Morgunblaðið - 03.04.1998, Qupperneq 48
48 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Allar gerðir plastpoka,
þegarmikið liggur við.
bakpokar
gönguskór
tjöld
og oport
Reykjavíkurvegi 60 Símar 555-2887 og 555-4487
■t xnzx
AÐSENDAR GREINAR
Fæst hjá öllum bóksölum
Ensk-íslensk orðabók
34.000 ensk uppflettiorð
Islensk-ensk orðabók
35.000 íslensk uppflettiorð
2.200 blaðsíður
Saman í fallegri gjafaöskju
á aðeins kr. 3.990
Gagnleg og glæsileg fermingargjöf,
sem nýtist vel í nútíð og framtíð
Orðabókaútgáfan
að finna lausnir á vandamáli við-
komandi einstaklings í samráði við
hann og aðstandendur. Það getur
verið þörf á að útvega hjálpartæki,
gera breytingar á húsnæði, aðstoða
við að skipuleggja dagleg verkefni
eða útbúa þjálfunaráætlun.
Við þessar aðstæður næst betri
samvinna við aðstandendur og aðr-
ar lykilpersónur í nánasta umhverfi
(kennara, leikskólakennara, heima-
þjónustu, heimahjúkrun o.fl.) Af
þessu leiðir að allar aðgerðir verða
markvissari og árangursríkari.
Dæmi 1: Grunur er um að barn
hafi hreyfi- og sjmjunarvandamál.
Því er óskað eftir mati og ráðgjöf
iðjuþjálfa. Hann skoðar barnið í
daglegu umhverfi þess; á heimili
eða í leikskóla/skóla, metur getu
barnsins með próftækjum og fær
upplýsingar frá foreldrum og kenn-
urum. Ut frá niðurstöðum eru síðan
útbúnar tillögur að æfingum til
notkunar heima og í skóla ásamt
leiðbeiningum fyrir kennara varð-
andi lausnir í skólastofunni. Með
þessum aðgerðum má beina barn-
inu á rétta braut og gefa því stuðn-
ing sem það hefur þörf fyrir.
Dæmi 2: Ung fótluð kona er ný-
flutt í eigin íbúð. Heilsugæsluiðju-
þjálfinn hittir konuna á heimili
Það er mikilvægt, segír
Ingibjörg Pétursddttir,
að búa vel að heilsu-
gæslunni, heimahjúkr-
un og allri heima-
þjónustu
hennar og kynnir sér þær aðstæður
sem hún býr við. I samvinnu við
konuna er metið hvernig stuðla
megi að því að hún verði sem mest
sjálfbjarga og hvort þörf sé á hjálp-
artækjum og húsnæðisbreytingum
eða öðrum úrræðum. Ef þörf er á
hjálpartækjum er sótt um styrk til
að kaupa á þeim til Tryggingastofn-
unar ríkisins. Þegar nauðsynleg
hjálpartæki hafa verið samþykkt og
útveguð fylgir iðjuþjálfinn málinu
eftir með því að þjálfa stúlkuna í
notkun hjálpartækjanna og kenna
henni vinnutækni sem hentar.
Vera má að unga stúlkan þurfi að-
stoð við að finna hvernig hún getur
nýtt sem best þá getu sem hún hef-
ur. Þá getur iðjuþjálfinn aðstoðað
hana við að finna sínar sterku hliðar
°g byggja á þeim. Oft er hægt er að
nýta ýmsar lausnir í umhverfinu
sem gætu orðið henni til stuðnings.
Niðurstaða
Það er orðið mjög tímabært að
fylgja þeirri þróun sem orðið hefur
víða erlendis, að flytja þjónustu
iðjuþjálfa meira út í umhverfi þeirra
einstaklinga sem á henni þurfa að
halda. Það er árangursríkara og
fjárhagslega hagkvæmara og hlýtur
því að vera það sem koma skal.
Höfundur er heilsugæsluiðjuþjálfí á
Heilsuverndarstöðinni í Reykjavík.
Falleg oggagnleg fermingargjöf
Iðjuþjálfun utan
stofnanaveggja
NU STENDUR yfir
eins árs tilraunaverk-
efni á vegum heilbrigð-
is^ og tryggingamála-
ráðuneytisins um iðju-
þjálfun í heilsugæslu.
Verkefnið mun standa
yfir fram í september á
þessu ári á heilsugæslu-
stöðvunum í Mjódd og
Sólvangi í Hafnarfirði.
Þrír iðjuþjálfar í sam-
tals einu og hálfu stöðu-
gildi vinna að fram-
kvæmdinni.
Iðjuþjálfar í heilsu-
gæslu - hvers vegna?
Iðjuþjálfar eru ung
stétt og starfsvið þeirra óljóst
mörgum. Því má vera að einhverjir
velti fyrir sér hvað iðjuþjálfar séu
að vilja í heilsugæsluna.
Iðjuþjálfar eru heilbrigðisstétt.
Iðjuþjálfar sinna fólki á öllum aldri,
börnum og fullorðonum sem vegna
sjúkdóma eða áfalla eiga í erfiðleik-
um í daglegu lífi.
Iðjuþjálfar skoða og meta ástand
og aðstæður þess sem á við erfið-
leika að etja og veita síðan ráðgjöf
WliÍUMAgi-
llilNDUi S
PÁSKATILBOD
og koma með úrræði í
samræmi við það. Ur-
ræðin miðast við að
gera þá sem búa við
skerta getu eins færa
og kostur er að lifa
sjálfstæðu og inni-
haldsríku lífi.
Flestir þeirra 80
iðjuþjálfa sem nú starfa
á Islandi hafa fram að
þessu aðallega starfað
innan hefðbundinna
heilbrigðisstofnana svo
sem á sjúkrahúsum og
endurhæfingarstofnun-
um. Því hefur þjónusta
iðjuþjálfa fyrst og
fremst staðið þeim til
boða sem liggja inni á slíkum stofn-
unum.
Nýjar áherslur -
nýjar leiðir
Stefna núverandi heilbrigðisyfir-
valda er að færa þjónustuna frá
stofnunum inn á heimili fólks sem
þarf á henni að halda. Það er því
mikilvægt að búa vel að heilsugæsl-
unni, heimahjúki-un og allri heima-
þjónustu.
Það er einnig nauðsynlegt að
opna nýjar leiðir, eins og gert er
með þessu tilraunaverkefni um iðju-
þjálfun í heilsugæslu. Ráðning iðju-
þjálfa á heilsugæslustöðvar auð-
veldar aðgang hins almenna borg-
ara að þjónustu iðjuþjálfa.
Það má geta þess að nýlokið er
öðru tilraunaverkefni, Sjúkraþjálf-
un í heilsugæslu, og vonandi opnast
leiðir fyrir fleiri stéttir í heilsugæsl-
una í ljósi nýrrar stefnumótunar.
Öflug þverfagleg samvinna er eitt af
því sem skilar árangri.
Ingibjörg
Pétursdóttir
#Plastos
Umbúðir hf. V
Suöurhrauni 3 • 210 Garöabæ
«8«5-6500
Meðal iðjuþjálfa hefur um margra
ára skeið verið rætt um hvaða leið
skuli farin til að færa iðjuþjálfun
meira út í samfélagið, út fyrir veggi
stofnana. Ýmsar leiðir komu til
greina en sú leið að sækjast eftir
ráðningu iðjuþjálfa í heilsugæsluna
varð fyrir valinu. Enda er það sam-
kvæmt lögum um heilbrigðisþjón-
ustu að iðjuþjálfun skuli veitt innan
heilsugæslunnar auk annarrar þjón-
ustu. Vinna iðjuþjálfa úti í samfélag-
inu samræmist vel þeirri hugmynda-
fræði sem fagið byggist á. Það er að
hafa heildarsýn, að horfa á heildar-
aðstæður einstaklingsins og samspil-
ið milli hans og umhverfisins.
Iðjuþjálfi í heilsugæslu kemur inn
í daglegt umhverfi þess sem til hans
leitar, á heimili hans eða
skóla/vinnustað. Þar eru aðstæður
metnar og iðjuþjálfinn vinnur að því
Góöar hugmyndir aö
Ferm ingargjö fu m
• Skartgripir og hringir
• Styttur
• Leirvörur
• Myndir í fallegum
römmum
• Bókastoðir
• Speglar,
smáir sem stórir
• Kiukkur
• Dúkkur
• Púðar
• Lampar
• Fatastandar
• Húsgögn,
kommóður,
snyrtiborð ofl. ofl.
íBðf
KRISTALL
Kringlunni og Faxafeni
S. 568 9955 S. 568 4020
Iðjuþjálfun
í heilsugæslu