann ekki fara á vegum ríkis- stjómarinnar. Hann stefni að því að fara á sunnudag en fulltrúar RKI fari á laugardag. Kostnaður um 100 milljónir Alls hafa um fímmtíu flóttamenn komið hingað til lands frá fyrrum Júgóslavíu, þar af um 30 til ísafjarð- ar og um 20 til Homafjarðar. Með þeim hópi sem er væntanlegur er samtals um sjötíu manns að ræða. Páll segir ekki búið að taka sam- an kostnað ríkisins í tengslum við móttöku þeirra, en hann sé talinn nema um hálfri annarri milljón króna á hvern einstakling sem hing- að kemur, fyrsta ár dvalarinnar. Eftir þann tíma á fólkið að sjá um sig sjálft. Miðað við þá tölu nemur heildarkostnaður um hundrað millj- ónum króna. Auk Blönduóss sýndu Snæfells- bær og Seyðisfjörður áhuga á að fá flóttamenn frá fyrrum Júgóslavíu og segir Páll báða bæina koma til greina verði framhald á að flótta- menn fái dvalarleyfi hérlendis. „Blönduós bauðst tii að taka við þeim hópi sem fór til Hafnar í Hornafirði og verður fyrir valinu nú. Á meðan ég er í ráðuneytinu mun ég gera tillögu um að einhver hópur flóttamanna verði fenginn tii landsins á hverju ári, og þá munum við líta til þeirra sveitarfélaga sem hafa sýnt málinu áhuga. Það er von- andi að hópur komi næsta ár. Hins vegar er óvíst hvað eftirmaður minn mun gera,“ segir Páll. Nordic Ice í Sandgerðishöfn Viðræður um björg- unarlaun VIÐRÆÐUR standa yfir miili út- gerðar Arneyjar KE og tryggingafé- lags flutningaskipsins Nordic Ice um björgunarlaun fyrir aðstoð sem Arn- ey veitti í Sandgerðishöfn er flutn- ingaskipið varð þar stjórniaust og olli nokkrum skemmdum í síðustu viku. Sjópróf fóru fram í málinu á fóstu- daginn var og sagði Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður, sem kemur fram fyrir hönd Ai-neyj- ar KE, að viðræður stæðu yfir við tryggingafélag flutningaskipsins um laun fyrh- aðstoðina og hann ætti von á að samkomulag tækist fljótlega í þeim efnum. Nordic Ice er tvö þúsund tonna flutningaskip frá Færeyjum sem er í reglubundnum siglingum milli Is- lands og Danmerkur og var hér til að sækja dýrafóður frá verksmiðju í Sandgerði. Morgunblaðið/Halldór NÝJU eigendurnir Vilberg Prebensson og Pétur H.R. Sigurðsson, en þeir hafa nú keypt rekstur þriggja verslana Vöruvals. Þrjár verslanir Vöru- vals á Isafirði seldar Geðhjálp motmæl- ir gagnagrunni um heilsufar Mosfellsprestakall Þrír sóttu um hálfa stöðu UMSÓKNARFRESTUR er runn- inn út um hálfa stöðu prests til eins árs í Mosfellsprestakalli. Umsækj- endur vora þrír, séra María Ágústs- dóttir og guðfræðingarnir Kristín Þórunn Tómasdóttir og Sigurður Rúnar Ragnarsson. Ráðið verður í stöðuna fljótlega eftir helgi. Þijú prestaköll auglýst Eftirtaiin þrjú prestsembætti hafa verið auglýst laus til umsókn- ar: Embætti sóknarprests í Skaga- strandarprestakalli, Húnavatnspró- fastsdæmi, embætti sóknarprests í Ofanleitisprestakalli, Vestmanna- eyjum, Kjaiamesprófastsdaemi, og embætti sóknarprests í Útskála- prestakalli, Kjalamesprófastsdæmi. Kirkjumálaráðherra skipar í embættin frá 1. júní 1998 til fímm ára. GEÐHJÁLP varar við því að heilsufarsupplýsingum um lands- menn verði safnað saman á einn stað án leyfís þeirra sem upplýsing- arnar eiga, þ.e. sjúklinganna. Þetta kemur fram í frétt frá Geðhjálp sem fer hér á eftir: „Geðhjálp hefur unnið að því að auka umræðu um geðsjúkdóma og auðvelda þannig fyrir einstakling- um sem eiga við geðsjúkdóma að stríða að leita sér aðstoðar og ræða opinskátt um sinn vanda. Hins veg- ar skýtur það skökku við þegar rík- isvaidið tekur ákvörðun um að flytja þessar upplýsingar frá þeim stað sem þær urðu til yfir til annars að- ila. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir að þegar sjúklingur gefur upp- lýsingar um sitt heilsufar t.d. þegar hann sækir um örorkulífeyrir til Tryggingastofnunar ríkisins gerir hann ekki ráð fyrir að þær upplýs- ingar verði notaðar seinna í allt öðr- um tiigangi af öðram starfsmönnum annarra stofnana. Það vær einnig skerðing á réttindum sjúklinga og vanvirðing við sjálfsákvörðunarrétt þeirra og mannréttindi. Trúnaður er sérstaklega mikil- vægur þegar um er að ræða geð- ræna kvilla og mótmælir Geðhjálp því framkomnu lagaframvarpi um söfnun allra heilsufarsupplýsinga í einn stóran gagnagrunn án sam- þykkis þeirra sem hluta eiga að máli.“ ísaQörður. Morgunbladið. GENGIÐ var frá sölu á rekstri verslana Vöruvals á ísafirði á þriðjudag. Um er að ræða þrjár verslanir, Vöruval á Skeiði, Vöruval í Hnífsdal og Björnsbúð á ísafirði. Kaupandinn er Mið- brún ehf., sem er að stærstum hluta í eigu bræðranna Péturs H.R. Sigurðssonar og Vilbergs Prebenssonar. Hinir nýju eigendur tóku við rekstrinum á miðvikudag og hef- ur verslununum verið gefið nafn- ið Eló. Fyrrverandi eigendur, Benedikt Kristjánsson og fjöl- skylda hans, munu samkvæmt upplýsingum blaðsins, áfram reka verslun Vöruvals í Bolung- arvík. „Við komum til með að reka verslanirnar undir nafninu EIó. Nafnið kemur frá langafa okkar, Sigurði Guðmundssyni, en hann rak verslun sem gekk undir þessu nafni til ársins 1923 í Sal- em-húsinu. Hér er því aðeins um endurupptöku á nafninu að ræða. Við erum staðráðnir í að reka versianirnar af fullum krafti og með svipuðu sniði og verið hefur a.m.k. til að byrja með. Allt starfsfólk Vöruvals hefur verið endurráðið og því verður ekki um neinar uppsagnir að ræða,“ sagði Pétur H.R. Sigurðsson í samtali við blaðið. Að sögn Péturs mun Vilbergur sjá um framkvæmdastjórn versl- ananna, en Pétur mun starfa við þær auk þess sem hann mun áfram reka fyrirtæki sitt, Háu- brún ehf., sem séð hefur um þrif í nokkrum af stærstu sjávarút- vegsfyrirtækjum á ísafirði og í Súðavík. Auk Péturs og Vilbergs eru sonur Péturs, Maron, og kona hans Marta Marteinsdóttir, eigendur að Miðbrún ehf. Stuttur aðdragandi „Kaupin áttu sér mjög stuttan aðdraganda og ástæðan fyrir því að við slógum til er sú að við tru- um á samfélagið. Við trúum því að það verði að vera tvær versl- anir í samkeppni á ísafirði og við erum tilbúnir til að takast á við verkefnið," sagði Pétur. ( ( ( i ( i ( ( ( i i i i ( i i í i c i I I 4 í j

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.