Morgunblaðið - 03.04.1998, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 03.04.1998, Qupperneq 50
50 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 ■^iiiiiii —— .......... MORGUNBLAÐIÐ _________AÐSENPAR GREINAR Nv skólastefna NY skólastefna hefur .. litið dagsins ljós. Henni er ætlað að vera grund- völlur endurskoðunar aðalnámskráa fyrir grunnskóla og fram- haldsskóla. Stefnan hef- ur verið kynnt undir kjörorðunum „Enn betri skóli. Þeirra réttur - okkar skylda“. Ailflestir hljóta að vera sammála um að kynning stefn- * >Unnar og raunar allt vinnuferlið við endur- skoðun aðalnámskránna sé mjög til fyrirmyndar. Auk þeirra markmiða menntamálaráðuneytis- ins með kynningunni að efna til umræðu og fá fram góðar ábendingar má vænta að þetta ferli sé til þess fallið að tryggja meiri sátt um endanlega gerð aðalnámskránna svo og um framkvæmd þeirra. Framkvæmd stefnunnar er jú það sem öllu máli skiptir. Réttur nem- enda á liðnum árum, hvort sem er samkvæmt grunnskólalögum eða gildandi aðalnámskrá, hefur ætíð takmarkast af því fé sem til skólans ■^er varið. Því er rétt að líta til þess hvort hún krefst aukinna útgjalda og þá úr vasa hvers. Einnig er vert að spyrja hvers vegna foreldrar hafí ekki sótt kynningarfundi ráðherra í meira mæli. Fáir foreldrar sækja fundina Kynningarfundir ráðherra munu fyrst og fremst hafa verið ætlaðir al- menningi, foreldrum a.m.k. ekki síð- ur en skólamönnum. Það sem af er hafa þó fáir foreldrar sótt þessa ^►fundi heldur hefur mest borið á skólafólki, - skólanefnd- armönnum, skólastjór- um og kennurum, - að ógleymdum frambjóð- endum til sveitarstjóm- arkosninga sem víða munu hafa sótt fundina. Af hverju hafa svo fá- ir foreldrar sótt þessa fundi? Hvað fundinn í Reykjavík varðar er auðvitað nærtækasta skýringin sú að hann var auglýstur bæði seint og illa í fjölmiðlum. En sú skýring ein er ekki viðhlítandi. I þessu sam- hengi er vert að hafa það hugfast að fæstir foreldrar þekkja efni núgildandi aðalnámskráa enda hefur til þessa lítið verið gert til að kynna almenningi forsendur skólastarfs. Einhverjir velta því líklega ekkert fyrir sér hvort eða hvemig ný skóla- stefna varði sig og sitt eða sín börn og margir eiga fullt í fangi með að takast á við verkefni og vandamál tengd daglegri skólagöngu barna sinna og finna í stefnunni ekkert sem skírskotar til þeirra. Flest þau mál sem brenna heitast á fólki varðandi skólann heyra jú undir fram- kvæmdavald, fjárhagsáætlanir og sjálfsforræði sveitarféiaganna, svo sem aðstaða skóla, skólaakstur, fjöidi bama í bekk, sérkennsla, sál- fræðiþjónusta og hæfni kennara. Fagleg yfirstjóm og eftirlitsskylda menntamálaráðuneytisins er mun fjarlægari. Framkvæmd nýrrar skólastefnu Öllum sem hafa kynnt sér hina nýju skólastefnu má vera Ijóst að hún er metnaðarfull og markmið Ný skólastefna er metnaðarfull og mark- mið hennar háleit. En Jónfna Bjartmarz spyr hvort raunhæft sé að ætla að hún komi til framkvæmda að ein- hverju eða öllu leyti. hennai- háleit. En er raunhæft að ætla að hún komi til framkvæmda að öllu eða einhverju leyti. Á hvers valdi og ábyrgð er framkvæmd hennar er spurt og ekki að ófyrir- synju. Vissulega eru ýmsar ástæður til bjartsýni um framkvæmdina, en ef við leyfum okkur að líta um öxl er hætt við að dragi úr henni. Við höf- um áður séð háleit markmið skóla- starfs í grunnskólalögum, sér- kennslureglugerð og núgildandi að- alnámskrá, svo sem um að hver nem- andi fái kennslu við hæfi. Þau mark- mið hafa ekki náðst og fjárskorti er kennt um. Við minnumst yfirlýsinga ýmissa sveitarstjórnarmanna sl. haust í tengslum við kjaradeilu kennara. Ur sömu átt hafa komið lík viðbrögð við nýju skólastefnunni. Haft er eftir formanni sambands ísl. sveitarfélaga í Mbl. 10. mars sl. að ljóst sé að auk- inn kostnaður verði af hinni nýju skólastefnu og að fulltrúar ríkis- valdsins og sveitarfélaga verði að semja um nýja tekjustofna til sveit- arfélaganna í samræmi við þann við- bótarkostnað sem endurskoðuð aðal- námskrá hefur í fór með sér fyrir rekstraraðila skólanna. Sveitarfélög- in hafi lagt mörg hundruð milljónir króna til rekstrar grunnskólans um- fram lögbundnar skyldur sínar og það hafi aukist til muna eftir færslu hans frá ríki til bæjar og sveitarfé- lögin geti einfaldlega ekki meira. Menntamálaráðherra, sem hefur margsagt að hann telji ekki stærsta vanda skólakerfisins stafa af fjár- skorti, segir á hinn bóginn um nýju skólastefnuna að hún krefjist ekki aukinna útgjalda sveitarfélaganna. Hann vísar þá til þess að henni fylgi ekki aukinn kennslustundafjöldi um- fram það sem gert var ráð fyrir við yfirfærslu grunnskólans til sveitarfé- laganna. Umbætur og breytingar. Hver borgar? í skólastefnubæklingnum er talað um „nauðsynlegar umbætur" og sagt að menntun kennara muni taka mið af námskránum, gera þurfi átak til að tryggja endurmenntun þeirra í sam- ræmi við nýjar kröfur og að öflugt átak í námsgagnagerð sé einnig knýj- andi. Ljóst er að þetta heyrir undir menntamálaráðuneytið og ríkissjóð, endurmenntunin að vísu aðeins að hluta. Helstu markmið hinnar nýju stefnu, sem kynnt eru sem breyting- ar, kalla m.a. á aukna námsráðgjöf, kennslu í dansi, leikrænni tjáningu og nýsköpun, kennslu á Iyklaborð og í ritvinnslu allt frá 4. bekk. Allt þetta leggur aukin úgjöld á sveitarfélögin og „greining á sérþörfum nemenda strax í upphafi skólagöngu" mun líka kosta sitt ef af framkvæmd á að verða. Aðstaða foreldra þeirra barna sem Jónína Bjartmarz glíma við þroskafrávik og námserfið- leika hefur víða verið óskaplega erfið og í mörgum tilvikum löng þrauta- ganga í bið eftir greiningu og að henni fenginni hefur tekið við bar- átta fyrir úrbótum. þetta hefur ekki bara skapað vandamál fyrir þau börn sem þurfa sérstuðning heldur einnig fyrir bekkjarsystkini þeirra og allt bekkjarstarfið. Meðan öll 6 ára börn byrja samtímis í skóla án tillits til mismunandi þroska þeirra og getu og setjast í blandaða bekki er rík þörf fyrir góða og skilvirka greiningu á mismunandi þörfum þeirra og þroska. Þau eiga öll rétt á að fá jöfn tækifæri til náms við sitt hæfi. Þörf er á greiningu jafnt þegar um námserfiðleika er að ræða og börn með afburðagetu að ógleymd- um fullnægjandi úrræðum í öllum tilvikum, sem hlýtur að vera átt við þai' sem segir í kynningarbæklingi „bregðast við áður en í óefni er kom- ið“. Menntamálaráðherra hefur rök- stutt þá „breytingu" sem lýtur að greiningu sérþarfa með þvi að það kosti meira að láta þetta ógert en að beita tækum úrræðum. Þetta viðhorf lýsir meh-i framsýni en við eigum að venjast í umræðu um skólamál og við verðum bara að vona að það eigi eftir að festast í sessi. Við skulum hafa í huga við mat og vægi okkar á kostn- aði við þessa breytingu að á hinni vog- arskálinni sitja m.a. 30% nemenda sem falla á grunnskólaprófi, 45% nemenda sem falla út úr framhalds- skóla að ógleymdum öllum með brotna sjálfsmynd og sjálfstraust. Að lokum leyfi ég mér að vera bjartsýn og vona að allar góðar breyt- ingar sem ný skólastefna boðar verði að veruleika í framkvæmd, en kafni ekki í deilum sveitarfélaganna og rík- isvaldsins um útgjöldin. En fari svo skal engan undra þótt foreldrar fjöl- menni ekki á fundi um stefnubreyt- ingar í skólamálum. Höfundur er lögmaður og formaður landssamtakanna Heimili og skóli. ÍSÍte jjsg fes Urður Gunnarsdóttir fjallar um Los Angeles í blaðinu á sunnudaginn. stofsw’j!1.: lumKM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.