Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
!
Batnandi afkoma hjá Tryggingu hf. á nýliðnu rekstrarári
Hagnaður 56
milljónir kr.
HAGNAÐUR Tryggingar hf. nam 56 milljónum króna á síðastliðnu
ári, samanborið við 42 milljóna hagnað árið 1996, og nemur aukningin
um 33% á milli ára. Eigin iðgjöld félagsins námu 597,5 milljónum
króna í fyrra en 580 milljónum árið áður og nemur aukningin 3%.
Bréf í AOL
hækka vegna
hækkana
keppinauta
New York. Reuters.
HLUTABRÉF í America On-
line Inc. hafa hækkað í verði
og ekki verið hærri í ár vegna
þess að nýlegar verðhækkanir
nokkurra keppinauta eru tald-
ar hagstæðar framtíðarhorfum
AOL.
Verð bréfa í AOL hækkaði
um 3,40 dollara í 71,95 dollara
1. apríl. Hagur AOL vænkaðist
einnig vegna þess að sérfræð-
ingar hækkuðu mat sitt á
hlutabréfum í fyrirtækinu og
kváðu þau góð kaup.
Sólarhring áður hafði
WorldNet þjónusta AT&T
Corp. tilkynnt að viðskiptavin-
ir yrðu krafðir um greiðslu
fyrir mánaðarlega notkun um-
fram 150 stundir í stað 19,95
dollara á mánuði fyrir ótak-
markaða þjónustu eins og áð-
ur.
Fyrirtæki Microsoft Corp.,
WebTV Networks, hækkar
mánaðargjald WebTV Plus
þjónustu sinnar í 24,95 dollara
úr 19,95 dollurum 1. júní.
Hagnaður af vátryggingarekstri
Tryggingar batnaði verulega á
milli ára og nam hann rúmum 48
milljónum króna, samanborið við
sex milljónir árið áður. Hagnaður
af fjármálastarfsemi var svipuð í
fyrra og árið 1996 og skilaði hún 51
milljón króna. Eigið fé fyrirtækis-
ins nam 333 milljónum króna um
síðustu áramót, samanborið við 295
milljónir árið áður.
Harðnandi samkeppni
Ágúst Ögmundsson, fram-
kvæmdastjóri vátryggingasviðs
Tryggingar, segist vera mjög sátt-
ur við afkomuna, ekki síst í ljósi
harðnandi samkeppni á trygginga-
markaðnum á síðasta ári. Sam-
keppnin var mest í bifreiðatrygg-
ingum þar sem iðgjöld lækkuðu um
25-30%. Um helmingur af heildar-
iðgjöldum fyrirtækisins eru bif-
reiðatryggingar og segist Ágúst
því vera sáttur við að það hafi hald-
ið sínum hlut. „Við erum með til-
tölulega hátt hlutfall bifreiðatrygg-
inga miðað við önnur félag en þeg-
ar á heildina er litið var afkoman
góð á síðasta ári. Við höfum lagt
meiri áherslu á að rækta viðskipta-
vini okkar betur en vera í beinni
markaðssókn en samt varð 19%
fjölgun á útgefnum skírteinum hjá
fyrirtækinu á síðasta ári.“
Ágúst er bjartsýnn á rekstur
ársins 1998 og á hann von á að af-
koman verði svipuð og í fyrra.
Aðalfundur Granda hf.
verður haldinn föstudaginn
3. apríl 1998, kl. 16:00
í matsal fyrirtækisins að
Norðurgarði, Reykjavík.
DAGSKRA
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og
ársreikningur félagsins munu liggja frammi
á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aöalfund.
Atkvæöaseölar og fundargögn veröa afhent
á fundarstað.
Óski hluthafar eftir aö ákveöin mál veröi
tekin til meöferöar á aðalfundinum, þarf
skrifleg beiöni um þaö aö hafa borist
félagsstjórn meö nægjanlegum fyrirvara,
þannig aö unnt sé aö taka málið á dagskrá
fundarins.
Hluthafar, sem ekki geta mætt á fundinn,
en hyggjast gefa umboö, þurfa aö gera
þaö skriflega.
STJÓRN GRANDA HF.
GRANDI HF. NORÐURGARÐI, 101 REYKJAVÍK
TRYGGING HF
Úr reikningum ársins 1997
Rekstrarreikningur Sf 1997 1996 Breyting
Tekjur oq qjöld af vátryqqinqarekstri: 597,5 580,1 +3,0%
Eigin iðgjöld
Eigin tjón (470,0) (545,2) ■13,8%
Fjárfestingartekjur af vátryggingarekstri 114,0 107,3 +6,2%
Hreinn rekstrarkostnaður (133,3) (120,4) +10,7%
Breyt'ng á útjöfnunarskuld (59,9) (15,6) +284,0%
Hagnaður af vátryggingarekstri 48,3 6,1 +691,8%
Tekjur oq qjöld af fjármálarekstri: Fjárfestingartekjur 167,0 162,8 +2,6%
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður (5,5) (5,3) +3,8%
Reikn. tekjur v. verðlagsbreytinga Fjárfest.tekjur yfirf. á vátrygg.rekstur 3,6 (114,0) 1,2 (107,3) +200,0% +6,2%
Hagnaður af fjármálarekstri 51,0 51,4 -0,8%
Aðrar tekjur og (gjöld) af reglul. starfs. Hagnaður fyrir tekju- og eignarskatta (17,8) 81,6 (1,2) 56,3 +1383,3% +44,9%
Tekju- og eignarskattar (25,3) (14,0) +80,7%
Hagnaður ársins 56,3 42,4 +32,8%
Efnahagsreikningur 31. des. 1997 1996 Breyting
Eiqnir:
Fjárfestingar 1.399,1 1.262,6 +10,8%
Hluti endurtryggjenda í vátrygg.skuld 437,5 375,6 +16,5%
Kröfur 244,7 261,0 -6,2%
Aðrar eignir 432,0 424,3 +1,8%
Eignir samtals: 2.513,3 2.323,5 +8,2%
Skuldir oq eiqið fé: 333,1 294,8
Eigiðfé +13,0%
Vátryggingaskuld 1.987,9 1.852,2 +7,3%
Geymslufé frá endurtryggjendum 42,6 41,4 +2,3%
Viðskiptaskuldir 84,1 84,4 -0,4%
Áfallinn kostn. og fyrirfr.innheimtar tekjur 65,5 50,6 +29,4%
Skuldir og eigið fé samtals: 2.513,3 2.323,5 +8,2%
Lands-
bankinn
lækkar
vexti
LANDSBANKI íslands hefur
lækkað vexti sína af almennum
sparisjóðsbókum, tékkareikning-
um, sértékkareikningum og verð-
tryggðum inn- og útlánum.
Innlánsvextir á almennum spari-
sjóðsbókum og sértékkareikning-
um lækkuðu um 0,3 prósentustig, í
0,70%, en vextir af almennum
tékkareikningum lækkuðu um 0,1
prósentustig, í 0,40.
Kjörvextir af verðtryggðum lán-
um með breytilega vexti lækkuðu
um 0,3 prósentustig og eru nú um
5,95%. Vextir af verðtryggðum inn-
lánum lækkuðu hins vegar um
0,15-0,35 prósentustig eftir bindi-
tíma.
Nýjar útlánareglur um verð-
tryggð fasteignalán til 5-25 ára
með fostum vöxtum hafa einnig
tekið gildi hjá bankanum og fela
þær í sér verulegar breytingar á
kjörum og skilyrðum fyrir slíkum
lánveitingum. Kjörvextir af þessum
lánum voru lækkaðir um 1,2 pró-
sentustig og eru nú á bilinu
6,05-8,05. Við ákvarðanir um vaxta-
kjör er tekið mið af veðsetningu í
fasteign og greiðslugetu viðskipta-
manna, en einungis er lánað gegn
veði í auðseljanlegum eignum.
Formaður stjórnar Samherja hf. um veiðileyfagjald
Umræður hvorki sann-
færandi né yfírvegaðar
KRISTJÁN Pór Júlíusson, formaður stjórnar Samherja hf., sagði á aðal-
fundi félagsins í gær að málflutningur þeirra sem töluðu fyrir auðlinda-
skatti eða veiðileyfagjaldi væri hvorki sannfærandi né yfirvegaður. Hann
sagði Islendinga hafa deilt um það síðustu 30 ár hvemig nýta mætti þá auð-
lind sem sjórinn umhverfis landið hefði að geyma, en árið 1983 var ákvörð-
un um núverandi kvótakerfi tekin og með því voru fiskimiðin girt af og ein-
staklingum úthlutað rétti til að sækja þangað inn.
Tæknival
Aðalfundur
Aðalfundur Tæknivals hf.
verður haldinn föstudaginn
3. apríl 1998 á Grand Hótel
Reykjavík og hefst fundurinn
kl. 16.00.
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum
félagsins.
2. Tillaga um heimild fyrir stjórn til kaupa á
eigin hlutum sbr. 55. gr. hl.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá og reikningar félagsins liggja frammi á
skrifstofu Tæknivals; hluthöfum til afhendingar viku
fyrir aðalfund. Fundargögn verða einnig afhent á
fundarstað.
Stjórn Tæknivals hf.
Ekki mikill agi
I
1
l
\
l
I
I
í
>
Kristján sagði að skiptar skoðan-
ir hafi verið um kerfið, en flestir
virðast telja þetta kerfi það hag-
kvæmasta sem völ er á til að stýra
sókn í takmarkaða fiskistofna. Þá
beri svo við að þungamiðja um-
ræðnanna flyst frá spurningunni
um hagkvæmni kerfisins yfir í
vangaveltur um réttmæti þess.
,A sautjándu og átjándu öld var
góður markaður fyrir fisk í útlönd-
um en lítil eftirspurn eftir landbún-
aðarvörum. Svo er enn í dag. Á
sautjándu og átjándu öld ákvað
Danakonungur sérstaklega verð á
þessum afurðum í samræmi við
þarfir og óskir ríkjandi valdastéttar,
bændahöfðingjanna. Með hagsmuni
þeirra í huga voru fiskveiðar skatt-
lagðar en landbúnaðarafurðir nutu
fríðinda. Tvö hundruð árum seinna
vilja talsmenn þessa sjónarmiðs -
flestir búsettir á höfuðbýli landsins
- skattleggja hjáleigur höfuðbólsins,
sjávarútvegsbæi vítt um land. Er
nema von að okkur hugnist ekki
þessar hugmyndir? Sú ofuráhersla
sem þessir einstaklingar leggja nú á
upptöku veiðileyfagjalds ruglar alla
skynsama umræðu um skattlagn-
ingu sameiginlegra auðlinda lands-
manna,“ sagði Kristján Pór.
[
I
I
>
!
Hann gerði verðbréfamarkaðinn
einnig að umtalsefni, í tengslum við
grun um óeðlileg viðskipti með
hlutabréf í nokkrum fyrirtækjum á
Verðbréfaþingi, m.a. í Samherja.
Verðbréfaþingið hafi sent frá sér
fréttatilkynningu sem þannig var
orðuð að hans mati að dómur var
kveðinn upp, sem tæpast sé í þess
verkahring. Niðurstaða Bankaeftir-
lits Seðlabankans hafi verið sú að
ekki væri ástæða til að hafast neitt
frekar að í málinu, „en skaðinn var
skeður. Þetta mál er í mínum huga
dæmi um vinnubrögð sem ekki bera
vott um mikinn aga,“ sagði Krist-
ján.