Morgunblaðið - 03.04.1998, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 45 j.
Framtíð Reykholts
í REYKHOLTI í
Borgarfirði eru miklar
skólabyggingar, frá því
að framhaldsskóli var
þar, nýbyggð kirkja og
Snorrastofa áföst við
hana, sem nú er verið að
innrétta. Þá stendur
gamla kirkjan enn á
staðnum. Reykholt er
einkum nafnfrægt
vegna þess að höfðing-
inn Snorri Sturluson,
sagnaritari og skáld, bjó
þar á fyrri hluta 13. ald-
ar. Snorrastofa er reist í
minningu hans og ætlað
það hlutverk að vera
safn um Snorra og
fræðasetur um norræna sögu og
bókmenntir sem tengjast honum.
Þá er stofunni ætlað að kynna sögu
Reykholts og Borgarfjarðarhéraðs.
í stofunni verður bókhlaða og
gestaíbúð fyrir innlenda og erlenda
fræði- og listamenn.
í kjallara Snorrastofu og kirkj-
unnar er nú rekin upplýsingaþjón-
usta fyrir ferðamenn og haldnar sýn-
ingar til að kynna Snorra Sturlu-
son, sögu staðarins og íslenska
menningu. Þá hefur gistiþjónusta
og greiðasala verið í heimavistum
skólans á sumrum um áraraðir og
hafa þær nú verið seldar á leigu í
þeim tilgangi að þar verði ferða-
mannamóttaka.
Evrópskt menningarsetur
Síðan skólahaldi var hætt í Reyk-
holti hefur komið til álita að nýta
húsakynni skólans fyrir aukna
starfsemi í tengslum við Snorra-
stofu. í ávarpi, sem Björn Bjarna-
son menntamálaráðherra hélt á ráð-
stefnu á menningar-
starfsdegi í Þjóðminja-
safninu 20. september
1996, hreyfði hann
þeirri hugmynd að gera
Reykholt að evrópsku
menningarsetri þar
sem stunduð yrðu mið-
aldafræði og rannsókn-
ir á fomleifum. En
nýjasta upplýsinga-
tækni mundi treysta al-
þjóðleg tengsl þeirra
sem þar ynnu að fræð-
um sínum.
Þótt heimavistir
skólans hafi nú verið
seldar á leigu þarf sá
gemingur ekki að
koma í veg fyrir áform um evrópskt
menningarsetur á staðnum enda
stendur gamla skólahúsið enn ónot-
að. Að vísu þarf að endurbæta það
allmikið svo að það verði nothæft
fyrir slíka stofnun. Reykholt hefur
um áratugi verið fræðslumiðstöð í
Borgarfirði. Staðurinn tengist
órjúfanlega bókmenntaarfi okkar.
Ekkert er því sjálfsagðara en finna
skólahúsunum þar hlutverk í sam-
ræmi við forna frægð staðarins og
þau verði áfram notuðfyrir starf-
semi sem verði bæði Islendingum
og útlendingum til menntunar og
þroska, gagns og gamans.
A síðasta ári komu allar Islend-
ingasögurnar og margir þættir út á
ensku í einu safni. Fjölmargir er-
lendir þýðendur unnu að þessu stór-
virki. Auðvelduðu tölvusamskipti
alla samvinnu ritstjórnarinnar við
þá. Fornsögumar hafa verið þýddar
á fjölda þjóðtungna og stöðugt
koma nýjar þýðingar. Ahuginn á
fornbókmenntunum hefur vakið at-
hygli á íslenskum samtímabók-
menntum á erlendri grund. Víða er-
lendis eiga þýðendur kost á að
dveljast á þýðingarstofum um
nokkurn tíma, fá aðgang að bóka-
safni og tækjum. Væri ekki úr vegi
að veita þýðendum íslenskra bók-
mennta slíka aðstöðu í Reykholti.
Þegar bókasafn Snorrastofu hef-
ur verið tekið í notkun má gera ráð
fyrir því að marga þeirra, sem
stunda íslensk fræði víða um lönd,
Snorrastofa, segir
Ulfar Bragason, gæti
beitt sér fyrir
evrópskum samstarfs-
verkefnum á sviði
miðaldafræði.
fýsi að dveljast þar um tíma og fást
við rannsóknir sínar í sögulegu um-
hverfi. Þótt mönnum vaxi nú ef til
vill í augum fjarlægð frá Reykjavík
verður mikil breyting á samgöngum
við Reykholt þegar Hvalfjarðar-
göngin verða tilbúin. Hin öra tölvu-
þróun auðveldar einnig fræðimönn-
um að vinna fjarri rannsóknarbóka-
safni.
Ákvarðanir hafa verið teknar um
viðamiklar fornleifarannsóknir í
Reykholti. Hljóta þær ekki aðeins
að ýta undir ferðamannastraum
þangað heldur einnig áhuga fræði-
manna á að dveljast þar. Eðlilegt"
væri að komið yrði upp sýningum
þar sem fornleifarannsóknirnar
væru kynntar og skýrðar, svo að
ferðamenn geti fylgst sem best með
þeim. Þá væri æskilegt að koma al-
þjóðlegum fornleifanámskeiðum á
fót í Reykholti enda má gera ráð
fyrir að erlenda fornleifafræðinema
fysi að taka þátt í uppgreftrinum
þar. Síðast en ekki síst mætti halda
fræðaþing í tengslum við fornleifa-
rannsóknirnar og sögu staðarins.
Snorrastofa gæti einnig beitt sér
fyrir evrópskum samstarfsverkefn-
um á sviði miðaldafræða í sam-
vinnu við Háskóla Islands og Þjóð-
minjasafnið. I því sambandi mætti
hugsa sér athuganir á sagnfræði-
ritun miðalda en Heimskringla
Snorra Sturlusonar er þekkt víða
um lönd. Rannsóknir á heiðnum
átrúnaði eru annað verkefni.
Snorra-Edda er ein merkasta
heimildin um heiðna trú. Snorra-
stofa gæti þá hrundið þessum verk-
efnum af stað, efnt til alþjóðlegra
samstarfsfunda um þau og þinga til
að kynna þau en rannsóknirnar
færu fram við háskóla víða í Evr-
ópulöndum.
Snorrastofa og
menningarkynning
Þekking barna og unglinga á
sögu þjóðarinnar og bókmenntum
verður ekki síst aukin með því að
fara um söguslóðir. Benda má á að
til er kort yfir sögustaði í Borgar-
firði. Reykholt mætti því nýta fyrir
orlofs- og fræðsluferðir íslenskra
ungmenna. Sams konar ferðir
mætti einnig bjóða ungmennum frá
öðrum löndum. Konungasögur
Snorra höfða auðvitað sérstaklega
til Norðmanna.
Þótt undarlegt megi virðast hafa
þeir sem stunda ferðaþjónustu hér
á landi lengi haft lítinn hug á að
skipuleggja söguferðir um Island.
tílfar
Bragason
Þó hefur verið unnið nokkurt
brautryðjendastarf í þessum efn-
um í Borgarnesi. Hefur Islending-
um og útlendingum verið leiðbeint
þar um söguslóðir, sögustaðir
merktir og kortlagðir. Nú virðast
fyrirtæki í ferðaþjónustu hins veg-
ar vera að átta sig á að útlendingar
vilja koma í menningarferðir til Is-
lands ekki síður en íslendingar
fara í slíkar ferðir til Evrópulanda
og Ameríku. Háskólar og fyrirtæki
bæði austanhafs og vestan hafa
sýnt áhuga á að skipuleggja sögu-
ferðir um landið. Vafalaust mun
áhuginn vaxa eftir því sem nær
dregur aldamótum þegar minnast
á landafunda norrænna manna í
Vesturheimi. Reykholt væri kjör-
inn dvalarstaður í þess konar ferð-
um, ekki síst eftir að umfangsmikl-
ar fornleifarannsóknir hafa hafist
þar.
Þá væri unnt að skipuleggja
söguhátíðir í tengslum við ferða-
þjónustuna á staðnum, eins konar
Snorrahátíðir. Þar mætti t.d. flytja
leikþætti um ævi Snorra Sturluson-
ar, sem byggðust á íslendinga sögu
Sturlu Þórðarsonar, eða færa kon-
ungasögurnar í leikrænan búning,
flytja miðaldatónlist og efna til
íþróttaleikja að hætti fornmanna.
Víkingahátíðirnar í Hafnarfirði hafa
vakið mikla athygi og margir út-
lendingar hafa sótt þær.
Innan skamms verður ráðinn for-
stöðumaður að Snorrastofu í Reyk-
holti. Er forstöðumanninum ætlað
að skipuleggja starfsemi stofunnar í
samvinnu við stjórn hennar og
koma bókasafni hennar fyrir í húsa-
kynnum hennar. En þegar hann
verður ráðinn er mikilvægt að búið
verði að ákveða til hvers á að nota
gamla skólahúsið enda mun starf-
semi Snorrastofu tengjast öllum
framkvæmdum á staðnum í framtíð-
inni.
Höfundur er forstöðumaður Stofn-
un ar Sigurðar Nordals.
jgönguskor LaSportiva
Bakpokar - Caravan - tSpfnOd - 66“h
[Bíomqd yerðirá-5^900.-
Flísteppi verð frá 4.477.-
Legghlífar, görigustafir, tjaldáýnur og aðrir fylgihlutir
VERSLANIR SKULAGOTU 51 S: 552 7425, FAXAFENI12 S: 588 6600, GLERARGOTU 32 AKUREYRI S:461 3017, VESTMANNAEYJUM S: 481 3466
, <
1