Morgunblaðið - 03.04.1998, Side 39

Morgunblaðið - 03.04.1998, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 39 tíma - skýrsla sérfræðinefndar um fjarskiptamál Morgunblaðið/Halldór GUÐJÓN Már Guðjónsson, formaður sérfræðinefndar um fjarskiptamál, hlýðir á Halldór Blöndal samgönguráð herra á fundi í gær, þar sem niðurstöður nefndarinnar voru kynntar. MILUftROfiR G8 fl RRI TfltSflMBflND 2000 2Ö0S OftCflR: 100 200 100 400 500 1995 HEIMIIB: STCT ond Croportno-rt tRtOICN Húotu u« tmitmbtvuRí.Hm þessi breyting á sér ekki fordæmi í Evrópu og gengur gegn þeim laga- sjónarmiðum sem sterkust hafa verið í álfunni varðandi gjaldtöku. Almenna reglan er sú að gjald er tekið í sam- ræmi við kostnað og er ekkert annað land í Evrópu eitt gjaldsvæði af þess- um sökum. Það sem er þó enn frekar ámælis- vert er það misræmi sem er á gjald- töku vegna talsambands og gagna- flutnings með leigulínum. I því síðar- nefnda er landið ekki eitt gjaldsvæði og er kílómetragjald innheimt af flutningi um gagnalínur. Telja má að þetta ósamræmi í lögum þurfi leið- __________ réttingar við svo að sann- ! á Net- Síthí °R réttlætis sé gætt,“ aldast seSÍa nefndarmenn í , skýrslunni. ars Fámennið felur í sér tækifæri í samtölum við þá erlendu aðila sem komu á fund nefndarinnar kom fram að ísland væri í einstakri stöðu til að taka þátt í þróunarverkefnum á sviði fjarskipta. Aðstæður á Islandi væru betri en hjá flestum öðrum, fá- mennið veitti sérstakan aðgang að heilli þjóð. Öflugt samstarf aðila í menntakerfinu og á fjarskiptamark- aði gæti orðið mikilvæg vogarstöng í uppbyggingu hugbúnaðariðnaðar og menntunar á íslandi. Því megi segja að fámennið feli í sér mikilvæg tækifæri sem skoða þurfí af fullri alvöru með innlendum fyrirtækjum, stofnunum og alþjóðleg- um samstarfsaðilum. íslendingar eru sagðir vel í stakk búnir til að taka þátt í þeim breytingum sem nú eigi sér stað en Netnotkun á íslandi sé með því allra mesta sem gerist, auk þess sem einkatölvueign sé almenn. Áhugi og frumkvæði einstaklinga og fyrirtækja sé ómetanlegt í þessari þróun og á þennan hátt hafi almenn- ingur byggt upp grunninn að upplýs- ingaþjóðfélagi. Fjarskiptastofnun verði efld Lagt er til í skýrslunni að Fjar- skiptastofnun verði styrkt sem sjálf- stæður eftirlitsaðili og að hún ávinni sér trúnað almennings og fyrirtækja. Þar skipti miklu máli hvernig svo- nefnd alþjónusta er skilgreind en þar eru lagðar kvaðir á fjarskiptafyrir- tæki. Hlutverk Fjarskiptastofnunar á einnig að vera að tryggja faglegt eft- irlit og renna stoðum undir heilbrigða samkeppni á fjarskiptamarkaðnum. „Mikilvægast er að mat á raun- kostnaði vegna aðgangs að grunnnet- inu sé faglegt og verð nægilega lágt til að þjónusta aukist. Til þess að stofnunin þjóni sem best tilgangi sín- um leggur nefndin til að lagalegt um- hverfí hennar verði endurskoðað og starfssvið hennar skilgreint betur. Einnig er lagt til að Alþingi verði gefnir auknir möguleikar á að fylgj- ast með fjarskiptamálum með því að ársskýrsla Fjarskiptastofnunar verði lögð fyrir þingið." Þá segir að heimild stofnunarinnar til að beita dagsektum sé mikilvæg til að hraða leiðréttingu í samkeppnismálum. Landssímann skortir tengingu við markaðinn Síðari hluti skýi-slunnar fjallar um Landssímann. Þar segir að fyrirtækið skorti betri tengingu við markaðinn en nú er. „Þjónustuþátturinn hefur verið vanræktur eins og svo oft vill verða hjá fyi-irtækjum sem starfa í skjóli einkaleyfa. Aukin samkeppni gerir kröfu um styrka og ábyrga stjórn. Einnig þarf að styrkja fram- kvæmdastjórnina þannig að fyrirtæk- ið sé vel í stakk búið til að mæta breyttri stöðu á markaðinum." Nefndarmenn telja að til að Lands- síminn geti mætt kröfum um bætta þjónustu og góða ímynd þurfí hann að verða rekinn á framsýnan hátt í sam- starfi við innlend og erlend íyrirtæki við uppbyggingu á fjarskipta- og margmiðlunarþjónustu. Þeir segja til dæmis ekki úr vegi að opna litla skrif- stofu í Silicon Valley í Kaliforníu, vöggu tækniframfara í fjarskiptum. Einnig segja þeir að mætti hugsa sér að Landssíminn tæki upp þróun- arsamstarf við erlend stórfyrirtæki sem stefna að betri og bættri breið- bandsþjónustu þegar fram i sækir. Enn einn möguleiki er nefndur sem sá að taka upp samstarf við alþjóðleg fjarskiptafyrirtæki sem væru tilbúin til að borga mikið fyrir að njóta góðs af tækniþekkingu starfsmanna Landssímans og fá aðgang að háþró- aðri tækniþjóð. Landssíminn styðji menntun og atvinnulíf Nefndin telur að Landssíminn eigi að hafa það að langtímamarkmiði að styðja við mikilvægar stoðir samfé- lagsins, svo sem menntun og atvinnu- líf. „Þannig ætti Landssíminn að hafa það langtímamarkmið að vera lykill- inn að upplýsingasamfélaginu og stuðla að því að gera íslenskt þjóðfé- lag að fyrirmynd í hinum nýja netheimi." Nefndin telur æskilegt að Landssíminn skipaði umsvifalaust vinnuhóp sem ynni að framtíðarsýn fyrir félagið fram til ársins 2008 til að tryggja framgang mikilvægra mála. Nefndin telur ljóst að eftir að Póst- og símamálastofnunin hafi orðið að hlutafélaginu Pósti og síma hf. hafl fyr- irtækinu ekki tekist að losna við þann stofnanabrag sem einkennt hafi íyrir- tækið og það hafi ekki tileinkað sér þá faglegu stjórnarhætti sem vænst var. Hún telur nauðsynlegt að stjórn Landssímans ráði til sín og starfi náið með ráðgjafarfyrirtæki sem hefur viðtæka reynslu af rekstri fjarskipta- fyrirtækja í alþjóðlegri samkeppni. Hlutverk þess ráðgjafarfyi’irtækis yrði að aðstoða Landssímann við að móta skýra framtíðarsýn og endur- skipuleggja starfsemi fyrirtækisins með hliðsjón af breyttri stefnu og breyttum forsendum í rekstri þess. Nefndin telur að starfsmanna- stefna Landssímans verði að miða að því að gera fyrirtækið að eftirsóknarverðum vinnu- stað. Þannig geti það haldið góðum starfsmönnum sem hafí góða þekkingu á starf- semi fyrirtækisins og ekki síður laðað að nýtt starfsfólk sem hafi reynslu og þekkingu á sviði þjónustu og markaðsmála. Það er talið mjög mikilvægt fyrir framtíð Landssímans að fyi’irtækið sæki meira inn á þjónustusviðið og losi sig undan þeirri stofnanaímynd sem ríkisstofnunin Póstur og sími hafði. Nefndin telur að mikilvægt tækifæri til að efla starfsmannahald fyrirtækisins felist í sölu þess. Nefndin hrósar hún Landssíman- um fyrir tæknilega uppbyggingu tal- símakerfisins. Stafræna símkerfið og ljósleiðarakerfið hafi gert Landssím- anum kleift að bjóða betri og hag- kvæmari talsímaþjónustu en í mörg- um ríkjum OECD. Uppbygging far- símaþjónustu hafi tekist mjög vel, þjónustustig GSM- og NMT-kerf- anna sé hátt, útbreiðslusvæðin stór og kostir beggja kerfa vel nýttir. Gæðastig þjónustunnar hafi rennt styrkum stoðum undir notkun Nets- ins sem sé mjög mikil hérlendis. „Sívaxandi netsamskipti kalla á nýjar tæknilegar lausnir því talsam- bandskerfið er í eðli sínu ekki hannað til að sinna þessari þjónustu. Sú stað- reynd að íslendingar hafa nýtt sér þessa tækni meir og fyrr en aðrar þjóðir knýr á um að Landssíminn sé í fararbroddi við uppbyggingu gagna- flutningakerfis sem sinnir kröfum markaðarins." Landssimanum verði ekki skipt Nefndin telur það þjóna best hags- munum almennings, ríkisins og sam- keppninnar að halda Landssímanum óskiptum í einu fyrirtæki í stað þess að skipta honum upp í tvö fyrirtæki sem veiti grunnnetsþjónustu og virð- isaukandi þjónustu, eins og bent hafi verið á. Nefndin telur þó að undan- skilja eigi Breiðvarpsþjónustu Lands- símans. Hana eigi að reka í sérstöku fyrirtæki, sem gæti þó engu að síður verið í eigu Landssímans. Hún telur Breiðvarpið ekki í sam- ræmi við framtíðarsýn nefndarinnar um uppbyggingu fjarskiptakerfis framtíðarinnar. Hún gerir skýran greindarmun á sölu efnis (Breiðvarp) og flutningi þess (Breiðband). Nefnd- in telur þjónustu þá sem Breiðvarpið veitir eiga fullan rétt á sér en leggur áherslu á að sú þjónusta sé rekin sem sjálfstæð eining sem lúti sömu mark- aðslögmálum og samkeppnisaðilar. Landssíminn verði seidur Miðað við stöðu og þróun lagaum- hverfis, tæknimála og markaðsmála finnur nefndin engin sterk rök sem mæla með áframhaldandi eigu ríkis- ins á Landssímanum. Forsendur sölu á hlutabréfum ríkissjóðs eru margar og gerir nefndin tillögur þar að Iút- andi. Frumforsenda söluhugmynda er sú að Landssíminn geti verið sjálf- stætt fyrirtæki þrátt fyrir smæð sína og þurfi ekki að renna inn í stærri fyrirtækj aeiningu. Nefndin telur sölu á bréfum á bréf- um á fjármálamarkaði gera þau að gjaldmiðli fyrir fyrirtækið sem styrki samstarfsmöguleika Landssímans við önnur fyrirtæki, bæði innanlands og á alþjóðlegum vettvangi. Nauðsyn- legt sé að treysta bönd fyrirtækisins við starfsmenn og viðskiptavini með dreifðri eignaraðild. Síðast en ekki síst geti sala bréfa veitt starfsmönn- um hlutdeild í hagnaði fyrirtækisins. Selt verði í þremur áföngum „Flýta þarf sölu Landssímans eins og kostur er. í fyrsta áfanga einka- væðingar er rétt að selja allt að 20% af eign ríkisins en það er talið um það bil það hámark sem ráðlegt sé að bjóða út á innlendum markaði á einu ári. Á þessu stigi verði sérstaklega hugað að sölu til starfsmanna og al- mennings á viðunandi verði. í næsta áfanga verði allt að 25% af eign ríkisins í Landssímanum seld einum eða fleiri kjölfestufjárfestum. Rétt valdir kjölfestufjárfestar munu styrkja verðmætamat á fyrirtækinu í alþjóðlegu útboði auk þess sem lík- legt má telja að hlutafé verði selt við hærra verði til kjölfestufjárfesta en almennt fengist á innlend- um markaði. í þriðja og síðasta áfanga selji ríkið afganginn í eign sinni í fyrii-tækinu, að lágmarki 55%, í alþjóð- legu og innlendu útboði þar sem a.m.k. 15% hlut verði ráðstafað til innlendra fjárfesta. I útboðinu yrði höfuðáhersla lögð á hámarksverð fyrir bréfin. Reikna má með að sala á Landssíman- um taki þrjú ár hið minnsta," segir í skýrslu nefndarinnai’. Nefndin leggur til að ríkissjóður haldi eftir svokölluðu „golden share“, þar sem ríkinu er áskilinn réttur um- fram aðra hluthafa og þar sem til- greint er hvaða ákvarðanir ekki er hægt að taka án samþykkis ríkisins. Mat og eftirlit á raunkostn- aði mikilvægt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.