Morgunblaðið - 03.04.1998, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
geta skilað hárri ávöxtun
en þeim fylgir áhætta
SKULDABREF
- trygg fjárfesting
með takmarkaða ávöxtun
r
Munið 6. apríl.
Einstakt tækifæri!
LANDIÐ
Svæðisvinnumiðlun Norður-
lands vestra tekur til starfa
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
PÁLL Pétursson félagsmálaráðherra undirritar samstarfssamning við
INVEST um starf jafnréttisráðgjafa. Með honum á myndinni eru Bald-
ur Valgeirsson, framkvæmdastjóri INVEST, og hinn nýráðni jafnrétt-
isráðgjafí, Bjarnheiður Jóhannsdóttir.
Blönduósi - Svæðisvinnumiðlun
Norðurlands vestra tók formlega til
starfa á Blönduósi sl. fimmtudag að
viðstöddu fjölmenni. Það var félags-
málaráðherra, Páll Pétursson, sem
lýsti því yfir að starfsemin væri haf-
in, en hún er til húsa á Þverbraut 1
þar sem fyrir eru m.a. Iðnþróunar-
félag Norðurlands vestra (INVEST)
og verkalýðsfélagið Samstaða. Við
sama tækifæri undirritaði félags-
málaráðherra samstarfssamning við
INVEST um starf jafnréttisráð-
gjafa á Norðurlandi vestra.
Skrifstofa svæðisvinnumiðlunar á
Blönduósi er ein af átta vinnumiðl-
unum á landinu og er forstöðumað-
ur hennar Gunnar Richardsson.
Þessar svæðisskrifstofur heyra
undir Vinnumálastofnun, sem stofn-
uð var í samræmi við ný lög um
vinnumarkaðsaðgerðir og atvinnu-
leysistryggingar.
Gissur Pétursson, forstöðumaður
Vinnumálastofnunar, sagði það
mjög mikilvægt að þessi starfsemi
væri í tengslum og í sama húsnæði
og svipuð starfsemi þannig að fleiri
leituðu á skrifstofuna en þeir at-
vinnulausu. Með svæðisvinnumiðlun
Norðurlands vestra vinnur níu
manna ráðgjafanefnd auk fimm
manna úthlutunarnefndar atvinnu-
leysisbóta.
Gunnar Richardsson gat þess í
ræðu við opnun skrifstofunnar að
atvinnuástandið á Norðurlandi
vestra væri heldur bágborið og
nefndi til nokkrar ástæður. Það
kom fram hjá Gunnari að meðal-
fjöldi atvinnulausra í lok febrúar
væri 277 manns, en það svarar til
um 5,4% af áætluðum mannafla í
kjördæminu. Sagði hann þetta
mesta atvinnuleysi á landinu og
aukning hefði orðið um 8,9% frá því
í febrúar 1997. Atvinnuleysi hjá
körlum reyndist vera 3,6% en 8,1%
hjá konum og er það hvergi meira á
landinu sagði Gunnar.
Við sama tækifæri undirritaði
Páll Pétursson félagsmálaráðherra
samstarfssamning við INVEST um
að taka að sér umsjón með starfi
jafnréttisráðgjafa. Að sögn félags-
málaráðherra er þetta embætti nýtt
af nálinni hér á landi og hefur
Bjarnheiður Jóhannsdóttir verið
ráðin til starfans og kemur hún til
starfa í byrjun júní.
Morgunblaðið/Jón Sigurmundsson
Á MYNDINNI eru frá hægri: Víðir Þór Þrastarson, hnit, Hrafnhildur
Guðmundsdóttir, móðir Arnars Freys Ólafssonar, sundmanns og
íþróttamanns Þórs, Óskar Þórðarson, körfubolti, Viðar Ingason, fim-
leikar, Sigrún Dögg Þórðardóttir, fijálsar íþróttir, Magnús Sigurðs-
son, efnilegur unglingur, körfubolti, og Jón H. Sigurmundsson, þjálf-
ari í fijálsum iþróttum.
Arnar Freyr
íþrótta-
maður Þórs
Þorlákshöfn - Á aðalfundi Umf.
Þórs í Þorlákshöfn, sem haldinn
var fyrir skömmu, var sundmað-
urinn Arnar Freyr Ólafsson kjör-
inn íþróttamaður Þórs 1997.
Magnús Sigurðsson körfuknatt-
Ieiksmaður var valinn efnilegur
unglingur.
Stjórn félagsins var endur-
kjörin en hana skipa: Ragnar
Matthías Sigurðsson formaður,
Sigríður Áslaug Guðmundsdóttir
ritari og Edda Ríkharðsdóttir
gjaldkeri.
iLynghálsij
Lagerútsalan á hreinlætistækjunum, hvítum og lituðum,
heldur áfram í dag. Baðkör og sturtubotnar í ýmsum
litum frá kr. 3.500. Gólf og veggflísar frá kr. 500 pr. fm.
Málning og fuavarnarefni frá kr. 200 pr. lítri.
Takmarkað magn. Sprenghlægilegt verð.
Opió í dag 3. apríl kl. 14-18:30 á
Lynghálsi 10 í skemmunum bakvið Þýsk-íslenska.
M
Metró-Normann
Hallarmúla • sími 553 3331