Morgunblaðið - 03.04.1998, Page 64
1
64 FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
i
I
I
Málþing um
stöðu upplýs-
ingarinnar
FÉLAG um átjándu aldar fræði
heldur málþing sem ber yfir-
skriftina Staða upplýsingarinnar
í sögu Islands laugardaginn 4.
apríl í Þjóðarbókhlöðu, fyrir-
lestrasal á 2. hæð. Málþingið
hefst kl. 13.30 og því lýkur um
kl. 16.30.
A málþinginu verður athygl-
inni beint að ýmsum efnum sem
varða stöðu stefnunnar í þjóðar-
sögunni. Flutt verða fjögur er-
indi: Ingi Sigurðsson, prófessor í
sagnfræði við Háskóla íslands:
Hverju breytir upplýsingin á ís-
landi? Hrefna Róbertsdóttir
sagnfræðingur: Hugmyndir um
hagstjóm á 18. öld. Guðmundur
Hálfdánarson, dósent í sagn-
fræði við Háskóla Islands: Frá
forræði til lýðræðis: Ahrif upp-
lýsingarstefnu á íslensk stjóm-
mál. Hjalti Hugason, prófessor í
kirkjusögu við Háskóla íslands:
Upplýsingin og upphaf nútímans
í íslenski-i kirkjusögu.
Flutningur hvers erindis tek-
ur um tuttugu mínútur. Að er-
indunum loknum fara fram pall-
borðsumræður með þátttöku
fyrirlesara. Fundarstjóri er
Svavar Sigmundsson dósent.
Veitingar verða fáanlegar í veit-
ingastofu í Þjóðarbókhlöðu, 2.
hæð. Öllum er heimill ókeypis
aðgangur.
■ HRESS líkamsrækt í Hafnar-
firði býður nú upp á námskeið
sem ber titilinn Framtíð í fínu
formi. Umsjónarmaður verður
Helga Bergsteinsdóttir, íþrótta-
og heislufræðingur, sem hefur
sérhæft sig í að vinna með ein-
staklingum sem eiga við yfirvigt
að stríða. Næringarferli hvers
einstaklings er skoðað á annan
hátt en áður með nýju tölvufor-
riti. Forritið gefur upplýsingar
um næringar- og bætiefnainni-
hald í þein-i fæðu sem einstak-
lingurinn neytir. Ekki eru ein-
ungis gefnar upplýsingar um
hvemig á að borða og grennast
heldur einnig hvernig nýta má
kraft hugans til að ná settu
markmiði. Námskeiðið stendur í
10 vikur og hefst 17. apríl nk.
I
1
Ný
L sending
nfh \ v: Stuttar og síöar kápur Sumarhattar
1 Páskatilboð 1 1 Sumarúlpur kr. 7.900. |
Opið laugardag 10—16.
1 -1 \o^HU5ID
Mörkinni 6, sími 588 5518.
OROBLUl
Kynning
afsláttur
öllum OROBLU
sokkabuxum
föstudaginn
3. apríl frá
kl. 14.00 - 18.00.
OROBLU*
leggur línurnar
Breiðholtsapótek
Mjódd
S: 557 3399
í DAG
VELVAKiODI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Frábær
skemmtun
UNDANFARNAR vikur
hafa danskennarar frá
Danssmiðju Hermanns
Ragnars og Dansskóla
Auðar Haraldsdóttur, þau
Auður, Ólafur Geir, Jó-
hann Örn og Unnur Berg-
lind, kennt 9 ára börnum í
9 grunnskólum á höfuð-
borgarsvæðinu.
Síðastliðinn sunnudag
buðu kennaramir öllum
nemendum skólanna
ásamt gestum á „danshá-
tíð“ á Broadway og gestir
fengu að sjá sýnishorn af
danskennslunni.
Þessi skemmtun var al-
veg sérstaklega vel heppn-
uð og gaman var að sjá öll
þessi börn, stelpur og
stráka, hvað þau nutu sín
og skemmtu sér vel með
skólafélögum sínum og
ekki síður þegar mamma
og pabbi tóku þátt í dans-
inum.
Þetta var verðugt fram-
tak hjá danskennurum og
eiga þeir þakkir skilið. Þar
sem ég var gestur á þess-
ari skemmtun sá ég svo
sannarlega hvað dansinn
gefur mikla gleði og ég
skora á Menntamálaráð að
gera dans að skyldunáms-
grein hjá 7-9 ára börnum í
grunnskólum landsins.
Halldóra
Sigurðardóttir.
Góð grein
STEFÁN hafði samband
við Velvakanda og vildi
hann taka undir það sem
Njörður P. Njarðvík skrif-
ar í Morgunblaðinu í gær,
miðvikudaginn 1. aprfl, um
spillingu. Segist hann
sjálfur hafa verið spilltur
en sé hæstánægður með
þessa grein, hún hafi verið
tímabær.
Tapað/fundið
Lyklar á VÍS-kippu
týndust
3 LYKLAR á rauðri VÍS-
kippu týndust seinni part-
inn í febrúar í Mosfellsbæ.
Skilvís finnandi skili
lyklunum til lögreglunnar í
Mosfellsbæ.
Froskalöpp fannst
á Alftanesi
FROSKALÖPP fannst í
fjörunni á Alftanesi. Upp-
lýsingar í síma 565 1125.
Dýrahald
Svartur fress
í óskilum
SVARTUR fress, með
svarta ól og brotið gult
spjald, fannst í Vogahverfí
22. mars sl. Þeir sem kann-
ast við kisa hafi samband
við Kattholt.
SKAK
llm.vjun Margcir
Pétursson
Staðan kom upp á New
York Open-skákmótinu, sem
lauk í síðustu viku. Rússinn
Gennadi Sagaltsjík (2.550)
var með hvítt, en Vladímir
Akopjan (2.660) frá Armeníu
hafði svart og átti leik. Hvít-
ur lék síðast 31. Ha5-b5 til
að reyna að létta á stöðunni,
en það kom að litlu
gagni:
31. - Hxg2+! 32. Kxg2
- Rxe3+ 33. Kg3 -
Rfl+! 34. Kg2 - Dxf4
(Svartur er kominn með
drottningu sína og tvo
riddara í návígi við
hvíta kónginn, sem fær
enga björg sér veitt) 35.
Bf2 - Re3+ 36. Bxe3 -
Df3+ og hvítur gafst
upp, því hann er mát í
næsta Ieik: 37. Kgl -
Rh3 mát.
64 stórmeistarar voru að
þessu sinni með á hinu ár-
lega New York Open-móti.
Amienar voru mjög sigur-
sælir. Minasjan sigraði
nokkuð óvænt með 8 v. af 10
mögulegum. Lputjan varð
annar með 7!4 vinning og
þeir Akopjan og Rússinn
Episín deildu þriðja sætinu
með 7 v.
Skákþing íslands 1998,
áskorenda- og opinn flokk-
ur. Keppnin hefst á morgun
kl. 14 og stendur til 11. apríl.
Frí á sunnudaginn og skír-
dag.
!~I
Wfffr ^ll! ^ ^
R R HfP A SfP
’^W//M^^^W////,^
SVARTUR leikur og vinnur
HÖGNI HREKKVÍSI
Pennavinir
SEXTÁN ára ungverskur
piltur með áhuga á íslensk-
um eldfjöllum og goshver-
um, sundi, hjólreiðum, safn-
ar frímerkjum og póstkort-
um, tölvum og mörgu
fleiru:
Jozsef Lieszkovszky,
Budapest,
Kecses utca 10,
1173,
Hungary.
ÁTJÁN ára japönsk s túlka
með margvísleg áhugamál:
Mami Furutani,
Soya 2-27-20,
Hirakata-shi,
Osaka-fu,
573-0113 Japan.
SEXTÁN ára indónesísk
stúlka með áhuga á kvik-
myndum, tónlist, sundi
o.m.fl.:
Ervi,
K.H.A. Dahlan no:4,
Lubuk Pakam,
20512 Sumut,
Indonesia.
LITHÁI sem safnar frí-
merkjum óskar eftir að
skipta á íslenskum merkj-
um og litháískum, pólskum
og rússneskum. Skrifar
bæði á ensku og þýsku:
Aleksandras Dreimanas,
ab. dezute 21,
2000 Vilnius,
Lithuania.
ÁTJÁN ára franskur piltur
sem hefur nýlega lokið
ferðalagi um Island óskar
eftir pennavinum á svipuð-
um aldri:
Nicolas Teindas,
19600 Estivals,
France.
Víkverji skrifar...
AÐ ER gaman að koma í Laug-
ardalinn og skoða hina nýju
Skautahöll sem þar er risin. Þetta
er veglegt mannvirki, sem á eflaust
eftir að verða mikil lyftistöng fyrir
skautaíþróttirnar.
Nú vantar bara tvennt í viðbót í
Laugardalinn til þess að hann megi
teljast fullkomið íþróttasvæði, yfir-
byggða sundlaug og stóra knatt-
spymu- og frjálsíþróttahöll.
Knattspyrnumenn okkar hafa
lengi beðið eftir slíkri höll og Vík-
verja sýnist að ekki verði frekari
framfarir hjá íslenzkum knatt-
spymumönnum fyrr en hægt verð-
ur að æfa við góðar aðstæður allan
ársins hring.
Yfírbyggð íþróttahöll ætti einnig
að nýtast frjálsíþróttamönnum okk-
ar en búast má við stórauknum
áhuga á þeirri íþróttagrein í kjölfar
stórglæsilegs árangurs Völu Flosa-
dóttur.
Víkverji tekur undir með fyrrver-
andi landsliðsþjálfara í grein hér í
blaðinu nýlega að bæta þurfi að-
stöðu frjálsíþróttafólks. En ekki
dugir fyrir hann að nota þau rök að
Vala Flosadóttir sé í nokkurs kona
útlegð í Svíþjóð vegna aðstöðuleysis
á íslandi. Hún á heima í Svíþjóð og
þess vegna æfir hún þar.
xxx
ÍKVERJI átti erindi á bíla-
verkstæði Heklu í vikunni.
Hann skildi bílinn eftir að morgni
dags og spurði hvort ekki væri
hægt að fá lánaðan síma til að
hringja í leigubíl. Það er alveg
óþarfi, Heklurútan skutlar þér
þangað sem þú þarft að fara, sagði
maðurinn sem tók við bílnum.
Heklurútan renndi uppað og ung
kurteis stúlka skutlaði Víkverja í
vinnuna. Kom upp úr dúmum að
þarna var um að ræða splunkunýja
þjónustu fyrirtækisins sem eflaust
mun mælast mjög vel fyrir hjá við-
skiptavinunum, enda alveg til fyrir-
myndar.
XXX
ATHYGLISVERÐAR upplýs-
ingar koma fram í nýjasta
fréttabréfi lyfjafyrirtækisins
GlaxoWelIcome. Þar segir að nýj-
ustu rannsóknir bendi til þess að
kvenkyns fóstur séu farin að æfa
talvöðvana þegar í móðurkviði.
Læknar við sjúkrahús í Belfast
könnuðu mun kynjanna á fóstur-
stigi. Einn munurinn sem þeir
fundu var að kvenkyns fóstur
þroskuðust mun fyrr hvað varðar
munnhreyfingar. Læknar telja
þetta benda til aukins hæfileika til
að sjúga og komast af. „Við karl-
menn hjá GW teljum hins vegar að
þetta bendi einungis til óstöðvandi
munnræpu kvenþjóðarinnar allt frá
getnaði!“ segir í fréttabréfinu. Ekki
munu nú allir taka undir þessa
skoðun ef að líkum lætur.