Morgunblaðið - 03.04.1998, Side 36
36 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Ásdís
NEMENDAÓPERAN hefur undirbúið ðperu- og söngleikjadagskrá sem
verður flutt í tónleikasal Söngskóians, Smára, á föstudag og laugardag.
Operu- og söngleikja-
kvöld Nemendaóperu
Söngskólans
NEMENDAÓPERA Söngskólans
í Reykjavík sýndi Töfraflautu
Mozarts sjö sinnum nú í mars og
var húsfyllir á öllum sýningum.
Samhliða æfingum og sýning-
um á Töfraflautinni hefur Nem-
endaóperan undirbúið óperu- og
söngleikjadagskrá sem verður á
fjölunum í tónleikasal Söngskól-
ans, Smára, Veghúsastíg 7, föstu-
dagskvöldið 3. apríl kl. 20.30 og
laugardaginn 4. apríl kl. 14.30.
Fyrir hlé verða flutt atriði úr
tveimur „dramati'skum" óperum,
Suor Angelica eftir Puccini og II
trovatore eftir Verdi. Eftir hlé
verða flutt atriði, einsöngslög,
dúettar og kórar úr amerískum
söngleik, Annie get your gun,
eftir Irvin Berlin.
Suor Angelica er ein af þrem-
ur óperum Puccinis er mynda „II
Trittico" og var frumsýnd í
Metropolitan óperunni árið 1918.
Óperan er skrifuð fyrir kven-
raddir eingöngu og er sögusviðið
klaustur í Siena á Italíu. Hér
verður fyrri hluti óperunnar
fluttur og fara Elma Atladóttir
og Svana Berglind Karlsdóttir
með stærstu hlutverkin, systur
Angelicu og systur Genovieffu.
Auk þeirra koma 16 söngkonur
fram í srnærri hlutverkum og
kór.
II trovatore - Trúbadúrsinn -
ein af vinsælustu óperum Verdis
var frumflutt í Róm 1853. Hér
verða flutt tvö atriði; Þórunn
Stefánsdóttir syngur sígaunakon-
una Azusenu og Stefán Helgi
Stefánsson og Örvar Már Krist-
insson skipta með sér hlutverki
fóstursonar hennar, trúbadúrsins
Manrico.
Iwona Jagla og Garðar Cortes
hafa annast undirbúning og
stjórna óperuhluta sýningarinn-
ar. Iwona Jagla leikur auk þess
undir á píanó.
í einsöngshlutverkum eru
Brynhildur Björnsdóttir, Eh'sa
Sigríður Vilbergsdóttir, Elíza
María Geirsdóttir, Hrólfur Sæ-
mundsson, Helga Kolbeinsdóttir,
Hjálmar P. Pétursson, Inga
Björg Stefánsdóttir, Sigrún
Pálmadóttir, Sigurður Haukur
Guðjónsson, Stefán Helgi Stef-
ánsson, Valgerður G. Guðnadótt-
ir, Þórunn Día Stefánsdóttir og
Örvar Már Kristinsson. Magnús
Ingimarsson hefur annast undir-
búning, sljórnar og leikur undir
á píanó.
Auk þeirra sem þegar hafa
verið upp taldir fara Arndís
Fannberg, Hrönn Helgadóttir,
Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir,
Lovísa Sigfúsdóttir, Nanna María
Cortes, Rósalind Gísladóttir og
Soffía Stefánsdóttir með hlut-
verk í sýningunum. Leiksljóri er
Ása Hlín Svavarsdóttir. Fleiri
sýningar eru ekki fyrirhugaðar
hjá Nemendaóperunni í vetur.
BARNAAFMÆLI (uppstilling), ljósmynd 1998. Þorbjörg Þorvaldsdóttir.
Þrettán uppstillingar
og eitt hús
ÞORBJÖRG Þorvaldsdóttir
opnar sýningu í Ásmundarsal _
við Freyjugötu, Listasafni ASI,
laugardaginn 4. apríl kl. 15.
Þar sýnir hún þrettán uppstill-
ingar og eitt hús.
Þetta er fyrsta stóra einka-
sýning Þorbjargar, en hún lauk
námi frá Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands 1993 og var
svo í framhaldsnámi í Frakk-
landi.
Hversdagskátína
Huldu Hákon
Sjónþing Gerðubergs
eru að hefjast að nýju.
Hulda Stefánsdóttir
fékk forsmekkinn að
því sem bíður áheyr-
enda á morgun, laugar-
daginn 4. apríl, kl. 11
árdegis þegar listakon-
an Hulda Hákon situr
fyrir svörum og rekur
feril sinn í máli og
myndum.
HANNES Sigurðsson, Hulda Hákon, Egill Helgason
og Halldór Björn Runólfsson.
ÍSLENSKA menningarsamsteyp-
an art.is annast Sjónþing Gerðu-
bergs í samvinnu við listadeild
staðarins og er þetta tíunda Sjón-
þingið í röðinni. Spyrlar eru Hall-
dór Bjöm Runólfsson listfræðingur
og Egill Helgason fréttamaður, en
umsjónarmaður er Hannes Sig-
urðsson, forstjóri art.is. Líkt og áð-
ur verður Sjónþinginu fylgt úr
hlaði með tveimur sýningum. I
Gerðubergi verður opnuð yfirlits-
sýning eldri verka Huldu Hákon og
að málþingi loknu á morgun verður
svo opnuð sýning á nýjum verkum
listakonunnar í Galleríi Sævars
Karls, Bankastræti 8.
Fyrir Huldu Hákon er mikil-
vægt að listin sé ekki sett fram til
höfuðs hversdagsleikanum þvi hún
er sér meðvituð um að sem lista-
maður er hún hluti af þeim veru-
leika sem við búum við. Halldór
Björn Runólfsson listfræðingur
hefur bent á að verk hennar dragi
dám af alþýðulist, séu n.k. nútíma
þjóðsögur, og að í gegnum verk
Huldu skíni einlæg ást á íslenskum
þjóðareinkennum. I seinni tíð hafa
skírskotanir hennar orðið almenn-
ara eðlis og ekki lengur bundnar
við litla einangraða þjóð norður í
íshafi heldur er fremur leikið á
sammannlega strengi; fáránleika
og kátínu lífsins.
Hulda er fædd í Reykjavík og
bjó um tíma í Keflavík. Hún kynnt-
ist fyrst myndlist af verkum afa-
bróður síns, Eyjólfs Eyfells.
Stærsta áhrifavald æsku sinnar tel-
ur Hulda vera föðurömmu sína,
Kristínu Margréti Jóseímu Bjöm-
son. Kristín Margrét hafði búið í
Bandaríkjunum í sex ár. Hún var
líka skáld og sendi frá sér bækur
undir dulnefninu Omar ungi.
„Amma sletti alltaf heilmikið ensku
og kallaði mig „honey pie“ og „sug-
ar“ á rnilli þess sem hún rakti fyrir
mér Islendingasögurnar og varaði
mig við að ærslast í kringum álfa-
steina. Hún var af aldamótakyn-
slóðinni og hafnaði algerlega hug-
myndum módernistanna, fannst 19.
öldin það eina sem vit væri í. I
henni bjó sérkennileg samsetning
heimsborgara og aldamótaróman-
tíkers.“
Árið 1981 lýkur Hulda námi frá
nýlistadeild Myndlista- og handíða-
skólans. Þar var þá deildarstjóri
Magnús Pálsson. Hulda segist vera
mjög ánægð með að hafa sótt ný-
listadeildina hér heima, sem þá
hafði orð á sér fyrir að vera hálf-
gerður „terroristaklúbbur", eins og
Egill bendir á. Þarna hafi hún tekið
út óöryggi sitt og kynnst Iist
manna á borð við Herman Nitz og
Dieter Roth. „Þá skildi ég að það
var ekki nóg að kunna bara að
teikna í þessum heimi og þarna
varð ég fyrir því áfalli sem ég hefði
annars upplifað að námi loknu,
þ.e.a.s. að það er enginn sem
bíður eftir því að maður
geri næstu myndina."
Framhaldsnám
í New York
Hulda hafði kynnst
manni sínum, mynd-
listarmanninum Jóni
Óskari, og hélt nú ut-
an til New York og
hóf framhaldsnám
við School of Visual
Arts, þar sem Jón
Óskar hafði verið við
nám í eitt ár. í New
York bjuggu þau næstu
fimm árin. Huldu vegn-
aði mjög vel í skólanum
og þar reyndist henni
ekki síst vel hvatning og
stuðningur þáverandi
deildarstjóra
listadeildar-
innar, Jean ? |
Seagull.
Fyrstu
einkasýn-
ingu sína hélt Hulda í galleríi skól-
ans í Soho-hverfinu. Þar sýndi hún
m.a. verk af rollu með fánum sem
skólinn birti heilsíðulitmynd af í
auglýsingarbæklingi sínum næstu
tíu árin. Hún heldur áfram að
vinna með þetta norræna þema í
ýmsum myndum; pólstjarna, ís-
björn, hrafnar, sauðfé - og úr
einkalífinu kom hundurinn Heiða
Berlín, þýskur schaeffer-hundur
sem Hulda og Jón Óskar eignuðust
á þessum tíma. Síðar hafa gælu-
dýrin orðið fleiri, bæði hundar og
kettir, og iðulega hafa þau ratað
inn í verk Huldu. „Heiða Berlín
varð uppspretta að mörgum verk-
um. Fyrir mér er þessi hundur
hinn fullkomni borgari. Hún var
alltaf með mér og fylgdist með
hverri pensilstroku sem ég dró.
Stundum fannst mér ég geta lesið
úr andlitinu hvað henni fannst um
myndirnar."
Á þessum tíma lagði Hulda sig
fram við að hafa verk sín gróf og
um klasturslegt spýtnabrakið í
lágmyndum, sem hún síðan
málar í andstæðum skærum
og dökkum litum, er seint
hægt að segja að þau búi yf-
ir kvenlegum yndisþokka.
Hún segist vilja vera van-
máttug gagnvart viðfangs-
efninu. „Þetta er klastur
vegna þess að ég vil að það
sé svona.“
Hulda litur fremur á sig sem
skúlptúrista en listmálara en á
námsárum hennar í New York
var nýja-málverk þýskra ex-
pressjónískra málai-a að slá í
gegn í listheiminum. „Þessi nýi
expressjónismi hafði ekki
sömu áhrif á mig og á starfs-
systkin mín á Islandi
vegna þess að það
var svo margt ann-
að að gerast í
New York. Fjöl-
breytileikinn þar
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
í SELJAKIRKJU voru aflijúpaðar tvær stórar veggmyndir í miðrými
kirkjunnar eftir Rúnu (Sigrúnu Guðjónsdóttur). Verkin gefur Kvenfé-
lag Seljasóknar til minningar um fyrsta formann félagsins, Aðalheiði
Hjartardóttur. Þema verksins byggist á sálminum „Ó vef mig vængj-
um þínum“ og voru það börn Aðalheiðar: Ingibjörg, Hjörtur, Guðný og
Jóhanna Valgeirsbörn, sem afhjúpuðu verkið við hátíðlega athöfn
föstudaginn 27. mars sl.
Suzuki fiðlu-
nemar með
kökusölu
SUZUKI fiðlunemar við Tón-
listarskóla Keflavíkur og
Njarðvíkur standa fyrir köku-
sölu við Stapann í kvöld og
hefst hún kl. 23.
Ágóði af sölunni rennur í
ferðasjóð nemenda en þeir
halda til Ái’ósa í Danmörku 10.
júní nk. og leika í tónleikahöll
borgarinnar. Þaðan verður
haldið á vestursti’öndina og
haldnir tónleikar sem og í
Óðinsvéum. Síðast verður hald-
ið til Billund í Legoland en þar
verða síðustu tónleikarnir í
ferðinni.